Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Þrátt fyrir að þekking ákrabbameinum sé alltaf aðaukast er enn ekki vitað um
ástæður fjölmargra krabbameina
en vitað er að lífsstíll og umhverfi
hafa áhrif. Með því að hreyfa sig,
borða hollan mat, tryggja hæfilega
hvíld og huga að líðan má draga úr
líkum á krabbameinum og reyndar
mörgum öðrum sjúkdómum. Tó-
baksnotkun og áfengisneysla eru
meðal helstu áhættuþátta krabba-
meina. Nokkrar tegundir krabba-
meina er hægt að greina á byrj-
unarstigi. Með þátttöku í skimun er
hægt að bæta batahorfur þótt það
komi ekki alltaf í veg fyrir meinið.
Þar á meðal eru krabbamein í leg-
hálsi og í brjóstum.
Krabbamein í leghálsi
Ólíkt mörgum öðrum krabba-
meinum eru orsakir krabbameins í
leghálsi þekktar. Um 99% krabba-
meina í leghálsi orsakast af HPV-
veirum sem smitast við kynlíf. Yfir
80% allra sem hafa stundað kynlíf,
smitast einhvern tímann á lífsleið-
inni. 90% þeirra losna við veiruna
innan 2-3 ára en um 10% fá viðvar-
andi sýkingu og eru í mestri hættu
á að fá leghálskrabbamein.
Stúlkum, fæddum 1998 og síðar,
hefur verið boðin bólusetning fyrir
tveimur tegundum af HPV-veirum
sem valda um 70% legháls-
krabbameina. Einnig er á markaði
bóluefni sem kemur í veg fyrir um
90% leghálskrabbameins. Ekkert
bóluefni kemur í veg fyrir sjúkdóm-
inn og því konum ráðlögð skimun
þrátt fyrir að hafa verið bólusettar.
Helstu einkenni krabbameins í
leghálsi geta verið blæðingar við
eða eftir samfarir, milliblæðingar,
blæðingar eftir tíðahvörf og óeðlileg
útferð frá leggöngum.
Skimun fyrir
leghálskrabbameini
Meðalaldur við greiningu legháls-
krabbameins er um 46 ár. Regluleg
þátttaka í skipulegri skimun getur
lækkað dánartíðni um 90% sem er
álíka árangursrík heilsuvernd og
bólusetningar barna.
Einkennalausum konum á aldurs-
bilinu 23-29 ára er boðin skimun á
þriggja ára fresti með hefðbundinni
frumurannsókn. Á aldursbilinu 30-
64 ára er konum boðin HPV-
frumuskimun á fimm ára fresti sem
er nýung hér á landi og samkvæmt
alþjóðlegum leiðbeiningum.
Konur sem hafa fengið boðsbréf
eru hvattar til að panta tíma í skim-
un með því að hringja á valda
heilsugæslustöð. Þær sem búa á
höfuðborgarsvæðinu geta einnig
bókað tíma á Mínum síðum á heilsu-
vera.is.
Ljósmæður og hjúkrunarfræð-
ingar sem hafa hlotið sérstaka
þjálfun taka leghálssýni á heilsu-
gæslustöðvum um land allt. Ein-
ungis komugjald er greitt fyrir
skimunina.
Krabbamein í brjóstum
Orsakir krabbameins í brjóstum
eru ekki þekktar en nokkrir þættir
geta aukið líkur. Þar á meðal eru
hækkandi aldur, fjölskyldusaga,
áfengisneysla, offita og ýmislegt
tengt kvenhormónum.
Fyrstu einkenni brjóstakrabba-
meins er oft hnútur í brjósti, flestir
þeirra eru ekki krabbamein.
Ástæða er til að leita læknis ef
kona finnur hnút í brjósti eða hol-
hönd, breytingu á lögun, stærð eða
yfirborði brjósts eða útferð úr geir-
vörtum. Verkur í brjósti er sjaldan
einkenni brjóstakrabbameins.
Skimun fyrir
brjóstakrabbameini
Brjóstakrabbamein er algengasta
krabbamein kvenna hér á landi.
