Morgunblaðið - 07.01.2021, Síða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
✝ Dóra LydíaHaraldsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1. maí
1943. Hún varð
bráðkvödd á heimili
sínu 20. desember
2020.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Har-
aldur Guðjónsson
frá Skaftafelli,
Vestmannaeyjum, f.
12.12. 1920, d. 23.11. 1993, og
Pálína Pálsdóttir frá Vest-
mannaeyjum, f. 4.9. 1918, d. 7.1.
1972. Bræður Lydíu eru Páll
Haraldsson, f. 12.12. 1947, kíró-
praktor og Haraldur Haralds-
son, f. 16.11. 1962, sjúkranuddari
og fyrrverandi flugþjónn. Þeir
eru báðir búsettir í Danmörku.
29.5. 1975, fiðluleikari. 3) Mar-
grét, f. 30.4. 1981, sellóleikari,
gift Þórði Mar Sigurðssyni, f.
10.5. 1972, framkvæmdastjóra.
Haraldur, bróðir Lydíu, dvaldist
á heimili Lydíu og Árna frá níu
ára aldri eftir fráfall móður
hans.
Lydía ólst upp í Vestmanna-
eyjum og fluttist tíu ára gömul
með fjölskyldu sinni til Keflavík-
ur. Hún vann á sínum yngri ár-
um í skóbúð og skartgripaversl-
un Magnúsar E. Baldvinssonar í
Keflavík. Hún fluttist til Reykja-
víkur 25 ára eftir að hún giftist
Árna og vann um tíma á Ríkis-
útgáfu námsbóka. Eftir að hún
eignaðist börnin vann hún sem
heimavinnandi húsmóðir.
Útför Lydíu fer fram frá
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í
dag, 7. janúar 2021, klukkan 15.
Athöfninni verður streymt á vef-
slóðinni: https://filadelfia-
reykjavik.online.church
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Lydía giftist 22.
júní 1968 Árna Ar-
inbjarnarsyni tón-
listarmanni, f. 8.9.
1934, d. 1.3. 2015.
Foreldrar hans
voru hjónin Arin-
björn Árnason frá
Neðri-Fitjum í Víði-
dal, f. 16.8. 1904, d.
11.1. 1999, og Mar-
grét Jónína Karls-
dóttir frá Bjargi í Miðfirði, f.
20.4. 1893, d. 25.8. 1991. Börn
Lydíu og Árna eru: 1) Arinbjörn,
f. 22.3. 1971, píanóleikari búsett-
ur í Englandi, kvæntur Joanne
Árnason, f. 19.3. 1973, fagott-
leikara. Börn þeirra eru: Aron
James, f. 1.10. 2003, og Joshua
Ben, f. 4.4. 2007. 2) Pálína, f.
Elsku yndislega mamma mín
er nú komin heim til Drottins. Það
er óraunverulegt og ólýsanleg til-
finning að mamma er ekki til stað-
ar lengur. Við mamma áttum gott
og náið samband og vorum góðar
vinkonur. Það var svo notalegt að
búa nálægt hvor annarri og borða
saman á kvöldin. Ég er svo þakk-
lát fyrir allar okkar góðu og
skemmtilegu samverustundir.
Mamma var einstaklega falleg
kona og stafaði birta frá henni
hvert sem hún fór. Hún hafði létt
lundarfar og var mjög hláturmild
og skemmtileg. Mamma var einn-
ig jákvæð og lífsglöð og fannst
gaman að lifa.
Mamma og pabbi áttu yndis-
legt og gott hjónaband, og voru
þau sérstaklega náin og samrýnd.
Það var mikill missir fyrir
mömmu þegar pabbi minn, Árni
Arinbjarnarson, lést árið 2015 eft-
ir veikindi. En mamma sýndi mik-
inn styrk og lífsvilja.
Mamma átti lifandi trú á Guð,
og ung að árum tók hún á móti
Jesú Kristi sem frelsara sínum.
Hún sótti reglulega samkomur í
Hvítasunnukirkjunni. Fyrst í Be-
tel í Vestmannaeyjum, þar sem
hún fæddist, og frá 10 ára aldri í
Hvítasunnukirkjunni í Keflavík,
þar sem faðir hennar Haraldur
Guðjónsson var forstöðumaður.
Eftir að mamma giftist pabba
fluttu þau til Reykjavíkur, en þá
var hún 25 ára.
