Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 60

Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 60
60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 NBA-deildin Brooklyn – Utah ................................. 130:96 Memphis – LA Lakers......................... 92:94 Denver – Minnesota ......................... 123:116 LA Clippers – San Antonio.............. 113:116 Portland – Chicago........................... 108:111  Viðureign Þýskalands og Íslands í fyrstu umferð undankeppni heims- meistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer 25. mars verður leikin í Duisburg á Schauinsland-Reisen- leikvanginum. Hann rúmar ríflega 31 þúsund áhorfendur en þar var m.a. leikið í átta liða úrslitum Evr- ópudeildarinnar í sumar. Leikurinn verður sögulegur fyrir íslenska landsliðið því þetta verður 500. A-landsleikur karla frá upp- hafi, allt frá því Ísland tók á móti Danmörku á Melavellinum í fyrsta leik sínum árið 1946. Leikur númer 500 í Duisburg Morgunblaðið/Eggert 500 Næsti leikur Íslands er gegn Þýskalandi í Duisburg. Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, er verðmætasti knattspyrnumaður Evrópu um þess- ar mundir. CIS Football Observa- tory reiknar út verðgildi leikmanna og birtir reglulega lista yfir þá verð- mætustu en þar eru reiknaðir með þættir eins og aldur og lengd samn- inga. Rashford er metinn á rúmar 150 milljónir punda og er um þrett- án milljónum ofar en tveir næstu menn sem eru Erling Haaland, norska ungstirnið hjá Dortmund, og Trent Alexander-Arnold, hægri bak- vörður Liverpool. Rashford er sá verðmætasti AFP 150 milljónir Marcus Rashford er efstur á verðmætalistanum. hætta með Djurgården. Mér var boðinn áframhaldandi samningur en fannst þetta vera orðið gott eftir að hafa spilað með liðinu í mjög langan tíma. Ég setti mér það markmið að komast aftur í liðið eftir að hafa eignast tvíburana snemma á árinu 2020. Ég náði því og geng stolt frá borði. Ég er hrikalega stolt af því sem ég gerði í ár og mér finnst ég hafa sannað að það sé hægt að spila á hæsta getustigi þrátt fyrir barns- burð sem er frekar óvanalegt hér í Svíþjóð. Mér líkar ótrúlega vel að búa í Stokkhólmi en það var mjög erfitt að fá fótboltann og fjölskyldu- lífið að smella saman þar,“ sagði Guðbjörg. Mikil hjálp með tvíburana Hún kannast vel við sig í Noregi eftir að hafa leikið þar á árunum 2013 til 2015, eitt ár með Avaldsnes og síðan tvö meistaraár með Lille- ström. Seinna árið var hún kjörin besti markvörður norsku úrvals- deildarinnar. „Umboðsmaðurinn minn kom upp með þann möguleika að fara til Arna-Björnar. Félagið vildi allt fyrir okkur gera og er fyrsta félagið sem ég hef komist í samband við sem er svo opið og skilningsríkt yfir því að við eigum tvö lítil börn sem fylgja með. Við fáum mikla hjálp með tví- burana þannig að ég sé fram á að geta einbeitt mér miklu betur að fót- boltanum en ég hefði getað hjá Djurgården. Þegar ég bar saman möguleikana sem við höfðum þá var þetta í raun- inni eina félagið sem ég sá fyrir mér að geta spilað með af fullum krafti þrátt fyrir frekar mikið ströggl heima með svefn og annað. Æfingar liðsins eru allar á daginn nema ein og það hjálpar mjög mikið,“ sagði Guðbjörg. Hjálpa liðinu í toppbaráttu Markmiðin, auk þess að komast aftur í landsliðið, eru tiltölulega ein- föld hjá markverðinum sem lék síð- ast fyrir Íslands hönd gegn Finnum í júní 2019, sinn 64. landsleik. „Ég er ekki enn farin að hugsa um neina markmiðssetningu aðra en þá að halda áfram því sem ég var að gera hjá Djurgården. Ég var komin í mjög gott stand þarna í lokin á tímabilinu og fékk að spila mik- ilvæga leiki sem héldu liðinu uppi. Arna-Björnar hefur metnað til að koma sér aftur á toppinn í norsku úrvalsdeildinni og ég vona svo sann- arlega að ég geti hjálpað til við það.