Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 20

Morgunblaðið - 11.01.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 ✝ Þorleifur Jó-hannsson hús- ganasmíðameistari og trommuleikari fæddist á Akureyri 10. nóvember 1951. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 23. desember 2020. Foreldrar Þorleifs voru Jóhann Bjarmi Símonarson skrifstofustjóri, f. 22. júní 1931, d. 2. ágúst 1996, og Freygerður Magnúsdóttir móttökuritari og saumakona, f. 9. nóvember 1933, d. 8. mars 2007. Bróðir Þorleifs er Símon Jón, framhaldsskólakennari, f. 1957. Þorleifur kvæntist 31. desem- ber 1978 Olgu Ellen Ein- arsdóttur kennara, f. 16. apríl 1952. Börn þeirra eru: 1) Rakel, f. 6. júní 1980. Hennar börn eru Bjarmi Friðgeirsson, f. 24. jan- úar 2003, Valdemar Dofri Frið- geirsson, f. 1. desember 2004, og ið 1968. Síðan lærði hann hús- ganasmíði og starfaði við margs konar smíðar alla tíð. Hann var dverghagur og listfengur. Árið 2001 hóf hann störf hjá Verk- menntaskólanum á Akureyri við smíðakennslu, lauk þá uppeldis- og kennslufræðiprófi til kennsluréttinda frá HA og starf- aði þar til ársins 2019 er hann fór á eftirlaun. Þorleifur unni tónlist alla tíð og lék á trommur frá barnsaldri auk ýmissa annarra hljóðfæra. Þrettán ára stofnaði hann ásamt félögum sínum bítlahljómsveit- ina Bravó en lék síðan með ýms- um hljómsveitum ævina á enda og má þar m.a. nefna Ljósbrá, Hljómsveit Ingimars Eydal, Hljómsveit Ingu Eydal, Upplyft- ingu og Einn og sjötíu. Hann lék á allmörgum hljómplötum en var einnig í hljómsveitum í upp- færslum á ýmsum leikritum bæði hjá Leikfélagi Akureyrar og Freyvangsleikhúsinu. Útför Þorleifs verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 11. janúar 2021, klukkan 13.30 og verður henni streymt. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/ y5cpxdvz Nálgast má virkan hlekk á streymið á: https://www.mbl.is/andlat/ Rakel Hjart- ardóttir, f. 27. júní 2013. 2) Agnes, f. 22. janúar 1983, unnusti hennar var Guðmundur Jón Magnússon, f. 18. nóvember 1980, d. 5. mars 2004, en barn þeirra er Mikael, f. 12. júní 2003. Eiginmaður Agnesar er Lúðvík Trausti Lúðvíksson, f. 17. des- ember 1979. Dætur þeirra eru Kolfinna, f. 15. febrúar 2009, og Bríet, f. 14. september 2012. 3) Einar Freyr, f. 13. janúar 1991. Fyrir hjónaband hafði Þorleifur eignast soninn Sverri Frey, f. 10. mars 1975, með Hrafnhildi Hafdísi Sverrisdóttur, f. 1956. Sambýliskona Sverris Freys er Ása Björg Valgeirsdóttir, f. 1978. Þorleifur ólst upp á Akureyri og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar ár- Á Þorláksmessu andaðist minn ljúfi bróðir, Þorleifur Jó- hannsson, Leibbi trommari, eftir stutta en snarpa baráttu við krabbamein. Við vorum bara tveir bræðurnir í Kletta- borginni á Akureyri en alla tíð var mjög gott í bræðralagi okk- ar. Leibbi var sex árum eldri en ég og hann var því stóri bróðir minn sem ég setti allt traust á í barnæsku. Þrátt fyrir þennan aldursmun vorum við samrýndir og brölluðum margt saman. Snemma átti tónlist huga Leibba allan, hann lærði ungur á harmóniku en fljótlega vaknaði áhugi hans á trommu- leik og það varð hans aðalhljóð- færi þótt hann væri einnig vel liðtækur á gítar og önnur hljóð- færi. Þrettán ára varð hann trommuleikari í bítlahljóm- sveitinni Bravó sem meðal ann- ars gerði garðinn frægan þegar þeir hituðu upp fyrir bresku hljómsveitina Kinks á tónleik- um í Austurbæjarbíói í Reykja- vík árið 1965. Það var ekki ónýtt að vera litli bróðir Leibba í Bravó. Síðar leik Leibbi í nokkur ár með Hljómsveit Ingimars Eydal, Upplyftingu og ýmsum fleiri hljómsveitum ævina á