Mamma var svo góð fyrirmynd
fyrir okkur systkinin. Hún sýndi
okkur hvernig trúin á Guð getur
hjálpað og leitt okkur í gegnum
lífið, bæði í gleði og sorg. Mamma
mætti ýmiss konar mótlæti í
gegnum árin og líkamlegum veik-
indum. En hún sýndi alltaf mikla
jákvæðni, þrautseigju og traust á
Guð.
Mamma var alltaf mín stoð og
stytta, og tók mikinn þátt í öllu
mínu daglega lífi. Ég er þakklát
fyrir þær góðu minningar um
stundirnar sem við mamma áttum
saman á morgnana þegar ég var
lítil og báðum til Guðs. Þetta er
ómetanlegt veganesti út í lífið og
hefur fylgt mér alla tíð. Hún
hjálpaði mér einnig á byrjunarár-
unum í fiðlunáminu og var alltaf
hjá mér þegar ég æfði mig á fiðl-
una. Mamma hafði gott tóneyra
þótt hún spilaði ekki sjálf á hljóð-
færi. Hún naut þess að hlusta á
tónlist og fara á tónleika. Hún
sýndi mikla þolinmæði þegar við
systkinin og pabbi æfðum okkur á
hljóðfærin, oft á sama tíma, á
heimilinu.
Það eru líka margar góðar
minningar frá skemmtilegu út-
reiðartúrunum og hestaferðalög-
unum sem við fjölskyldan fórum
saman í. Foreldrar mínir áttu
hesthús í Víðidalnum, og mamma
var einstaklega dugleg að hirða
hestana og fara í útreiðartúra.
Þetta gaf henni svo mikla ánægju.
Ég er svo þakklát fyrir alla
elskuna og umhyggjuna sem
mamma sýndi mér. Það er erfitt
að ímynda sér lífið án mömmu, að
geta ekki hringt í hana og heyrt
fallegu röddina hennar. Það er
óendanlega sárt að kveðja elsku
mömmu mína, og söknuðurinn er
svo mikill. En það er mikil huggun
fólgin í þeirri fullvissu og trú, að nú
er mamma komin heim til Drottins
og að þetta er tímabundinn að-
skilnaður.
Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið.
Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann
deyi.“
(Jóh. 11:25.)
Pálína Árnadóttir.
Fjórði sunnudagur í aðventu.
Vetrarsólstöður – þegar birta tek-
ur á ný. Kveikt var á fjórða og síð-
asta kertinu á aðventukransinum,
Englakertinu. Jólin fram undan,
þegar við fögnum fæðingu frelsar-
ans. Elsku mamma og Pálína syst-
ir mín voru í heimsókn hjá okkur
Þórði þetta sunnudagskvöld.
Mamma var mikið jólabarn og
fannst gaman að skoða jólaskraut-
ið hjá okkur, alla englana sem hún
hafði gefið mér á aðventunni í
gegnum árin. Á borðinu stóðu
rauðu túlípanarnir sem hún hafði
gefið mér tveimur dögum áður. Við
áttum yndislega kvöldstund sam-
an. Fljótlega eftir að hún kom heim
til sín þetta kvöld fór hún heim til
Jesú, í hina sönnu himnesku jóla-
gleði sem tekur aldrei enda. Það
hefur örugglega verið heill engla-
kór sem tók á móti henni.
Fyrir mér var mamma eins og
engill. Hún var falleg og björt og
geislaði af hlýju og kærleika. Frá
barnsaldri átti hún djúpa og ein-
læga trú á Jesú Krist og bað fyrir
mörgum. Hún bar mikla um-
hyggju fyrir fólki, var örlát og gjaf-
mild og var alltaf að hugsa um
aðra. Á árum áður var hún algjör
klettur fyrir tengdaforeldra sína
og var trúföst í umönnun þeirra.
Hún var okkur systkinunum ein-
stök móðir og gaf sig alla í að ann-
ast okkur fjölskylduna af mikilli
umhyggju og ást. Mér er minnis-
stætt þegar ég var lítil, áður en ég
hóf skólagöngu, að við mamma sát-
um saman við eldhúsborðið á
morgnana og við báðum saman,
svo kenndi hún mér að lesa og fór-
um svo í sellóæfingarnar. Hún var
alltaf svo blíð og góð og það var svo
notalegt að vera í kringum hana.
