Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 undanúrslit í Iceland Got Talent og einnig keppti hópur á heimsmeistara- mótinu í Fit kid þegar það var haldið hér á landi, en þar vann Helga verð- laun fyrir bestu danssmíðina. Ásamt því að reka dansskóla síð- ustu 10 árin hefur Helga tekið að sér ýmis verkefni. Hún var til dæmis danshöfundur í tveimur söngleikjum hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, danshöfundur í Michael Jackson- sýningu sem sett var upp í Hörpu haustið 2013, danshöfundur í auglýs- ingu hjá Samsung árið 2013 og hefur stýrt nemendasýningum seinustu 10 árin. „Mín helstu áhugamál eru að dansa, kenna dans, ferðast, vera með fjöl- skyldunni og útivera. Við fjölskyldan fórum að stunda fjallgöngur síðasta sumar og kolféllum fyrir því. Dans- kennsla hefur verið einn stærsti hlut- inn af mínu lífi undanfarin 10 ár. Mér finnst svo mikilvægt að mennta líkam- ann vel, læra að beita sér rétt o.s.frv. Listdanskennsla er mikilvæg, sama hvort einstaklingar ætla sér að verða atvinnudansarar eða ekki.“ Fjölskylda Eiginmaður Helgu er Haraldur Gunnar Bender, f. 26.9. 1981, lag- erstjóri hjá Luxor tækjaleigu. Þau eru búsett í Rituhólum í Reykja- vík. Móðir Haraldar er María Har- aldsdóttir Bender, f. 2.9. 1958, deildarstjóri á fjármálasviði hjá Fosshótel Reykjavík, búsett í Reykjavík. Dóttir Helgu og Haraldar er Hekla María, f. 13.10. 2016, og stjúpsonur hennar og sonur Har- aldar er Benóný, f. 21.6. 2005. Bræður Helgu eru: 1) Hafþór Atli Ólafsson, f. 14.8. 1996, nemi í stjórnmálafræði við HÍ, búsettur í Reykjavík; 2) Elvar Þór Ólafsson, f. 6.6. 2001, nemi í pípulögnum við Iðnskólann í Hafnarfirði, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Helgu eru hjónin Birna Sigurðardóttir, f. 19.9. 1964, félagsráðgjafi og sérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu, og Ólafur Páll Jónsson, f. 2.2. 1968, tann- læknir. Þau eru búsett í Reykjavík Helga Ásta Ólafsdóttir Guðmundur Þorsteinn Sigurðsson bóndi í Enni Halldóra Sigríður Ingimundardóttir húsfreyja í Enni í Refasveit, A-Hún. Sigurður Heiðar Þorsteinsson viðgerðarmaður á Blönduósi Helga Ásta Ólafsdóttir matráðskona á Blönduósi Birna Sigurðardóttir félagsráðgjafi í Reykjavík Ólafur Þorbjörn Ólafsson fiskilóðs í Reykjavík Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Karl Eyjólfur Jónsson verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi Áslaug Bachmann Guðjónsdóttir matráðskona og húsfreyja í Borgarnesi Jón Þór Karlsson skipstjóri í Reykjavík Helga Ólafsdóttir hjúkrunarkona í Reykjavík Ólafur Pálsson sundkennari í Reykjavík Jústa Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Úr frændgarði Helgu Ástu Ólafsdóttur Ólafur Páll Jónsson tannlæknir í Reykjavík „ÞVÍLÍK BYRJENDAHEPPNI! ÞAÐ ER EKKI EINU SINNI NARTAÐ HJÁ MÉR!” „ER MIÐINN ENN Á HÁLFVIRÐI FYRIR BÖRN?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að halda upp á það sem hún prjónaði. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EIN, TVÆR ÞRJÁR … HVAÐ ERTU AÐ GERA? TELJA Á ÞÉR UNDIRHÖKURNAR FARÐU DÆS… ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ ÉG VÆRI KRAKKI! HAH, TIL AÐ HLAUPAST UNDAN ÁBYRGÐ FULLORÐINSÁRANNA? NEI, SVO EKKI SÉ HÆGT AÐ DÆMA MIG SEM LÖGRÁÐA EINSTAKLING! Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Í verki dugnað sýnir sá. Seggur hreysti búinn. Máttarvöldin merkir há. Matur kjarna rúinn. Nú brá svo við, að engin lausn barst, en sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Verk af krafti vinnur hann. Í vöðvum krafta hefur sá. Vera æðri kraftur kann. Kraftlaust fóður varast á. Þá er limra: Ef sjá vil ég gjósa Geysi og grænsápu hverinn eys í uns vex honum kraftur, þá vonandi aftur verður hann alveg kreisí. Og síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Sólin skín á gluggans gler, gliti slær á fold og ver, glatt mér nú í geði er og gátu samdi handa þér: Letiblóð mun leynast hér. Líka nafn á viði. Lítill steinn í ljánni er. Leikur grind í hliði. Magnús Halldórsson yrkir á Boðnarmiði: Uppáhald Skjöldu var arfi, sem yfirleitt spratt þó í hvarfi. Úfinn með feld, alltaf steingeld. Hún kenndi það kulnun í starfi. Sigurlín Hermannsdóttir kann- aðist við Skjöldu líka: Hún Skjalda sem át mikinn arfa var eilíflega að garfa. Hýrum leit augum að Huppum og Baugum en hafði enga löngun til tarfa. Hreinn Guðvarðarson átti síðasta orðið: Ég man eftir mömmu ’ennar Skjöldu mjólkurkú bestu þeir völdu. Þó væri hún hraust kom vor síðan haust þá orðin var geld, – að menn töldu. Úr Reimarsrímum eftir Hákon í Brokey Hákonarson: Þó að blási stundum strangt stormur rauna frekur ekki þarf að þykja langt það sem enda tekur. Gömul vísa að lokum: Þó að nóttin hundrað hafi heilskyggn augu allt með sínu eina betur auga dagur séð þó getur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gott er að hafa krafta í kögglum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.