Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
„ÉG ER FARINN AÐ HALDA AÐ ÞÚ VILJIR
EKKI LÁTA ÞÉR BATNA.”
„ÉG VIL AÐ ÞÚ GANGIR TVO KÍLÓMETRA
Á DAG … OG TAKIR HUNDINN MINN MEÐ
ÞÉR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að taka frá sæti fyrir
hann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER SVO GAMALL AÐ ÉG SET
KJÖTMEYRI Á BÚÐINGINN MINN
FYRSTA GÆLUDÝRIÐ
MITT VAR RISAEÐLA
ÉG ELSKA
GRÍNSTÖÐ
GÖMLU
KARLANNA
FÆÐINGAR-
VOTTORÐIÐ MITT
ER SKRIFAÐ MEÐ
HÍERÓGLÝFUM
FINNST ÞÉR STUNDUM EINS OG
ÞÚ VILLIR Á ÞÉR HEIMILDIR?
JÁ
EN BARA ÞEGAR ÉG ER AÐ FELA MIG FYRIR
ÁKVEÐNUM RAUÐHÆRÐUM ELTIHRELLI!
ÉG VEIT AÐ
ÞÚ ERT HÉRNA
INNI!!
konan hans hafi unnið sandspyrnu-
keppnir á bílnum. „Ég læt hana al-
veg um þær keppnir, en það mætti
helst líkja sandspyrnu við ródeó-
keppnir,“ en þar reyna knapar að
sitja sem lengst á ótemjum.
Fjölnir sinnti torfærunni lítið árið
2020 af því þau hjónin eignuðust
dóttur það ár. „Ég var að klára fæð-
ingarorlofið, tók mánuð og mánuð í
senn, því ég þurfti að sinna samlag-
inu. En ég ætla að hella mér aftur í
torfæruna og er með nýjan bíl í
smíðum svo í augnablikinu er ég
með tvo bíla og hvorugan gangfær-
an. Tímabilið hefst í maí ef sótt-
varnir leyfa en við ættum að vera
tilbúnir í mars.“
Fjölskylda
Eiginkona Fjölnis er Eva Hilm-
arsdóttir, f. 24.9. 1981, hjúkrunar-
fræðingur. Þau eru búsett á Lóns-
bakka í Hörgársveit. Foreldrar Evu
eru Hilmar Magnússon, f. 21.2.
1962, vélamaður frá Vopnafirði, bú-
settur í Rotoroa á Nýja-Sjálandi,
kvæntur Leanne Leggett, og Anna
Halldóra Halldórsdóttir, f. 9.4. 1963,
bókari frá Vopnafirði, búsett á
Akureyri, gift Magnúsi Ólafi Krist-
jánssyni.
Dóttir Fjölnis og Evu er Anna
Dóra Fjölnisdóttir, f. 5.3. 2020.
Systkini Fjölnis eru Pétur Steinn
Guðmannsson, f. 11.11. 1986, raf-
virki, búsettur á Egilsstöðum, og
Herdís Hulda Guðmannsdóttir, f.
8.11. 1988, skrifstofukona, búsett á
Akureyri
Foreldrar Fjölnis eru Guðmann
Þorvaldsson, f. 6.5. 1955, grunn-
skólakennari, búsettur á Eskifirði,
og Sólveig Eiríksdóttir, f. 23.2.
1960, skrifstofustjóri, búsett á
Akureyri.
Fjölnir
Guðmannsson
Vilborg Sigfúsdóttir
húsfreyja í Dölum
Steinn Björgvin Steinsson
bóndi í Dölum í Fáskrúðsfirði
Hulda Steinsdóttir
húsfreyja á Brimnesi II
Eiríkur Ármann Guðmundsson
bóndi á Brimnesi II við
Fáskrúðsfjörð
Sólveig Eiríksdóttir
skrifstofustjóri á Akureyri
Solveig Eiríksdóttir
húsfreyja á Brimnesi
Guðmundur Þorgrímsson
bóndi á Brimnesi
Ragnhildur Eiríksdóttir
húsfreyja á Rannveigarstöðum
Pétur Helgi Pétursson
bóndi á Rannveigarstöðum í
Álftafirði
Kristín Pétursdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Þorvaldur Friðriksson
múrari á Eskifirði
Elínborg Kristín Þorláksdóttir
húsfreyja á Eskifirði
Friðrik Árnason
hreppstjóri á Eskifirði
Úr frændgarði Fjölnis Guðmannssonar
Guðmann Þorvaldsson
grunnskólakennari á Eskifirði
Sigurlín Hermannsdóttir segir áBoðnarmiði að gott sé að hafa
eitthvað að dunda við á nýju ári:
Verk mín eru stuðlasterk, við stefið
keppi,
ég hamast við, úr hendi’ ei sleppi
og hekla litríkt ullarteppi.
Guðmundur Arnfinnsson segist
hafa vaknað á ellefta tímanum og
ort:
Gríma hylur mold og mar,
morgun þyl ég bænirnar,
skuggalegt er skýjafar,
skáldi tregt um yrkingar.
Vetur enn ei víkur frá,
varla nenni að fara á stjá,
heldur dreyma vorið vil,
sem veitir heimi ljós og yl.
Gylfi Þorkelsson hefur gaman af
að glíma við rímþrautir:
Enn að róla eftir jól,
eins og fól í bólu.
Ei mér dóla upp á hól,
ekkert skjól í gjólu.
Friðrik Steingrímsson yrkir öf-
ugmælavísu!:
Úr æðsta stóli gengur glaður
greiðir leiðir arftakans.
Trump er ekki tapsár maður,
tel ég allir sakni hans.
Það var í fréttum, að starfsfólk
hjá Matís prentaði girnilegan mat
úr afgöngum og lúnum mat sem
varð Gunnari Kr. Sigurjónssyni að
yrkisefni:
Ég margoft hef mallað og brennt ’ann
og margsinnis heim fengið sent ’ann.
Mat sem ég snæði,
en sniðug þau fræði
að pota á takka – og prent’ann!
Í ljóðabók Arnar Arnarsonar Ill-
gresi eru sjö sinnum þrjár stökur á
blaðsíðu. Þessar eru fremstar:
Bros og hlátur eru í
ísamáti freðin.
Kuldahlátur hlæ ég því.
Hún er fátíð, gleðin.
Hræsni vex af hjálp og náð.
Hrælund þrífst við auðinn.
Örbirgð stétt er auðvalds bráð.
Úlfurinn étur sauðinn.
Sýp ég nú þitt sextugsfull,
satt frá reynslu greini:
Sumir steinar geyma gull –
gull er í þessum steini.
Gömul vísa í lokin:
Marjutetur vex í vetur
verður gild og há,
hún þess betur gengið getur
gaman verður þá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af ullarteppi,
rímþraut og öfugmælavísu
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Fitueyðing
Eyðir fitu á erfiðum svæðum
Laserlyfting
Háls- og andlitslyfting
NÝTT ÁR –
NÝMARKMIÐ
Frábær tilboð og fleiri meðferðir í vefverslun okkar!
TILBOÐ
20%
afslátturí janúar