KSK-blaðið - 01.12.1991, Page 21
KSK - BLAÐIÐ
HTH OG UNU FORM í HARÐVIÐARVALI
OG JÁRN OG SKIP:
FIMM ÁRA
ÁBYRGÐ Á HTH
INNRÉTTINGUM
I arðviðarval sem Járn og Skip er
með umboð fyrir á Suðurnesjum,
í hefur fengið umboð fyir eldhús-
og baðinnréttingar frá tveimur þekktum
fyrirtækjum, HTH og UNO FORM.
HURÐALAMIRNAR ÞOLA
90 KG ÞUNGA
HTH leggur mikið upp úr vöruvöndun
og kannar endingu og gæði fram-
leiðslunnar á eigin rannsóknarstofu.
Þannig eru t.d. hurðalamir og skúffu-
brautir margprófaðar áður en þær fara á
markað. Skúffubrautir verða að standast
þá þolraun að skúffan hafi verið dregin
út fjörtíu þúsund sinnum áður en brautin
hlýtur viðurkenningu framleiðendanna.
Það er talið samsvara um tuttugu ára
notkun á venjulegu heimili. Þá hafa
rannsóknir leitt í Ijós að hurðalamirnar
þola níutíu kílóa þunga án þess að gefa
sig. Gæðaprófanir HTH hafa síðan leitt
til þess að fyrirtækið treystir sér til að
veita fimm ára ábyrgð á framleiðslu
sinni. Nær hún til hurðalama, brauta og
auk þess gaila sem fram kunna að koma
á innréttingunum á þeim tíma.
150-500 þús.
Hægt er að fá góða og vandaða eld-
húsinnréttingu á verðbilinu frá 150 þús-
und krónur í 500 þúsund. HTH inn-
réttingarnar eru ódýrari en innrétting-
arnar frá UNO FORM sem eru taldar
lúxusvara. HTH innréttingarnar geta ver-
ið mjög fjölbreytilegar í útiliti. Þær fást
plastlagðar jafn sem spónlagðar eða
gegnheilar og allar innréttingar eru
sprautulakkaðar með glæru lakki, inn-
réttingarnar eru til hvítar, úr grárri jafnt
sem Ijósri eik, hvítum aski og hvítu
beyki, auk þess sem þær eru framleiddar
úr svokölluðum MDF-spónaplötum sem
eru miklu harðari en venjulegar spóna-
plötur og mjög endingargóðar. Gegn-
heilar eikarinnréttingar fara aldrei úr
tísku, enda hafa þær verið til í einni eða
annari mynd í margar aldir.
ÚRVAL AF LISTUM
OG HÖLDUM
Útiliti sérhverrar innréttingar má
breyta mikið með því að velja Ijósa lista
og höldur sem og borðplötuefnið á þann
hátt sem best fer í hverju eldhúsi. Mikið
úrval er til af listum og höldur eru síðan
til í stíl við iistana. Borðplötur fást að
sjálfsögðu plastlagðar með plastkanti
eins og algengast var til skamms tíma.
Auk þess eru plötur framleiddar úr gegn-
heilum viði og loks plastlagðar með
plastkanti eins og algengast var til
skamms tíma. Auk þess eru plötur fram-
leiddar úr gegnheilum viði og loks plast-
lagðar með gegnheilum köntum sem þá
eru hafðir í stíl við viðinn sem notaður er
í innréttinguna sjálfa. Skápar og skúffur
eru vel innréttaðar og mjög algengt er að
fólk nýti nú sökklana undir innrétting-
unni með því að hafa í þeim skúffur.
FYRIR FATLAÐA
HTH hefur lagt sig eftir því að fram-
leiða innréttingar sérstaklega ætlaðar
fötluðum og hreyfihömluðum. í því tilviki
er hægt að hækka og lækka bæði borð og
skápa og stilla á þann hátt sem best
hentar.
BAÐINNRÉTINGAR
Harðviðarval/Járn og Skip selja ekki
aðeins eldhúsinnréttingar frá HTH og
UNO FORM heldur líka baðinnréttingar.
Úrvalið er ekki minna en í eldhús-
innréttingunum og verðið breytilegt.
Hægt er að fá fallega og vandaða bað-
innréttingu fyrir rúmar 67 þúsund krónur
frá HTH.
21