Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
✝ Guðný Þor-geirsdóttir
fæddist á Húsavík
19. febrúar 1951.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu
á Akureyri 18. jan-
úar 2021. Foreldr-
ar hennar voru
Þorgeir Kristjáns-
son, f. 27. mars
1909, d. 12. apríl
1986, og Rebekka
Pálsdóttir, f. 17. janúar 1912, d.
29. júní 1986. Systir Guðnýjar
var Áslaug, f. 29. nóvember
1940, d. 29. október 2006.
Guðný bjó um tíma í Eng-
landi á yngri árum og um
nokkurra ára skeið í Hafn-
d. 21. mars 1991. Þau skildu.
Börn þeirra eru Kristján Phil-
lips bílstjóri, f. 4. apríl 1974,
giftur Elínu Guðmundsdóttur,
f. 26. janúar 1969, og Edda Lóa
Phillips stuðningsfulltrúi, f. 14.
desember 1976.
Dóttir Kristjáns og Elínar er
Rebekka, f. 13. mars 2010. Son-
ur Kristjáns af fyrra sambandi
er Anton Atli, f. 20. mars 2003
og Elín á synina Elís Má, Arnór
og Heimi Mána. Börn Eddu Lóu
eru Eyþór, f. 13. september
1998, Snorri, f. 24 september
2007 og Lena, f. 19. desember
2011.
Útför Guðnýjar verður gerð
frá Húsavíkurkirkju 30. janúar
2021 og hefst kl. 11. Streymt
verður frá athöfninni á face-
booksíðu Húsavíkurkirkju.
Stytt slóð á streymi:
tinyurl.com/1d2r6rw3
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
arfirði, en lengst
af á Húsavík. Hún
vann ýmis skrif-
stofu- og þjónustu-
störf, m.a. hjá
Reiknistofu Húsa-
víkur, Fiskiðju-
samlagi Húsvíkur
og síðast var hún
fulltrúi hjá Trygg-
ingastofnun rík-
isins, þar til hún
lét af störfum 67
ára að aldri. Guðný var um ára-
bil ein af helstu leikkonum
Leikfélags Húsavíkur og tókst
á við fjölmörg krefjandi verk-
efni á þeim vettvangi.
Árið 1973 giftist Guðný Roy
Phillips, f. 12. nóvember 1937,
Enn erum við minnt á hve
hverfult lífið er. Gugga vinkona
okkar hefur kvatt þetta líf,
snöggt og óvænt eftir stutt veik-
indi. Það er sorg í hjarta og
söknuður, enda hlutverki hennar
hvergi lokið. Sérstöku hlutverki
gegndi hún í lífi barnabarnanna
sem nú hafa misst mikið.
Gugga kom inn í líf okkar að-
eins 10 ára gömul sem barn-
fóstra okkar systkinanna. Við
bjuggum í Öskju á efri hæðinni
og niðri var verslunin þar sem
pabbi okkar og Toggi, pabbi
Guggu, unnu báðir. Æ síðan hafa
leiðir okkar verið samtvinnaðar
og einkennst af vináttu og
tryggð. Við urðum tíðir gestir á
æskuheimili Guggu á Uppsala-
veginum þar sem Bekka og
Toggi tóku okkur opnum örmum.
Hlutverk Guggu í okkar lífi voru
mörg. Frá því að vera fyrst barn-
fóstra varð hún nokkurs konar
stóra systir og fyrirmynd og á
seinni kafla einstök vinkona.
Þegar Gugga eignaðist sín börn
varð barnfóstruhlutverkið okkar.
Eftir að við fluttum frá Húsa-
vík á unglingsárum hafa heim-
sóknir til Guggu verið fastur lið-
ur í ferðum okkar norður og
alltaf tilhlökkunarefni, bæði hjá
okkur og börnum okkar. Gugga
átti fallegt heimili og hafði ein-
stakt lag á að búa til góða stemn-
ingu. Við gátum spjallað, hlegið,
lagt á ráðin um ferðalög, rifjað
upp gamla tíma út í eitt og gjarn-
an var dreypt á rauðvíni. Minn-
ingarnar eru margar.
England átti sérstakan sess í
hjarta Guggu. Hún bjó þar um
tíma og hélt mikilli tryggð við
tengdafjölskyldu sína þar og
ekki síður við Huld frænku sína
og hennar fjölskyldu og í seinni
tíð ferðaðist hún þangað minnst
árlega. Hún þekkti líka London
og leikhúsin þar eins og lófann á
sér lengi vel og höfum við margir
vina hennar notið þess að ferðast
þangað með henni og njóta leið-
sagnar.
