Morgunblaðið - 30.01.2021, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Hjörvar Steinn Grétars-son vann mikilvægansigur á SkákþingiReykjavíkur er hann
lagði einn helsta keppinaut sinn,
Íslandsmeistarann Guðmund
Kjartansson, að velli í fjórðu um-
ferð sem fram fór sl. sunnudag.
Hjörvar tók yfirsetu í 5. umferð
en er samt einn efstur eftir
fimmtu umferð. Staða efstu manna
var þessi fyrir sjöttu umferð sem
fram fór í gærkvöldi:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson
4½ v. (af 5) 2.-7. Vignir Vatnar
Stefánsson, Guðmundur Kjart-
ansson, Stephan Briem, Benedikt
Briem, Gauti Páll Jónsson, Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir 4 v.
Athygli vekur góð frammistaða
bræðranna Stephans og Benedikts
og einnig Jóhönnu Bjargar Jó-
hannsdóttur. Hún tefldi glimrandi
vel gegn Alexander Oliver Mai,
sem hefur staðið sig vel undan-
farið:
Skákþing Reykjavíkur 2021; 3.
umferð:
Alexander Oliver Mai –
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Pirc-vörn
1. e4 d6 2. d4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
Be3 a6 5. Dd2 b5 6. f3 Rd7
Þessi leikaðferð gengur undir
ýmsum nöfnum og er í dag kennd
við sænska stórmeistarann Tiger
Hillarp Persson.
7. h4 h5 8. Rh3 Bb7 9. Rg5
Rgf6 10. 0-0-0 0-0 11. d5
Þessi staða hefur ótal sinnum
komið upp en þessi leikur hefur
hins vegar ekki sést áður. Hæpin
nýjung þó.
11. … c6 12. dxc6 Bxc6 13. g4
Re5 14. gxh5 Rxh5 15. f4 Rc4 16.
Bxc4 bxc4 17. Bd4 e5 18. fxe5
dxe5 19. Bc5 He8 20. Df2 Dc7
21. Hdf1?!
Hvítur átti mun sterkari, 21.
Hd6! því að 21. … Rf4 er svarað
með 22. h5!, t.d. 22. … gxh5 (eða
22. … Rxh5 23. Hxh5! gxh5 24.
Df5 og vinnur) 23. Hg1 með
sterkri sókn.
21. … f6 22. Rh3 Db7 23. Dg2
Hab8 24. Ba3 Bh6+ 25. Kb1 Kh7
26. Hhg1 Hg8 27. De2 Bd7 28.
Rf2 Be6 29. Rg4 Bf8!
Hárbeittur leikur. Biskupinn
má ekki taka vegna máts á b2.
30. De3
Með hugmyndinni 30. … Bxa3
31. Dh6 mát.
30. … Bxg4 31. Rd5 f5 32. Dc3
Bxa3 33. Dxa3 Hg7
Þó að svartur sé manni yfir er
mikillar aðgæslu þörf.
34. Dc3 Db5 35. Dxe5 Hgb7 36.
b3 cxb3 37. axb3 He8 38. Dh2
Dc5 39. exf5 Bxf5 40. Hxf5
Lokatilraun til að hræra upp í
stöðunni en er dæmd til að mis-
takast.
40. … gxf5 41. Dg2 Hg7 42.
Rf6+ Kh8 43. He1 Hxe1+
- og hvítur gafst upp.
Jóhanna tefldi síðan ævintýra-
lega baráttuskák við Gauta Pál
Jónsson á miðvikudagskvöldið.
Gauti Páll var hrók yfir fyrir peð
og uppi var endatafl en frípeð Jó-
hönnu þvældust fyrir honum og
niðurstaðan varð að lokum jafn-
tefli.
Anish Giri efstur
í Wijk aan Zee
Hollendingar hljóta að vera
ánægðir með það hvernig til hef-
ur tekist í Wijk aan Zee, en
fyrsta stórmótinu í langan tíma
lýkur þar um helgina. Þó að
keppendurnir fjórtán stiki um
sviðið með andlitsgrímu og fari í
skimun reglulega er staðan í
mótinu þannig að heimamenn
hljóta að gleðjast. Fyrir elleftu
umferð var þeirra maður, Anish
Giri, einn efstur með 7 vinninga
en með 6½ vinning í 2.-4. sæti
voru Rússinn Esipenko, Caruana
og Íraninn Firouzsja. Heimamað-
urinn Van Foreest var einn í 5.
sæti með 6 vinninga og svo er
loks komið að sjöföldum sigurveg-
ara mótsins, heimsmeistaranum
Magnúsi Carlsen, sem var í 6.
sæti með 5½ vinning. Hann átti
að tefla við Anish Giri í gær með
hvítt og sigur gaf honum veika
von um að ná efsta sæti. Svíinn
Nils Grandelius byrjaði vel en
hefur gefið eftir og var fyrir um-
ferðina í gær með 5 vinninga í
7.-9. sæti.
Línur teknar að
skýrast á Skákþingi
Reykjavíkur
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Edda Sveinsdóttir
Í toppbaráttunni Jóhanna Björg er með fjóra vinninga af fimm mögulegum.
Hinn ágæti sjálfstæð-
ismaður, Friðjón R.
Friðjónsson, skrifar
grein í Morgunblaðið á
fimmtudaginn var þar
sem hann lýsir nokkr-
um áhyggjum yfir stöðu
Sjálfstæðisflokksins í
nútímanum. Sjálfur hef
ég nokkrar áhyggjur af
stöðu flokksins en þó
miklu meiri áhyggjur af
stöðu annarra stjórnmálaflokka,
sem óljóst er fyrir hvaða gildi
standa og hafa enga stefnu nema
vera skyldi hentistefnu í tilraunum
sínum til að kallast nútímalegir.
