Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is 2012 2020 HJÁ OKKUR FÁST VARAHLUTIR Í AMERÍSKA BÍLA Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 5. janúar 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 445,32 Þorskur, slægður 468,25 Ýsa, óslægð 311,55 Ýsa, slægð 297,77 Ufsi, óslægður 137,13 Ufsi, slægður 172,91 Gullkarfi 282,24 Blálanga, óslægð 284,40 Blálanga, slægð 359,21 Langa, óslægð 240,34 Langa, slægð 216,48 Keila, óslægð 70,85 Keila, slægð 98,00 Steinbítur, óslægður 520,16 Steinbítur, slægður 560,00 Skötuselur, slægður 693,37 Grálúða, slægð 572,00 Skarkoli, slægður 477,59 Þykkvalúra, slægð 1.293,90 Bleikja, flök 1.422,22 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Gellur 1.519,00 Grásleppa, óslægð 9,23 Hlýri, óslægður 239,00 Hlýri, slægður 730,39 Hrogn/þorskur 409,25 Lúða, slægð 835,71 Lýr, óslægður 103,00 Lýsa, óslægð 132,58 Rauðmagi, óslægður 369,19 Skata, slægð 32,00 Stóra brosma, óslægð 51,00 Stóra brosma, slægð 62,00 Stórkjafta, slægð 43,00 Undirmálsýsa, óslægð 128,49 Undirmálsýsa, slægð 49,00 Undirmálsþorskur, óslægður 205,61 Undirmálsþorskur, slægður 242,06 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Íslenski togaraflotinn hélt til veiða á ný um helgina eftir að hafa legið við bryggju frá því fyrir jól. „Það stefndu flestir á Vestfjarðamiðin á nýju ári,“ segir Arnar Óskarsson, skipstjóri á frystitogaranum Bald- vini Njálssyni GK, en togarinn var einmitt á þessum slóðum er blaða- maður ræddi við skipstjórann. Hefðbundið er að halda á þessi mið eftir áramót og ganga veiðar vel hjá áhöfninni á Baldvini Njálssyni. „Þetta er alveg með besta móti mið- að við árstíma,“ segir Arnar. Að- allega er verið að veiða ufsa og ýsu að svo komnu og kveðst skipstjórinn hæstánægður með aflann. „Þetta er flottur fiskur. Stór og mikill ufsi og sama með ýsuna. Þetta er allt fiskur af stærstu gerð.“ Veðrið mun betra en á sama tíma í fyrra Lagt var frá bryggju á sunnudag og stendur til að vera á sjó út jan- úarmánuð og er gert ráð fyrir að koma til hafnar í Hafnarfirði fyrsta febrúar, að sögn skipstjórans. „Það hefur verið gott veður og góð veiði. Hafísinn er aðeins að trufla okkur, en hann hefur kannski einhver áhrif á það hve veiðin er góð.“ Arnar segir ekki sjálfgefið að veiðar gangi vel í janúar. „Oft er það veðrið sem truflar á þessum árs- tíma. Það var leiðindaveður þegar við fórum út, en það er búið að vera bara blíðveður hérna núna. Það brælir aðeins á okkur um helgina en annars er ágætis útlit veðurfars- lega.“ Má í þessu samhengi rifja upp þá miklu ótíð sem fór yfir landið fyrir ári, bæði í desember 2019 og síðan í ársbyrjun 2020. Beið fjöldi togara af sér hvassviðri í vari oftar en einu sinni, meðal annars í Ísafjarðardjúpi og Húnaflóa, margir lögðu jafnvel ekki frá bryggju. Reynir á mannskapinn Spurður um stemninguna um borð í ljósi blíðunnar og þokkalegs fiskirís segir skipstjórinn alla hressa. „Það er létt yfir mannskapn- um. Við erum allir að koma úr góðu jólafríi og bara eintóm hamingja,“ svarar hann og hlær. Þá sé mikill kostur að það sé nóg að gera um borð enda kjöraðstæður til að ná af sér jólaspikinu. „Það bara rennur lýsið af mannskapn- um,“ segir Arnar og skellir upp úr. „Ég á nú svolítið erfitt með þetta, ég sit bara hérna í stólnum og stýri skipinu. En það reynir á mannskap- inn í svona veiði. Það er kannski bara allt of gott að borða hérna en þeir þurfa nú kraftmikið fæði þessir strákar.“ Almennt nokkuð gott Það var einnig gott hljóðið í Eiríki Jónssyni, skipstjóra á skuttogaran- um Akurey, er blaðamaður náði tali af honum í gær. Þá var togarinn á leið til hafnar í Reykjavík frá Vest- fjarðamiðum. „Þetta hefur gengið alveg þokka- lega í þessum fyrsta túr. Það er búið að vera þorskur hérna í Kantinum fyrir vestan. Ágætis veiði í þorski og svo hefur verið svolítið mikið af ýsu líka, reyndar óvenjumikið. Svo hefur verið dálítið af ufsa vestar í Kant- inum, mjög stór ufsi,“ segir hann. „Þetta er mjög góður fiskur, bara vertíðarfiskur,“ bætir skipstjórinn við. „Svo voru frystitogararnir hérna í Víkurálnum að moka upp karfa. Það er bara búið að vera al- mennt nokkuð gott,“ segir Eiríkur. „Við erum að fara í land núna og erum bara að taka síðustu sköfuna. Það er kominn ís á slóðina,“ segir hann og útskýrir að hafísinn hafi strítt áhöfninni á þriðjudag og að- faranótt gærdagsins. Stefnt sé að því að togarinn komi til hafnar í Reykjavík undir morgun í dag og haldi aftur til veiða í kvöld. „Það er búið að vera ágætis veð- ur, nánast sléttur sjór allan túrinn. Vonandi fer þessi [haf]ís að fara aft- ur til baka. Hann er svo fljótur að æða yfir þegar hann fer af stað, þessi vestanátt er að stríða okkur í því. Ef við fáum norðaustanátt fer hann aftur,“ segir Eiríkur. Kveðst skipstjórinn vona að það fari að koma vertíð sunnar í byrjun febr- úar. Árni rembist við að finna loðnu Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son hefur verið í loðnuleiðangri um Vestfjarðamið á meðan fjögur önnur skip hafa verið að loðnumælingum norður af landinu. Samkvæmt færslu sem birt var á vef Hafrann- sóknastofnunar hefur hafísinn á svæðinu hamlað leit Árna Friðriks- sonar nokkuð. Eiríkur segir hins vegar að það hafi fundist loðna í þeim afla sem áhöfnin á Akurey hefur fengið um borð. „Það er einhver loðna í honum. Ég sé nú að hafrannsóknaskipið er eitthvað að rembast við að komast í gegnum þennan ís með misjöfnum árangri.“ „Lýsið rennur af mannskapnum“  Góð veiði er hjá áhöfninni á Baldvini Njálssyni í fyrsta túr ársins, segir skipstjórinn  Stór og mikill ufsi á Vestfjarðamiðum  Óvenjumikil ýsa, segir skipstjórinn á Akurey sem er ánægður með veiðina Ljósmynd/Nesfiskur Frystitogari Áhöfninni á Baldvini Njálssyni GK, sem gerður er út af Nes- fiski ehf., gengur vel að ná af sér jólaspikinu að sögn skipstjórans. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Skuttogari Hafísinn hefur truflað veiðar og er hundleiðinlegur að eiga við. Veiðar hafa samt verið með ágætum hjá Akurey á Vestfjarðamiðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.