KSK-blaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 8
Næsta
strik í
Samkaup
KSK - BLAÐIÐ
n afin er undirbúningsvinna
að uppsetningu strikamerkja-
kerfis í Samkaup. Stefnt er að
því að taka kerfið í notkun í
marsmánuði 1992. Milli 5 og
6 þúsund vöruflokkar eru í
matvöru í Samkaup og því er
mikil vinna við að skrásetja
þær allar.
í framtíðinni er einnig stefnt
að því að strikamerkja búsá-
höld og fatnað í Samkaup.
Frá undirritun samningsins viö Einar J. Skúlason. Fulltrúi kaupfélaganna og jafnfram KSK,
Skúli Þ.Skúlason er annar frá hægri.
Strikamerkjakerfi í Kaup-
félagsverslanir frá EJS
Fyrr á þessu ári gerði Sam-
starfsnefnd Samvinnuverslana
útboð vegna fyrirhugaðra
kaupa tíu kaupfélaga á af-
greiðslukerfi. Kerfi frá Einari J.
Skúlasyni hf., EJS, var sett upp
í Borgarnesi til prófunar. Eftir
ítarlegar prófanir var ákveðið
að ganga til samninga við EJS
og var samningurinn und-
irritaður þann 11. október sl. I
fyrstu munu tuttugu verslanir
víðsvegar um landið taka kerf-
ið í notkun, þar með verslanir
Kaupfélags Suðurnesja.
Um er að ræða NCR af-
greiðslukassa ásamt strik-
amerkjalesurum og eru kass-
arnir af sömu gerð og Hagkaup
festi kaup á fyrr á árinu. Það
verða því á þriðja hundrað
slíkir afgreiðslukassar í notkun
hér á landi. Kassar kaup-
félaganna munu tengjast Vict-
or tölvum sem sjá um úr-
vinnslu gagna s.s. uppgjör,
birgðaskráningu, verð-
lagningu, viðskiptamanna- og
félagsskrá o.fl. Það er fyr-
irtækið Rökver sem hannaði
hugbúnaðinn í samvinnu við
EJS.
Strikamerktar vörur í Sparkaup:
Meira öryggi og
hraðari þjónusta
Nýtt afgreiðslukerfi hefur
verið sett upp í Kaup-
félagsversluninni Sparkaup í
Keflavík, svokallað strik-
amerkjakerfi. „Þetta er fram-
tíðin í versluninni, það er eng-
in spurning. Kerfið býður upp
á meira öryggi bæði fyrir
verslunina og kúnnann og
þjónustan verður hraöari"
sagði Kristján Hansson, versl-
unarstjóri í Sparkaup.
Að sögn Kristjáns er stefnt að
því að allar vörur verði strik-
amerktar. Verðmerking á
hverri vöru dettur nú út en
verður í staðinn í hillunni þar
sem varan er geymd ásamt
vöruheiti.
Nýja strikamerkjakerfið,
sem er frá Einari J. Skúlasyni,
býður upp á ýmsa möguleika.
Hver viðskiptavinur fær út-
prentaðan strimil með öllum
helstu upplýsingum um það
sem hann var að kaupa, hvar
og hvenær ásamt nafni af-
greiðslustúlkunnar. Verslunin
getur fylgst nákvæmlega með
hvernig hver vörutegund selst,
á hvaða tíma mest viðskipti
eiga sér stað svo eitthvað sé
nefnt. Þá mun Sparkaup tengja
lager sinn inn á þetta nýja kerfi
fljótlega eftir áramótin. Þannig
mun verða hægt að fylgjast
mjög vel með lagerbókhaldi
og kerfið mun þá útbúa
vörupantanir.
„Þetta eru mikil viðbrigði.
Betra á allan hátt. Forvinnan
tók langan tíma en gekk samt
vel. Starfsfólkið fékk tækifæri
til að æfa sig á nýju kössunum
ogeinsog oftvill gerast á fyrsta
degi eftir miklar breytingar átti
ég von á einhverjum vand-
ræðum í sambandi við þetta á
fimmtudaginn þegar við tókum
það í gagnið. Svo varð þó ekki
og það kom mér á óvart.
Sennilega er kerfið bara svona
gott" sagði Kristján.
• Kristján Hansson, deildarstjóri Sparkaups viö nýju strik-
amerkjatölvuna.
8