Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 25

Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 Hristum þetta af okkur L augarnar í Rey k javí k w w w. i t r. i s 2m Höldumbilinu og sýnum hvert öðru tillitssemi „ÉG ER EKKI FAÐIR. ÉG ER STÖRUMÆLAVÖRÐUR. „Æ, FYRIRGEFÐU! HANN ER AÐ ÆFA KARATE.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vakna þér við hlið. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MIKIÐ ER GOTT AÐ SJÁ YKKUR! VIÐ HÖFUM EKKI FENGIÐ NEITT ALMENNILEGT AÐ BORÐA Í MARGAR VIKUR! EN ÉG ER AUÐVITAÐ BÚINN AÐ GLEYMA ÖLLUM HINUM ÞETTA ER BESTI AFMÆLISDAGUR ALLRA TÍMA! HOPPIÐ UM BORÐ, FÉLAGAR! VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL ENGLANDS! Ö … KANNSKI ÆTTUM VIÐ AÐ BÍÐA EFTIR ÖÐRUM BÁTI! VÖGGUSTOFA væri að hafa áhrif á samfélagið með því að segja af því fréttir og sá að eina leiðin til að breyta samfélaginu væri að almenningur næði völdum. En ég stunda ennþá blaðamennsku í kring- um starf mitt fyrir Sósíalistaflokkinn og hreyfinguna í kringum hann. Ég er því kominn á upphafsreit blaða- mennskunnar, stunda það sem kalla mætti pólitíska blaðamennsku.“ Fjölskylda Eiginkona Gunnars Smára er Alda Lóa Leifsdóttir, f. 12.2. 1962, ljós- myndari. Þau eru búsett í Skugga- hverfinu í Reykjavík. Foreldrar Öldu Lóu voru Inga Huld Hákonardóttir, f. 15.3. 1936, d. 27.5. 2014, sagnfræð- ingur og rithöfundur, og Leifur Þór- arinsson, f. 13.8. 1934, d. 24.4. 1998, tónskáld. Börn: 1) Kjörsonur er Davíð Alex- ander Corno, f. 4.8. 1984, kvikmynda- gerðarmaður í Reykjavík; 2) Stjúp- dóttir er Auður Anna Kristjánsdóttir, f. 7.7. 1987, leikskólakennari í Reykja- vík. Maki hennar er Héðinn Bald- ursson Briem smiður og börn þeirra eru Huginn og Ingibjörg Lóa; 3) Dóttir er Sóley Lóa Smáradóttir, f. 2.4. 2007, nemi. Systkini Gunnars Smára eru Haf- steinn Egilsson, f. 6.12. 1950, fram- leiðslumaður í Reykjavík; Sigurjón Magnús Egilsson, f. 17.1. 1954, blaða- maður í Njarðvík; Egill Egilsson, f. 18.8. 1956, stýrimaður og bílstjóri í Reykjavík; Kristján Rúnar Krist- jánsson, f. 19.3. 1970, bátsmaður í Reykjavík. Foreldrar Gunnars Smára: Guð- rún Rannveig Guðmundsdóttir, f. 14.11. 1931, búsett í Reykjavík, og Egill H. Hansen, f. 1.11. 1929, d. 12.2. 2012. Guðrún er fædd í Reykjavík en ættleidd og alin upp í Hafnarfirði, hefur lengst af búið í Reykjavík og starfað við ýmis verkakvennastörf. Egill er fæddur og uppalinn í Hafn- arfirði og vann við bifvélaviðgerðir þar og í Reykjavík og síðar við hús- vörslu. Guðrún og Egill skildu 1966 og giftust bæði aftur, Guðrún Krist- jáni Guðbirni Jónssyni verkamanni frá Ísafirði og Egill Glendu Bartido verkakonu frá Filippseyjum. Gunnar Smári Egilsson Jónína Gísladóttir húsfreyja á Sjöundá Egill Árnason bóndi á Sjöundá á Rauðasandi Gíslína Egilsdóttir verkakona í Hafnarfirði Hinrik A. Hansen bóndi og sjómaður í Hafnarfirði Egill H. Hansen verkamaður í Reykjavík ÞórunnHallgrímsdóttir bóndi og vinnukona í Hafnarfirði og nágrenni Andrés Gottfred Hansen bóndi, verka- og vinnumaður í Hafnarfirði og nágrenni Hallfríður Jónsdóttir húsmóðir í Reykjavík Ólafur Þorvarðarson verkamaður í Reykjavík Guðrún Ólafsdóttir ellefu barna móðir í Reykjavík Karl Karlsson verkamaður í Reykjavík Jarþrúður Þórarinsdóttir verkakona í Reykjavík Faðir óþekktur Úr frændgarði Gunnars Smára Egilssonar Guðrún Rannveig Guðmundsdóttir verkakona í Reykjavík, kjörforeldrar: Guðmundur Sigurjónsson, sjómaður í Hafnarfirði og Jónea Dóróthea Ólafsdóttir húsmóðir Guðmundur Stefánsson, semlengi bjó í Hraungerði í Flóa, sendi mér nokkrar vísur eftir nær- sveitunga sinn Sigurð Guðmunds- son (1924-2007) í Súluholti. Þær og fleiri eru í handriti höfundar á Hér- aðsskjalasafni Árnesinga og hafa verið færðar inn á Vísnavef Árnes- inga; bragi.arnastofnun.is. Í heyskap með gamla laginu í góðviðri. Af sér fleygði flíkinni fljóðið verkatrúa. Var svo bara á „bíkini“ – buxunum að snúa. Gulur fressköttur var nefndur Ásmundur Ásmundur með fiman fót. fetar lífsins eggjagrjót. Komast vill á kattamót og kætast þar um stundir. Hittir fyrir högnaþrjót, er hefur yfir kvæði ljót. – Ekkert nema urr og blót urðu þeirra fundir. Þessi með ljáinn Framhjá þér, veit ég, fer ei neinn, þó ferðistu langt og víða. Þú kemur og heimtar, – oftast einn, aðrir fá lengur að bíða. Sameiginleg vatnsveita um Fló- ann var lögð frá Þingdal, þar sem Samúel Jónsson bjó þá. Harma bætir hugarþels heims í köldum vindum, kaffi úr sætum Samúels silfurtærum lindum. Harmar bætast, hendur mætast, hrífur kætin pilt og sprund. Óskir lætur lifna og rætast ljúfrar nætur vökustund. Í fyrstu hleypur æskan ung – ýmsir falla og hrapa. Gegnum líf er löng og þung leiðin fyrir stapa. Mörgum liði miklu skár er mæðu hlýtur nóga ef engin léti salt í sár sem að væri að gróa. Stopul er í stormagný stundum grafarróin, því hundar míga utan í ýmis leiði gróin. Ýmist leitar að og frá eðlisteitur meyjavin. Taugaskeytum togast á tryggðaheit og lausungin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur eftir Sigurð í Súluholti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.