Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Birtur er inngangur bókarinnar og
kafli um huldufólk á Snæfellsnesi.
Útlit og einkenni huldufólks
Huldufólkssögur eru fyrirferðar-
mikill hluti íslenskra þjóðsagna. Í
þeim segir frá samskiptum manna
við huldufólk eða
álfa sem menn
trúðu að byggju
í klettum, björg-
um og hólum eða
í og við önnur
náttúrufyrirbæri.
Huldufólk líkist
mönnum að
flestu leyti og lif-
ir svipuðu lífi. Þó
er það yfirleitt sagt fegurra álitum
og glæsilegar búið en gengur og
gerist í mannheimum og býr að
öðru jöfnu við mun betri kjör.
Ungt huldufólk er grannvaxið og
föngulegt en því hættir til að bæta
á sig eins og mannfólki þegar árin
færast yfir. Sumar sagnir herma
að þekkja megi huldufólk á því að
á það vanti miðsnesið ellegar að
það hafi rák í stað lautar milli nefs
og efri varar. Klæðnaður huldu-
fólks er litríkur, blár eða rauður
með gylltum hnöppum, sylgjum,
nælum og öðru skarti.
Heimkynni huldufólks eru í
klettum, steinum eða hólum og
yfirleitt eru híbýli þess ríkmann-
legri en hjá mannfólki. Fátækt
huldufólk kemur þó einnig við sögu
en þá eru húsakynni þess jafnan
snyrtileg og vel um þau gengið.
Huldufólk lifir svipuðu lífi og
mennskir menn og menning þess
er lík okkar. Það sækir kirkjur og
heldur virðulegar messur en kem-
ur líka saman og skemmtir sér á
glaðværan hátt. Þótt huldufólk
flest stundi landbúnað og sjósókn
er einnig að finna embættismenn,
verslunarmenn og jafnvel kónga-
fólk í álfheimum. Áhöld huldufólks-
ins og verkfæri eru oftast sögð
betur úr garði gerð en þekkist hjá
mönnum og skepnur úrvalsgripir.
Það er líka sagt kunna ýmislegt
fyrir sér í læknisfræði og fjöl-
kynngi umfram mannfólkið.
Huldufólk reynist þeim mönnum
vel sem eru því góðir en getur
einnig hefnt sín grimmilega ef illa
er komið fram við það. Stundum
þarf huldufólkið á hjálp manna að
halda og launar þá ríkmannlega
fyrir veittan greiða. Sögur um
huldukonur í barnsnauð eru þar á
meðal og fara þá stundum mennsk-
ar konur eða karlmenn þeim til
hjálpar. Þeim er síðan launað með
þeirri náðargáfu að geta upp frá
því hjálpað fæðandi konum án
skakkafalla.
Sú saga lifði fram á 20. öld, í
einni eða annarri mynd, að unga
stúlku dreymdi að til hennar kæmi
huldumaður og bæði hana að fylgja
sér í hól eða klett og hjálpa konu
sinni við fæðingu. Stúlkan fór af
stað en á leiðinni steig hún í bæj-
arlækinn og bleytti sokk og skó.
Síðan hjálpaði hún konunni við
fæðinguna og allt gekk vel. Að
launum sagði huldukonan henni að
hún myndi verða ljósmóðir og aldr-
ei skyldi deyja hjá henni barn.
Þegar stúlkan vaknaði minntist
hún draumsins en við rúmstokkinn
voru sokkar hennar og skór og
annað parið blautt. Stúlkan varð
síðan farsæl ljósmóðir.
Stundum brá svo við að kýr
huldukvenna misstu nytina og
þurftu konurnar þá að leita á náðir
mennskra grannkvenna sinna og
biðja um mjólk handa ungbörnum
sínum. Að launum hlutu hinar
mennsku konur falleg föt eða góða
gripi en það gat líka farið illa fyrir
þeim ef þær neituðu huldukon-
unum um greiðann. Kýr, sem talið
var að komnar væru úr álfheimum,
þóttu hinir mestu kostagripir en
með þær var vandfarið. Þannig var
um dularfulla aðkomukú sem sagt
er frá í einni sögunni. Hún hafði
óvænt birst meðal heimakúnna á
bæ einum en vildi ekki láta
mennska konu mjólka sig.
Heyrði þá konan, sem ætlaði að
mjólka kúna, að sagt var við fjós-
gluggann:
Ló, ló, mín Lappa,
sára ber þú tappa,
það veldur því að konurnar
kunna þér ekki að klappa.
Konan klappaði þá kúnni og kall-
aði hana nafni sínu. Gekk þá vel að
mjólka hana og reyndist kýrin af-
burða mjólkurkýr.
Huldufólksbyggðir undir Jökli
Margar huldufólksbyggðir eru
við og í kringum Snæfellsjökul.
Sölvahamar er þverhnípt bjarg
innan við Arnarstapa. Í bjargi
þessu eru miklar huldufólks-
byggðir og þar er verslunarstaður
huldufólksins. Margrét Jónsdóttir
Thorlacius (1908-1989) frá Öxna-
felli í Eyjafirði var þekktur sjáandi
og miðill um miðbik síðustu aldar.
Hún dvaldi oft á sumrum við
Arnarstapa á sjöunda áratugnum
og sá þá iðulega til huldufólksins
og athafna þess. Þann 1. ágúst
1969 gerði aftakaveður á Snæfells-
nesi en kvöldið áður sá Margrét
fjölda hulduskipa og báta sigla inn
að Arnarstapa og leita þar vars áð-
ur en óveðrið skall á.
Uppi á Stapafelli er steinn sem
líkist krossmarki tilsýndar og heit-
ir Fellskross. Þar er stór og falleg
álfakirkja. Suðaustanvert í fellinu
eru á sumrum stórar blómabreiður
en í klettabeltunum í kring eru
margir huldufólksbústaðir.
Lóndrangar, utanvert á Snæ-
fellsnesi, eru um margt sérstakir.
Þar segir Margrét frá Öxnafelli að
sé kirkja í Stóra-Drangi með
mörgum fögrum helgigripum. Með-
al annars er þar stór Maríumynd
en undir henni borð með rauðum
dúk þöktum blómum. Í Minni-
Drangi er bókasafn og hefur Mar-
grét séð gamlan mann sitja þar við
skriftir.
Við stærsta gíginn í hinni fornu
gígaþyrpingu, Hólahólum, norðan
við Beruvíkurhraun, er mikil
huldufólksbyggð.
(Sbr. Árni Óla, Huldufólk, s. 161-
163.)
Huldufólks-
byggðir
á Íslandi
Bókarkafli | Hulduheimar – Huldufólksbyggðir á
Íslandi heitir bók eftir Símon Jón Jóhannsson
sem hefur að geyma um eitt hundrað huldufólks-
sögur úr öllum landshornum. Farinn er hring-
urinn um landið og sagðar huldufólkssögur úr
flestum héruðum. Í bókinni eru ljósmyndir af
huldufólksslóðum eftir Ívar Gissurarson og
skýringamyndir.
Ljósmyndir/Ívar Gissurarson
Álfakirkja Við minnisvarða Bárðar Snæfellsáss á Arnarstapa á Snæfellsnesi sem hlaðinn var af Ragnari Kjart-
anssyni myndhöggvara. Í baksýn gnæfir Stapafell. Í bókinni eru huldufólkssögur úr flestum héruðum landsins.
Verslunarstaður Eiríksbúð á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Sölvahamar, sem kemur hér við sögu, er í baksýn.