Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Herbertsprent ehf., eigandi húss og
lóðar í Bankastræti 3, hefur í bréfi til
Reykjavíkurborgar mótmælt því
harðlega að við gerð deiliskipulags
fyrir svokallaðan Stjórnarráðsreit
nái það einungis til lóðarinnar Lækj-
argötu 1. Er þess krafist að deili-
skipulagið nái einnig yfir næstu lóð
þar fyrir ofan, Bankastræti 3.
Á embættisafgreiðslufundi skipu-
lagsfulltrúa 16. október síðastliðinn
var lögð fram umsókn Fram-
kvæmdasýslu ríkisins um nýtt deili-
skipulag fyrir lóðina nr. 1 við Lækj-
argötu, lóð forsætisráðuneytisins og
Stjórnarráðshússins, vegna áforma
um viðbyggingu við húsið fyrir starf-
semi forsætisráðuneytisins.
Einnig er lögð fram vinnings-
tillaga Kurt og Pí arkitekta frá árinu
2018 um viðbygginguna. Viðbygging
og tengigangur, tvær hæðir og kjall-
ari, verður um 1.500 fermetrar
brúttó. Þótt Stjórnarráðshúsið hafi
staðið á þessum stað í næstum 260 ár
er ekkert deiliskipulag til fyrir lóð-
ina.
Hyggst reisa fjögurra hæða hús
Í bréfi sínu til borgarinnar segir
Edda Hauksdóttir, fyrir hönd Her-
bertsprents, að deiliskipulag hafi
verið unnið fyrir Stjórnarráðsreit ár-
ið 2004 og það samþykkt af öllum til
þess bærum aðilum nema borgarráði
í lok ferils og því aldrei tekið gildi.
Samkvæmt því var heimilað að reisa
allt að 1.310 fermetra viðbyggingu
við Bankastæti 3.
Eigendur lóðarinnar hafi ráðist í
að láta vinna tillögu að viðbyggingu
við hið friðlýsta hús sitt í Banka-
stræti 3 í samræmi við deili-
skipulagstillöguna frá 2004. Lóð-
arhafinn, Herbertsprent ehf., hyggst
reisa fjögurra hæða nýbyggingu, alls
1.173 fermetra.
Reykjavíkurborg fékk sl. haust
fyrirspurn um það hvort leyfi fáist til
að reisa nýbyggingu á lóðinni Banka-
stræti 3. Fyrir er á lóðinni hús úr til-
höggnu grágrýti, reist árið 1881.
Snyrtivöruverslunin Stella hefur ver-
ið rekin í húsinu síðan 1942, eða í rúm
78 ár. Húsið er friðað.
Fram kemur í umsögn Herberts-
prents að í fundargerð umhverfis- og
skipulagsráðs frá 18. nóvember 2020
hafi verið lögð fram kynning á fyrir-
huguðu skipulagi fyrir eina lóð,
Lækjargötu 1. Hvergi sé þar minnst
orði á lóðina Bankastræti 3 eða bygg-
ingaráformin þar. Þetta sé gert þrátt
fyrir að haldnir hafi verið fundir um
málið með byggingafulltrúa borg-
arinnar, arkitektum og formanni
ráðsins sl. haust.
„Með samþykkt sinni 18. nóv-
ember sl. hefur umhverfis- og skipu-
lagssvið þannig sniðgengið og/eða
frestað um ófyrirsjáanlegan tíma fyr-
irhuguðu deiliskipilagi fyrir allan
reitinn, með því að hleypa einni lóð
fram fyrir allar aðrar í væntanlegu
deiliskipulagi og jafnframt mis-
munað gróflega þeim tveimur lóðum
sem mestu skiptir að deiliskipulag
verði gert fyrir allan reitinn,“ segir í
bréfi Eddu. Er þess krafist að deili-
skipulag verði gert fyrir allan reitinn.
Samkvæmt aðalskipulagi Reykja-
víkur er Bankastræti 3 á svæði sem
skilgreint er sem M1a, Miðborgar-
kjarni. Á svæði M1a sé að finna lyk-
ilstofnanir stjórnsýslu, menningar
og mennta, líflegustu verslunargötur
landsins, litríka flóru veitingastaða
auk fjölbreyttrar sérfræðiþjónustu.
Á jarðhæðum sé verslunar-, veit-
inga- og menningar-, félags- og þjón-
ustustarfsemi opin almenningi í for-
gangi en á efri hæðum skrifstofu- og
íbúðarhúsnæði auk gistiþjónustu.
Eins og fram kom í frétt nýlega
hér í blaðinu hefur Framkvæmda-
sýslan sent inn umsókn til skipulags-
fulltrúans í Reykjavík vegna breyt-
inga á lóðarmörkum Lækjargötu 1.