enda. Leibbi var ljúfmenni, skemmtilegur og vinmargur. Ég man hann aldrei reiðan þótt auðvitað gæti honum mislíkað og sárnað eins og öðrum. Hann lærði húsgagnasmíði og var handlaginn og listfengur, marg- ir fallegir smíðisgripir sem hann gerði prýða heimili mitt. Þá var hann góður teiknari, teiknaði meðal annars mig og fleiri skólasystkini mín í Carm- ínu, útskriftarbók MA-stúd- enta. Síðustu átján árin starfaði Leibbi við smíðakennslu í VMA. Honum leið vel í því starfi og lynti einstaklega vel við nemendur sína. Oft bárum við saman bækur okkar um kennslu og skólastarf. Fyrir ári fór Leibbi á eftirlaun og hugð- ist sinna hugðarefnum sínum en sá tími varð styttri en við var búist. Í gegnum tíðina ferðuðumst við bræður talsvert saman og nærvera hans var alltaf góð og skemmtileg. Við vorum búnir að skipuleggja sérstaka ferð til Skotlands en slógum henni á frest vegna heimsfaraldursins. Leibbi hafði góðan húmor, sá oft hið skondna í aðstæðum lífsins og oft hlakkaði ég til þess að segja honum eitthvað skemmtilegt sem ég hafði heyrt. Þótt við byggjum hvor á sínu landshorninu sóttum við hvor annan reglulega heim og töluðum oft saman í síma og þá dugði yfirleitt ekki minna en klukkutími. Leibbi var einn af þeim mönnum sem alltaf var hægt að leita til í stóru sem smáu og við vorum trúnaðar- vinir alla hans ævi. Hann var einstakur fjölskyldumaður og börnin hans nutu góðs af því. Mér þótti ekki vænna um nokk- urn mann, fyrir utan börnin mín, en hann. Hann var líka góður frændi og dætrum mín- um þótti einstaklega vænt um hann. Elsku Ellen, Rakel, Agnes, Einar Freyr og Sverrir Freyr, við Salka María og Sara Björt vottum ykkur okkar inni- legustu samúð og biðjum góðan guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Elsku bróðir minn með ljóns- hjartað, gangi þér vel á guðs vegum og við hittumst svo aft- ur í Nangiala þegar þar að kemur. Símon Jón. Nú er Leibbi okkar yndislegi vinur látinn. Staðreynd sem við eigum erfitt með að sætta okk- ur við. Hugurinn flögrar og minningarnar spretta fram ein af annarri. Söknuður. En það eru ekki bara við sem söknum. „Mamma, veistu þegar vin- irnir söfnuðust saman hérna áðan og ég var að sópa saman glerbrotunum af fallega bollan- um, þá beið ég eftir því að Leibbi labbaði inn á eftir þeim.“ Já, Leibbi er í hugum okkar allra, ekki bara í vinahópnum, líka þeirra sem yngri eru. Það ætti ekki að koma neinum á óvart sem til þekkja því Leibbi var sannur vinur, allra. Hann gerði ekki mannamun. Ljúfur, einlægur, hjartahlýr, hrekk- laus, fagnandi, heill, gaman- samur, prakkari. Mannvinur. Það var einstakt að fylgjast með því hvernig Leibbi kom fram við fólk, börnin okkar, fólkið okkar. Hann lét sér ekk- ert mannlegt óviðkomandi. Þakklæti. Það er fyrir svo ótal margt að þakka eftir ára- tuga vináttu. Fyrst og fremst einlægan vinskap sem aldrei hefur borið skugga á. Fyrir að vera ómissandi hlekkur í vina- hópnum, sem nú er hnípinn. Við þökkum öll ferðalögin, innanlands og utan, alla göngu- túrana. Fyrir að rata alltaf rétta leið, ekki bara á ferðalög- um. Fyrir fróðleikinn, gaman- sögurnar, hláturinn, tónlistina, tónleikana. Fyrir að hlusta, sýna áhuga. Fyrir fallega hand- verkið, útsjónarsemina, hjálp- semina: „Ekki málið, við bara drífum í þessu. Hvenær viltu að ég komi?