Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 16

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021 Trump forseti er ekki enn farinn, en það hefur lækkað í honum hljóðið og hann er orðinn jað- arsettur og að syngja sitt síðasta. Trump gerði atlögu að sjálfu hjarta lýðræðisins – virðingu fyrir sannleikanum – og það snerist til varnar. Joe Biden mun taka við embætti í janúar og verður 46. forseti Bandaríkjanna. Velsæmi mun snúa aftur í Hvíta húsið, grundvall- arbreyting í siðferðismálum. Einræðisherrar heimsins munu ekki lengur hafa frítt spil til að fremja sín verstu verk óátaldir. Biden sigraði með 306 kjörmenn, sama fjölda og Trump hlaut 2016 þegar hann kallaði úrslitinn „afgerandi stórsigur“, og mátti lítið út af bera. Öll mótmæli og rosti Trumps geta ekki afmáð staðreyndirnar. Dónaskapurinn, sem er fólginn í því að forsetinn neiti að játa sig sigraðan, virkar ekki jafn yfirgengilegur hjá þjóð sem er orðin ónæm fyrir því að gengið sé fram af henni. Samt sýnir hún hversu langt Trump er tilbúinn að ganga til að grafa undan stofnunum og hefðum lýðræðis. Stökk Bandaríkjanna í einræðisátt skapaði raunverulega hættu. Í Evrópu fannst mönnum þeir fyrir vera einir á báti í vörn réttarríkisins og mannréttinda. Undirförul, nöldrandi og kveinandi röddin úr forsetaskrifstofunni, yf- irfull af sjálfhverfu, hreiðraði um sig í hugum allra. Pólitísk snilld Trumps var fólgin í tilfinn- ingu hans fyrir myrku hliðinni á mannlegri náttúru og fjölmiðlaknúnu offorsinu, sem hann notaði til að höfða til hennar. Nú dregur úr há- vaðanum eftir því sem martröðinni linnir. Skyndilega er hugarrúm til að hugsa á ný. Það er mikið að hugsa um. Sú skipan heims- mála sem komst á eftir 1945 undir forustu Bandaríkjamanna er liðin undir lok; Biden mun ekki endurvekja hana í forsetatíð sinni. Bandaríkin eru stungin af án þess að láta vita og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er gagns- laust. Faraldurinn leiddi í ljós að heimurinn er án forustu. Það verður ekki svo auðvelt að fella múrana sem veiran reisti. Hagkerfi byggt á fjarvinnu mun heldur ekki hverfa og því fylgja hrikaleg, sálræn áhrif einmanaleika. Við vestrænum samfélögum blasa viðvarandi áskoranir á hendur lýðræði frá rísandi Kína, þar sem stjórnað er í krafti kúgunar og eftir- lits, og Rússlandi undir Vladimír Pútín, sem lítur svo á að hið frjálslynda samfélag sé „úr- elt“ vegna þess að það gangi út frá því að „far- andfólk geti drepið, rænt og nauðgað án refs- ingar“. Fjöldafólksflutningar, uppnám vegna tæknibreytinga, efnahagsleg harðindi vegna veirunnar og veiklun millistéttarinnar hafa skapað aðstæður þar sem þjóðernishyggja dafnar ásamt þeirri tilhneigingu til að finna blóraböggla sem henni fylgir. Þessar aðstæður munu áfram verða kveikjan að ófrjálslyndum hreyfingum á borð við þær, sem Trump, Pútín og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverja- lands, hafa leitt. Meginviðfangsefni frjáls- lyndra lýðræðisríkja er að finna svar þar sem í boði verða betri kjör og frekari tækifæri í menntun auk efnhagslegs jafnræðis, svo byrj- unaratriðin séu nefnd. Refsileysi hinna ríku og vaxandi ójafnræði hafa brotið „þjóðfélagið“, ef við skiljum það sem samfélag með ákveðna sameiginlega hagsmuni. Í Bandaríkjunum er menningargjáin á milli hástéttanna í borgunum og bolsins enn gap- andi. 72 milljón atkvæði greidd Trump endur- spegla meira en að berja sér á brjóst undir slagorðinu „Ameríku fyrst“. Barack Obama sagði í nýlegu viðtali við tímaritið Atlantic að við værum „að fara inn í þekkingarfræðilega kreppu í Bandaríkjunum“. Forsetinn hafði orð á því að Bandaríkjamenn væru að glata get- unni til að greina sannleikann frá ósannindum og við slíkar aðstæður brygðist lýðræðið. Gott og vel, en ég reyndi að gera mér í hug- arlund í hvaða jarðveg „þekkingarfræðileg kreppa“ myndi falla í Rifle í Colorado þar sem ég var nýlega staddur að flytja fréttir frá Shooters Grill, sem er í eigu Lauren Boebert, 33 ára repúblikana, sem gengur með Glock- byssu og var að ná kjöri á þing. Jafnvel tungumálið er brostið milli þeirra frjálslyndu og „hinnar Ameríku“ sem hugsar öðruvísi. Trump er slyngur loddari og sá það pólitíska svigrúm sem þetta opnaði fyrir hon- um. Fortíðarþrá hans eftir einhverju óskil- greindu augnabliki þegar Bandaríkin voru mikil, hvítir eignamenn réðu einir, konur héldu sig heima og enginn bar brigður á yfir- burði þjóðarinnar í heiminum. Hann þreifst á kvíðanum og niðurlægingartilfinningunni sem fylgt hefur örum lýðfræðilegum breytingum og hvikulu efnahagslandslagi. Ólíklegt er að hann láti sig hverfa og ef hann gerir það, til dæmis í fangaklefa, mun trumpisminn finna sér