„Ný lóð mun afmarkast af núverandi
lóðarmörkum við Bankastræti og út-
brúnum steyptra veggja umhverfis
tröppu að Núllinu (almennings-
salerni) innan lóðar ráðuneytisins,
þar sem steyptir veggir telja með
tröppunni. Með þessu verði til tvær
aðgreindar lóðir, sem verða báðar í
eignarhaldi Ríkissjóðs Íslands,“ seg-
ir í umsókninni.
Núllið fær sérstaka lóð
Fyrirspurn var send til Fram-
kvæmdasýslunnar um ástæður
þessa. Eftirfarandi skriflegt svar
barst: „Við undirbúning gerðar deili-
skipulags á lóð forsætisráðuneytis
kom í ljós að ekki er til skráð sam-
komulag um afnot Reykjavíkur-
borgar á þeim hluta lóðar ráðuneyt-
isins þar sem útitrappa að „Núllinu“
undir Bankastræti er staðsett. Ein-
göngu er um að ræða lóðarsvæði
tröppunnar að norðurhluta „Núlls-
ins“. Ákveðið var í samráði við hlut-
aðeigandi aðila að skilgreina sér-
staka lóð fyrir þessar tröppur og
munu fulltrúar ríkis og borgar í
framhaldinu eiga samtal um framtíð-
arlausn á málinu. Með þessari að-
gerð miðast skipulagsmörk deili-
skipulags lóðar forsætisráðuneytis-
ins með skýrum hætti við aðalhluta
lóðarinnar en ráðgert er að „Núllið“
verði hluti af nýju deiliskipulagi
Reykjavíkurborgar fyrir Banka-
stræti, þar sem m.a. verður tekin af-
staða til framtíðarnýtingar þess.“
Segir borgina mismuna gróflega
Vegna viðbyggingar við Stjórnarráðið verður í fyrsta sinn gert deiliskipulag fyrir Lækjargötu 1
Eigandi Bankastrætis 3 krefst þess að deiliskipulag verði einnig gert fyrir þá lóð og vill byggja
Mynd/Kurt og Pí arkitektar
Stjórnarráðsreitur Ráðist verður í viðbyggingu á næstu árum. Þar fyrir ofan má sjá húsið á lóðinni Bankastræti 3.
Bankastræti
Hverfisgata
Lóð Stjórnar-
ráðsinsL
æ
kj
ar
ga
ta
St
jó
rn
ar
rá
ði
ð
Núllið
Lóð Stjórnarráðsins og Núllið í Bankastræti
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ)
tókst að standa fyrir fjölbreyttu tón-
leikahaldi og margvíslegri starfsemi
þrátt fyrir samkomutakmarkanir
vegna veirufaraldursins á síðasta
ári. Þannig hefur hljómsveitin m.a.
staðið fyrir yfir 50 tónleikum frá því
að samkomutakmarkanir voru settar
á. Þetta kemur fram á yfirliti yfir
starfsemi SÍ sem Lára Sóley Jó-
hannsdóttir framkvæmdastjóri SÍ
kynnti á fundi menningar-, íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur-
borgar í vikunni.
Meðal þess sem þar kemur fram
er að sjö tónleikum hljómsveitar-
innar hefur verið sjónvarpað í beinni
á RÚV og er uppsafnað áhorf sam-
tals 381.271. 17 tónleikum hefur ver-
ið streymt á vef SÍ og Youtube úr
safni SÍ, þar af hefur 12 tónleikum
verið sjónvarpað á RÚV 2 og upp-
safnað áhorf á öllum miðlum er
162.341.
Þá hefur Rás 1 sent út frá 13 tón-
leikum, endurfluttum og í beinni.
Valdar upptökur hafa verið
fluttar á erlendum útvarpsstöðv-
um, t.d. BBC, og 25 heimsendingum
hljóðfæraleikara sem léku að heiman
hefur verið deilt á samfélagsmiðlum.
Segir þar að heildaráhorf sé um
600.000 og deilingar og like um
60.000. „Mest horfðu 136.000 á eitt
myndiband en að meðaltali voru um
25.000 áhorf á hvert myndband,“
segir á yfirlitinu. Þá hafi auk þessa
verið haldið uppi öflugu fræðslu- og
samfélagsstarfi með skólatónleikum,
útitónleikum o.fl.
„Sýnileiki hljómsveitarinnar hefur
aldrei verið meiri og ber þar að
þakka frábært samstarf við RÚV,“
segir á yfirlitinu. omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sinfónían Hljómsveitin var mjög
sýnileg í fyrra þrátt fyrir faraldur.
Fimmtíu tónleikar á
tímum faraldursins
Sýnileiki Sinfóníu-
hljómsveitarinnar
aldrei verið meiri