Morgunblaðið - 11.01.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.01.2021, Qupperneq 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það færist í vöxt að fyrirtæki nýti sér þjónustu sérfræðinga í hlutastarfi til að sinna t.d. mann- auðs- og fjármálum. Hjá fyrirtækinu Bókhald & aðrar lausnir ehf. hefur sú þjónusta verið í boði um alllangt skeið að bjóða félögum upp á fjár- málastjóra til leigu og segir Jóhanna María Ein- arsdóttir að það nýtist vel t.d. þegar stærri fyrir- tæki vantar aukamannskap vegna fjarveru eða veikinda, ellegar ef sinna þarf ýmsum afmörk- uðum en sérhæfðum verkefnum sem falla til bæði hjá smærri og stærri félögum. „Við veitum m.a. aðstoð við áætlanagerð, getum sinnt mán- aðarlegri uppfærslu fyrningartaflna og lána- skjala og útbúum kynningargögn vegna láns- umsókna og útboða.“ Jóhanna á og rekur Bókhald & aðrar lausnir með Guðrúnu Ó. Axelsdóttur en fyrirtækið sinn- ir m.a. bókhaldsþjónustu og kennslu auk þjón- ustu við notendur bókhaldskerfisins Uniconta. Fyrirtækið er nú til húsa í Hlíðarsmára en mun flytja í Fjártækniklasann í mars. Að sögn Jó- hönnu er ástandið í atvinnulífinu þannig í dag að mörg fyrirtæki hefðu mikið gagn af aðstoð og ráðgjöf fjármálastjóra. Kórónuveirufaraldurinn hafi valdið miklu álagi á rekstur og fjárhag fyrir- tækja og glíma sum við óvæntan og tímabundinn kipp í tekjum á meðan önnur glíma við samdrátt og taprekstur og þurfa að draga saman seglin: „Núna skiptir öllu máli að vera með skýra hugmynd um hvar reksturinn stendur og hvert hann stefnir. Það gengur ekki, á svona umbrota- tímum, að ætla einfaldlega að senda gögn til bókarans eftir áramót og fá svo uppgjör í hend- urnar í ágúst og þá fyrst byrja að taka ákvarð- anir um breytingar. Í nútímarekstri, og alveg sérstaklega á tímum eins og þessum, þarf að vera hægt að koma auga á vandamálin án tafar. Fjármálastjóri til leigu á að geta greint rekst- urinn hratt og vel og bent stjórnendum á óþarfa útgjöld eða tækifæri til úrbóta,“ útskýrir Jó- hanna. „Þá þykir mörgum stjórnendum gagnlegt að fá að borðinu manneskju með breiðari sýn sem skoðar reksturinn með hlutlausum hætti og með ferskum augum. Á það við um marga stjórnendur og eigendur fyrirtækja að tilfinning- arnar lita skoðun þeirra á eigin fyrirtækjum svo það verður hægara sagt en gert að skoða allar tölurnar í réttu ljósi, vanmeta ekki hætturnar og ofmeta ekki tækifærin.“ Baunateljararnir hverfa Því er spáð að á komandi árum og áratugum muni starf bókarans og fjármálastjórans taka miklum breytingum. Með aukinni sjálfvirkni og notkun gervigreindar sjá tölvurnar um æ stærri hluta af bókhalds- og greiningarvinnunni. Jó- hanna segir tæknina þegar hafa gjörbreytt starfsumhverfinu og þannig leggi fyrirtæki hennar t.d. ríka áherslu á að nær öll vinna með kvittanir og önnur skjöl fari fram rafrænt. „Það heyrir sögunni til að viðskiptavinir þurfi að koma með möppur fullar af gögnum til bókarans síns og sparar bæði pappír og mikið óþarfa umstang. Þess í stað berast gögnin rafrænt og sér hug- búnaður um að koma öllum skjölum á réttan stað.“ Þó að tölvurnar leysi af hendi æ meira af vinnu bókara og fjármálastjóra segir Jóhanna að þessar stéttir séu samt ekki í útrýmingarhættu. Tæknin auki skilvirkni þeirra sem halda utan um greiðslur og fjármál fyrirtækja og skapi um leið tækifæri til að nálgast vinnuna með öðrum hætti. Hún segir skeið baunateljarans vera að líða und- ir lok, enda utanumhald reikninga að verða meira og minna sjálfvirkt en um leið sé verið að búa í haginn fyrir áhugaverða breytingu: „Upp- lýsingatæknin auðveldar þessum stéttum að bregðast við með forvirkum hætti frekar en að bregðast við eftir á og koma t.d. jafnharðan auga á áhættuþætti í rekstri fyrirtækja eða tækifæri til hagræðingar.