Það er ómetanlegt að eiga æsku-
minningar um mömmu sem var
alltaf til staðar þegar ég kom heim
úr skólanum, oft með eitthvað ný-
bakað úr ofninum.
Við mamma vorum alla tíð mjög
nánar og okkur fannst mjög sætt
að afmælisdagar okkar skyldu
vera hlið við hlið. Við vorum bestu
vinkonur og mér fannst ómissandi
að tala við hana í síma nokkrum
sinnum yfir daginn og fara helst í
kaffi til hennar daglega. Það kom
sér vel að við bjuggum í sama
hverfinu. Það var alltaf svo gott að
spjalla við hana um allt, hún var
svo góður hlustandi. Hún var glað-
lynd og skemmtileg og hafði ein-
staklega góðan húmor. Það var
gaman að fara með henni nokkrar
ferðir í berjamó í haust og var hún
dugleg að tína. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt svona yndislega
mömmu og fyrir allt sem hún gerði
fyrir mig.
Mamma og pabbi voru mjög
samrýnd hjón og hún saknaði hans
mikið eftir að hann lést árið 2015.
Nú eru þau saman á ný. Það er
sárt að kveðja elsku mömmu mína
og ég sakna hennar óendanlega
mikið. Nú er hún í dýrðinni hjá
Jesú þar sem við munum öll hitt-
ast á ný.
Jesús sagði: „Ég lifi og þér munuð lifa.“
(Jóh. 14:19)
Margrét Árnadóttir.
Elskuleg tengdamóðir mín varð
bráðkvödd á heimili sínu fjórða
sunnudag í aðventu. Mér var veru-
lega brugðið að fá þessar fréttir
rétt fyrir jólin. Kvöldið sem hún
fór höfðum við Margrét átt góða
kvöldstund saman með henni og
Pálínu heima hjá okkur Margréti.
Við áttum skemmtilegar samræð-
ur og vorum farin að hlakka til að
eyða jólunum saman. Fyrr um
daginn höfðum við Margrét keypt
jólatré handa henni og sett upp í
stofunni hjá henni og ætlaði Mar-
grét að skreyta það daginn eftir.
Aldrei hefði maður trúað því að
þetta kvöld væri kveðjustundin.
Ég á eftir að sakna tengdamóð-
ur minnar sem var mér alltaf svo
góð og talaði alltaf svo hlýlega og
fallega til mín. Hún hafði mikinn
áhuga á öllu sem við vorum að
gera. Það var gott að vita að við
vorum alltaf í bænum hennar og
hún var mikill þáttakandi í öllu
okkar daglega lífi. Hún var svo
blíð og góð og alltaf stutt í húm-
orinn. Hún bauð okkur reglulega í
mat á sunnudagskvöldum í lamba-
læri og passaði upp á að ég fengi
mikinn rjóma með eftirréttinum.
Þegar Margrét og Pálína voru í
tónleikaferð var Lydía alltaf að
bjóða mér í mat og hugsaði vel um
mig. Það var alltaf bjart yfir henni,
henni þótti vænt um fólk og var
mjög félagslynd enda var alltaf
heitt á könnunni hjá henni. Hún
var mikil fjölskyldumanneskja og
hugsaði vel um fólkið sitt.
Það er dýrmætt að hafa náð að
fara með henni í ferðalag síðasta
sumar í Reykholt þar sem við
skoðuðum nánasta umhverfi,
Húsafell, Hraunfossa og geitaset-
ur sem sló algjörlega í gegn hjá
Lydíu. Henni fannst svo gaman að
halda á kiðlingunum. Hún var eitt
sólskinsbros. Hún var mikill dýra-
vinur og hestakona.
Lydía var einstök kona sem
skartaði öllu því besta sem hægt
er að hugsa sér. Hún var einstök
tengdamóðir, kærleiksrík, um-
hyggjusöm og mikil Guðskona.
Hún átti persónulega trú á Jesú
Krist og hún bar það með sér allt
sitt líf.
„Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf
einkason sinn til þess að hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“
Jóhannes 3:16
Blessuð sé minning elsku
tengdamóður minnar.
Þórður Mar Sigurðsson.