“ … fyrir vinskapinn alla daga. Síðast en ekki síst viljum við þakka þér fyrir Ellen. Hún er perla. Þið eruð tvær ómissandi stjörnur, órjúfanleg heild. Okk- ur finnst óendanlega vænt um ykkur bæði … alla tíð, sama hvar! Elsku Ellen, Rakel, Agnes, Einar Freyr, Sverrir og fjöl- skyldur. Við færum ykkur okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Minningarnar ylja. Við tínum saman glerbrotin og þau glitra. Anna Sigga og Reynir. Umhyggju og ástúð þína okkur veitir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur varð þitt dýpsta hjartans mál (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kær vinur er fallinn frá eftir snörp og erfið veikindi. Æðru- leysi og stóísk ró voru einkenn- andi fyrir þennan einstaka vin minn sem ég kveð í dag. Það er mitt lán í lífinu að hafa fyrir rúmum tuttugu og fimm árum kynnst þeim hjón- um Ellen og Leibba og vera hluti af þeirra fjölskyldu æ síð- an og fyrir það er ég þakklát. Margs er að minnast og sakna að leiðarlokum og eru minningar um góðan vin dýr- mætar og þær ylja og veita ró. Það er ekki öllum gefið að búa yfir þeim mannkostum er Leibba voru gefnir í lífinu, hann var vinur vina sinna og ávallt tilbúinn að hlusta, styðja og hughreysta og var óspar á sitt einstaka faðmlag. Elsku Ellen mín, Rakel, Agnes, Einar Freyr og fjöl- skyldur, þið eigið samúð mína alla og megi minning um ein- stakan mann sem þið saknið svo sárt lýsa ykkur veginn á erfiðum stundum. Takk fyrir samfylgdina elsku vinur. Þóranna Halldórsdóttir. Enn á ný helltist myrkrið yf- ir. Vinur minn Þorleifur Jó- hannsson, Leibbi, er fallinn frá og bara tæpir þrír mánuðir síð- an sameiginlegur vinur okkar, Brynleifur Hallsson, Billi Halls, lést. En bjartar og fallegar minn- ingar undanfarin 56 ár ylja á erfiðum stundum. Við Leibbi urðum vinir þegar Helgi Vilberg, bekkjarbróðir Leibba, mætti með hann til prufu hjá okkur Bravóstrákum sem vorum trommuleikaralaus- ir. Hann hafði aldrei spilað á trommur áður. Hann bara sett- ist við trommusettið og byrjaði að tromma og var bara strax eins og þaulvanur trommari frá fyrstu stundu. Frá fyrsta degi höfum við verið perluvinir. Við áttum skemmtilega tíma saman í Bravó og stendur þá upp úr þegar við 12 og 13 ára guttar fengum það einstaka tækifæri 1965 að hita upp fyrir The Kinks, sem var ein af frægustu popphljómsveitum heims á þeim tíma. Þetta var ævintýri sem kom til þegar við skemmtum í skíða- hótelinu á Akureyri. Andrés Indriðason, sá yndislegi maður, „uppgötvaði okkur“. Hann kom ýmsu góðu til leiðar fyrir okkur norðanstráka. Við Leibbi vor- um líka samstiga í hljómsveit- inni Ljósbrá og Hljómsveit Ingimars Eydal. Árið 2009 komu Bravóstrákar aftur sam- an efir 44 ára hlé. Það varð til þess að þétta enn þá betur saman okkur gömlu vinina. Við reyndum að koma saman a.m.k. einu sinni á ári og þetta gaf okkur mikið og það var gott að finna hversu góðir vinir við vor- um allir og væntumþykjan mik- il. En fljótt skipast veður í lofti. Billi hringir í mig seinnipartinn í júlí og tilkynnir mér alvarleg veikindi Leibba, veikindi sem við vissum að gætu farið á versta veg. En svo skrýtið sem það nú er þá varð Billi bráð- kvaddur 3. okt. og Leibbi 23. des., tæpum þremur mánuðum seinna. Stórt skarð er rofið í fé- lagsskap okkar hljómsveitar- vina. Leibbi var hvers manns hug- ljúfi, eðalvinur, mjög fyndinn og skemmtilegur, svo falleg sál, fallegur utan sem innan. Leibbi var mikill listamaður í sér, hvort sem um var að ræða trommur, gítar, bassa, teikn- ingar eða smíðar. Hann var lærður húsgagnasmiður, það bókstaflega lék allt í höndunum á honum, allt svo vandað og vel gert. Ég fylgdi honum í veikinda- stríðinu eins og kostur var. Því- líkt æðruleysi sem hann sýndi, bara bjartsýni og ekkert væl. Við töluðum bara saman á létt- um nótum, rifjuðum upp gaml- ar góðar minningar og vorum með okkar einkahúmor og hlóg- um mikið þrátt fyrir alvarlegt ástand hans. Ég á eftir að sakna vinar, það er skrýtið til þess að hugsa að tveir af mínum bestu vinum séu horfnir af sviðinu, en ég trúi því að við eigum eftir að hittast aftur og þá verður örugglega talið í einhver lög. