Morgunblaðið - 11.01.2021, Page 11

Morgunblaðið - 11.01.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 Ísfrost, sími 577 6666, Funahöfða 7, 110 Reykjavík Ýmsar stærðir kælikerfa í allar stærðir sendi- og flutningabíla, fyrir kældar og frystar vörur. Vottuð kerfi fyrir lyfjaflutninga. Við ráðleggjum þér með stærð og gerð búnaðarins eftir því sem hentar aðstæðum hverju sinni. ÖFLUG KÆLIKERFI FRÁ THERMO KING FÆRANLEG KÆLITÆKI Í SENDIBÍLA Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Meirihluti íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis vill að umferðar- hraði á Bústaðavegi verði minnk- aður úr 50 km/klst niður í 30 km/ klst hið fyrsta. Þetta kemur fram í bókun á fundi ráðsins nýlega. Telur ráðið að með þessu verði hagur barna, ungmenna og annarra gang- andi og hjólandi vegfarenda í hverf- inu settur í forgang. Einnig vill ráð- ið að lýsing við gangbrautir verði bætt sem og aðrar hugsanlegar að- gerðir til að auka öryggi gangandi vegfarenda í og við Bústaðaveg. Tilefni bókunarinnar var bréf frá íbúa í hverfinu, Haraldi Karlssyni, til formanns íbúðaráðsins, Dóru Magnúsdóttur. „Að morgni þriðju- dagsins 1. desember síðastliðins ók ég Bústaðaveg í austurátt og var á leið heim til heimavinnu eins og oft áður. Þegar ég nálgaðist göngu- ljósin sem staðsett eru við Ásgarð gerðist nokkuð áhugavert. Þrír bíl- stjórar tóku sig til og óku rakleitt gegn rauðu ljósi, sem var þá grænt fyrir gangandi vegfarendur,“ skrif- ar Haraldur. Hann segir að fjölskyldan búi ofan við Bústaðaveg og nýti Foss- voginn talsvert allt árið um kring til útiveru og heimsókna til fjölskylu og vina. Þau nýti jafnan fyrrnefnd gönguljós. Blöskrar tillitsleysi fólks „Okkur blöskrar stundum tillits- leysið og óvirðing fólks þegar það sér okkur nálgast ljósin, jafnvel alla fjölskylduna með barnavagn og kerru, þá er gefið í til að þurfa örugglega ekki að stoppa og bíða í nokkrar sekúndur. Þó að rauða ljós- ið sé búið að loga í 1, 2, 3 sekúndur – þá er brunað yfir.“ Fer Haraldur fram á tafarlausa og umtalsverða minnkun hámarks- hraða á Bústaðavegi og aðgerðir til að draga úr umferð um veginn. Meirihluti íbúaráðs Háaleitis og Bústaða tekur undir áhyggjur Har- alds Karlssonar í bókun. Formanni ráðsins hafi oftsinnis borist til eyrna áhyggjur íbúa, einkum for- eldra, af miklum umferðarhraða á Bústaðavegi, enda fari mörg börn og ungmenni yfir veginn á degi hverjum úr Bústaðahverfinu til æf- inga hjá Víkingi í Fossvogsdalnum. Einnig fari töluverður fjöldi ung- menna á hverjum degi úr Fossvog- inum í Réttarholtsskólann, fyrir ut- an aðra umferð gangandi og hjólandi. Einnig hafi íbúar tekið eft- ir að ökumenn veita ekki alltaf gangandi vegfarendum á gang- brautum og gönguljósum eftirtekt sökum mikils ökuhraða. Vigdís var ósammála Annar tónn var í bókun fulltrúa Miðflokksins, Vigdísar Hauks- dóttur, sem lagðist gegn því að minnka hámarkshraða á Bústaða- vegi. Aðalástæða mikillar umferðar um Bústaðaveg væri umferðarteppa sem hefði skapast með ljósastýring- arþrengingarstefnu meirihlutans. Fólk veigraði sér við að aka Miklu- braut og aðrar stofnæðar Reykja- víkurborgar. „Þar sem er fólk og þar sem eru bílar er alltaf ákveðin hætta á slys- um og ber hver ábyrgð á sjálfum sér í þeim efnum,“ bókaði Vigdís. Umferðarhraði minnki á Bústaðavegi  Hagur barna, ungmenna og gangandi og hjólandi vegfarenda settur í forgang Morgunblaðið/sisi Bústaðavegur Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis vill að hámarkshraði bifreiða verði minnkaður og lýsing við gangbrautir verði bætt. Komufarþegar frá Íslandi eru þeir einu sem ekki þurfa að lúta nýjum sóttvarnareglum í Eistlandi, sem taka gildi í dag. Íslendingar sem fljúga héðan til landsins eiga að geta gert það án takmarkana og einnig án þess að þurfa að gangast undir sérstaka skimun við kórónu- veirunni við komuna. Frá þessu greinir utanríkisráðu- neyti Eistlands, en við skilgrein- ingu á takmörkunum komufarþega er miðað við færri en 50 virk smit á hverja 100 þúsund íbúa viðkomandi ríkis. Reglurnar eru því mismun- andi eftir því hvaðan fólk kemur og í ákveðnum tilvikum verður fólki gert að sæta 14 daga sóttkví. Þá gilda sérstakar reglur um fólk sem hefur undirgengist próf áður en það lagði af stað til Eistlands. Far- aldurinn hefur verið þar í vexti undanfarnar vikur. Morgunblaðið/Ómar Tallinn Faraldurinn hefur verið í vexti þar undanfarnar vikur. Íslendingar einir undan- þegnir  Nýjar sóttvarna- reglur í Eistlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.