Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021
Luis Antonio Rojas/The New York Times
Konur mótmæla ofbeldi
Mexíkóborg, mars. Tugir þúsunda kvenna mótmæltu í Mexíkó á alþjóðlegum degi kvenna
til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi. Mótmælin fóru í upphafi friðsamlega fram, en síðan
kom til einhverra átaka milli mótmælenda og lögreglu. Daginn eftir fóru þúsundir kvenna um
land allt í verkfall, mættu ekki til vinnu, sáust ekki opinberlega og keyptu ekkert til að dagur-
inn yrði án kvenna. Talið er að morðum á konum og stúlkum vegna kyns þeirra hafi fjölgað
um 137% í Mexíkó síðan 2015.
Bogura, Bangladess, júlí. Á monsúntímabilinu í
Suður-Asíu í lok júlí gerði slíkar rigningar að fjórð-
ungur Bangladess fór undir vatn. Tugir manna létu líf-
ið í flóðum og milljónir misstu heimili sín, heimilum var
sópað burt og matvæli eyðilögðust. Monsúnrigning-
arnar, sem venjulega standa frá júní fram í september,
eru nauðsynlegar fyrir landbúnað á undirlendi í Ind-
landi og nágrannaríkjunum. Undanfarin ár hafa þær
hins vegar verið hamslausari og tíðari en áður og
valdið því að ár hafa flætt yfir bakka sína, sem hefur
haft sérstaklega slæm áhrif þar sem land liggur lágt
yfir sjávarmáli. Það á við í Bangladess þar sem búa yf-
ir 165 milljónir manna. Loftslagsbreytingar hafa valdið
því að oftar gerir slíkt úrhelli en áður og búast vísinda-
menn við að öfgakennd flóð af þessum toga muni
verða tíðari. Mohammad Ponir Hossain/Reuters
Monsúnrigningar
valda eyðileggingu í
Bangladess
Dmitry Kostyukov/The New York Times
Óseldu víni breytt í handhreinsi
Hunawihr, Frakklandi, júlí. Markaðurinn hrundi hjá þúsundum franskra víngerðarmanna
vegna kórónuveirufaraldursins og tolla stjórnar Trumps og ákváðu þeir því að senda um-
framframleiðslu í eimingarverksmiðjur. Þar var hún eimuð og breytt í handhreinsi með styrkj-
um frá franska ríkinu og ESB. Í júlí voru sex milljónir lítra sóttar á tankbílum bara til Alsace-
héraðs. Víngerðarmenn fengu minna en einn dollara (um 125 krónur) í bætur á lítra.
París, júní. Ítalía var fyrsta landið til að grípa til aðgerða um allt land út af
kórónuveirufaraldrinum 9. mars. Þegar komið var fram að 18. mars höfðu fleiri
smitast og látist af völdum veirunnar í Evrópu en í Kína. Og 19. mars höfðu
fleiri látist á Ítalíu einni en í Kína. Brátt hafði verið gripið til aðgerða til að hefta
ferðir fólks af mismikilli hörku í öðrum löndum Evrópu, þar á meðal Spáni,
Frakklandi og Bretlandi til að halda veirunni í skefjum. Eftir því sem staðfestum
tilfellum fjölgaði í álfunni beindust sjónir að því til hvaða aðgerða væri verið að
grípa í löndum hennar til að draga úr efnahagsáfallinu vegna veirunnar.
Andrea Mantovani/The New York Times
Evrópa í lás út af veirunni
FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI