Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þeir skammtar af bóluefni sem útlit er fyrir að berist til landsins á allra fyrstu mánuðum ársins duga skammt til bólusetninga. Ef farið væri eftir forgangsröð í reglugerð heilbrigðisráðherra myndi ekki koma að allra elstu íbúum landsins, utan hjúkrunar- og dvalarheimila, fyrr en í mars. Hins vegar hefur for- gangsröðuninni verið breytt í þágu viðkvæmustu hópanna og kemur því að elstu íbúunum fyrr, jafnvel þegar næsta sending bóluefnis kemur. Fyrsta sending bóluefnis sem kom fyrir áramót var notuð til að bólu- setja heilbrigðisstarfsfólk í fremstu línu, fólk sem tilheyrir fyrsta for- gangshópi, en hoppa að mestu yfir aðra heilbrigðisstarfsmenn, um sjö þúsund talsins, sem þó eru í öðrum forgangshópi og bólusetja þess í stað íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimilum og í úrræðum tengdum heima- hjúkrun. Það varð til þess að hægt var að ljúka að mestu bólusetningu þessa viðkvæmasta hóps samfélags- ins. Vitaskuld er aðeins búið að framkvæma fyrri bólusetningu en sú síðari er þremur vikum síðar. Bólusetning á skrið í febrúar Nokkuð óljóst er hversu hratt framleiðendum tekst að afhenda bóluefni og takmarkaðar upplýs- ingar fást um það. Þá hefur Lyfja- stofnun gefið Moderna, sem í gær fékk meðmæli Lyfjastofnunar Evr- ópu og framkvæmdastjórnar ESB, skilyrt markaðsleyfi hér á landi. Mun Moderna afhenda fimm þúsund skammta samtals í janúar og febr- úar. Ekki eru veittar upplýsingar um framhaldið nema það að fyrir- tækið sé að auka framleiðslugetu sína og vonist til að geta afhent lyfið hraðar eftir það. Fimm þúsund skammtar eru eins og dropi í hafið, duga aðeins til að bólusetja 2.500 manns. Þá eru fyrirheit um að Pfizer muni afhenda hingað á fyrsta ársfjórðungi að lágmarki 45 þúsund skammta, til viðbótar þeim 10 þúsund sem komu fyrir áramót. Heilbrigðisráðuneytið telur ekki útilokað að meira bóluefni berist frá fyrirtækinu á þessu tíma- bili vegna samnings sem gerður var um viðbótarkaup. Fyrsta sending er væntanleg 20. þessa mánaðar en ekki er vitað hversu margir skammtar verða í henni. Ef miðað er við að bólu- efnið berist nokkuð jafnt út ársfjórð- unginn munu koma um 4.500 skammtar á viku. Gangi það eftir má búast við að 27 þúsund skammtar berist frá Pfizer í janúar og febrúar. Með bóluefninu frá Moderna gerir það 32 þúsund skammta alls, sem dugar fyrir 16 þúsund manns. Enn meiri óvissa ríkir um það hversu mikið af bóluefni berst hingað á fyrsta ársfjórðungi í heild, til dæm- is er ekkert vitað hvað kemur frá AstraZeneca. Nokkuð öruggt má telja að á fyrsta ársfjórðungi berist að minnsta kosti 52 þúsund skammt- ar samtals frá Pfizer og Moderna, vonandi talsvert meira, enda hafi framleiðendur þá aukið fram- leiðslugetu sína. Gangi það eftir verð- ur búið að bólusetja liðlega 30 þúsund manns í lok mars, aðeins um 10% af þeim fjölda sem ætlunin er að bjóða upp á bólusetningu við kórónuveir- unni. Tvöfalt meira en þörfin er Raunar hafa stjórnvöld samið við fjögur lyfjafyrirtæki um kaup á 843 þúsund skömmum. Þar fyrir utan eru tvö fyrirtæki skemmra á veg komin. Í öðrum tilvikum en Janssen – John- son & Johnson þarf tvo skammta til að bólusetja hvern mann. Því duga þessir skammtar til bólusetningar á 539 þúsund manns hér á landi en þörfin er vel innan við helmingur af því. Nokkuð innan við 300 þúsund manns verður boðin bólusetning en stjórnvöld stefna að bólusetningu 75% þeirra, eða liðlega 220 þúsund manns, til að ná góðri viðspyru meðal landsmanna, svokölluðu hjarðónæmi. Vissulega er það öryggisráðstöfun að semja um svona mikið magn því óvíst var og er hvernig hvert og eitt bóluefni reynist og hvenær það fæst afhent. Því hefur verið lýst yfir að umframefninu verði væntanlega deilt til þjóða sem þurfa á því að halda. Hvenær kemur að mér? En hvernig á að nota það bóluefni sem næst kemur? Það gæti orðið í næstu viku og ekki síðar en í þar- næstu viku. Það virðist ekki hafa ver- ið ákveðið endanlega. Á vefnum co- vid.is kemur fram að þegar næsta sending kemur verði haldið áfram að bólusetja framlínustarfsmenn í heil- brigðisþjónustunni, fólk sem dvelur á sambýlum og þá sem fá heima- hjúkrun. Einstaklingar í elstu aldurs- hópunum séu svo næstir í röðinni. Litlar viðbótarupplýsingar koma í svari embættis landlæknis við spurn- ingu um hvort forgangsröðun verði breytt frekar. Aðeins sagt að áfram verði bólusett í elstu aldurshópum og þar verði byrjað á þeim elstu og