Morgunblaðið - 02.01.2021, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 35
Um 300 manns fjölmenntu í sjósund á fyrsta degi ársins 2019, enda var veðrið stillt og gott. Sagði sund-
kona í hópnum að sjórinn hefði verið tvær gráður og upplagður til að núllstilla sig fyrir nýtt ár. Hópur fólks
stundar reglulega sjósund hér á landi. Góð aðstaða er í Nauthólsvík til að stunda sjósund, en áhugamanna
um að baða sig við ysta haf er freistað víðar og má þar nefna Guðlaug á Langasandi á Akranesi. Telja
margir að köld böð og sjósund efli heilsu og hreysti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmenntu í sjósund á nýju ári
Ólafur Stefánsson, handboltakempa og fyrrverandi landsliðsmaður, hugðist
stöðva för bifreiðar, sem ekið var ólöglega niður Laugaveg í sama mund og
hann var með uppákomu undir yfirskriftinni Kakó og undrun. Ökumaðurinn
lét þó ekki segjast og varð Ólafur að forða sér þegar hann ók bílnum áfram
niður Laugaveginn.
Morgunblaðið/Eggert
Umferðin laut ekki stjórn
Guðmundur Franklín Jónsson og Guðni Th. Jóhannesson takast á í kappræðum í sjónvarpi
fyrir forsetakosningarnar í lok júní. Guðni var endurkjörinn með 92,2% atkvæða. Guðmundur
Franklín hlaut 7,8%. Kjörsókn var 66,9% og greiddi 168.821 kjósandi atkvæði. Kostnaður
ríkisins vegna forsetakosninganna var tæpar 416 milljónir króna. Kostnaðurinn við kosning-
arnar 2016 var um 340 milljónir króna. Var munurinn skýrður með því að framkvæmd kosn-
inganna í fyrra hefði verið flóknari vegna kórónuveirufaraldursins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Guðni endurkjörinn forseti
Mikil eftirvænting skapaðist í kringum lag Daða Freys Péturssonar, Think About Things, sem
valið var til að keppa fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Rotter-
dam í vor. Þótti lagið sigurstranglegt en það fór fyrir lítið þegar Eurovision var aflýst. Lagið
varð hins vegar mjög vinsælt víða um heim. Í október var ákveðið að Daði myndi verða
fulltrúi Íslands á Eurovision vorið 2021 með nýtt lag. Hér sést Daði Freyr með Felix Bergs-
syni, sem verið hefur fararstjóri íslenska hópsins í keppninni.
Morgunblaðið/Eggert
Daði Freyr fær annað tækifæri
Hátt á annað þúsund manns
mætti þegar íbúafundur var
haldinn á vegum almanna-
varna í íþróttahúsinu í
Grindavík út af landrisi í ná-
grenni bæjarins. „Við verð-
um að vera tilbúin, við búum
á Íslandi og þetta er eld-
gosaland,“ sagði Magnús
Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur, sem talaði á
fundinum. Var rætt hvernig
farið yrði að ef rýma þyrfti
Grindavík í skyndi vegna að-
steðjandi hættu.
Jarðhræringar voru
nokkrar á árinu á Reykja-
nesskaga og 21. október
reið yfir skjálfti, sem mæld-
ist 5,6 stig á Richterkvarða
og fannst alla leið til Ísa-
fjarðar. Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra var í beinu
viðtali í streymi við Wash-
ington Post þegar skjálftinn
varð og vöktu fumlaus við-
brögð hennar athygli um all-
an heim.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íbúa-
fundur í
Grindavík