Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 44

Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 ✝ Róbert ÓlafurGrétar McKee fæddist 9. nóv- ember 1954 á Sól- vangi í Hafnarfirði. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 17. desember 2020. Foreldrar Ró- berts voru Jóna Ólafsdóttir, f. 6. nóv. 1936, d. 31. ágúst 2020, og Ro- bert Henry McKee, f. 27. des. 1929, d. 13. okt. 2005. Foreldrar Jónu voru Margrét Jónsdóttir og Ólafur Tryggvason, foreldrar Roberts voru Norine og Ernest Maxwell McKee. Hálfsystkini Róberts sam- mæðra eru Magnús, f. 1958, Gyða, f. 1959, og Ásdís, f. 1963, Ásgeirsbörn. Hálfbræður samfeðra eru Scott, Wayne, Loyd og Mark. Hinn 23. maí 1992 kvæntist Róbert Helgu Margréti Sveins- dóttur, f. 20. maí 1959. Foreldrar hennar eru Sveinn Sigbjörn Þór- arinsson, f. 10. nóv. 1935, og araskóla Íslands þar sem hann lauk kennaranámi og nánast all- an sinn starfsferil vann hann sem kennari við smíðar, sér- kennslu og fleira. Ýmsum trún- aðarstörfum gegndi hann á veg- um Félags grunnskólakennara. Þá starfaði hann sem landvörður í Þórsmörk á árum áður. Á yngri árum áttu íþróttir hug hans allan, þ. á m. knatt- spyrna, handbolti, golf og hlaup. Útivistarmaður var hann mikill og unni náttúrunni. Áhugi hans á skotveiðum og stangveiði vaknaði snemma og voru ófáar ferðirnar farnar með frændum og vinum. Róbert reisti fjölskyldu sinni framtíðarheimili í Klukkubergi 18, Hafnarfirði. Þá gerði hann upp gamalt hús á Breiðdalsvík sem varð sælureitur fjölskyld- unnar. Í desember árið 2019 greind- ist hann með þann óvægna taugahrörnunarsjúkdóm MND. Á innan við ári lagði sjúkdóm- urinn hann að velli. Útförin fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 7. jan- úar 2021, klukkan 13. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/yxhxssde Hægt verður að nálgast virk- an hlekk á https://mbl.is/andlat Guðný Jóhanna Eyjólfsdóttir, f. 10. júlí 1936, d. 24. jan- úar 2020. Börn Ró- berts og Helgu eru: Anton Sveinn McKee, f. 18. des. 1993, og Karitas Irma McKee, f. 16. okt. 1996, unnusti Högni Grétar Krist- jánsson, f. 20. okt. 1996. Róbert átti fyrir son, Arnar, f. 8. janúar 1976. Maki Marín Ólafsdóttir, f. 21. júlí 1977. Börn þeirra eru Gunnar, Auður, Benjamín og Daníel. Ungur var hann sendur í Málaskólann Mími í Reykjavík til að nema ensku svo hann gæti skrifast á við ömmu sína sem bjó í BNA. Hún hélt ætíð tengslum við hann og urðu mjög góð sam- skipti við fjölskyldu hans í Bandaríkjunum og enn í dag, sem voru honum afar dýrmæt. Eftir hefðbundna skólagöngu lá leið hans í Menntaskólann Flensborg og síðar í Kenn- Elsku hjartans Róbert minn ég kveð þig hinstu kveðju. Leiðir okkar lágu saman haustið ’91 og eftir mjög svo stutt kynni vorum við flutt í litlu íbúðina mína á Flyðrugrandan- um. Við vorum eins og sköpuð hvort fyrir annað. Um vorið ’92 byrjaðir þú að byggja framtíð- arheimilið okkar í Klukkubergi 18 í Hafnarfirði þar sem við bjuggum alla tíð. Hinn 23. maí það sama ár giftum við okkur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og fórum í brúðkaupsferðina á und- an til Austurríkis á skíði. Vorið ’93 fluttum við síðan inn í húsið okkar sem var ekki fullklárað þá. Anton Sveinn kom svo í heim- inn 18. des. ’93 og Karitas Irma 16. okt. ’96. Fjölskyldan var þér allt og lagðir þú ýmis áhugamál þín á hilluna til að verja sem mestum tíma í uppeldi barnanna og samveru með fjölskyldunni þinni. Fyrir átti Róbert soninn Arnar, f. 8. jan. 1976. Við vorum samhent og gerð- um flesta hluti saman, stunduð- um útivist og ferðumst mikið með börnin okkar innanlands og á hverju sumri leigðum við bú- stað og ferðuðumst