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið þann stóra happdrætt- isvinning í lífinu að vera vinur Leibba, sem var vinmargur og elskaður af öllum sem hann þekktu. Blessuð sé minning míns kæra vinar sem mér þótti óendanlega vænt um og ég óska Leibba mínum góðrar ferðar í Sumarlandið fagra. Elsku Ellen og fjölskylda. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Minning um yndislegan mann lifir að eilífu. Takk fyrir allt elsku vinur. Sævar Benediktsson. Þorleifur Jóhannsson Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Sigrún systir mín sofnaði svefn- inum langa eftir 97 ára langa ævi. Líf hennar spannaði gleði og sorg eins og við flest göngum í gegn- um á lífsleiðinni. Sigrún fæddist í Hafnarfirði 13. mars 1923. Að Sigrún Elíasdóttir ✝ Sigrún Elías-dóttir fæddist 13. mars 1923. Hún lést 14. desember 2020. Útför Sigrúnar fór fram 5. janúar 2021. skólagöngu lokinni fór hún að vinna í skóbúð í Reykjavík. Ég var krakki en man enn hvað mér þótti til koma að stóra systir væri farin að vinna í Reykjavík sem þá var nafli alheims- ins. Sigrún giftist Páli S. Pálssyni þann 30. september 1944. Þau reistu sér heimili, eignuðust þrjú börn. Þau hjón voru gest- risin og frúin afbragðshúsmóðir sem reiddi fram kræsingar og oft var mikið glens og gaman. En sorgin barði að dyrum er Páll maður hennar lést skyndi- lega og gjörbreyting varð á hög- um fjölskyldunnar. En lánið barst til Sigrúnar er hún fékk vinnu hjá Landsvirkj- un. Þar eignaðist hún fjölda vina, tók þátt í félagsskap og naut sín vel. Þar vann hún til 70 ára aldurs. Og árin liðu svo undurfljótt, fyrr en varði þótti rétt að Sig- rún mín færi á elliheimili. Furu- gerði 1 varð svo í mörg ár henn- ar heimili. Þar naut hún sín vel, var kát og góð við starfsfólkið og íbúana. Hún vann fallegar perlufestar og heklaði. Handa- vinna var svo þægileg, sagði hún. Fljótt þótti starfsfólki og Furugerðisbúum vænt um þessa brosmildu konu. Og hún var sannarlega ánægð þar. Ég sendi kærar þakkir til þeirra í Furu- gerði. Veit að hún hefði viljað það. Páll sonur hennar kom á hverjum degi til hennar og smurði brauð fyrir kvöldmatinn. Hann bjó í grenndinni. Arndís dóttir gerði það sama áður en hafði ekki bíl svo Páll tók við af henni. Sigrún dóttir bjó í Reykjanesbæ og átti því ekki auðvelt með að annast hana eins og þau hin. Sigrún horfði alltaf á hand- bolta og fótbolta í sjónvarpinu. Þar deildi hún áhuga Ingvars mágs síns. Þau spjölluðu um sig- ur og tap. Og hvort þessi eða hinn hefði skorað markið, þetta var þeirra leikur. Síðasti hluti ævi Sigrúnar var á Hrafnistu hjúkrunarheimili við Sléttuveg. Hún var ánægð þar og þótti allt svo fallegt og fínt. Og afbragðsstarfsfólk gerði henni lífið léttara því Covid-19 lék innilokað fólkið illa. Það að fá ekki að sjá skyldmenni sín svo mánuðum skipti. Við Ingvar komumst þó til hennar á tíma- bili þegar nokkuð var gefið eftir. Mikið var af henni dregið. Neistinn farinn. Og sátt vorum við að fá að sitja hjá henni á dánardeginum. Ég tók í höndina hennar létt og strauk hana yfir en hún tók mína hönd og hélt henni fast. Um kvöldið var þessi lífsglaða indæla systir min og mágkona Ingvars látin. Sofðu mín Sigrún sofðu nú rótt. Guð faðir gefi góða þér nótt. Hjartans samúðarkveðjur til fjölskyldu Sigrúnar. Frá Hönnu, Ingvari og fjöl- skyldu. Hanna Elíasdóttir, Ingvar Sveinsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.