Meðalaldur við greiningu er um 62
ár. Regluleg þátttaka í skipulegri
skimun getur lækkað dánartíðni um
20%. Núna er einkennalausum kon-
um á aldrinum 50 - 69 ára boðin
skimun fyrir brjóstakrabbameini á
tveggja ára fresti og konum á aldr-
inum 70-74 ára á þriggja ára fresti.
Það eru nýmæli að aldursmörk í
skimunina hafa færst frá 40 ára til
50 ára aldurs, í samræmi við alþjóð-
legar leiðbeiningar. Þegar konur fá
boðsbréf eru þær hvattar til að
hringja á samhæfingarstöð krabba-
meinsskimana og panta tíma.
Aukið aðgengi að skimun
Núna um áramótin urðu miklar
breytingar á skimun fyrir krabba-
meini í brjóstum og leghálsi hér á
landi. Tilgangur breytinganna er
meðal annars að auka aðgengi og
þátttöku kvenna með því markmiði
að lækka dánartíðni þeirra vegna
þessara sjúkdóma.
Á heilsugaeslan.is er að finna
frekari upplýsingar um fyrir-
komulag skimunar fyrir krabba-
meini í brjóstum og leghálsi.
Krabbamein í brjóstum og leg-
hálsi – skimun skilar árangri
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kvennahlaup Með því að hreyfa sig, borða hollan mat og huga að líðan má draga úr líkum á krabbameinum.
Heilsuráð
Þóra Jónsdóttir,
verkefnastjóri í samhæfingar-
stöð krabbameinsskimana
Kristján Oddsson,
svæðisstjóri og fagstjóri lækn-
inga Heilsugæslunni Hamraborg
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands hef-
ur fært Samtökum um kvennaathvarf
eina milljón króna að gjöf, til minn-
ingar um Viktor E. Frankl, höfund
bókarinnar Leitin að tilgangi lífsins.
Bókin var gefin út í íslenskri þýðingu
árið 1997 á vegum Háskólaútgáf-
unnar og Siðfræðistofnunar. Frankl
kaus að láta höfundarlaun renna til
góðs málstaðar sem snertir velferð
barna.
„Samtök um kvennaathvarf hafa
um árabil sinnt þessu mikilvæga
hlutverki af alúð gagnvart börnum
sem búa við ofbeldi á heimilum sín-
um. Það er von stjórnar Siðfræði-
stofnunar að þessi gjöf geri sam-
tökunum kleift að bæta aðstöðu sína
og þjónustu við börn,“ segir í til-
kynningu.
Siðfræðistofnun fær styrk
Tilgangur lífsins
Stuðningur Sigþrúður Guðmunds-
dóttir frá Kvennaathvarfinu og Páll
Rafnar Þorsteinsson og Vilhjálmur
Árnason frá Siðfræðistofnun.
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151
tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu
án endurgjalds
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Allar almennar
BÍLAVIÐGERÐIR
Öryggisíbúðir Eirar til langtímaleigu
Grafarvogi Reykjavík
Tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar
til leigu í Grafarvogi, Reykjavík
Eirborgir, Fróðengi 1-11, 112 Reykjavík.
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3-5, 112 Reykjavík.
Eir öryggisíbúðir ehf.
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Sími 522 5700
Hafið samband í síma 522 5700 milli 8 og 16 virka daga eða pantið gögn
og nánari upplýsingar ásamt skoðun á netfangið sveinn@eir.is
• Rólegt og notarlegt umhverfi með
aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og
þjónustu með það að markmiði að
einstaklingurinn geti búið lengur heima.
• Öryggisvöktun allan sólarhringinn
• Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð
• Góðar gönguleiðir í nágrenninu
Allt um sjávarútveg
Lesendur sunnlenska.is kusu 500
starfsmenn Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands Sunnlendinga ársins
2020. Starfsfólk HSu fékk örugga
kosningu og þátttakan í atkvæða-
greiðslunni var góð. HSu rekur tvö
sjúkrahús og níu heilsugæslur á tíu
starfsstöðvum. Ólöf Árnadóttir,
hjúkrunardeildarstjóri á Selfossi, tók
við viðurkenningunni úr hendi Guð-
mundar Karls Sigurdórssonar, rit-
stjóra sunnlenska.is.
Starfsfólk HSu
Sunnlendingar ársins
Heiður Ólöf og Guðmundur Karl.