Við bræðurnir eigum margar
yndislegar minningar um elsku
ömmu. Þó að við höfum nú búið í
Englandi í næstum 14 ár nutum
við þess svo innilega þegar við fór-
um í heimsóknir til ömmu á Ís-
landi. Við elskuðum stundirnar
með ömmu á Íslandi og líka þegar
hún kom í heimsóknir til Eng-
lands með afa fyrstu árin eftir að
við fluttum út. Alltaf þegar við
komum í heimsókn til Íslands, þá
eldaði amma svo frábæran mat og
bakaði svo fínar kökur handa okk-
ur. Við minnumst ljúfs ilms úr eld-
húsinu hennar ömmu og þegar við
bökuðum saman kökur með
henni. Við virkilega nutum þess-
ara stunda með elsku ömmu og
enn í dag notum við uppskriftirn-
ar frá henni þegar við bökum kök-
ur hér heima í Englandi.
Eitt sumarið þegar amma og
afi komu að heimsækja okkur hér
í Englandi fórum við í dagsferð til
Norður-Devon. Við munum sér-
staklega eftir því þegar við skoð-
uðum áhugaverða steina á strönd-
inni með ömmu. Henni fannst
steinarnir svo fallegir að hún tók
þá með sér til Íslands og setti þá í
stofugluggann sinn.
Þegar við vorum mjög ungir
munum við líka eftir því þegar
amma bjó til pappírsbáta og lét þá
fljóta á tjörn í garðinum okkar.
Við vorum mjög hrifnir af því! Svo
var hún mjög klár að djöggla bolt-
um á lofti. Amma var mjög hrifin
af list og af fallegum hlutum og við
munum alltaf minnast þess
hversu glöð hún var þegar Aron
sendi henni eitt af olíumálverkum
sínum á síðasta ári. Aron málaði
málverkið fyrir ömmu á meðan
hún var í aðgerð á síðasta ári og til
að gleðja hana þegar hún kæmi
heim.
Við munum sakna þess að tala
við ömmu í símanum af því að það
var alltaf svo gott að heyra í henni
og að tala um lífið og hvernig allt
gengur. Þrátt fyrir að hafa ekki
komist í heimsókn til ömmu á síð-
asta ári var samt mjög dýrmætt
fyrir okkur bræður að geta talað
við ömmu á FaceTime og geta séð
hana.
Hún var alltaf svo glöð að sjá
okkur í símanum og við vorum líka
svo þakklátir fyrir að sjá og tala
við hana.
Við bræður erum mjög þakk-
látir fyrir kærleika ömmu og fyrir
hennar uppörvun. Hún var alltaf
svo elskuleg við okkur bræðurna
og hún sagði okkur oft að á hverj-
um degi bæði hún til Guðs fyrir
okkur. Okkur hlýnar um hjarta-
rætur við tilhugsunina um að
amma er núna á himnum með
elsku afa.
Við höfum þá fullvissu og sann-
færingu í hjarta að þau bæði biðja
fyrir okkur nú, alveg eins og þau
gerðu þegar þau voru með okkur
hér á jörðu.
Aron James og Joshua
Ben, Englandi.
Við andlát Lydiu Haraldsdótt-
ur koma fram margar minningar
frá liðnum árum, flestar tengdar
heimsóknum þeirra hjóna að
Bjargi, mínu æskuheimili, en
einnig mörgum samverustundum
síðar.
Hún var Keflavíkurmær og
vann við verslunarstörf. Hún gift-
ist móðurbróður mínum, Árna Ar-
inbjarnarsyni, þá bæði komin vel
af unglingaskeiði.
Árni bjó fram að giftingu þeirra
hjá foreldrum sínum, Arinbirni
Árnasyni frá Fitjum í Fitjárdal og
Margréti Karlsdóttur, ættaðri frá
Bjargi í Miðfirði. Árni var yngsta
barn hennar, en fyrir átti hún
fimm börn og var Anna móðir mín
elst.
Heimili Arinbjörns og Mar-
grétar ömmu var um áratuga-
skeið á Birkimel 6 í Reykjavík og
naut ég þeirrar gæfu að dvelja þar
sem barn í einn vetur, við leik og
nám.
Það var reyndar fyrir tíma Ly-
diu. Mikil tónlist í hávegum og
léttleiki yfir heimilinu. Birkimelur
6 var eins konar aðsetur fólksins
að norðan. Þangað var gott að
koma og amma Margrét fylgdist
með öllum ættboganum syðra og
miðlaði fréttum.
