Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 41

Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 41 Khadija Farah/The New York Times Skordýraplágur valda usla Laisamis, Keníu, febrúar. Sómalía varð í febrúar fyrsta landið í Austur-Afríku til að lýsa yfir neyðarástandi vegna faraldra mörg hundruð milljóna skordýra úr eyðimörkinni sem höfðu sett allt á annan endann á svæðinu. Skordýrin mynduðu risastór ský sem gleyptu heilu bæina og steyptu matarbirgðum fyrir tugi milljóna manna í hættu. Landbúnaður í Keníu varð sérstaklega illa úti í faröldrunum, sem voru þeir mestu í landinu í 70 ár. Vísindamenn sögðu að skordýraplágurnar væru verri en venjulega vegna þátta sem tengjast loftslagsbreyting- um, þar á meðal hlýnun Indlandshafs, sem veldur óvenjumiklum rigningum og skapar kjör- aðstæður fyrir skordýrin til að tímgast og breiða úr sér. Bishkek, Kirgistan, október. Hópar mótmælenda komu saman í Bishkek, höfuðborg Kirg- istan, til að mótmæla úrslitum þingkosninganna 4. október og sögðu að brögð hefðu verið í tafli. Stjórnarandstöðuhópar lögðu þingið undir sig og frelsuðu stjórnmálaleiðtoga sem höfðu verið fangelsaðir. Þetta leiddi til átaka við lögreglu og lét að minnsta kosti einn maður lífið og mörg hundruð særðust. Kosningastjórn landsins hafði úthlutað fulltrúum á bandi Sooronbais Jeenbekovs forseta meirihluta þingsæta, en ákvað þegar þrýstingurinn jókst að ógilda úrslit kosninganna. Stjórnarkreppan harðnaði þegar Kubatbek Boronov forsætisráð- herra sagði af sér þegar mótmæli héldu áfram. Kirgistan heyrði áður undir Sovétríkin. Þar hafa tveir forsetar hrökklast frá á fimmtán árum vegna mótmæla almennings. Vyacheslav Oseledko/Agence France-Presse Getty Images Glundroði í Kirgistan Lam Yik Fei/The New York Times Gegn öryggis- áformum Kína í Hong Kong Hong Kong, maí. Mótmæli sem settu Hong Kong úr skorðum 2019 hófust aftur 24. maí þegar þúsundir manna söfnuðust saman í þeim hverfum borgarinnar þar sem mest er um að vera. Lögregla skaut táragasi og gúmmíkúlum og notaði vatnsdælur á mót- mælendur. Ráðist var gegn þeim víða um borgina og voru að minnsta kosti 180 mót- mælendur teknir höndum. Þeir höfðu að engu fyrirmæli stjórnvalda um nándar- takmarkanir í viðleitni sinni til að berjast gegn áformum stjórnvalda í Peking um að herða tökin í Hong Kong með lögum um þjóðaröryggi. Margir íbúar Hong Kong ótt- uðust að með þeim yrði frelsi þeirra skert. Irene Barlian/The New York Times Látin vinna er skólum var lokað Djakarta, Indónesíu, september. Henrietta Fore, framkvæmdastjóri barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, varaði við því í september að 24 milljónir barna gætu flosnað upp úr skóla vegna kórunuveirunnar. Hundruð milljóna drengja og stúlkna í þróunarríkjunum eru hvorki með aðgang að neti né menntun og mörg þeirra eru neydd til vinnu, sem iðulega er ólögleg og hættuleg. Í Indónesíu má sjá börn allt niður í átta ára gömul mála sig silfurlit og stilla sér upp eins og myndastyttur á götum úti til að betla peninga. Þegar skólum var lokað rauk barnaþrælkun upp á Indlandi þar sem stjórnvöld höfðu þegar verið að reyna að taka á vand- anum. Annar hátt settur embættismaður hjá Unicef sagði að framfarir í læsi barna, félags- legum hreyfanleika og heilsu myndu þurrkast út. Atul Loke fyrir The New York Times Múgur ræðst gegn múslimum Nýju-Delí, febrúar. Að minnsta kosti 53 manns létu lífið og rúmlega 200 særðust í átökum hindúa og múslima í Nýju-Delí á Indlandi seint í febrúar. Átökin hófust nokkrum tímum eftir að Kapil Mishra, stjórnmálamaður úr þjóðernisflokki hindúa, sem fer með völd í landinu, hét því að dreifa úr mótmælendum sem voru andvígir nýjum lögum um ríkisborgaraétt sem undanskildu múslima. Dagana eftir óeirðirnar beindu yfirvöld rannsókn að leiðtogum músl- ima þótt flestir þeirra sem létust og særðust væru múslimar og skemmdir á eignum hefðu beinst gegn múslimum. Lögreglan var gagnrýnd fyrir að hún skyldi ekki kæra Mishra. Sömu- leiðis var hún sökuð um að hafa tekið þátt í ofbeldi gegn múslimum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.