Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 51

Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 51 áherslu á að búa til tengsl við vöruna með því að nota andann í menningunni. Og ég held að það sé gott. Það neyðir öll vörumerki, stór og smá, til að verða skapandi í því hvernig eigi að ná til viðskiptavinarins. Spurning: Og hvað með það sem þau búa til? Er það satt að nú fari æfingabuxur með völdin í heiminum? Tory: Augljóslega er fólk farið að klæða sig með látlausari hætti, en það sem mér finnst at- hyglisvert er að fólk kaupir þvert á kategóríur. Ég veit ekki hvert það er að fara, en það er að kaupa sér hluti. Hvort sem það er að klæða sig fyrir Instagram, fámenn samkvæmi eða eitt- hvað annað, það lítur á tísku með hætti sem hjálpar því að sleppa. Antoine: Ég get staðfest það. Í heimi þar sem þú getur ekki farið jafnmikið út, veitinga- staðir eru að mestu lokaðir og næturklúbbar eru lokaðir og það eru engir viðburðir, þarf fólk samt að finna fyrir gleðinni af því að kaupa sér eitthvað sem það elskar eða hefur langað í lengi. Formlega hliðin á sölu hjá okk- ur er enn mjög viðamikil. Gwyneth: Við vorum að kynna nýja kjóla og vorum mjög á nálum vegna tímasetningar- innar, en það kom mér á óvart hvað okkur gekk vel. Það hefur verið áhugavert að sjá hvernig fólk fór úr þægilegum klæðnaði og vörum til að stunda líkamsrækt heima yfir í eldhúsvörur og eitthvað fyrir heimilið og nú aftur yfir í tískuvörur. Spurning: Er enn hægt að tala um strauma? Virgil: Út af félagsmiðlum myndi ég segja að það væru miklir straumar. Gwyneth: Ég er með 16 ára stúlku á heim- ilinu. Svo, já, það eru enn miklir straumar. Ég hneigist þó til þess að kaupa klassískar flíkur, lausar við strauma augnabliksins, vegna þess að ég hef í fortíðinni, að mér finnst, átt nokkur vafasöm augnablik. Tory: Á það ekki við um okkur öll! Ég elska líka hugmyndina um hluti sem eru eilífir. Og ég held að fólk sé líka að horfa til þess – hluta sem það getur fjárfest í. Ég hverf aftur til þess að fólk vilji eitthvað sérstakt og stend við það. Spurning: Hvað þýðir það þegar horft er til vandans vegna offramboðs á dóti? Tory: Eitt af því sem fólk talar ekki um er of- framleiðsla. Við erum farin að vera mjög var- kár í þeim efnum – og okkur fer fram. Þegar ég hugsa um sjálfbærni held ég að við verðum að ganga að því sem gefnu að hún er í algerum forgangi. Þetta er mikið þrekvirki sem við þurfum að vinna sem grein. En við verðum að gera það. Viðskiptavinurinn veit nákvæmlega fyrir hvað vörumerki standa – sérstaklega yngri viðskiptavinir. Þeir láta sig miklu varða hvað vörumerkin eru að gera til að gera heim- inn að betri stað. Virgil: Þegar síðustu línu LV var hleypt af stokkunum kynnti ég þá hugmynd að fella all- ar árstíðirnar í eitt. Ég held að það sé mikil- vægt að losna við þá hugmynd að bara af því að það er frá síðustu árstíð hafi það verið gengis- fellt. Tory: Konur hugsa öðruvísi um hvernig þær kaupa. Ég vil ekki að þær hugsi: „Ég vil fara í eitthvað og ekki fara í það aftur.“ Ég held að það sé ekki í anda nútímans. Þannig að þegar kemur að árstíðunum erum við einnig farin að líta málið öðrum augum. Þetta snýst meira um afhendingu og að klæðast fötum þegar þú vilt klæðast þeim. Fyrir tíu árum skipti fólk vor- fataskápnum út fyrir haustfataskápinn. Það er úrelt. Antoine: En við þurfum líka að skilja veru- leika markaðarins. Ég er ekki viss um að við eigum að ákveða að það sé bara ein árstíð fyrir öll vörumerkin. Það myndi valda mikilli breyt- ingu á greininni. Spurning: Svo virðist vissulega sem neyt- endur spyrji merki eins og ykkar í auknum mæli um þetta sem og hinnar sérlega brýnu spurningar augnabliksins: hreyfinguna í þágu félagslegs réttlætis. Þessi hópur er mjög hvít- ur, sem endurspeglar galla og raunveruleika greinarinnar. LVMH var að kynna nýjan hönnuð Fendi-kvenfata, Kim Jones, sem er ótrúlega hæfileikaríkur, en enn einn hvítur karl. Antoine, hugleidduð þið fjölbreytileika þegar þessi ákvörðun var tekin? Antoine: Ef ég á að vera heiðarlegur þá gerðum við það ekki í sambandi við þessa ráðningu. Við ákveðum þessa hluti með mikl- um fyrirvara. Spurningin um fjölbreytileika, spurningin um hlutdeild, hefur verið í fyrir- rúmi í okkar forgangsröð, en að taka skyndi- ákvarðanir, að skipa nýjan, svartan hönnuð, leysir ekkert. Við birtum upplýsingar um skiptingu starfsfólks hjá okkur í Bandaríkj- unum út frá lýðfræði og þegar horft er á niður- stöðurnar eru þær satt að segja nokkuð góðar þegar litið er á samsetningu ólíkra kynþátta. Í Frakklandi má ekki gera þetta. Hins vegar er mikið verk óunnið. Í stjórninni hjá okkur situr enginn sem ekki er hvítur. Það mun, vona ég mjög einlæglega, breytast í náinni framtíð. Virgil: Tíska er okkar starf, en hún varpar einnig frá sér ímynd sem sést þegar ekið er niður Houston-stræti eða á flugvöllinn og aug- lýsingar blasa við. Við höfum getuna til að koma á breytingum. Það þarf að tækla þetta úr, segjum, tólf ólíkum áttum – menntun skipt- ir máli, en einnig hvernig við beinum kastar- anum að gildismati og því hver leggur af mörk- um. Antoine: Eitt af því fáa jákvæða sem komið hefur út úr þessum faraldri er að við erum far- in að vinna meira með samfélögum á staðnum. Áður komum við með alla frá París þegar við settum upp sýningu í Los Angeles – 60 eða 70 fyrirsætur, hárgreiðslufólk, förðunarfólk, alla. Og þegar maður opnaði tímarit voru mynd- irnar alltaf eftir sömu þrjá ljósmyndarana, hárgreiðslan var eins og förðunin. Við höfum ákveðið hjá flestum vörumerkjunum að héðan í frá þegar á að halda viðburði eða fara í myndatökur verði hæfileikafólk á staðnum notað. Þannig munum við losna út úr þessari litlu mafíu að vera alltaf að vinna með sama fólkinu. Ég held að því muni ljúka með þessum faraldri. Virgil: Þungamiðjan er nú orðin jaðarinn. Og ég myndi segja að jaðarinn væri nú framtíðin – sköpunargleðina er að finna á óhefðbundnum stöðum. Afríka getur verið hin nýja Berlín eða hin nýja París. Þar munum við sjá ávinninginn í greininni. Á vegum The New York Times Licensing Group. Þunga- miðjan er nú orðin jaðarinn. Og ég myndi segja að jaðarinn væri nú framtíðin – sköpunargleðina er að finna á óhefð- bundnum stöðum. Afríka getur verið hin nýja Berlín eða hin nýja París. Þar munum við sjá ávinninginn í greininni. ’’ Frá The New York Times

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.