Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021 Við lok árs 2019 var horft um öxl á þessum vettvangi og þess minnst að margar stórar áskoranir hefðu mætt íslensku efnahagslífi það árið. Viðurkennt var um leið að við sjón- deildarhringinn væru jafnvel enn stærri við- fangsefni og að viðbrögð stjórnvalda og fyrir- tækja myndu ráða miklu um hvernig takast myndi að vinna úr vandasamri stöðu. Þegar þau orð voru fest á blað hafði syrt nokkuð í álinn í ferðaþjónustu og Icelandair stóð uppi með kyrrsettar MAX-vélar sem allir vonuðu að myndu fá heilbrigðisvottorð flug- málayfirvalda innan fárra vikna. Höfðu þær vonir raunar staðið allt frá marsmánuði 2019 þegar kyrrsetningin skall á. Engan óraði fyrir að veira, sem þegar um áramótin var farin að gera usla í Wuhan í Kína, myndi á skammri stund lama alþjóða- hagkerfið með áður óþekktum hætti. Forseti Bandaríkjanna reið á vaðið um miðjan mars- mánuð og stöðvaði ferðalög fólks milli Banda- ríkjanna og svæða þar sem veiran var komin á kreik. Töldu margir að forsetinn hefði þar gengið of langt en sólarhringurinn var vart liðinn þegar leiðtogar Evrópu brugðu á sama ráð. Aðgerðir af þessum toga lögðu einfaldlega að velli ferðaþjónustu um heim allan og það hlaut að koma harkalega niður á Íslandi. Allt frá þeirri stundu hefur ríkissjóður hlaðið upp skuldum, ekki aðeins vegna brostinna tekju- áætlana heldur einnig vegna þess að opinberu fé hefur verið ausið í að styðja við fyrirtæki í andaslitrunum. Mestu fjármagni hefur verið beint í þær áttir þar sem aðgerðir stjórnvald- anna sjálfra hafa komið harðast niður. Það er jú ekki veiran sjálf sem veldur mestum usla – þ.e. þar sem tekist hefur að hefta hana – held- ur einmitt meðölin gegn henni. Risavaxin verkefni Viðfangsefnin sem vöktu með manni kvíða í upphafi árs 2020 eru nú smámál eitt hjá því verkefni sem bíður íslensks samfélags og raunar flestra ríkja heimsins á komandi mán- uðum. Enn er ekki fullur sigur unninn á kór- ónuveirunni þótt virkni bóluefnis og dreifing þess gefi góð fyrirheit. Samhliða því sem byggt verður upp hjarðónæmi meðal almenn- ings þarf að endurræsa hagkerfin og koma þeim tugum milljóna manna aftur til starfa sem misst hafa vinnuna af völdum ástandsins. Þar þarf styrka hönd stjórnvalda að borðinu en einnig hugprúða rekstrarmenn sem sjá tækifæri í hinu erfiða ástandi. Stjórnvöld hafa staðið vaktina þótt deila megi um hversu vel hafi tekist til. Ríkissjóði hefur verið beitt af alefli og Seðlabankinn hef- ur einnig styrkt stöðu sína sem valdastofnun í íslensku efnahagslífi. Því ráða fumlaus við- brögð Ásgeirs Jónssonar, nýs seðla- bankastjóra, sem fyrstur embættismanna rík- isins virtist átta sig á hversu alvarleg staðan væri. Þrýsti hann vaxtalækkunum í gegn og hefur vopnbúið bankann enn frekar með lækkun bindiskyldu og sveiflujöfnunarauka og veitt tímabundna lánafyrirgreiðslu í formi veðlána. Þá hefur bankinn einnig unnið gegn veikingu krónunnar með inngripum á gjaldeyrismarkaði. Það mun þó fyrst og síðast ráðast á árinu 2021 hvort bankinn hafi risið undir hlutverki sínu. Verður það m.a. metið út frá verðbólgu og vaxtastigi sem talsverð óvissa er uppi um hvernig þróast muni en einnig hvort bankanum takist að veita útgjaldaglöðum stjórnmálamönnum á kosningaári það aðhald sem honum er að lögum skylt að gera. Svikalognið Það gríðarlega högg sem hagkerfið hefur orðið fyrir er ekki að fullu komið fram og sem betur fer hafa margþættar aðgerðir mildað áhrifin gagnvart almenningi í landinu. Flestir hafa, eins ótrúlegt og það kann að hljóma, upplifað kaupmáttaraukningu á árinu – það á ekki síst við um ríkisstarfsmenn sem líkt og fyrri daginn upplifa starfsöryggi sínu ekki ógnað. Þeir sem orðið hafa fyrir atvinnumissi hafa notið ívilnana og uppsögnum hefur verið skotið á frest með hlutabótaleiðinni svokölluðu. En áhrifin leyna sér ekki þegar horft er til afkomu ríkissjóðs og þeirra áætlana sem sýna hvernig staða hans mun fara versnandi á kom- andi árum. Skuldasöfnunin framundan er geig- vænleg og nemur yfir 1.000 milljörðum, afkom- an neikvæð sem nemur hundruðum milljarða og hrein eign ríkissjóðs mun þurrkast upp á innan við hálfum áratug. Þrátt fyrir þokkaleg lánskjör ríkissjóðs og sterka stöðu hans í kjölfar fordæmalausra samninga við kröfuhafa föllnu bankanna, sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar kýldi í gegn af fádæma hörku, eru þetta allt skuldbindingar sem standa þarf undir. Skatt- greiðendur framtíðarinnar munu þurfa að finna 3.500 milljarða svigrúm, umfram þau út- gjöld sem fara til sívaxandi samneyslu, til þess að gera upp þennan mikla skuldastabba. Það mun reynast vandasamt verkefni, ekki síst þegar kröfur um síaukin