Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 31
Suðurkóreska poppsveitin BTS, sem hefur tryllt táninga frá árinu 2013, nældi sér í efsta sætið á lista bandaríska tónlistartímaritsins Billboard yfir heitustu hundrað lögin í september með laginu „Dynamite“, sem sungið er á ensku. Valerie Macon/Agence France-Presse Getty Images K-popp-hljómsveit í fyrsta sinn á toppinn í Bandaríkjunum Ný öryggislög tóku gildi í Hong Kong 30. júní og var ekki liðinn dagur þegar lögreglan á staðnum hafði handtekið fólk í krafti þeirra. Gagnrýnendur laganna segja að þau muni grafa undan sjálfstjórn Hong Kong og veita kínverskum stjórnvöldum aukin völd til að herða takmarkanir á fjölmiðla og hefta mótmæli þar. Fyrstu hand- tökurnar í Hong Kong í nafni um- deildra laga Lam Yik Fei/The New York Times Tilkynnt var í Sádi-Arabíu í júní að pílagrímum utan landsins yrði ekki leyft að fara að moskunni í Mekka, helgasta stað íslams. Hajj eða pílagríma- ferðum var þar með aflýst að því er vera kann í fyrsta skipti í skráðri sögu. Stríð, erfiðar aðstæður til ferðalaga og fyrri plágur hafa haft áhrif á hajj í aldanna rás, en þetta var í fyrsta skipti frá því að pílagrímaferðirnar hófust árið 632 að opinbert ferðabann hefur sett hinn helga sið í uppnám. Marwa Rashad/Reuters Hajj aflýst í fyrsta skipti á seinni tímum Pílagrímar heimsækja moskuna miklu í Mekka og gæta þess að bera grímur og halda hæfilegri fjarlægð í næsta mann vegna kórónuveirunnar. MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 31 Vísindamenn við konunglega safnið í Ontario og McMaster- háskóla fundu beinkrabbamein í steingervingi úr risaeðlu, sem lifði fyrir um 76 milljónum ára. Risaeðlan var af hyrndri tegund grænmetisæta, sem á latínu kallast centrosaurus apertus. Þetta er fyrsta greiningin á illkynja krabbameini í risaeðlu, að því er segir í grein, sem birtist í læknatímaritinu Lancet Oncology. Krabbamein finnst í risaeðlubeini Horft til ársins 2021 Fyrsta mannaða geimferð Indverja Indverjar hyggjast senda áhöfn út í geiminn í desem- ber 2021. Áætlunin nefnist Gaganyaan og byggir á indverskri tækni. Þremur geimförum verður ásamt vélmenni skotið á braut um jörðu í viku, að því er kemur fram hjá geimsvísindastofnun Indlands. Vitund um hinsegin fólk á námskrá í Skotlandi Í maí á þessu ári eiga allir skólar í Skotlandi að hafa bætt inn í námsefni sitt efni til að auka vitund um hin- segin fólk og sögu þess. Skotar eru fyrstir til að stíga þetta skref. Hjónaband samkynhneigðra var lögleitt í Skotlandi árið 2014. Sjálfsiglandi skip yfir Atlantshafið Sjálfsiglandi rannsóknarskip, sem nefnist Mayflower, var afhjúpað í september þegar 400 ár voru liðin frá því að hinu upprunalega skipi Mayflower var siglt til nýja heimsins. Í apríl verður haffærni skipsins könn- uð. Það verður fyrsta vélmennaskipið til að sigla yfir Atlantsála og er ætlunin að það fari nokkurn veginn sömu leið og hinn samnefndi forveri þess. Ríkisfyrirtækið China Aerospace and Technology Group sendi fyrsta geimfarið sitt alfarið á eigin vegum til Mars í júlí. Geimfarið nefnist Tianwen-1 og var með ökutæki, lending- arfar og far til að setja á braut um Mars innan borðs. Búist er við að lent verði á Mars til að taka sýni snemma á þessu ári. Í september greindi kínverska geimvísindastofnunin frá öðru afreki, henni tókst að lenda endurnýtanlegu geimfari í fyrsta sinni með því að hagnýta tilraunatækni. Kínverjar hefja leiðangur til Mars og lenda fyrsta endurnýtanlega geimfarinu Frans páfi lét í fyrsta sinni í ljós að hann styddi sambúð fólks af sama kynni. Í samtali fyrir heimildamyndina „Francesco“, sem var frumsýnd í októ- ber á kvikmyndahátíðinni í Róm, talaði Frans um að samkynhneigt fólk ætti rétt á að vera í fjölskyldu og lýsti samkyn- hneigðum sem „börnum guðs“. Hann er fyrsti páfinn, sem opinberar stuðning við staðfesta sambúð. Páfinn segist styðja sambúð fólks af sama kyni Dario Calmese, sem tók myndir af leikaranum Violu Davis fyrir forsíðu á júlí/ágúst-hefti Vanity Fair varð þar með fyrsti svarti ljósmyndarinn til að taka forsíðumynd fyrir tímaritið í sögu þess, að sögn ritstjóra blaðsins. Þessi ákvörðun kom í kjölfarið á umdeildri forsíðumynd tímaritsins Vogue í ágúst af hinni margverðlaunuðu fimleikastjörnu Simone Bi- les. Myndina tók Annie Leibovitz, sem þekkt er fyrir að mynda fræga fólkið. Gagnrýnendur sögðu að myndin hefði ekki gefið góða mynd af húðlit hennar og létu að því liggja að ráða hefði átt svartan ljósmyndara í stað Leibo- witz. Svartur ljósmyndari tekur mynd á forsíðu Vanity Fair Þjóðverjar og Ísraelar héldu fyrsta sinni sameiginlegar heræfingar á þýskri grund í ágúst. Þóttu þessar æfingar bera vitni flóknu sambandi ríkjanna tveggja, sem deila sársaukafullri sögu. Æfingarn- ar fóru fram á erfiðum tíma fyrir þýska herinn, sem hefur átt í vandræðum með að nútímavæðast og þurft að takast á við áhyggjur yfir því að hægri öfgar hafi smitast í raðir þýskra hermanna. Æfingar á þýsk- um og ísraelskum orrustuþotum í þýskri lofthelgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.