út frá hon- um. Þú kenndir okkur að meta landið okkar eins og þú gerðir enda vel lesinn í landafræði og jarðfræði. Svo var auðvitað skroppið í sólarlandaferðir inn á milli. Minnisstætt er mér er við fór- um í fyrstu ferðina okkar saman til Bandaríkjanna til að heim- sækja ættingja þína, Anton Sveinn þá tveggja og hálfs og ég ólétt að Karitas. Það var svo ótrúlegt að upplifa þá tilfinningu að þarna lágu rætur þínar og þú svo mjög líkur þeim í háttum og gjörðum. Ferðirnar urðu fleiri og einnig heimsóttu ættingjar þínir okkur til Íslands. Í byrjun ágúst 2017 fórum við á ættarmót fjölskyldu þinnar í Norður-Kali- forníu og síðasta ferðin sem við Róbert fórum saman var í febr- úar 2018. Saman deildum við miklum áhuga á allri klassískri tónlist, djassi, big band og fleiru og nýttum hvert tækifæri að sækja tónleika hér heima og erlendis. Árið 2008 keyptum við gamalt hús á Breiðdalsvík sem Róbert að sjálfsögðu gerði upp af sinni alkunnu snilld. Hann var sannur lista- og framkvæmdamaður og óhræddur að takast á við ný við- fangsefni og ber fallega heimilið okkar og Ás þess merki. Við tók nýr kafli í lífi okkar þegar ungarnir okkar voru flognir úr hreiðrinu og við ætl- uðum svo sannarlega að njóta hvort annars í ellinni, ferðast og upplifa. Siglingin um Miðjarðar- hafið í júní í fyrra varð síðasta ferðin sem við fengum að njóta saman. Í desember 2019 var elsku Róbert minn greindur með þann óvægna taugahrörnunar- sjúkdóm MND sem reyndist honum mjög erfiður og dró mjög hratt af honum. Hann var um- vafinn ást og umhyggju og allt gert til að létta honum lífið og tilveruna. Að verða fangi í eigin líkama varð honum um megn. Við fáum aldrei skilið hvers vegna Róbert, þessi hrausti og líkamlega vel á sig komni maður, hlaut þennan dóm. Ég þakka þér fyrir þau tæp þrjátíu ár sem við fengum saman elsku ástin mín. Minning þín lifir í hjarta okkar. Þín að eilífu, Helga Margrét Sveinsdóttir. Elsku pabbi minn. Ég vildi ég hefði getað sagt þessi orð við þig, þér við hlið á þinni hinstu stundu. Það er vont að vita að þú hafir farið í sumarlandið án þess að fá að heyra mig segja við þig einu sinni enn hversu mikið ég leit upp til þín, hversu mikið ég elskaði þig og hversu vænt mér þótti um öll þau skipti sem þú kenndir mér á lífið, þótt ég hafi stundum streist á móti. Ég er þakklátur fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og fyrir alla þá kennslu sem þú veittir mér í gegnum lífið, hún gerði mig að þeim manni sem ég er í dag og ég á þér allt að þakka sem mér hefur tekist að áorka í lífinu. Það er eitt sem stendur upp úr af öllu því sem þú kenndir mér og það er það mikilvægasta sem ég lærði af þér; að vera sannur keppinautur. Þegar mér gekk illa í keppnum og á æfing- um kenndir þú mér að læra að tapa með sæmd, horfa fram á veginn og læra af mistökum, og sjá hvað gera mátti betur fyrir næstu tilraun. Ég man alltaf eft- ir því þegar ég var fúll eftir lé- legt sund og þú sagðir mér að ef ég hætti ekki að haga mér eins og sár tapari skyldi ég labba heim. Þú kenndir mér að gefast aldrei upp, sama hversu erfitt verkefni lá fyrir eða óhugsandi markmið þurfti að vera sett. Þú hafðir alltaf trú á mér og gafst aldrei upp á mér. Eftir sigrana kenndirðu mér að fara ekki fram úr mér, melta sigurinn og horfa svo á hvaða markmið tækju við næst. Ég gleymi því aldrei hvað ég var glaður að sjá þig fyrir ut- an sundlaugina eftir 200 m bringuna á EM 2019 og eftir að hampa framförum í smástund var umræðan strax komin í hvað hefði mátt fara betur og hvernig við ætluðum að bæta það á æf- ingum. Ég veit ekki hversu oft þú ræddir við mig um mismunandi