Ég tek fyllilega undir með Frið-
jóni að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft í gegnum tíðina styrk til að
standa í fæturna gegn lýðskrumi og
upphlaupum. Þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur verið sterkur og
ráðandi afl í stjórnmálum hefur ís-
lenskt samfélag tekið miklum
stakkaskiptum, brotist úr örbirgð í
öflugt og samkeppnishæft samfélag.
Það gerðist ekki af sjálfu sér heldur
vegna þess að fólkið í landinu, úr
öllum stéttum, hafði trú á stefnu
Sjálfstæðisflokksins. Á þeirri veg-
ferð voru öfl sem vildu róttækar og
„nútímalegar“ breytingar á sam-
félaginu, bæði innan stjórnmálanna
og samtaka launafólks.
Erfitt er að átta sig á hvað Frið-
jóni gengur til þegar hann gefur í
skyn í greininni að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé á móti breytingum á efna-
hagslífinu, sjávarútveginum, land-
búnaðarkerfinu, orkumálum,
stjórnarskránni og samfélaginu
sjálfu og flokkinn muni daga uppi
og verða að steintrölli með sama
áframhaldi. Hefði ekki komið mér á
óvart að þessi grein hefði verið
skrifuð í þingflokksherbergi Við-
reisnar. Friðjón notar alla sömu
frasana sem þaðan koma án þess að
segja nokkuð um hverju eigi að
breyta og hvernig eða af hverju. En
eitt er víst, að skrif hans end-
urspegla djúpstæða óánægju með
forystu Sjálfstæðisflokksins.
Rifja má upp fyrir Friðjóni að
efnahagslífið hefur tekið miklum
breytingum á mínu æviskeiði, ekki
síst á undanförnum átta árum sem
ég hef setið á þingi.
Umskiptunum í sjáv-
arútvegi og landbún-
aði má líkja við bylt-
ingu. Þar hefur orðið
mikil hagræðing, sem
hefur byggst á útsjón-
arsemi, dugnaði og
hugviti. Skipulag sjáv-
arútvegsins er fyrir-
mynd annarra þjóða
enda hefur okkur Ís-
lendingum tekist sem
fáum öðrum þjóðum
hefur auðnast; að
reka ekki aðeins sjálfbæran sjávar-
útveg heldur einnig arðbæran. Sá
tími er sem betur fer löngu að baki
þegar sjávarútvegur var líkt og
þurfalingur á framfæri ríkis og
sveitarsjóða. Ef Friðjón telur það
gagnlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn
að kollvarpa fiskveiðistjórnunar-
kerfinu til að mæta kröfum „nú-
tímans“ er hann á villigötum. Stöð-
ugleiki og fyrirsjáanleiki eru lykil-
atriði í okkar mikilvægustu atvinnu-
grein.
Ómögulegt er að átta sig á hvert
Friðjón er að fara þegar hann segir
að Sjálfstæðisflokkurinn sé á móti
breytingum í orkumálum. Við vær-
um yfirhöfuð ekkert að tala um raf-
orkumál ef Sjálfstæðisflokkurinn
væri ekki til. Hann hefur nánast
staðið einn fyrir því að auðlindir séu
nýttar til raforkuframleiðslu með
skynsamlegum hætti og samhliða
því að byggja upp öflugt og öruggt
flutningskerfi raforku. Við værum
ekki að tala um orkuskipti og græna
framleiðslu ef ekki væri fyrir fram-
sýni sjálfstæðismanna. Í því felst
framtíðin, alveg óháð „nútíma-
hyggju“ Friðjóns.
Svo má benda Friðjóni á að
stjórnarskránni, þótt ung sé að ár-
um, hefur verið breytt og þær
veigamestu undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Stjórnarskrár eru
hins vegar þess eðlis að óæskilegt
er að þær taki tíðum breytingum og
allra síst róttækum breytingum á
stjórnskipan landsins af því að ein-
hverjum kann að þykja það nútíma-
legt.
Sjálfstæðisflokkurinn er óhrædd-
ur við breytingar, nú sem fyrr, enda
aflvaki breytinga og þróunar. Hann
er hins vegar ekki flokkur breytinga
breytinganna vegna. Hann vill varð-
veita góð gildi í mannlegu samfélagi
og á sama tíma auka frelsi ein-
staklingsins til orða og athafna. Það
eru forsendur breytinga og þróunar
hvers samfélags til að geta staðist
harða samkeppni við aðra.
Sjálfsagt er enginn stjórnmála-
flokkur eilífur. Stundum hverfa þeir
af vettvangi vegna þess að stefnan
og gildin sem flokkurinn stendur
fyrir höfða ekki til almennings. Það
á örugglega ekki við Sjálfstæðis-
flokkinn. Hins vegar er það vel
þekkt að flokka dagi uppi stundi
þeir tækisfærismennsku og henti-
stefnu í stað þess fylgja stefnu sinni
og tali fyrir þeim gildum sem flokk-
urinn stendur fyrir. Það gætu orðið
örlög Sjálfstæðisflokksins ef farið
yrði að ráðum Friðjóns R. Friðjóns-
sonar. Þá getum við velt fyrir okkur
hverjir verða steintröll og hverjir
ekki.
Steintröllin
Eftir Brynjar
Níelsson » Sjálfstæðisflokk-urinn er óhræddur
við breytingar, nú sem
fyrr, enda aflvaki
breytinga og þróunar.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is