Þau Lydia og Árni voru ein-
staklega glæsileg hjón, giftu sig í
júní 1968 og áttu þau barnaláni að
fagna. Elstur er Arinbjörn, lærð-
ur píanóleikari, þá Pálína, sem
leikur á fiðlu í Sinfóníuhljómsveit
Íslands, svo einnig Margrét, sem
leikur þar á selló. Árni starfaði
alla ævi við tónlist, kennari og
bæði fiðlu- og organleikari við
ýmsar kirkjur. Hann var einnig
um árabil tónlistarstjóri Fíladel-
fíusafnaðarins, en þau Lydia voru
bæði meðlimir í þeim söfnuði. Eft-
ir giftingu þeirra hjóna var köllun
hennar að skapa veglegt og kær-
leiksríkt heimili fyrir fjölskyld-
una.
Samheldni þeirra hjóna var
augljós og einlæg. Á heimili þeirra
var mikið af hljóðfærum, vegleg-
astur mikill flygill í stofunni, en
fiðlur og fleiri hljóðfæri á veggjum
og gólfi. Anna móðir mín átti oft
erindi til þeirra hjóna, stundum
gætti hún húss og dýra, ef hjónin
brugðu sér af bæ. Hún naut þess-
ara heimsókna mjög.
Við Lydia hittumst á sjúkra-
hóteli Landspítalans í júní í sum-
ar, bæði til að jafna okkur eftir að-
gerðir.
Áttum við þar nokkur samtöl,
en samveran var skert, vegna Co-
vid-reglna. Hún var kát og
skemmtileg, eins og hennar var
eiginleiki.
Ræddum gamla tíma og rifjuð-
um upp ýmis atvik. Ekki var fyr-
irsjáanlegt að það yrði okkar síð-
asti samfundur. Táknrænt var að
eftir óvænt andlát hennar skyldi
ég opna jólakort frá henni, þar
sem hún óskar okkur fjölskyld-
unni farsældar og lýsir jafnframt
góðri líðan sinni og heilsu.
Að leiðarlokum vil ég og fyrir
hönd okkar systkinanna frá
Bjargi þakka góða samleið og
flytja börnum og fjölskyldu Lydiu
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Blessuð sé minning hennar.
Karl Sigurgeirsson.
Það er ótrúlegt að sitja hér og
skrifa minningargrein um Lydíu.
Eftir að mamma mín féll frá tók
ég hennar stað sem trúnaðarvin-
kona Lydíu. Við gátum talað um
nánast allt, áttum sömu trú og
vorum ótrúlega nánar vinkonur.
Ef eitthvað var að gat ég verið viss
um að hún bæði fyrir því þar sem
hún hafði einlægan áhuga á öllu
sem viðkom fjölskyldunni.
Við áttum marga fasta snerti-
fleti í lífinu. Nýársdagur var alltaf
hátíðlegur því þá komu Árni og
Lydía til okkar í Lönguhlíðina.
Eftir að foreldrar okkar féllu frá
fórum við Halldór bróðir og Lydía
yfirleitt þrjú saman í afmælið
hans Palla bróður. Við það urðum
við þrjú nokkurs konar þríeyki.
Eftir að Palli féll frá héldum við
þrjú áfram að hittast á kaffihúsi á
afmælisdegi hans. Það var alltaf
tilhlökkun að hittast, oftast á
Mokka en það var uppáhaldsstað-
ur Palla. Við Lydía og Halldór fór-
um einnig saman í bíl norður í
Miðfjörð vegna 100 ára fæðingar-
afmælis Önnu frænku.
Við fundum ekki staðinn strax
og keyrðum kringum Vatnsnesið
fram og til baka. Okkur var
reyndar alveg sama þótt við hefð-
um villst því það var svo gaman að
vera saman. Ómissandi samverur
voru einnig afmæli Lydíu 1. maí
og berjamórinn í sveitinni okkar á
haustin. Þar sá ég Lydíu síðast.
En símtölin voru mörg og við vor-
um farnar að hlakka til að hittast á
Mokka hinn 12. febrúar. Þess í
stað verður næsti hittingur á
himnum, ekki bara í klukkutíma
heldur um alla eilífð. Þangað til
þarf ég að endurraða lífi mínu,
slíkt er skarðið sem Lydía skilur
eftir sig. Hún var þvílíkt yndisleg
og gefandi kona að skarð hennar
verður vandfyllt. Ég votta börn-
um hennar þremur og bræðrum
innilega samúð. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Guðrún Margrét Pálsdóttir.