“ Þurfa að sjá vandamálin strax Morgunblaðið/Eggert Vissa „Núna skiptir öllu máli að vera með skýra hugmynd um hvar reksturinn stendur og hvert hann stefnir.“ Guðrún Ó. Axelsdóttir og Jóhanna María Einarsdóttir, sérfræðingar í fjármálum fyrirtækja.  Kórónuveirufaraldurinn hefur valdið miklum röskunum hjá fjölda fyrirtækja og brýnt að stjórnendur hafi góða innsýn í reksturinn svo þeir geti brugðist hratt við 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 Fullkomið flatbrauð f yrir öll tækifæri 11. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.94 Sterlingspund 172.57 Kanadadalur 100.02 Dönsk króna 20.909 Norsk króna 15.116 Sænsk króna 15.471 Svissn. franki 143.63 Japanskt jen 1.2219 SDR 183.43 Evra 155.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.4635 Hrávöruverð Gull 1891.3 ($/únsa) Ál 2008.0 ($/tonn) LME Hráolía 54.56 ($/fatið) Brent ● Verð rafmyntarinnar bitcoin rauf 40.000 dala múrinn í lok síðustu viku en lækkaði lítillega í framhaldinu og fór niður í u.þ.b. 39.250 dali seint á sunnudag. Á und- anförnum fjórum vikum hefur raf- myntin meira en tvöfaldast í verði og liðlega fjórfald- ast frá því í októ- ber þegar verðið tók að hækka skarp- lega. Guardian fjallar um þessa þróun og segir þrjár lykilástæður að baki styrk- ingu bitcoin: umfjöllun fjölmiðla um verðþróun bitcoin laði að spákaup- menn, hefðbundnir fjárfestar séu farnir að sýna þroskaðri rafmyntamarkaði vaxandi áhuga og stórir aðilar á fjár- málamarkaði líti á fjárfestingar í raf- myntum sem leið til að verjast verð- bólgu. Ganga sumir svo langt að segja að bitcoin kunni senn að þjóna sama hlutverki og gull sem verðmætageymir (e. store of value) en á móti kemur að miklar verðsveiflur undanfarinna vikna og ára ættu að fæla fjárfesta frá og enginn sem vill lenda í þeim sporum að fjárfesta í bitcoin rétt áður en loftið tæmist úr þeirri bólu sem virðist hafa blásið út síðastliðinn ársfjórðung. ai@mbl.is Áfram hækkar bitcoin STUTT Hlutabréfaverð bandaríska rafbíla- framleiðandans Tesla hækkaði um 5,6% á föstudag og er fyrirtækið því núna metið á rösklega 800 milljarða dala. Að sögn Reuters er Tesla fimmta verðmætasta hlutafélag Bandaríkjanna á eftir Apple, Micro- soft, Amazon og Alphabet. Þá er markaðsvirði Tesla hærra en sam- anlagt virði bandarísku bílarisanna General Motors, Ford og FCA, og raunar er félagið verðmætara en tíu stærstu bílaframleiðendur heims samanlagt. Til samanburðar er Toyota metið á um 213 milljarða dala og Volkswagen AG tæplega 80 millj- arða dala virði. Elon Musk, stofandi Tesla, á um 21% hlut í félaginu og eru auðæfi hans nú metin á nærri 190 milljarða dala og hann því ríkasti maður heims. Á milljarðamæringalista Forbes hafnar Jeff Bezos í öðru sæti með 185 milljarða dala. Næstir koma Bernard Arnault og fjölskylda, Bill Gates og Mark Zuckerberg. Skiptar skoðanir eru um hvert hlutabréfaverð Tesla mun stefna. Sumir telja ballið rétt að byrja hjá fyrirtækinu enda ljóst að rafbílar njóta mikils meðbyrs um allan heim og að Tesla hefur verulegt forskot á aðra framleiðendur á þeim markaði. Meðal þeirra sem hafa efasemdir um verðþróun Tesla er fjárfestirinn Michael Burry sem varð frægur fyr- ir að segja fyrir um bandarísku láns- fjár- og bankakreppuna. Business Insider hefur eftir honum að hann reikni með að hlutabréfaverð Tesla lækki með látum en sjálfur hefur hann tekið skortstöðu í hlutabréfum fyrirtækisins. ai@mbl.is AFP Uppgangur Tesla hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu. Tesla yfir 800 milljarða markið  Verðmætara en tíu stærstu bíla- framleiðendur heims

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.