æfingaaðferðir, markmiðasetn- ingu og hversu miklu máli það skiptir að hvílast vel. Það síðasta sem við ræddum saman í símann var hvernig ég gæti nýtt sótt- kvína í Covid yfir jólin í að hjóla og af hverju það væri sniðug hugmynd að færa áhersluna í lyftingaherberginu á æfingar með líkamsþyngd fyrir hendur og axlir. Við ræddum þetta allt saman því ég veit að þú syntir alltaf með mér í hjartanu þegar ég stakk mér í laugina. Allur sá árangur sem ég náði var þér að þakka. Þú vaktir mig alltaf klukkan fimm á morgnana og keyrðir mig á morgunæfingu, sást til þess að ég færi ekki fram úr mér með aukaæfingum eða álíka vitleysu, að ég nærðist vel og hjálpaðir við heimalærdóm- inn svo ég gæti farið fyrr að sofa. Minn árangur var og er þökk sé þinum fórnum og kennslu á lífið. Ég verð alltaf þakklátur fyrir það sem þú hefur gefið mér á lífsleiðinni og ég vona að ég geti verið jafn góður faðir og þú varst í framtíðinni. Þín verður sárt saknað og það verður erfitt að halda áfram án þinna ráð- legginga, en ég mun gera mitt besta til að halda heiðri þínum á lofti í öllu sem ég geri. Hlakka til að synda með þér í Tókýó. Sofðu rótt, ég elska þig. Þinn Anton Sveinn McKee. Í dag kveðjum við ástkæran mág og svila. Það var sárt að sjá mann verða fanga í eigin líkama án þess að geta komið vörnum við og fráfall hans mikill missir fyrir fjölskyldu og vini. Róbert var einstakur náttúru- unnandi og handverksmaður mikill, maður sem alltaf hafði orku til útivistar og vinnu. Handverk hans er að sjá víða þar sem að hann aðstoði marga við smíðar og skapaði fallega hluti í höndunum. Auk þess var hann veiðimaður af lífi og sál. Þær voru ófáar stundirnar sem við áttum í Laufhaganum í matarboðum og margt skegg- rætt. Róbert var nú ekki endi- lega sammála í einu og öllu og hafði hann, að við höldum, pínu gaman af því að vera aðeins ósammála í mörgum málefnum sem tekin voru fyrir. Áttum ynd- islegar stundir í vor á Breiðdals- vík en þar hafa Róbert og fjöl- En minningarnar eru margar og góðar. Skíðaferðir, borðtenn- is í kjallaranum hjá honum, íþróttir, smíði og fleira kemur upp í hugann. Alltaf var hann tilbúinn að hjálpa og ég gleymi líklega aldrei þeirri stundu þeg- ar ég sá hann koma upp inn- keyrsluna heima á Suðurgötu, með verkfæri í höndum, kominn til að hjálpa mér við tröppusmíði þegar ég hélt að enginn gæti að- stoðað og ég á leið úr landi. Hann kastaði til hliðar öðrum verkum og kom. Róbert var mikill íþróttamað- ur og keppnismaður. Hann var öflugur liðsmaður FH í milli- vegalengdahlaupum og hafði sérstaklega heillaður af 800 m hlaupum enda þurfti að beita bæði herkænsku og skynsemi í þeim hlaupum. Og til gamans má geta að hann á enn 18. besta tíma FH-inga í þeirri grein inn- anhúss. Róbert hafði ríka réttlætis- kennd og lét skoðanir sínar á málefnum óspart í ljós. Hann lá ekki á liði sínu ef taka þurfti á málum og var með afbrigðum hjálpsamur. Hann var handlag- inn með afbrigðum og smiður góður hvort heldur á tré sem málm og múrverk vafðist heldur ekki fyrir honum. Nemendur hans í smíði nutu góðs af hæfi- leikum hans og metnaði og hafa eflaust ekki getað fengið betri handavinnukennara. Var sér- staklega gaman að hafa fengið tækifæri til að heimsækja hann í skólastofu og upplifa. Það var sárt að sjá hann berj- ast við óvæginn sjúkdóm sem tók allt hans þrek á stuttum tíma og getu til að gera það sem hann var vanur að gera. Við söknum góðs vinar en ég kýs að minnast hans af öllu því sem fær mann til að brosa og gera mann þakklátan, því efst í huga er þakklæti fyrir samferðina öll ár- in. Við Kristjana vottum fjöl- skyldu hans allri samúð, Helgu, sem sér á eftir ástkærum