útgjöld til umsvifa rík- isins verða háværari með hverju árinu. Ekki bætir úr skák þegar þingmenn halda því blá- kalt fram, eins og gerðist fyrr á þessu ári, að hin raunverulega verðmætasköpun í landinu ætti sér stað í opinberri þjónustu. Þeir sem þannig tala eru ekki í tengslum við veruleikann og það hvernig hið raunverulega gangverk hagkerfisins er. Þeir hinir sömu munu aldrei stuðla að lagasetningu sem miðar að því að gera einkafyrirtækjum kleift að blómstra, skapa störf og verðmæti fyrir samfélagið í heild. Í óvissunni leynast tækifæri Það væri rangt að halda því fram að í óvissunni sem nú er uppi væru tækifæri. Óvissa er al- mennt ekki af hinu góða. En þau leynast þó óneitanlega í ástandinu. Það var t.d. fróðlegt að leggja við hlustir nýverið þegar Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka, sagði frá upplifun sinni af þróun mála í íslensku athafna- lífi síðustu vikur. Í viðtali í ViðskiptaMogga sagði hann: „Og nú sjáum við á síðustu vikum mikla breytingu innan bankans. Þar hefur orðið gjör- breyting síðustu daga. Þar er ég að vísa í möguleg verkefni sem eru í pípunum á vett- vangi fyrirtækjaráðgjafarinnar og eins sjáum við aukna eftirspurn eftir lánsfjármögnun sem benda í sömu átt. Ég hef persónulega aldrei upplifað eins mikinn viðskiptavilja hjá mörgum og við vitum að það mun að lokum leiða til auk- inna umsvifa, skapa hagvöxt og þar með fjölga störfum á ný. Við erum sannarlega á mjög al- varlegum stað núna en ef við horfum aðeins fram úr því þá er ástæða til þess að vera mjög bjartsýnn. Hlutirnir munu breytast til betri vegar hratt.“ Forsætisráðherrann féll á prófinu Ummæli bankastjórans voru látin falla í sam- hengi við nýlegar fréttir um að bóluefni væri handan við hornið sem tryggt gæti hjarðónæmi gegn kórónuveirunni. Þau tíðindi hafa raun- gerst og víða um heim er byrjað að bólusetja fólk af miklum móð sem færir heimsbyggðina nær því marki að færa lífið í eðlilegt horf á ný. Stærsta ógnin á þessum tímapunkti fyrir okkur Íslendinga virðist vera sá sofandaháttur sem íslensk stjórnvöld sýndu er kom að öflun bólu- efnis. Virðast þau hafa lagt allt sitt traust á Evrópusambandið og að í krafti þess yrði hlut- ur Íslands í heimsframleiðslunni að minnsta kosti ekki hlutfallslega minni en annarra þjóða. Nú er því miður komið á daginn að ESB féll á prófinu - og þar með Ísland. Var hreint út sagt vandræðalegt þegar fréttist að forsætisráð- herra hefði nokkrum dögum fyrir jól varið heil- um degi í að hringja í forstjóra Pfizer og búrók- rata í Brussel í veikri von um að rétta mætti hlut íslensku þjóðarinnar í þessu efni. Þau viðbrögð komu alltof seint, mörgum mánuðum eftir að forystumenn á borð við Just- in Trudeau og Boris Johnson höfðu af alefli og með fulltingi embættismanna sinna tryggt löndum sínum veglega hlutdeild í því magni sem þó hefur tekist að framleiða og framleitt verður á komandi mánuðum. Langstærsta verkefni stjórnvalda næstu vikurnar verður að tryggja nægt bóluefni til landsins, koma því í rétta dreifingu og hefja samhliða þeirri vinnu markaðssetningu á Ís- landi sem öruggri höfn fyrir ferðamenn. Hvort sem fólki líkar það betur eða verr, mun ekki takast að sigla hagkerfinu úr hinum mikla öldu- dal, nema með endurreisn ferðaþjónustunnar. Innviðirnir eru til staðar og flugfélagið - jafnvel þótt stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna hafi tekið afstöðu gegn félaginu og hagsmunum sjóðfélaga og íslensku þjóðarinnar um leið. Skulda- og afkomuþróun hins opinbera Heildarskuldir að meðtöldum lífeyrisskuldbindingum og viðskiptaskuldum, milljarðar kr. Heildarafkoma og hrein eign, milljarðar kr. 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Heildarafkoma* Hrein eign 2020 2021 2022 2023 2024 2025 800 600 400 200 0 2.380 2.690 2.949 3.146 3.306 3.430 788 517 305 168 66 6 * Með ráðstöfunum sem gripið verður til á árunum 2023-2025 Heimild: Ríkisfjármálaáætlun 2021-2025 Hinn vandrataði vegur Íslenskt efnahagslíf stóð frammi fyrir stórum áskorunum í upphafi árs. Í einni svipan virtust þær agnarsmáar í samanburði við banabylgju kórónuveirunnar sem kafsiglt hefur hagkerfið og snúið öllu á hvolf í rekstri fyrirtækja og um leið hins opinbera. STEFÁN EINAR STEFÁNSSON er fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Stærsta ógnin á þessum tímapunkti fyrir okkur Íslendinga virðist vera sá sof- andaháttur sem íslensk stjórnvöld sýndu er kom að öflun bóluefnis. TÍMAMÓT: ENDASKIPTI URÐU Á ÍSLENSKU HAGKERFI Á ÁRINU 2020 ’’ Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Langþráðar bólusetningar við kórónuveirunni hófust á Íslandi á milli jóla og nýárs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.