einhvern annan málsvara. Biden mun koma ákveðnum hlutum í verk með hraði: gerast aðili að Parísarsamkomulag- inu um loftslagsbreytingar á ný; knýja að nýju á um mikilvægi bandarískra gilda, þar á meðal að verja lýðræði og mannréttindi; treysta trosnuð bönd við Evrópusambandið og banda- menn víða um heim; skapa sannleikanum sess á ný þannig að eitthvað verði aftur að marka orð Bandaríkjanna; og hafna þeirri nálgun Trumps að heimurinn sé jafnvirðisleikur (e. zero-sum game) því að hann áttaði sig ekki á gagnkvæmum ábata opinna viðskipta og að byggja skipan heimsmála á reglum. Í Mið-Austurlöndum mun Biden sveigja frá ógagnrýnum stuðningi Trumps við Ísrael í átt- ina að meira jafnvægi í nálgun Bandaríkjanna við ágreininginn við Palestínumenn og leita leiða til að endurvekja kjarnorkusáttmálann við Íran. Hann mun aftur setja stefnumörkun Bandaríkjanna í ferli. Reyndar mun hann end- urvekja stefnumörkun, í stað eðlisávísana og hvata, sem voru stjórnunaraðferð Trumps, ekki síst þegar kom að glundroðakenndum viðbrögðum við faraldrinum. Þessi yfirhalning Bidens er góðra gjalda verð, en heimurinn hefur breyst og hinn nýi forseti getur ekki stillt áttavitann á stöðuna sem var fyrir Trump. Árásargirni Trumps og Brexit hafa stappað stálinu í Evrópu til að halda í átt að því sem Emmanuel Macron, for- seti Frakklands, hefur kallað „strategíska sjálfstjórn“. Í fyrsta sinn hefur Þýskaland leyft sambandsvæðingu evrópskra skulda og opnað fyrir það að Evrópusambandið taki lán líkt og ríkisstjórn, sem er mikilvægt skref í átt að sterkari og enn sameinaðri Evrópu. Það er kominn tími á „nýja sáttmála“ milli Evrópu og Bandaríkjanna þar sem frelsun Evrópu og breyttur forgangur Bandaríkjanna njóta við- urkenningar um leið og bandalag gilda og oft sameiginlegra hagsmuna er styrkt. Þróunin í Evrópu hefur verið skýr í sam- skiptunum við Kína, sem áður voru eingöngu viðskiptalegs eðlis. Nú er litið á Kína í út- þensluham undir forustu Xi Jinpings forseta sem keppinaut í stjórnarfari. Evrópusambandið hefur gagnrýnt frammi- stöðu Kína í mannréttindamálum og gripið til þvingunaraðgerða vegna kúgunar Kína á Hong Kong og hefur með réttu efasemdir þeg- ar Kínverjar monta sig af því að þeir hafi sýnt yfirburði í því hvernig þeir brugðust við far- aldrinum. Evrópuríki vilja engu að síður vinna með Kína. Eitt erfiðasta verkefni vestursins þegar stjórn Bidens tekur við verður að finna rétta blettinn þannig að hægt verði að mæta Kína undir Xi af ákveðni og sneiða um leið hjá beinum árekstrum. Kína er augljós ógnun við hið vestræna, frjálsynda módel. Það verður að gangast við þessari ógn og grípa til varna. Kínversk tækni er ekki hlutlaus, svo dæmi sé tekið. Hún er farvegur upplýsinga til Peking. En Kína er einnig samofið hagkerfi heimsins. Það myndi engum þjóna ef Kínverjar reiddust og ákvæðu að setja sig í fyrsta sætið í stað samstarfs og samvinnu. Tilefnislaus og þokukennd árásar- girni Trumps á hendur Kína varð til þess að flækja óþarflega hið erfiða samband milli öfl- ugasta veldis heims og veldisins, sem vill leysa það af hólmi. Kosningarnar í Bandaríkjunum voru tíma- mót. Þær sýndu að þeir sem vilja afskrifa lýð- ræðið verða sjálfir að taka áhættuna. Lýðræð- isríki bregðast hægt við, oft með erfiðismunu- m og því fylgir í eðli sínu subbugangur. En þau eru líka þrjósk og staðföst þegar þeim er ögrað. Þau vita að tilskipanir einræðisherrans eru ósamrýmanlegar sókninni eftir mannlegri reisn og frelsi. Þau geta stappað í sig stálinu til að segja við bulluna, „Þú ert rekinn!“ – orð sem Trump er ofviða að heyra. Niðurstaðan er endurfæðing vonar, hversu stopul sem hún er, fyrir 21. öldina. Bóluefni kunna að vera á leiðinni. Sómakær forseti Bandaríkjanna er það örugglega. ©2020 The New York Times Company og Roger Cohen. Á vegum The New York Times Licensing Group. Angela Weiss/Agence France-Presse Getty Images Afturhvarf til velsæmis Þegar ófrýnilegt skeið Trumps fjarar út ættu Bandaríkin ekki að leitast við að endurvekja gömul sambönd heldur móta þau upp á nýtt. ROGER COHEN hefur verið dálkahöfundur hjá The New York Times frá 2009 og tekur nú við Parísarskrifstofu blaðsins. Henn gekk til liðs við blaðið 1990 og hefur verið er- lendur fréttaritari og fréttastjóri erlendra frétta. Lýðræðisríki bregðast hægt við, oft með erfiðismunum og því fylgir í eðli sínu subbugangur. En þau eru líka þrjósk og staðföst þegar þeim er ögrað. TÍMAMÓT: ÚRSLIT FORSETAKOSNINGANNA Í BANDARÍKJUNUM BOÐA BREYTTA TÍMA ’’ Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, flytur ávarp í Wilmington í Delaware eftir sigur sinn í kosningunum 7. nóvember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.