Í dag er borin til moldar kær
vinkona og trúsystir, Dóra Lydía
Haraldsdóttir. Hún varð bráð-
kvödd á heimili sínu 20. desember
síðastliðinn.
Vinátta okkar hófst fyrir um
það bil fjörutíu árum. Það var á
jólasamkomu í Fíladelfíu í
Reykjavík. Þá voru jólasamkomur
hátíðlegar og við klæddumst okk-
ar fínustu fötum og hlökkuðum til
samverunnar. Lydía sat í bekk
fyrir framan okkur Óla, ásamt
börnum sínum, Pálínu, Margréti
og Arinbirni. Árni Arinbjarnar,
maður Lydíu, organisti og kór-
stjóri Fíladelfíusafnaðarins, var
uppi á sviði og annaðist alla tón-
list.
Skömmu eftir að guðsþjónust-
an hófst sneri Lydía sér við í sæt-
inu, rétti mér hönd og kynnti sig.
Handtak hennar var kyrrt og
þétt. Frá þeirri stundu vorum við
vinkonur og í framhaldi varð til lít-
ill hópur trúsystra sem hélt hóp-
inn, en í honum voru, auk okkar
Lydíu, Marianne Glad og Soffía
Vigfúsdóttir, en hún lést 1997.
Í öll þessi ár hélst einlæg vin-
átta okkar og störfuðum við sam-
an í Systrafélagi safnaðarins og
einnig hittumst við til skiptis á
heimilum okkar.
Á þessum svokölluðu efri árum
myndast skörð í hóp okkar eldra
fólks. Þannig er lífið. Vinir falla
frá og tilveran verður fátæklegri
við hvert andlát. Þá er og erfiðara
að bindast nýju fólki vináttubönd-
um með hækkuðum aldri og kyn-
slóðaskiptum.
Trygg vinátta eins og við fjórar
ræktuðum í öll þessi ár er vand-
fundin. Við mótlæti og áföll studd-
um við hver aðra og á góðum
stundum glöddumst við saman.
Óteljandi símtöl einkenndu
tryggð okkar þegar erfiðara var
að hittast vegna slakari heilsu og
alls þess sem hækkuðum aldri
fylgir. Söknuður verður fyrirferð-
armeiri. Skörðum fjölgar i heims-
myndinni.
Og nú hefur eitt skarðið til við-
bótar bæst við. Með þessum fá-
tæklegu orðum okkar kveðjum við
Óli Lydíu með söknuði, þakklát
fyrir vináttu hennar í gegnum ár-
in. Börnum hennar og fjölskyldu
vottum við einlæga samúð við frá-
fall þessarar traustu konu.
Ásta Jónsdóttir
og Óli Ágústsson.
Þegar fregnin barst um að
Lydía hefði flutt til nýrra heim-
kynna var það eitthvað svo snöggt
og fyrirvaralaust, svo ótrúlega
óraunverulegt.
Lydía kom inn í ættina mína
þegar Árni yngsti bróðir pabba
kynnti hana til sögunnar fyrir
rúmum 50 árum. Hún var svo
elskuleg, falleg og skemmtileg.
Mamma mín, mágkona hennar,
hélt alla tíð mikið upp á hana og
þær voru bestu vinkonur á meðan
mamma lifði. Hún missti mikið
þegar mamma dó fyrir allmörgum
árum, en þegar Árni eiginmaður
hennar dó fyrir fimm árum var
söknuður hennar mikill og lang-
varandi, en samrýndari hjón en
þau finnur maður varla. Aldrei féll
skuggi á það hjónaband mér vit-
andi. Ég gerði mér far um að líta
til Lydíu annað slagið eftir andlát
Árna að áeggjan Bjargar konu
minnar. Þá kynntist ég þessari
frábæru konu betur og var það
alltaf tilhlökkun að koma við í
Geitlandinu þegar færi gafst, setj-
ast í eldhúsið, stofuna eða út í garð
þegar þannig stóð á og spjalla um
allt milli himins og jarðar.
Söknuðurinn er nú mikill hjá
Pálínu og Margréti, sem önnuðust
móður sína svo frábærlega vel og
voru svo miklar vinkonur hennar.
Elsku Pálína, Margrét, Arin-
björn, Haraldur, Páll og fjölskyld-
ur, innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Ég bið góðan Guð að vera með
fjölskyldunni og græða sárin, en
hann er jú svo góður í því.
Halldór Pálsson.
Dóra Lydía
Haraldsdóttir