Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 39
París, júní. Fjöldamótmæli til að krefjast umbóta í kjölfar andláts George Floyds í Banda-
ríkjunum urðu tilefni til aðgerða í mörgum borgum Evrópu. Í júní héldu þúsundir mótmæl-
enda út á götur til að sýna samstöðu og vekja athygli á rasisma og ofbeldi lögreglu heima
fyrir. París og London voru meðal borga þar sem fólk hélt á borðum sem á var letrað „Við
erum öll George Floyd“ og „Svört líf skipta máli“. Styttur nýlenduherra og þrælasala voru
skemmdar eða felldar. Embættismenn tóku kröfum um að tekið yrði á sögulegri mismunun
og kerfisbundnum rasisma að mestu fálega.
Geoffroy Van Der Hasselt/Agence France-Presse Getty Images
Mótmæli tilefni samstöðu í Evrópu
New York, júní. Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði 15. júní að lögin um
borgaraleg réttindi frá 1964 næðu einnig til verkamanna úr röðum samkyn-
hneigðra og transfólks. Þetta var langþráður sigur í áratuga jafnréttisbaráttu hin-
segin fólks. Áður en dómurinn féll var löglegt í rúmlega helmingi ríkja Bandaríkj-
anna að segja fólki upp störfum vegna kynhneigðar þess eða kynáttunar.
Dómurinn þótti sögulegur og markaði ósigur fyrir stjórn Donalds Trumps, sem
hafði hvatt Hæstarétt til að dæma á hinn veginn.
Brendan Mcdermid/Reuters
Sigur hinsegin fólks
Ilvy Njiokiktjien/The New York Tiimes
Túlipönum kastað á glæ
Aalsmeer, Hollandi, apríl. Hollenskir túlipanaræktendur neyddust í apríl til að henda 400
milljón blómum, þar á meðal 140 milljón túlipanastilkum, þegar blómasala hrundi út af kór-
ónuveirufaraldrinum. Hánnatími hollenskra ræktenda er frá mars út maí vegna páska,
mæðradagsins og alþjóðlega kvennadagsins og selja þeir blóm fyrir að meðaltali 30 milljónir
dollara (3,8 milljarða króna) á dag. Þótt Hollendingar hefðu sett vægar nálægðartakmarkanir
voru blómabúðir opnar. Engu að síður féll eftirspurn og blómabændur sem rækta fyrir er-
lenda viðskiptavini sögðu að tapið hefði verið mikið.
Anna Moneymaker/The New York Times
Trump smitast af kórónuveirunni
Washington, október. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, greindi frá því í tísti 2. október
að hann og Melania Trump forsetafrú hefðu reynst jákvæð þegar skimað var fyrir kórónuveir-
unni. Trump var fluttur með þyrlu á Walter Reed-hersjúkrahúsið. Þar hélt hann áfram að vinna
og eiga samtöl í síma, að sögn embættismanna í Hvíta húsinu. Þrátt fyrir smitið fór forsetinn
aftur að vinna á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu strax í sömu viku og hann smitaðist. Á sama
tíma hélt fólk, sem komist hafði í snertingu við hann eða verið við viðburði í Hvíta húsinu,
áfram að greinast með veiruna.
Alyssa Schukar/The New York Times
Lát George
Floyds kveikja
að mótmælum í
Bandaríkjunum
Minneapolis, Minnesota, maí. Mörg
hundruð þúsund manns tóku þátt í mótmæl-
um um öll Bandaríkin eftir að George Floyd,
sem var svartur, lést í höndum lögreglu, til
að lýsa yfir reiði vegna rasisma og ofbeldis
lögreglu. Á myndskeiðum, sem dreift var á
félagsmiðlum af handtöku Floyds, mátti sjá
hvernig lögregluþjónn hélt honum niðri með
því að þrýsta hné á háls hans í margar mín-
útur þar til hann virtist missa meðvitund á
meðan aðrir lögregluþjónar fylgdust með.
Lögregluþjónunum fjórum, sem voru á
staðnum, var að endingu vikið úr starfi. Þeir
voru ákærðir fyrir manndráp. Ofbeldi fylgdi
mótmælunum í mörgum ríkjum. Þau hafa
leitt til ýmissa umbóta, en lögregluembætti
hafa einnig gripið til varna.