Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Útsala - Frábær tilboð
10-50% afsláttur
Ýmis sértilboð
Örninn Golfverslun
Bíldshöfða 9
577-2525
www.orninngolf.is
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í
vikunni karlmann til að greiða 1,3
milljónir króna í sekt fyrir fjölda
umferðarlagabrota. Maðurinn var
einnig sviptur ökuréttindum í tvo
mánuði og honum gert að greiða
um hálfa milljón króna í máls-
kostnað.
Var maðurinn m.a. sakfelldur
fyrir hraðakstur, fyrir að tala í
síma undir stýri án þess að notast
við handfrjálsan búnað, utan-
vegaakstur, fyrir að aka greitt inn
á bílaplan og spóla bifreið sinni í
nokkra hringi sem skildi eftir sig
hjólför og reyk og fyrir að aka bif-
reið sviptur ökuréttindum.
Alls var maðurinn ákærður fyrir
að brjóta umferðarlög í 14 skipti á
tímabilinu frá 19. ágúst 2019 til 2.
október 2020 en dómurinn sýknaði
hann af af tveimur ákæruliðum.
Fram kemur í dómnum, að mað-
urinn var sektaður fyrir umferðar-
lagabrot í Danmörku í byrjun síð-
asta árs og sviptur ökuréttindum
þar í landi í eitt ár.
1,3 milljónir
í sekt fyrir
umferðar-
lagabrot
Morgunblaðið/Ómar
Dómhús Hús Héraðsdóms Reykja-
ness við Linnetsstíg í Hafnarfirði.
Um 140 milljónum króna verður
varið til bráðaaðgerða og upp-
byggingar innviða á svæðum sem
friðlýst voru árið 2020.
Fram kemur á vef umhverfis-
ráðuneytisins, að á Geysissvæðinu,
sem friðlýst var sl. sumar, verði
m.a. smíðaðir timburpallar við
Konungshver, Strokk og útsýnis-
skífu og ráðist í gerð malarstíga.
Þá verði farið í uppbyggingu
innviða í Kerlingarfjöllum, en
svæðið er á rauðum lista í ástands-
mati vegna mikils álags af völdum
ferðamanna og hætta á að svæðið
tapi verndargildi sínu ef ekkert
verður að gert. Segir ráðuneytið,
að álagið sé hvað sýnilegast á
Neðri-Hveravöllum þar sem mikill
skortur sé á stýringu og innviðum
til að verja einstök hverasvæði og
leirkenndan jarðveginn.
Göngubrú við Hveradali
Einnig á að ráðast í gerð göngu-
brúar á 5 km langri gönguleið úr
Ásgarði í Hveradali. Þá leggur
verkefnisstjórnin til að ráðist
verði í vinnu í umhverfi Búrfells
og Búrfellsgjár, en gönguleiðin í
Búrfellsgjá er mjög vinsæl og
mikið álag á henni. Viðkvæmur
gróður á svæðinu liggur því sums
staðar undir skemmdum vegna
traðks.
Önnur verkefni sem sem ráðu-
neytið nefnir eru gerð upplýsinga-
og gönguleiðaskilta við Goðafoss,
sem og vinna í Þjórsárdal við við-
hald innviða við Háafoss og frum-
athugun á uppbyggingarþörf í
Gjánni og við Hjálparfoss.
Fé varið til uppbyggingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brúargerð Unnið við gerð göngubrúar í Kerlingarfjöllum árið 2014.
Framkvæmdir á svæðum sem friðlýst voru á síðasta ári
Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir
umsóknir á skráningu kyns sem
kynsegin/annað fyrir þá einstaklinga
sem eftir því óska. Fram kemur á vef
stofnunarinnar, að leitað var til Sam-
takanna ’78 eftir samstarfi við að
finna heiti fyrir hlutlausa skráningu
kyns og var þetta heiti talið ná
mestri sátt innan hinsegin sam-
félagsins.
Lög sem veita einstaklingum rétt
til að skilgreina kyn sitt tóku gildi 6.
júlí 2019 og fékk þjóðskrá Íslands 18
mánaða aðlögunartíma til að gera
nauðsynlegar breytingar. Meðal
annars leitaði Þjóðskrá til Árna-
stofnunar með vafamál á einstaka
heitum sem notuð eru í íslenskri
tungu tengd kyni. Hefur verið efnt
til hýryrðakeppni hjá Samtökunum
7́8 í samvinnu við Árnastofnun til að
finna ný orð sem hægt er að nota um
stöðu kynsegin einstaklinga, t.d.
hvaða orð skal nota um kynsegin ein-
stakling sem misst hefur maka sinn.
Opnað fyrir
hlutlausa
skráningu