Morgunblaðið - 02.01.2021, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021
Jafnvel ég, sem veiti nánast engu athygli,
get séð að þetta ár hefur verið martröð.
Þegar ég var að velta fyrir mér stöðu mála
í heiminum rakst ég á tvær gamlar ljós-
myndir eftir mig, 20 sinnum 24 tommu Pol-
aroid-myndir frá 2005.
Fyrirsætan á báðum myndum er Mazzy,
blár weimaraner eða silfurhundur, sem að-
stoðarmaður minn, Marlo Kovach, átti. Ég
hef aldrei hitt hund, sem kunni jafn vel við
að láta mynda sig og Mazzy, og ég vann oft
með henni. Hún var háð björtu ljósi, þessari
flóðbylgju lýsingar af geislunum, sem um-
kringdu hana á tökustað.
Fyrsta myndin, „Splitting Image“, er eins
og fyrirboði, mynd af dökkum hundi með
glóð í augum í drungalegu rými þar sem
hann horfir yfir litla útskorna útgáfu af
sjálfum sér. Annar hundurinn, aftengdur
sjálfum sér, horfir út í fjarskann fyrir aftan
okkur á meðan hinn horfir beint á áhorf-
andann. Annar er vökull, hinn áhyggju-
fullur, skilinn frá líkamanum.
Í hinni myndinni, „Augu“, er þetta af-
tengda augnaráð tekið og fjölfaldað. Yfir-
bragðið er ráðvillt, jafnvel villt. Myndin
virðist vera einlit, en við nánari athugun má
sá að hún er í lit. Augu Mazzy eru í sjálflýs-
andi og skuggalegum súraldingrænum lit.
Þau eru myrk og vekja ugg í endalausum
sveig aðskilnaðar, sveig hluta sem eru ekki
jafn svart-hvítir og þeir virðast vera.
Mér hafa alltaf fundist þessar tvær
myndir eins og uggvekjandi fyrirboðar, en
það er ekki fyrr en nú, í samhengi ársins
2020, að ég er að byrja að skilja þær til
fulls.
©2020 The New York Times Company og Willi-
am Wegman. Á vegum The New York Times
Licensing Group.
Eyes
William Wegman, Eyes, 2005, 20 x 24 color Polaroid, courtesy Sperone Westwater, New York
Fyrir ljósmyndaranum William Wegman var 2020 árið sem allur okkar viðvarandi kvíði braust kraumandi upp á yfirborðið.
WILLIAM WEGMAN
er ljósmyndari og listamaður.
Mér hafa alltaf fundist þessar tvær
myndir eins og uggvekjandi fyrirboðar,
en það er ekki fyrr en nú, í samhengi árs-
ins 2020, að ég er að byrja að skilja þær til fulls.
SÝN LISTAMANNS Á ÁRIÐ
’’
Splitting Image
William Wegman, Splitting Image, 2005, 20 x 24 svart-hvítt
Polaroid, með leyfi Sperone Westwater, New York.
2020 með augum hunda
Tim Mantoani