“ Sleppum við sóttkví í Noregi Fjölskyldan er enn í Stokkhólmi en Guðbjörg segir að stefnt sé að því að flytja til Bergen í næstu viku. „Þetta er mikið púsluspil og við erum núna að reyna að pakka sam- an því helsta áður en við förum til Noregs. Við ætlum samt að halda íbúðinni okkar sem við eigum í Stokkhólmi, við náum aldrei að tæma hana á svona stuttum tíma. Svo er þetta allt flóknara út af kór- ónuveirunni. Þetta var ekki eins og áður þegar maður pakkaði bara saman í nokkrar töskur og fór. Við erum „sem betur fer“ búin að fá Co- vid-19 þannig við sleppum alla vega við sóttkví sem gerir þetta örlítið einfaldara og við getum þá alla vega farið að æfa strax og við komum á staðinn,“ sagði Guðbjörg Gunn- arsdóttir. Þar með verða í það minnsta tvö „Íslendingalið“ í norsku úrvalsdeild- inni á árinu 2021. Ingibjörg Sigurð- ardóttir leikur áfram með meist- urum Vålerenga, sem hafa einnig krækt í hina 17 ára gömlu Amöndu Andradóttur frá Nordsjælland í Danmörku. Ætlar sér í mark lands- liðsins á nýjan leik  Guðbjörg Gunnarsdóttir aftur til Noregs eftir að hafa samið við Arna-Björnar Morgunblaðið/Golli Reynsla Guðbjörg Gunnarsdóttir er næstleikjahæsti landsliðsmarkvörður Íslands og hefur leikið í þremur lokakeppnum EM með íslenska liðinu. NOREGUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur sett stefnuna á að leika með íslenska landsliðinu á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru en í kjölfar þess að hún og sambýliskona hennar Mia Jalke- rud sömdu báðar í gær við Arna- Björnar frá Bergen í Noregi til tveggja ára er hún tilbúin í slaginn um landsliðssæti fyrir lokakeppni EM á næsta ári. „Þeir sem þekkja mig vita að ég geri allt hundrað prósent. Ef ég spila á því getustigi sem ég spilaði á undir lokin með Djurgården og í sterkri deild í Evrópu finnst mér eðlilegt að fá kallið aftur. Ég trúi alltaf að mað- ur fái það sem maður eigi skilið og að þeir bestu eigi að spila. Út frá því sé ég ekkert sem ætti að standa í vegi fyrir því að ég spili aftur með lands- liðinu. EM 2022 hefur að sjálfsögðu spilað mikið inní og hefur verið mikil hvatn- ing fyrir mig á leið minni til baka inn á völlinn eftir að ég eignaðist tví- burana. Ég er hrikalega stolt af stelpunum og hlakka gríðarlega til áframhaldsins,“ sagði Guðbjörg við Morgunblaðið eftir undirskriftina í gær. Ég er hrikalega stolt Hún sagði að aðdragandinn að fé- lagaskiptunum hefði ekki verið lang- ur og þær Mia hefðu ekki verið farn- ar að leggja drög að framhaldinu þegar keppni lauk í sænsku úrvals- deildinni um miðjan nóvember. Guð- björg lék þar fimmta árið í röð með Djurgården og níunda samtals en spilaði aðeins þrjá síðustu leikina á tímabilinu eftir að hafa eignast Willi- am og Oliviu snemma árs. Mia spilaði ekkert árið 2020 þar sem samningur hennar rann út í árslok 2019. Hún var markahæsti leikmaður liðsins það ár, sem og mörg önnur tímabil. „Ég tók ákvörðun eftir tímabilið að  Erlingur Richardsson og lærisvein- ar hans í hollenska karlalandsliðinu í handknattleik fengu skell á heimavelli í gær þegar þeir tóku á móti Slóvenum í undankeppni EM. Spennandi leikur virtist þó í uppsiglingu því Hollend- ingar voru yfir lengi vel í fyrri hálfleik og marki yfir að honum loknum, 15:14. Slóvenar tóku hinsvegar völdin strax í byrjun síðari hálfleiks, völtuðu yfir heimamenn og unnu að lokum með ellefu marka mun, 34:23. Var þetta fyrsti leikur Slóvena í riðlinum en Hol- lendingar höfðu áður sigrað Tyrki með eins marks mun.  