Morgunblaðið - 11.01.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.01.2021, Blaðsíða 32
Í gallerínu Þulu, sem er við Hjartatorg við Laugaveg, hefur verið opnuð samsýning fimm ungra og kraftmik- illa listamanna sem kynntir eru til leiks og munu í fram- haldinu verða með einkasýningar í Þulu. Listamennirnir eru Sunneva Ása Weisshappel, Kristín Morthens, Helga Páley Friðþjófsdóttir, Anna Maggý og Sigurður Ámundason. Verkin á sýningunni nú eru eins og kynn- ing á sýningunum sem þau munu öll setja upp seinna í vetur. Áhugasamir geta fengið senda skrá yfir verkin með því að senda pöntun á thula@thula.gallery Fimm listamenn kynna einkasýn- ingar á samsýningu í Þulu MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Við vinnum vel saman í markmannsteyminu ég, Viktor [Gísli Hallgrímsson], Björgvin [Páll Gústavsson] og Tomas Svensson. Við erum með fundi þar sem við ræð- um málin og setjum upp einhverja áætlun í framhald- inu. Þetta snýst ekki bara um mig og mínar frábæru sjónvarpsvörslur heldur erum við fjórir að vinna í þessu saman og svo hefur vörnin fyrir framan mann sitt að segja,“ sagði markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson m.a. í gær en hann varði vel í sigri á Portúgal, 32:23, í undankeppni EM í handknattleik. »26-27 Svíinn og markverðirnir þrír eru samstiga í undirbúningsvinnunni ÍÞRÓTTIR MENNING ramma en tónlistin er núna í for- gangi og það ferli hefur verið mjög skemmtilegt.“ Horfðu á mig og spuninn Þegar kórónuveiran skall á heimsbyggðinni fyrir um ári stöldruðu þær við, ræddu um að semja og gefa saman út lög, sett- ust síðan niður í vor og byrjuðu að skrifa. „Lagið varð í raun til í spuna, Rósa sagði við mig „horfðu á mig“ og við unnum út frá þeirri línu,“ segir Helena. Stöllurnar hlusta mikið á tónlist og segjast meðal annars vera undir áhrifum frá sænsku poppsöngkon- unni Robin Miriam Carlsson, sem er þekkt sem Robyn. Danska söng- konan Medina Danielle Oona Val- bak, sem er yfirleitt kölluð Med- ina, er líka í uppáhaldi sem og Duffy (Aimee Anne Duffy) frá Wa- les. „Lagið „Kun for mig“ með Medinu var innblástur fyrir lagið okkar,“ segir Rósa og bætir við að enska poppsöngkonan Jess Glynne og stelpnahljómsveitin Little Mix hafi líka haft áhrif á þær. „Horfðu á mig“ er komið á Spotify og er væntanlegt á aðrar tónlistarveitur 1. febrúar næst- komandi. „Viðbrögðin hafa farið fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Helena, en annað lag er væntanlegt í febrúar eða mars og svo kolli af kolli. „Við stefnum að því að vera saman heima í sumar og gefa þá út plötu með fimm til sjö lögum,“ segir Rósa. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vinkonurnar Helena Hafsteins- dóttir og Rósa Björk Ásmunds sendu nýlega frá sér popplagið „Horfðu á mig“ og er það frum- raun dúettsins, sem þær nefna heró, en ætlun þeirra er að gefa út LP-plötu í sumar. „Við erum með tvö önnur lög í vinnslu og fleiri eru á döfinni,“ segir Rósa, sem er í námi í New York en Helena er flutt heim frá LA. Þegar Helena var þriggja ára vildi hún verða söngkona. For- eldrum hennar þótti skynsamlegt að hún lærði fyrst á píanó og lauk hún miðstigsprófi frá Suzuki- tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún söng í barnakór og Stúlkna- kór Reykjavíkur og 14 ára byrjaði hún að læra einsöng. Eftir stúd- entspróf fór hún í leiklist og út- skrifaðist úr bandaríska leiklist- arskólanum The American Academy of Dramatic Arts í Los Angeles 2019. „Ég hef lagt áherslu á tónlistina í Covid-ástandinu, því leiklistartækifæri hafa verið af skornum skammti. Við Rósa hófum þetta tónlistarsamstarf í fyrravor og höfum síðan samið lög og texta, en ég er líka að vinna að stutt- mynd með leikkonunum Bríeti Ósk Kristjánsdóttur og Silju Rós Ragnarsdóttur og vona að ég geti sinnt bæði leiklist og tónlist í framtíðinni.“ Rósa segist alltaf hafa haft gott tóneyra. Hún hafi sótt söngleikja- námskeið og verið í einkatímum í söng, sungið í Stúlknakór Reykja- víkur með Helenu og samið tónlist, en annað hafi haft forgang. Hún útskrifast frá sömu stofnun og Helena en frá skólanum í New York í vor. „Ég hef í raun ekki lagt tónlist fyrir mig fyrr en nú, en leiðir okkar Helenu á því sviði lágu fyrst saman í söngleiknum Lion King, þegar við vorum í Haga- skóla. Mér finnst tónlistin og leik- listin oft haldast í hendur þegar öllu er á botninn hvolft, en að því sögðu hefur tónlistin verið meira í þægindarammanum mínum. Leik- listin togar mig út fyrir þennan Tengjast í tónlist  Helena og Rósa Björk hafa samið og sent frá sér fyrsta lagið  Tónlistin og leiklistin haldast í hendur Leikarar og söngkonur Helena Hafsteinsdóttir og Rósa Björk Helgudóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.