farið niður aldurslistann. Aðrar ákvarð- anir liggi ekki fyrir. Sóttvarnalæknir hefur nánast óskoraðar heimildir til að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar, í heimildinni er aðeins vísað til nauð- synjar vegna stöðu faraldursins eða tegundar bóluefnis. Honum ber þó að tilkynna ráðherra um breytingar og rökstyðja þær. Eins og fyrr segir var forgangs- röðuninni breytt við fyrstu bólusetn- inguna, í þágu íbúa á hjúkrunarheim- ilum. Ekki er hægt að átta sig á svörum yfirvalda hvernig næstu sendingar verða notaðar, til dæmis hvaða heilbrigðisstarfsmenn fá sprautu áður en kemur að elstu ald- urshópunum. Í forgangshópum eitt til fimm eru liðlega 20 þúsund manns og þarf 40 þúsund skammta fyrir þá. Ef farið yrði alveg eftir forgangsröð samkvæmt reglugerð kæmi ekki að elstu íbúum landsins, utan hjúkr- unarheimila, fyrr en í mars. Í gær staðfesti Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir síðan í samtali við Vísi að forgangsröðun hefði verið breytt í þágu 70 ára og eldri. Í sjötta forgangshópi, 60 ára og eldri, eru yfir 70 þúsund manns. Áherslan verður í upphafi lögð á 70 ára og eldri en í þeim hópi eru um 33 þúsund manns þegar íbúar hjúkr- unarheimila hafa verið dregnir frá. Þar af eru um 10 þúsund 80 ára og eldri. Eru því ærin verkefni að vinna þar næstu mánuði. Þarf hátt í 70 þús- und skammta til að ljúka bólusetn- ingu þeirra. Þá eru eftir um 37 þús- und landsmenn á sjötugsaldri sem einnig eru í þessum forgangshópi. Tekið skal fram að þeir 5.800 Íslend- ingar sem fengið hafa Covid-19 hafa ekki verið dregnir frá í þessum tölum en þeir þurfa vitanlega ekki bólusetn- ingu. Langur listi forgangshópa Ótímabært er að horfa neðar á listann en benda má á að áætlað er að 54 þúsund Íslendingar séu með undirliggjandi, langvinna sjúkdóma. Þeir eru neðarlega á lista. Í forgangshópunum eru alls um 165 þúsund manns, meirihluti þeirra landsmanna sem ætlunin er að bjóða bólusetningu. Eins og staðan er núna í framleiðslu og kaupum á bóluefni er langt í að þeir 130 þúsund Íslend- ingar sem ekki eru í forgangshópum komist að í bólusetningu. VACCINE COVID-19 Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. VACCINE COVID-19 Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat. Afhending bóluefna til Íslands Samið við framleiðendur um kaup á bóluefni 2020 desember Pfi zer – BioNTech: 10,000 skammtar Uppsafnaður fjöldi skammta: 10.000 2021 janúar-febrúar* Pfi zer – BioNTech: 27,000 skammtar Moderna: 5,000 skammtar 42.000 2021 Samtals á 1. ársfj.* Pfi zer – BioNTech: 45,000 skammtar Moderna: 7,500 skammtar AstraZeneca – Oxford: (óljóst) 62.500 Umsaminn fjöldi skammta Pfi zer – BioNTech 250,000 Moderna 128,000 AstraZeneca – Oxford 230,000 Janssen – Johnson & Johnson 235,000 CureVac (ófrágengið) Sanofi (ófrágengið) Umsamið samtals 843,000 *Áætlað Þeir elstu eru ofarlega á blaði  Það bóluefni sem öruggt er að berist til landsins á næstunni dugar skammt  Nú er stefnt að því að nota næstu sendingar fyrir eldri borgara sem þýðir að aðrir forgangshópar bíða lengur Bólusetning vegna kórónuveiru Röð forgangshópa og áætlaður fjöldi Röð Fjöldi Forgangshópar skv. reglugerð Bólusett í fyrri hluta 1 1.000 Heilbrigðisstarfsmenn á bráðamóttöku og gjörgæslu 1.000+ 2 7.000 Heilbrigðisstarfsmenn á covid-19 göngudeild og legudeildum Heilbrigðisstarfsmenn sem framkvæma sýnatökur á heilsugæslu Starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila 3 3.500 Íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilum 3.000+ 4 2.000 Sjúkrafl utningamenn og bráðatæknar Vettvangsstarfsmenn Landhelgisgæslu Íslands Slökkviliðsmenn, fangaverðir og lögreglumenn 5 7.000 Aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem talið er nauðsynlegt 6 33.000 37.000 Landsmenn 70 ára og eldri (utan hjúkrunarheimila) Landsmenn 60-69 ára 7 54.000 Fólk með undirliggjandi langvinna sjúkdóma 8 20.000 Starfsmenn leik-, grunn- og framhaldsskóla Starfsmenn í félags- og velferðarþjónustu og félagslegri heimaþjónustu 9 1.000 Fólk í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna 10 130.500 Allir aðrir, fæddir 2005 og fyrr, sem þess óska 296,000 Samtals 5.000 AFP Langþráð Hver skammtur af bóluefni vegna Covid-19 er dýrmætur enda getur hann bjargað heilsu eða jafnvel lífi manns. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 SENSITIVE heitir núna PEAUX SENSIBLES Nýjar umbúðir – sama góða varan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.