Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 27

Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 27
iðleikum með að leysa það sem við gerðum í sókninni í síðari hálfleik. Við vorum mjög skarpir og einbeittir í síðari hálfleik. Þá vorum við einfald- lega góðir og ég er stoltur af þessum sigri. Vinnusemin var gífurlega mikil í vörninni allan leikinn en hún small einhvern veginn saman í síðari hálf- leik,“ sagði Ágúst og kallaði það „sjónvarpsvörslur“ þegar hann sá við andstæðingunum af stuttu færi. „Við vinnum vel saman í mark- mannsteyminu ég, Viktor [Gísli Hall- grímsson], Björgvin [Páll Gúst- avsson] og Tomas Svensson. Við erum með fundi þar sem við ræðum málin og setjum upp einhverja áætl- un í framhaldinu. Þetta snýst ekki bara um mig og mínar frábæru sjón- varpsvörslur heldur erum við fjórir að vinna í þessu saman og svo hefur vörnin fyrir framan mann sitt að segja. En það má einnig hrósa þjálf- urunum fyrir góðan undirbúning.“ Gott veganesti fyrir HM Íslenski hópurinn heldur utan í morgunsárið og fram undan er HM í Egyptalandi og fyrsti andstæðingur þar á fimmtudag er einmitt Portúgal. Gæti ekki verið sálrænt gott að hafa unnið þá stórt rétt fyrir HM? „Það gæti reynst mjög gott en get- ur einnig reynst illa. Við reynum auð- vitað að fylgja þessu eftir þegar við mætum þeim á HM. Ef það tekst þá verður skemmtilegt að spila á móti þeim. Þeir ráða lítið við okkur þegar við erum í þessum gír. Gummi er í raun í erfiðustu stöðunni í hópnum því hann þarf að spá og spekúlera í því hvað þjálfarar andstæðinganna eru að hugsa. Við leikmennirnir erum með honum í þessu, hlustum á hann og reynum að skila okkar vinnu,“ sagði markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson. Leikið var fyrir luktum dyrum í gær og er það í annað sinn sem lands- liðið gerir það á síðustu mánuðum. Óneitanlega er undarlegt að horfa á mótsleik við slíkar aðstæður. Hróp og köll leikmanna og þjálfara berg- mála um húsakynnin rétt eins og maður sé að horfa á leik í upphit- unarmóti eins og Reykjavíkur- mótinu. Morgunblaðið/Eggert Varið Ágúst Elí Björgvinsson gerir sig breiðan á Ásvöllum í gær. Hann varði til að mynda fimm skot í röð í síðari hálfleik. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 „Í síðari hálfleik settum við smá hjarta í hlutina,“ sagði landsliðsmað- urinn Ómar Ingi Magnússon um muninn á frammistöðu íslenska liðs- ins í fyrri og síðari hálfleik gegn Portúgal í gær. Gestirnir voru yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:12, en Ís- land vann 32:23. „Ég held að það hafi vantað smá vilja hjá okkur framan af leik. Þetta var svolítið dauft og við sóttum ekki almennilega á markið. Ég held að það hafi snúist um hugarfarið,“ sagði Ómar Ingi þegar Morgunblaðið ræddi við hann á Ásvöllum að leikn- um loknum og bætti við á heimspeki- legum nótum: „Við vorum þarna en samt ekki.“ Ómar sagði að rétt eins og eftir alla landsleiki væri hægt að finna ýmislegt sem liðið gæti gert betur bæði í vörn og sókn. „Ég er viss um að það er fullt af atriðum sem við munum kíkja á. Sérstaklega ef mað- ur hugsar til þeirra dauðafæra sem við klúðruðum í fyrri hálfleik. Það leit ekkert allt of vel út og hefðum við nýtt þau hefði staðan verið að- eins skárri eftir fyrri hálfleik.