Gugga hafði gaman af lífinu.
Hún var afbragðsleikkona og
mörg hlutverk gerði hún eftir-
minnileg með Leikfélagi Húsa-
víkur. Hún var skemmtileg og
hugmyndarík og einstaklega lag-
in við að gera sér og öðrum glað-
an dag af litlu tilefni. Leikhús-
vinkonurnar, Steinunn og
Hrefna, voru gjarnan með í ráð-
um en þær þrjár voru skemmti-
legt þríeyki. Sú hefð þeirra að
eiga notalega morgunstund á
laugardagsmorgnum yfir kaffi-
bolla hjá móður okkar hefur
haldist órofin í 30 ár og veitt
henni og okkur ómetanlega gleði.
Sú tryggð verður seint þökkuð.
Síðast þegar við komum til
Húsavíkur í haust sem leið var
erindið að hjálpa móður okkar
við flutninga. Eftir flutningana
sló Gugga upp glæsilegri veislu
þar sem hún töfraði fram dýr-
indis máltíð eins og henni einni
var lagið. Og að sjálfsögðu var
boðið upp á rauðvín.
Nú er komið að kveðjustund.
Við þökkum af alhug vináttu og
tryggð alla tíð og biðjum Guð að
blessa minningu kærrar vinkonu.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum sem fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sig.)
Elsku Kristján, Edda Lóa og
fjölskyldur; megi góðar minning-
ar hugga ykkur í sorg og sökn-
uði.
Guðbjörg, Geirþrúður,
Ari Páll og amma Dídí.
Gugga móðursystir, Gugga
frænka, en sennilega er réttast
að segja Gugga vinkona, því
þrátt fyrir að vera allt þetta var
hún sennilega mest vinkona.
Gugga var ellefu árum yngri en
mamma og því 19 ára þegar ég
fæddist. Ég held að fyrsta minn-
ing mín um Guggu sé þegar hún
kom með Roy, þá splunkunýjan
eiginmann, í fyrsta sinn til Húsa-
víkur. Það var í eldhúsinu hjá
ömmu Bekku og ég þá á fjórða
ári. Þetta var allt svo spennandi
og framandi, útlenskur maður,
allir að tala útlensku og Roy gat
alls ekki borið nafn ömmu fram
skammlaust.
Gugga og Roy bjuggu svo til
að byrja með í kjallaranum hjá
ömmu og afa á Uppsalaveginum.
Við bjuggum ofar í götunni
þannig að það var stutt að fara
og oft skroppið til Guggu ef eitt-
hvað var ekki nógu og skemmti-
legt heima.
Ég fékk oft að heyra það sem
barn og unglingur að ég væri svo
lík Guggu. Á tímabili var ég al-
veg viss um að hún væri í raun
mamma mín. Hún hefði eignast
mig svo ung að mamma og pabbi
hefðu tekið mig að sér. Ég lagði
þó aldrei í að bera upp þessa
kenningu mína.
Þegar ég varð unglingur sótti
ég mikið í Guggu. Hún var eins
konar millistykki milli þess að
vera aukamamma og vinkona.
Það var hægt ræða ýmsar flækj-
ur unglingsáranna á annan hátt
en við mömmu eða pabba eða
það ákvað ég að minnsta kosti.
Hún fékk því að vita ýmislegt
sem enginn annar fullorðinn fékk
að vita. Hún hlustaði en predik-
aði aldrei, þó stundum hefði
kannski mátt predika aðeins.
Gugga var hugmyndarík og
framkvæmdaglöð. Eitt sumarið
þegar ég var að vinna á hótelinu
á Húsavík mætti hún einu sinni í
lok vaktar á góðviðrisdegi og
stakk upp á göngutúr á Húsavík-
urfjall. Þegar við vorum rétt
lagðar af stað upp brattann
fannst Guggu komið nóg af púli.
Við settumst niður og Gugga dró
upp útskorin kristalsglös og
rauðvínsflösku, Chateauneuf-du-
Pape, ekkert slor á fjallinu. Það
var alltaf eitthvert tvist á hlut-
unum hjá Guggu.
Það er ekki auðvelt að setja
niður á blað, í örfáum orðum,
fimmtíu ár af minningum, fimm-
tíu ár af góðum og skemmtileg-
um minningum, um grín og
glens, um sorg og gleði, um
krefjandi verkefni, stuðning og
hlýju. En það er verðmætt að
eiga allar þessar minningar. Við
Gugga hittumst lítið á þessu
skrítna ári 2020 en hittumst þó
aðeins og það var stutt í grínið
og glensið.
