KSK-blaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 19

KSK-blaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 19
Aðalfundur Kaup- félags Suðurnesja: KSK - BLAÐIÐ Hagnaður 1990 var 9.8 milljónir Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja var haldinn í KK-húsinu laugardaginn 16. mars sl. Magnús Haraldsson, stjórnarformaður, setti fundinn og flutti skýrslu stjórnar. Fundarstjórar voru þeir Eyjólfur Ey- steinsson, Keflavík og Jón Gröndal, Grindavík. Fundarritarar voru þau Guð- björg Ingimundardóttir og Skúli Skúlason. Guðjón Stefánsson, kaupfélagsstjóri, flutti skýrslu um rekstur félagsins á sl. ári. Kom fram í máli þeirra Magnúsar og Guð- jóns að afkoma ársins 1990 var nokkru betri en mörg undanfarin ár. Heildar vöru- sala verslana og kjötvinnslu var um 1.486 milljónir og hafði aukist um 13,5% frá ár- inu á undan. Hagnaður varð af rekstrinum að þessu sinni um 9,8 milljónir króna. Starfsmenn voru 148 \ árslok í 121 stöðu- gildi. Eigið fé félagsins var um sl. áramót 131,9 milljónir, sem er um 23% af nið- urstöðu efnahagsreiknings. Á fundinum kom fram að miklar end- urbætur hafa verið gerðar á verslunum fé- lagsins að undanförnu og framundan væri töluvuvæðing stærri verslana. Ingólfur Falsson skýrði fundinum frá sölu og uppgjöri á Hraðfrystihúsi Kefla- víkur hf. og stofnun Stakksvíkur hf., sem á og rekur húseignir þær sem áður tilheyrðu Hraðfrystihúsi Keflavíkur. Guðmundur Stefán Gunnarsson, 14 ára Njarðvíkingur sigraði í getraunaleik Coca- Cola og Samkaups sem var á afmælisdögum verslunarinnar. Guðmundur var dreginn úr hópi þeirra er gátu rétt til um tölu á fjölda Kók-dósa í Kókkastala sem var í Samkaup. Hann fékk að launum 100 lítra af drykknum vinsæla. Dósirnar voru samtals 9.566. Heppinn Njarövíkingur ORYGGISSKOR LÉTTIR OC Járn & Skip »X< JaUabbe Tvöfaldi sólinn í öryggisskónum frá JALLATTE gerir skóna mjúka, létta og gripgóða, auk þess þolir hann vel olíur og sýrur. Stálþynna i' sólanum er naglheld og þolir högg. Stálhetta hlífir tánum fyrir höggum og hnjaski og hefur nægilegt rými fyrir tærnar. í hælbótinni er hli'f til varnar hásin og öklabeini. JALLATTE öryggisskórnir — öruggt val. ENDINGARGOÐIR V/Víkurbraut - sími 15405 19

x

KSK-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: KSK-blaðið
https://timarit.is/publication/1571

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.