KSK-blaðið - 01.12.1991, Side 2
KSK - BLAÐIÐ
)KU blaðið
IWIl 1.TBL. DESEMBER 1990
Útgefandi: ..........
Ritstjóri:...........
Ábyrgðarmaöur: ......
Aðstoð við ritstjórn:
Litgreining: ........
. Kaupfélag Suðurnesja
. Páll Ketilsson
. Guðjón Stefánsson
. Víkurfréttir
. Litgreining sf. Kópavogi
Prentun og frágangur: .... Prentsmiðja Grágás
Blaðinu er dreift í 5000 eintökum á hvert heimili á Suöurnesjum
Guðión
Stefánsson.
kaupfélagsstióri
Breytingatímar
iklar breytingar hafa oróið á rekstri Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga að und-
anförnu. Sambandinu hefur verið skipt upp,
og deildum þess breytt í hlutafélög.
Pað hefur verið erfið ákvörðun fyrir
marga samvinnumenn að standa að og styðja slíkar
breytingar.
Gagnrýni á Samvinnuhreyfinguna, félagsform henn-
ar, störf og framkvæmdir hefur verið töluverð frá upp-
hafi. Gagnrýni er að vísu nauðsynleg, en á síðari árum
hefur hún orðið úr hófi og jafnfram verið einstaklega
neikvæö. Samvinnumenn hafa alla tíó haldið því frarn
að féiagsform savinnufélaga væri eitt hið besta og lýð-
ræðislegasta sem þekkist. Samvinnumenn eru hinsvegar
nú að bregðast við nýrri þjóðfélagsgerð og gjörbreyttu
rekstrarumhverfi, með geysi háum raunvöxtum og stór-
aukinni samkeppni um fjármagn. Fjármögnun fyrirtækja
með hlutabréfasölu hefur aukist gífurlega að und-
anförnu. I samkeppninni um það fjármagn hefur Sam-
vinnuhreyfingin setið hjá þar til nú. Það er þvi vonandi
aö þessum nýju félögum gangi vel að hasla sér völl á
þessum sístækkandi hlutabréfamarkaói.
í þeim breytingum sem sjáanlega verða á íslenskum
samvinnufélögum á næstu árum verðum við að reyna
aö gæta þess að hugmyndafræðilegi grunnurinn breytist
ekki. Hann verði eftir sem áóur undirstaðan og veiti
samvinnumönnum áfram styrk til góðra verka, þó
rekstrarformið breytist.
Samvinnuhreyfingin verður að sjálfsögðu að temja sér
sveigjanleika til að geta á hverjum tíma lagað starf sitt
að líðandi stundu með þarfir framtíðarinnar í huga.
Guðjón Stefánsson
Frá þjónustunámskeiði starfsfólks Samkaups í K-17.
Þarflegt þjónustunámskeið
Kaupfélag Suðurnesja stóó fyrir þjónustunámskeiði fyrr í haust
fyrir starfsmenn Samkaups. Námskeiðið fór fram í Veitingahúsinu
K-17. Leiðbeinandi var Gísli Blöndal. Kom Gísli inn á marga þætti
sem starfsfólk í verslunum þarf að vita af og kunna, - allt til að
þjóna viðskiptavinum betur.
Starfsfólkið hlustaði vel á erindi Gísla Blöndal.
Afsláttarkort og sértilboð
í Sandgerði,
Garði og Vogum
í haust hafa tvisvar verið gefin út afsláttarkort til féiagsmanna
í Sandgerði, Garði og Vogum. Pá hafa margvísleg tilboð verið
í gangi. Áttatíu og fimrn nýir félagar gengu í Kaupfélagið á
laessum tíma.
Heildarafsláttur í þessum þrem verslunum mun verða um
750.000 krónur. Sérstakt jólatilboð er nú í gangi í þessum
búðum sem gildir til 24. desember.
Góð afmælisterta
Eins og undanfarin ár héltSamkaup upp á afmæli sitt með myndarlegum
hætti. Verslunin var 9 ára 18. nóvember sl. og bauð af því tilefni upp á mörg
og myndarleg afmælistilboð. En ómissandi í hverju afmæli er sjálf af-
mælistertan. Sigurjónsbakarí bakaói Ijúffenga risarjómatertu í tilefni dagsins
og viðskiptavinir Samkaups fengu glaðning þegar þeir komu að versla á af-
mælisdeginum, mánudaginn 18. nóvember.
2