“ Ómar er aftur kominn á fleygiferð með félagsliði og landsliði eftir að hafa þurft að taka sér nokkuð langt frí frá íþróttinni vegna höfuðáverka. Í sumar gekk hann til liðs við Magdeburg og hefur stimplað sig hratt inn sem einn af lykilmönnum liðsins. Nú er hann á leið á HM eftir að hafa misst af EM fyrir ári. Finnur hann fyrir aukinni leikgleði á vell- inum eftir að hafa setið hjá um tíma? „Já, það er æðislegt að vera farinn að spila aftur. Maður kann betur að meta þetta og sér hversu miklu máli handboltinn skiptir mann eftir að hafa upplifað það að geta ekkert gert. Eftir því sem maður er lengur frá verður erfiðara að snúa aftur og ég er ánægður með hversu mikið ég hef fengið að spila.“ kris@mbl.is Snerist um hug- arfarið  Kann betur að meta handboltann Elvar Már Friðriksson var með tvö- falda tvennu í 94:88-útisigri Siauliai á Neptunas í litáíska körfubolt- anum í gær og unnu Elvar og fé- lagar þar afar dýrmæt stig í botn- baráttu deildarinnar. Njarðvíkingurinn skoraði 11 stig, tók 11 fráköst og gaf þrjár stoð- sendingar á þeim rúmu 30 mínútum sem hann spilaði er Siauliai vann aðeins sinn þriðja leik á tímabilinu en tólf umferðir eru liðnar. Liðið er í 10. og neðsta sæti deildarinnar en Neptunas er í 8. sæti með fjóra sigra. Tvöföld tvenna í botnbaráttunni Ljósmynd/LKL Öflugur Elvar Már Friðriksson hefur staðið sig afar vel í Litáen. Körfuknattleiksmaðurinn LaMelo Ball varð síðustu nótt sá yngsti í sögunni til að ná þrefaldri tvennu í NBA-deildinni er lið hans Charlotte Hornets vann 113:105-sigur á Atl- anta Hawks. Ball er aðeins 19 ára gamall en hefur heldur betur skot- ist fram á sjónarsviðið. Hann skor- aði 22 stig, tók 12 fráköst og gaf 11 stoðsendingar er Charlotte vann sinn þriðja sigur í röð. Terry Rozier var stigahæstur með 23 stig og P.J. Washington skoraði 22 stig. LeMelo er yngri bróðir Lonzos Balls sem leikur með New Orleans Pelicans. Í sögubækur NBA-deildarinnar AFP Táningur LaMelo Ball fer afar vel af stað í NBA-deildinni í körfubolta. Jón Ólafur Daníelsson hefur tekið við þjálfun meist- araflokks kvenna í knattspyrnu hjá Grindavík og mun stýra liðinu á næsta keppnistímabili. Jón Ólafur tekur við þjálfun liðsins af Ray Anthony Jónssyni sem lét af störfum sem þjálfari í vetur. Grindavík fagnaði sigri í 2. deildinni í haust og leikur því í 1. deild á næstu leiktíð. Jón Ólafur starfaði hjá félaginu um miðjan síðasta áratug og náði frábærum árangri hjá yngri flokkum fé- lagsins. Jón Ólafur er þrautreyndur þjálfari og kemur frá Vestmannaeyjum þar sem hann hefur komið að þjálf- un flestra flokka, allt frá yngriflokkaþjálfun og upp í þjálfun meistaraflokka félagsins hjá báðum kynjum. „Við erum afar glöð með að hafa tryggt okkur þjónustu Jóns Óla við þjálf- un meistaraflokksins á tímabilinu sem er fram undan,“ segir Petra Rós Ólafsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Grindavík, í tilkynn- ingu frá félaginu. Jón snýr aftur til Grindavíkur Jón Ólafur Daníelsson Sverrir Ingi Ingason átti stóran þátt í mikilvægum 3:1-heimasigri PAOK á Volos í grísku knattspyrn- unni í gær en varnarmaðurinn kom heimamönnum í forystu eftir að lið- ið lenti undir snemma leiks. Sverrir spilaði allan leikinn fyrir PAOK og kom liðinu í forystu á 66. mínútu eftir að það lenti undir snemma leiks. Sverrir og félagar sitja nú í 3. sæti deildarinnar með 31 stig, tíu stigum frá Olympiacos og einu stigi frá Aris í öðru sæti sem á þó leik til góða. Sverrir hetjan í Grikklandi Morgunblaðið/Eggert Öflugur Sverrir Ingi Ingason skor- aði mikilvægt mark um helgina. Varnarmaðurinn Dayot Upamec- ano er til sölu fyrir rétt verð sam- kvæmt framkvæmdastjóra