maka og vini og börnum þeirra Antoni Sveini og Karitas Irmu og Arnari sem fæddist á mennta- skólaárum okkar. Minning um góðan dreng lifir. Guðni Gíslason. Jæja elsku vinur, þá er komið að kveðjustund, loksins laus úr þeirri prísund sem þessi sjúk- dómur skapaði. Þrátt fyrir þenn- an mikla mótbyr sem þú varst að berjast við þá barstu þig alltaf vel, alltaf stutt í brosið og hlát- urinn. Ég þakka vinskapinn og öll samtölin. Vildi að við hefðum getað kynnst á öðrum forsend- um og átt fleiri samtöl. Þú munt ávallt eiga stað í huga mínum og hjarta. Þinn vinur, Bjarni Birgir. Ég kynntist Róbert fyrst þeg- ar ég hóf störf sem kennari við Vatnsendaskóla í Kópavogi, en þá hafði hann verið þar kennari um nokkurra ára skeið. Með okkur tókst fljótlega ágætur kunningsskapur sem hélst þar til yfir lauk. Róbert var ekki allra, hann gat verið orðhvass, einkum á fundum kennara, og kunnu kon- urnar ekki alltaf að meta orðfæri hans. Hann var mjög fastur fyrir þegar kom að starfsréttindum og launamálum samkennara, enda gegndi hann ósjaldan stöðu trúnaðarmanns. Hann kunni kjarasamninga kennara utan að, þar mátti treysta hans leiðsögn. Róbert hafði sterkar skoðanir á þjóðmálum og tókumst við fé- lagarnir oft á um þau og þá voru ekki spöruð stóru orðin. En þeg- ar upp var staðið og kaffitíminn búinn vorum við sömu félagarnir eftir sem áður. Þótt Róbert hafi ekki verið allra þá var hann góður drengur með stórt hjarta og afar hjálp- samur þegar því var að skipta, vildi leysa hvers manns vanda. En það voru margir sem mis- skildu hann. Ég er nokkuð viss um að ef Róbert hefði tamið sér mildara orðfæri hefði hann getað náð langt í félagsmálum, hann var skarpgreindur og góður grein- andi, fljótur að tileinka sér flókna hluti. Ég vil að lokum votta fjöl- skyldu hans, Helgu, börnum þeirra og öðrum aðstandendum, innilega samúð. Minning um góðan félaga og litríkan samstarfsmann er ljós- lifandi. Kveð þig með djúpri virðingu og söknuði. Einar Baldursson. Það var eins og allt lifnaði við um leið og þú birtist, því það fylgdi þér svo mikill kraftur og glaðværð. Það var virkilega ánægjulegt að Helga Margrét skyldi kaupa sér hús á Breið- dalsvík eins og við Sveinn. Þú byrjaðir strax að vinna í þessu húsi ykkar, útbjóst einkar fal- lega og snotra íbúð og varst byrjaður á að útbúa aðra í hinum enda hússins. Þú komst næstum alltaf í heimsókn til okkar er þú komst austur að vinna. Við spjölluðum mikið saman enda varst þú hafsjór af fróðleik og þó að ég væri miklu eldri en þú lærði ég margt og mikið af þér. Þú varst snillingur í eldhúsinu, tókst stundum þátt í matseldinni með mér og áttir það til að færa mér eitthvað sem tengdist elda- mennskunni. Ég gleymi aldrei fallega brosinu þínu er þú leist á mig þegar ég smakkaði sósuna sem þú útbjóst með steikinni. Ég hef aldrei smakkað eins góða sósu, hvorki fyrr né síðar. Þegar við þurftum að fá nýjar rúður í stofugluggana okkar vannst þú auðvitað það verk og komst líka með glerið að sunnan til þess að spara okkur sendingarkostnað. Eitt sinn var Sveinn minn ný- kominn úr aðgerð frá Akureyri og átti frekar erfitt með að setj- ast á rúmið. Þú fannst strax lausn á þessu og smíðaðir upp- hækkun og komst með í næstu ferð austur. Svona varstu ávallt, hugulsamur gagnvart okkur. Ég sakna þess tíma er þú komst til okkar. Það var mikið spjallað og mikið hlegið. Það var sko engin lognmolla í kringum þig. Þú áttir stundum til að hækka róminn ef umræðan var um ranglæti sem einhver hafði orðið fyrir. Þú barðist fyrir rétt- læti og varðir alltaf þá sem minna máttu sín. Postulinn forðum Páll víst reit um kærleikans kost og leiðir. Misvel gengur