Knattspyrnumaðurinn Oliver Heið- arsson hefur samið við FH-inga en hann kemur til Hafnarfjarðarliðsins frá Þrótti í Reykjavík. Oliver er 19 ára gamall og skoraði fjögur mörk í nítján leikjum Þróttar í 1. deildinni á síðasta ári. Faðir hans, Heiðar Helguson, var atvinnu- og landsliðsmaður um árabil og lék einnig með Þrótti um skeið.  Bandaríkin sigruðu Kanada 2:0 í úr- slitaleik heimsmeistaramóts U20 ára landsliða í íshokkí í fyrrinótt en leikið var í Edmonton í Kanada. Trevor Zeg- ras var í aðalhlutverki en hann skoraði annað markið og lagði hitt upp. Þetta er fimmti heimsmeistaratitill Banda- ríkjanna í þessum aldursflokki.  Írinn Mick McCarthy var í gær rek- inn úr starfi sem knattspyrnustjóri APOEL á Kýpur en hann hafði aðeins stýrt liðinu í tvo mánuði. McCarthy, sem áður var stjóri ensku liðanna Ips- wich, Wolves, Sunderland og Millwall ásamt því að þjálfa írska landsliðið, var fjórtándi stjóri APOEL á aðeins fimm árum.  Hollenski knattspyrnumarkvörð- urinn Guy Smit hefur samið við Leikn- ismenn í Breiðholti um að leika með þeim í úrvalsdeildinni í ár. Smit, sem er 24 ára, kom til Leiknis frá FC Eindhoven fyrir síðasta tímabil og lék nítján af tuttugu leikjum liðsins í 1. deildinni.  Tékkneska karlalandsliðið í hand- knattleik var sent heim frá Færeyjum í gær eftir að kórónuveirusmit greindust í hópi þess en Tékkar áttu að mæta Færeyingum í undankeppni EM í Þórshöfn í gærkvöld. Leiknum var frestað og sama verður vænt- anlega gert með seinni leik þjóðanna sem átti að fara fram í Tékklandi um helgina. Tékkar eiga að mæta Svíum í fyrsta leik sínum á HM í Egyptalandi 14. janúar.  Króatinn Slaven Bi- lic, sem rekinn var úr starfi knattspyrnu- stjóra enska félagsins WBA rétt fyrir jól, var ekki lengi at- vinnulaus. Hann hefur verið ráðinn stjóri Beijing Guo- an sem hafnaði í þriðja sæti kín- versku úrvals- deildarinnar á síðasta ári. Eitt ogannað Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskonan unga úr Íslands- meistaraliði Breiðabliks, mun skrifa undir samning við þýska stórveldið Bayern München á næstu dögum, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Þar með verður hún annar ís- lenski leikmaðurinn til að spila með kvennaliði félagsins en Dagný Brynjarsdóttir varð þýskur meist- ari með Bayern árið 2015. Þá lék Ásgeir Sigurvinsson með karlaliði Bayern keppnistímabilið 1981-82 og þeir Andri Sigþórsson og Stefán Logi Magnússon voru í röðum félagsins á sínum tíma án þess þó að ná að leika með aðallið- inu. Bayern varð þýskur meistari í þriðja sinn árið 2016 en hefur mátt sjá á eftir titlinum til Wolfsburg undanfarin fjögur ár. Nú virðist dæmið hins vegar vera að snúast við því Bayern er með fimm stiga forskot á Wolfsburg á toppi deild- arinnar þegar keppnin er rúmlega hálfnuð. Karólína Lea er aðeins 19 ára gömul en hefur þegar orðið tvisvar Íslandsmeistari og einu sinni bik- armeistari með Breiðabliki. Hún hefur leikið 78 leiki í úrvalsdeild- inni með Breiðabliki og FH og skorað ellefu mörk, og þá lék hún fjóra fyrstu A-landsleiki sína á árinu 2020, þar sem hún vakti tals- verða athygli fyrir frammistöðu sína. Semur við Bayern á næstu dögum Morgunblaðið/Eggert Þýskaland Karólína Lea Vilhjálms- dóttir er á leiðinni til München.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.