RB Leipzig í Þýskalandi en Frakkinn er eftirsóttur af bæði Manchester United og Liverpool. Bæði lið vilja styrkja sig um mið- vörð í janúarglugganum þótt þau áform gætu dregist fram á sumar. Upamecano er 22 ára gamall og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Leipzig- liðinu undanfarið og þykir hann einn efnilegasti varnarmaður heims. Samkvæmt heimildum Goal hefur framkvæmdastjóri Leipzig, Oliver Mintzlaff, sagt að allir leik- menn séu falir fyrir rétt verð. Gæti farið til Englands Spánn Estudiantes – Zaragoza .................. frestað  Tryggvi Snær Hlinason spilar með Zara- goza. Bilbao – Valencia............................... 73:106  Martin Hermannsson lék í 17 mínútur með Valencia, skoraði fimm stig og gaf sjö stoðsendingar. Valencia er í 6. sæti deild- arinnar með 24 stig úr 18 leikjum. Fuenlabrada – Andorra .................. frestað  Haukur Helgi Pálsson spilar með And- orra.  Óvenju mikil snjókoma hefur sett sam- göngur úr skorðum á Spáni. Þýskaland Fraport Skyliners – Göttingen .......... 81:63  Jón Axel Guðmundsson spilaði í 26 mín- útur með Fraport Skyliners, skoraði 11 stig, gaf fjórar stoðsendingar og tók þrjú fráköst. Fraport er í 8. sæti með 10 stig eft- ir 11 leiki. Litháen Neptunas – Siaulai .............................. 88:94  Elvar Már Friðriksson spilaði í 33 mín- útur með Siauliai, skoraði 11 stig, gaf 11 stoðsendingar og tók þrjú fráköst. Siauliai er neðst þrátt fyrir sigurinn. NBA-deildin Philadelphia – Denver...................... 103:115 Charlotte – Atlanta .......................... 113:105 Indiana – Phoenix............................. 117:125 Washington – Miami ........................ 124:128 Milwaukee – Cleveland...................... 100:90 Minnesota – San Antonio ........ (frl.) 122:125 Dallas – Orlando ................................. 112:98 Sacramento – Portland ...................... 99:125   Undankeppni EM karla 4. riðill: Ísland – Portúgal.................................. 32:23 Staðan: Portúgal 4 3 0 1 114:104 6 Ísland 3 2 0 1 92:69 4 Ísrael 1 0 0 1 22:31 0 Litháen 2 0 0 2 46:70 0 1. riðill: Frakkland – Serbía .............................. 26:26  Serbía 3, Frakkland 1, Belgía 0, Grikk- land 0. 2. riðill: Þýskaland – Austurríki ...................... 34:20  Alfreð Gíslason þjálfari Þýskaland. Bosnía – Eistland ................................. 21:19  Þýskaland 8, Austurríki 2, Eistland 2, Bosnía 2. 5. riðill: Slóvenía – Holland .............................. 27:27  Erlingur Richardsson þjálfari Holland. Pólland – Tyrkland............................... 35:24  Pólland 4, Slóvenía 3, Holland 3, Tyrk- land 0. 6. riðill: Lettland – Ítalía.................................... 31:29  Noregur 4, Hvíta-Rússland 2, Ítalía 2, Lettland 2. Vináttulandsleikur karla Danmörk – Noregur ............................ 34:36 Þýskaland Leverkusen – Rosengarten................ 26:24  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Leverkusen. B-deild: Sachsen Zwickau – Rodertal ............. 31:29 Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Sachsen Zwickau. Danmörk Vendsyssel – Horsens ......................... 19:27  Steinunn Hansdóttir skoraði 2 mörk fyr- ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 9 skot í marki liðsins. Svíþjóð Lugi – Heid........................................... 28:34  Hafdís Renötudóttir var ekki í leik- mannahópi Lugi.  

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.