mönnum breyskum náðargáfur nýta sínar. Vel er þeim er veginn rata samferðamönnum til sælu. Þér var gefin sú gjöfin stóra, með gleði strá gæfuljósi. Náttúrunnar nýttir orku lífs á leikvangi. Útgeislun hlý anda heilbrigðs heilar næm hjörtu. Með alúð stakri og elsku muna verk þín af göfgi vannst. Ljúfu brosi léttir vinum. Hönd þín til hjálpar fús. Svipt er mörgum af sviði lífs er mest eiga munargæða. Sæta mega sárum harmi þau innilegast elska. (GMB) Elsku Helga Margrét, börn og aðrir aðstandendur, innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Róberts McKee. Guðríður Guðbjartsdóttir. Róbert Ólafur Grétar McKee skylda byggt upp sælureit. Einnig minnumst við frábærrar ferðar sem við fórum á Eyja- fjallajökul og Þórsmörk en þar hafði Róbert verið landvörður um árabil. Á erfiðum stundum er gott að ylja sér við góðar minningar og að leiðarlokum þökkum við Róberti samfylgd- ina. Elsku Helga Margrét, Anton Sveinn og Karitas Irma. Sökn- uðurinn er sár en eftir situr djúpt þakklæti fyrir lífið með Róberti og minningarnar ómet- anlegu. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Minning þín lifir. Árni Þór, Linda Dögg og synir. Í dag verður mágur minn og svili, Róbert Ólafur Grétar McKee, borinn til grafar eftir hetjulega baráttu við tauga- hrörnunarsjúkdóminn MND sem hann hafði greinst með fyrir um ári. Róbert sýndi mikinn kjark og æðruleysi í þessu ferli öllu og reyndi að halda í glað- værðina sem honum var eðlis- læg. Það var stutt í fallega bros- ið hans og húmorinn en þrátt fyrir veikindin hafði hann sterk- ar skoðanir á málefnum líðandi stundar og tjáði sig um þær. Við Róbert vorum ekki alltaf á einu máli um pólitík og skiptumst gjarnan á skoðunum. Róbert var handmenntakennari að mennt, kunni vel til verka og bera bæði húsið þeirra í Klukkuberginu sem hann byggði sjálfur og hús- ið á Breiðdalsvík sem hann gerði upp því fagurt vitni. Það gladdi Róbert mjög þegar Karitas hóf nám í húsgagnasmíði við Tækni- skólann nú í haust þar sem hann gat miðlað henni af þekkingu sinni og reynslu. Róbert var mikill útivistaramaður og unni náttúrunni og hafði verið land- vörður í Þórsmörk nokkur sum- ur þegar hann var við nám. Helga og Róbert voru frábærir gestgjafar enda bæði frábærir kokkar og fengum við að njóta árangurs Róberts af rjúpna- og hreindýraveiðum. Annars hitt- umst við systurnar, makar og börn oftast heima í Laufhagan- um á Selfossi hjá mömmu og pabba og var þá glatt á hjalla. Mér fannst við eiga eftir að gera svo margt saman við systurnar og makar en þannig týnist tím- inn. Elsku Helga Margrét, Ant- on Sveinn og Karitas Irma, Guð styrki ykkur í sorg ykkar. Sökn- uður ykkar er mikill en eftir stendur minning um einstakan mann og góðan vin eins og segir í textanum: „Þú fagra minning eftir skildir eina.“ Þér Róbert minn þökkum við samfylgdina, hvíl þú í friði. Kveðja, Steinunn og Eyjólfur. Æskufélagi, nágranni og tryggur vinur, Róbert Ólafur Grétar McKee, er farinn heim eins og það er orðað í skátunum. Við kynntumst reyndar ekkert í skátunum, hann var í Ránfugl- um en ég í Riddurum. Við viss- um af hvorum öðrum á Holtinu sem krakkar en kynntumst svo ekki fyrr en við fórum í mennta- skóla. Við kynntumst í Flens- borg af því að við vorum öðru- vísi; við klæddum okkur eftir veðri, við komum með nesti með okkur í skólann og við komum oft á hjóli í skólann. Þetta þótti skrýtið þá. Fráfall Róberts var mikið áfall, og það er sárt að horfa til baka og átta sig á því að sam- skiptin hefðu getað verið meiri síðustu mánuði. Covid-19 var hindrun og kannski meiri en hún þurfti að vera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.