Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 37

Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 37
Morgunblaðið/Kristján H. Á sjúkrahús Sjúklingur með kórónuveiruna fluttur með sjúkrabíl í júní. Frá því að fyrsta smitið greindist á Íslandi 28. febrúar höfðu 5.745 smit greinst 30. janúar, 5.578 manns lokið einangrun og 45.839 lokið sóttkví. 29 manns létust af völdum veirunnar á árinu og lágu flestir þeirra á Landakoti. Af þeim sem létust voru 24 yfir sjötugu. MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 37 Valnefnd valdi alþjóðlegu auglýsingastofuna M&C Saatchi til að gera kynningarátak undir merkinu „Ísland saman í sókn“ og varð úr hin svokallaða öskurherferð þar sem stillt var upp hátölurum á víðavangi og gat fólk víða um heim rekið upp óp sem heyrðist í íslenskri náttúru. Herferðin vakti athygli, en gagnrýnt var að íslenskt fyrirtæki skyldi ekki valið auk þess sem hið erlenda fyrirtæki væri undir smásjá vegna þess að fjármál þess þættu vafasöm. Morgunblaðið/Árni Sæberg Öskrað í náttúrunni Álstyttur Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara voru fjarlægðar ofan af Arnarhvoli þar sem fjármálaráðuneytið er til húsa í október. Stytturnar voru höggnar á árunum 2015-2017 og fyrst settar upp í Dresden, en fóru upp á Arnarhvol vorið 2019. „Þeir eru komnir aftur heim til mömmu í bili en þess er ekki langt að bíða að þeir fari aftur á stjá, enda ferðalangar í eðli sínu,“ sagði Steinunn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Álkarlar fjarlægðir Mikil aðsókn var að sýningu Hrafnhildar Arnardóttur, sem kallar sig Shoplifter, í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi þegar hún var opnuð í janúar. Á sýningunni var sett upp verk Hrafnhildar frá Feneyjatvíæringnum árið 2019. Að ganga inn í verkið, sem nefnist Chromo Sapiens, var eins og að koma inn í litríkan undraheim. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Litrík undraveröld Sara Björk Gunnarsdóttir var í lok árs valin íþróttamaður ársins. Hún var fyrirliði og lykilleik- maður landsliðsins, sem tryggði sér farseðilinn á Evrópumeistaramótið í knattspyrnu kvenna árið 2022. Þá vann hún sigur í Meistaradeild Evrópu með franska liðinu Lyon og skoraði eitt marka liðsins í 3-1 sigri á Wolfsburg. Fyrr á árinu hafði hún orðið Þýskalandsmeistari með Wolfsburg. Sýndi Sara Björk að hún er í hópi fremstu leikmanna Evrópu, ef ekki heims. AFP Ár afreka hjá Söru Björk Hildur Guðnadóttir tónskáld sópaði til sín verðlaunum fyrir tónlistina í þáttunum Tsjernóbíl og myndinni Jókerinn. Hápunkt- urinn var þegar hún hlaut Óskarsverðlaunin 9. febrúar í Hollywood fyrir þátt sinn í Jókernum. AFP Hlaut Óskarinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.