KSK-blaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 25
KSK ■ BLAÐIÐ
□jónustan mun stóraukast hjá okkur
fljótlega eftir áramótin en þá tökum við
í notkun nýja litablöndunarvél" sagði
Ragnar Jónsson, deildarstjóri í málningardeild
Járn og Skips í samtali við KSK blaðið.
Að sögn Ragnars er um að ræða splunku-
nýja vél sem blandar saman liti með undra-
verðum árangri samkvæmt hinu svokallaða
NCS litakerfi, sem er samhæft Iita-
blöndunarkerfi málningarframleiðenda á
Norðurlöndum.
„Við höfum þurft að senda mikið málningu
til Reykjavíkur til blöndunar en þegar við fáum
nýju vélina, verður það úr sögunni og fólk
mun geta beðið eftir aö við blöndum fyrir
það."
Sjafnarmálning er sú vinsælasta sem Járn og
Skip býður upp á og hún verður komin inn í
nýja litablöndunarkerfið þegar nýja blönd-
unarvélin kemur. Aðrar málningartegundir
sem Járn og Skip er með í boði eins og t.d.
Sadolin er í þessu sameiginlega NCR litakerfi,
og Pinotex sem fólk þekkir vel.
En hvað spyr fólk helst um sem er að fara að
mála?
„Pað er mikið spurt um samsetningu lita og
síðan auðvitað um ýmis mál, t.d. um fjölda
umferða, sparsl og fleira" sagði Ragnar.
Hvaða málningarvörur leggið þið mesta á-
herslu á?
„Sjafnarmálningin hefur reynst mjög vel og
við höfum selt mjög mikið af henni. Hún er til
í öllum litum og gerðum og er alltaf á mjög
góðu verði."
Ragnar hóf störf í Járn og Skip í sumar en
kemur úr Reykjavík en þar starfaði hann m.a.
í nokkur ár í versluninni Málaranum og þá
hefur hann sótt mörg námskeið."
Voru ekki viðbrigði að koma til Suðurnesja
og vinna þar?
„Það voru talsverð viðbrigði en þetta hefur
gengið vel og mér líkar vel hérna. Við erum að
stórbæta málningardeildina, auka vöruúrvalið
og þjónustuna og það er gaman að taka þátt í
því" sagði Ragnar að lokum.
Ragnar Jónsson, málningarsérfræðingur Járn og Skips ræðir málin við Júlíus
Thorarensen frá Sjöfn.
Nýjungar í málningardeild Jám og Skips:
Ný MtabÍöndunarvél
og betri þjónusta
Guðjón Sigurðsson, „fittings-maður“ Járn og Skips
ásamt nokkrum iðnaðarmönnum á kynningu í Járn og
Skip.
Pípulagningadeildin - „Fittings" - í Járn og Skip:
Meira vöruúrval og
lægra verð
Urvalið hjá okkur er með því mesta sem gerist og með auknum
innflutningi höfum við náð að bjóða verð eins og þau gerast
lægst" sagði Guðjón Sigurðsson, deildarstjóri í pípu-
lagningadeildinni eða „Fittings" eins og hún er jafnan kölluð.
I deildinni er allt á boðstólum til pípulagna í miklu úrvali. Við-
skiptavinirnir eru margir, bæði fagmenn og aðrir. En hver er munurinn
að afgreiða fagmann eða venjulegan húseiganda? „Fagmennirnir vita
alltaf hverju þeir eru að leita að en einstaklingarnir koma mikið með
minni vandamál sem við reynum að leysa fljótt og vel."
Að sögn Guðjóns hefur að undanförnu verið lögð mikil áhersla á
svokallað forhitarakerfi. „Við bjóðum heildarlausn í þeim málum og
höfum átt gott samstarf við iðnaðarmenn á svæðinu. Það hefur verið
mikið uni tæringu í ofnum hér á Suðurnesjum og forhitarar koma í veg
fyrir hana".
Eins og fyrr greinir er nú lögð meiri áhersla á beinan innflutning en
þannig er hægt að bjóða sambærilegt verð og það gerist lægst hjá
stærstu söluaðilum pípulagningavara á markaðnum.
Guðjón hóf störf í Járn og Skip í sumar en hann kemur frá Hafn-
arfirði. Hann er pípulagningameistari og starfaði sfðast sem slíkur en
hefur einnig unnið í Byggingavörudeild Sambandsins við umboðssölu
á pípulagningaefni.
25