Elsku Gugga, ég er glöð að
hafa komið og haldið aðeins í
höndina á þér einn dagpart nú
alveg undir lokin.
Hlýhugur minn er hjá frænd-
systkinum mínum og fjölskyld-
um þeirra.
Hjördís.
Þó líf og dauði séu í skilningi
skynseminnar eins og svart og
hvítt, annaðhvort eða, þá er okk-
ur engu að síður tamt að finnast
sumt fólk meira lifandi en annað,
lýsa bjartar, brenna skærar.
Þess erfiðara að meðtaka þegar
slíkt fólk fellur frá, snögglega og
að því okkur finnst ótímabært.
Þannig kom Gugga frænka
mér fyrir sjónir, frá því ég fyrst
man eftir henni og þar til ég
heimsótti hana í síðasta sinn á
Grundargarðinum í sumar sem
leið. Okkur var vel fagnað og
móttökur höfðinglegar, eins og
mér finnst að þær hafi alltaf ver-
ið, allt frá því ég man fyrst eftir
mér rölta niður Uppsalaveginn
til að taka hús á frænku og henn-
ar fólki. Fá að spila rauðu og
bláu Bítlaplöturnar, nú eða Sim-
on og Garfunkel. Alltaf var
manni fagnað, og ég held bara
öllum sem að garði bar.
Þegar ég hugleiði móðursyst-
ur mína og velti við minninga-
brotum kemur eitt öðru skýrar
upp í hugann: Ég hef á tilfinn-
ingunni að Gugga hafi haft ein-
stakt lag á að njóta lífsins. Að
haga bæði hversdegi og tyllidög-
um þannig að úr yrði eitthvað
einstakt. Að alls staðar væri
svigrúm til að bæta við lit, ljóma,
ævintýri.
Hún var bæði sæl- og fagur-
keri og tók heitu ástfóstri við það
sem náði til hennar. Góður mat-
ur, gott vín, falleg tónlist,
smekklegir innanstokksmunir.
England og ensk menning.
Nema reyndar Shakespeare –
þar þurftum við að hafa sam-
komulag um að hafa ósamkomu-
lag, sem var auðsótt. Að öðru
leyti var Gugga fagurkeri á leik-
list, og sjálf ríkulega búin hæfi-
leikum á því sviði, sem Leikfélag
Húsavíkur naut um árabil. Ein
elsta og kærasta minning mín
um Guggu er í hlutverki Sólveig-
ar í Pétri Gaut á móti gestaleik-
aranum Gunnari Eyjólfssyni.
Síðar kom titilhlutverkið í Sölku
Völku, sýningu sem ég man í
smáatriðum og er mér enn mæli-
kvarði á hvað lukkast í leikhús-
inu.
Gugga kunni að njóta lífsins
og hún þekkti flestum betur þá
list að njóta þess með öðrum, af
örlæti í víðasta skilningi þess
orðs. Þær eru ófáar sögurnar um
dýrðarstundir, skipulagðar eða
spunnar af fingrum fram, sem
hún skapaði með vinum sínum og
öðrum sem á vegi hennar urðu.
Það fór ekki fram hjá neinum
sem var í kallfæri við Guggu og
vinkonur hennar hvað var gaman
í því partíi.
Því slegnari vorum við öll þeg-
ar fréttist af óvæntum og skyndi-
legum veikindum þessarar fíl-
hraustu konu á besta aldri, og
snarpri leið að endalokunum sem
bíða okkar allra. Það var enn
margs að njóta í lífi frænku
minnar, og hún hefði örugglega
haldið áfram að finna það, magna
það, gera að sínu og deila með
öðrum. Hún talaði stundum um
þau áform sín að verða erfitt
gamalmenni, og það hefði hún án
efa efnt með ófyrirsjáanlegum
glæsibrag.
Elsku Kristján, Edda Lóa,
ykkar fólk og aðrir í stóra
hringnum umhverfis mömmu
ykkar. Í dag deilum við bæði
sorg og lifandi minningum um
hana. Í framhaldinu skulum við
svo muna að njóta lífsins í henn-
ar nafni.
Þorgeir Tryggvason.
Gugga mín. Elsku Gugga mín.
Það er ekki leiðum að líkjast. Í
gegnum árin hefur fólk sem
stendur okkur nærri og við
þekkjum vel og eins aðrir sem
við þekkjum minna, ruglað okk-
ur saman. Eða öllu heldur haldið
að ég sé hún. Alltaf hefur okkur
þótt þetta jafn fyndið. „Ert þú
amma Snorra?“ er spurning sem
vinir og kunningjar Snorra,
barnabarns Guggu minnar, hafa
spurt mig æði oft. Og þegar vin-
kona Lenu hélt því fram að hún
og amma Gugga væru oft sam-
ferða í skólann: „Nei, amma
Gugga fór ekki í skólann heldur
Halla frænka.“ Þetta þykir mér
vænt um. Alltaf fór ég yfir til
Guggu og lét hana vita af þessu,
líka þegar brottfluttir Húsvík-
ingar fóru að spjalla við mig á
Mærudögum, og ég hafði ekki
hugmynd um hver eða hverjir
þetta voru. Þótt ég hafi gert grín
að þessu þar sem Gugga mín var
nú töluvert eldri en ég var ég og
er stolt af því að vera lík henni.
Hver vill ekki vera eins og
Gugga?
Hún var ekki bara móðursyst-
ir mín, heldur líka nágranni og
ekki síst mjög góð vinkona mín.
Við drukkum saman morgun-
kaffi allar helgar þegar báðar
voru heima, oftar en ekki á nátt-
fötunum. Hversu dýrmætt er að
eiga slíkan nágranna, frænku og
vinkonu? Svo ekki sé minnst á
morgnana sem við fengum okkur
„með’ðí“, það þýddi ekki að það
væri eitthvað að maula með
kaffinu, heldur var það líkjör eða
jafnvel koníak. Og það skipti
engu máli þó að klukkan væri
bara níu að morgni.
Síðasta helgin okkar var þann-
ig, aldeilis „með’ðí“ bæði á laug-
ardeginum og sunnudeginum.
Fyrst var það cointreau og svo
koníak á sunnudeginum, sem ég
reyndar hélt að væri sérrí. Af
sinni alkunnu kaldhæðni og húm-
or sagði frænka með hneykslun-
artón: Sérrí, Halla Rún?! Nei,
þetta er koníak!
Ég held áfram að drekka
morgunkaffið, núna ein en með
kertaljós og kveikt á lampanum
frá Guggu. Og skála svo seinni-
partinn.
Skál fyrir þér, elsku frænka.
Halla Rún Tryggvadóttir.
Guðný
Þorgeirsdóttir
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
PÉTUR BLÖNDAL
frá Seyðisfirði,
sem lést 19. janúar, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju þriðjudaginn 2. febrúar
klukkan 15 að viðstöddum nánustu aðstandendum. Streymt
verður frá útförinni á youtuberás Grafarvogskirkju https://www.y
outube.com/channel/UCLoNRDNgtA4a6tgIEywDCGw
Theodór Blöndal Björg S. Blöndal
Gísli Blöndal
Ásdís Blöndal Anton Antonsson
Margrét Blöndal Ólafur Einarsson
Emilía Blöndal Þórður Hjörleifsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir og mágur,
HEIÐAR ÁRNASON,
Southport, Englandi,
lést þriðjudaginn 12. janúar á sjúkrahúsinu
í Southport á Englandi. Útför Heiðars fer
fram frá kapellu bálstofunnar í Southport fimmtudaginn
4. febrúar klukkan 11. Streymt verður frá athöfninni:
https://www.wesleymedia.co.uk/webcast-view
Order ID: 69838; Password: csbbesmw.
Virkan hlekk á streymi má finna á: mbl.is/andlat.
Ouza Kwanashie
Helena Rún Heiðarsdóttir
Lucas Árni Heiðarsson
Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir
Laufey Árnadóttir Kristinn Harðarson
Ingvar Árnason Sigríður Anna Ólafsdóttir
Gauti Árnason
Ástkær móðir mín, systir, amma
og langamma,
GERÐUR JÓNÍNA HALLGRÍMSDÓTTIR,
lést þriðjudaginn 26. janúar á HSN
Blönduósi. Útför hennar fer fram frá
Blönduóskirkju laugardaginn
6. febrúar klukkan 14 en vegna aðstæðna verða einungis
nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Hægt verður að nálgast
streymi frá athöfn á facebooksíðu Blönduóskirkju.
Sigurður Pétur Hilmarsson
Lýdía Kristín Sigurðardóttir Guðmundur Þórisson
Steinunn Lukka Sigurðard. Serkan Mermer
Vilhjálmur Hilmar Sigurðars. Joke Michiel
systkini og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRMANN GUNNARSSON,
Steinsstöðum, Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn
26. janúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 5. febrúar klukkan 13. Vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu munu einungis nánustu aðstandendur verða
viðstaddir. Útförinni verður streymt frá vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalar- og
hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi.
Helga Sólveig Bjarnadóttir
Kristín Ármannsdóttir Guðgeir Svavarsson
Gunnar Már Ármannsson Anna Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Bjarni Ármannsson Helga Sverrisdóttir