Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2. 1. 2021 61 Ryan Pfluger/The New York Times Susan Sarandon er leikari, sem unnið hefur til Óskarsverðlauna, og aðgerðasinni. Maður brýtur reglurnar þegar þær eru ekki réttar. Undir ákveðnum kring- umstæðum þarf maður algerlega, samkvæmt skilgreiningu, að brjóta reglurnar — einnig, til þess að hrista upp í viðvarandi ástandi. Maður breytir reglunum þegar þær eru rangar og óréttlátar. Ef maður brýtur reglurnar þegar maður finnur fyrir óréttlæti er það ekki rangt. Það er full- komlega rétt. Einmitt núna er ég nokkuð bjartsýn fyrir hönd þeirra sem hafa lagst gegn ástandinu eins og það er. Þetta eru þungir tímar og fólk- ið á götunni er að tala um þessa tvo pólitísku flokka, sem í raun séu ekki að vinna fyrir fólkið. Maður sér hvernig þetta vellur fram og að mögulega verði reglur brotnar og það fyllir mig raunverulegri bjartsýni. Tami Chappell/Reuters George Lopez er grínisti og leikari Hvenær er það þess virði að brjóta reglurnar? Ég skal segja þér. Þú veist að það er kominn tími til að brjóta reglurnar þegar þú ert svangur eða þyrstur og átt enga von um að finna mat eða drykk. Þú brýtur reglurnar þegar þú ert á göt- unni með fjölskyldu þinni og hefur ekkert húsaskjól. Margir missa nú húsnæði sitt, en fara samt á fætur á hverjum degi með það að markmiði að sjá fyrir fjöl- skyldum sínum á hverjum degi. Ég er að tala um nauðþurftir til að komast af, sem er ástæða þess að margir brjóta reglurnar. Mörgum fjölskyldum verður brátt vísað úr húsnæðinu, sem þær búa í, og munu ekki með neinu móti geta borgað fyrir nýja íbúð eða gistingu. Munu þær brjóta reglurnar? Já, og þær gætu haldið eins og ég að það versta við þetta væri að þessu hefði mátt afstýra með almennilegum leiðtogum. Örvæntingarfullt fólk brýtur reglurnar. Hvenær er ekki í lagi að brjóta reglurnar? Þegar þú þarft að veita forystu með góðu fordæmi í lífinu. Á slíkum tímum ferð þú ekki grímulaus inn í bygginga- vöruverslunina. Þú ert ekki náunginn sem fer inn í stórverslunina til að rífast við manninn við dyrnar, sem vinnur baki brotnu, vegna þess að þú vilt ekki vera með grímu. Við erum svo upptekin af því í þessu landi að benda á það sem er ólíkt með okkur að það mun leiða til þess að reglur verða brotnar út af sársauk- anum og pirringnum. Við myndum ekki þurfa að brjóta reglur ef við kæmum öðruvísi fram við fólk. Ég hef alltaf þurft að brjóta reglurnar vegna þess að ég hef þurft að kljást við Hollywood allt mitt líf. Ég ætla ekki að leyfa þeim að setja mig á bás. Það hefur verið klifað á eftirfarandi við mig: „Ef þú brýtur reglurnar bjóða þeir þér ekki neitt. Þú verður að spila leikinn eftir reglun- um.“ Það er engin leið að átta sig á leiknum. Mér var líka sagt að ef ég væri of mikið í gríni yrði mér ekki leyft að leika alvarleg hlutverk. Mér var líka sagt að ef ég væri í of mörgum alvarlegum verkum fengi ég ekki framar hlutverk í grínmyndum. Í grunninn er það þannig í Hollywood og í lífinu að reglurnar eru settar til að vernda þá sem eru í valda- stöðum. Reglurnar vernda óbreytt ástand. Þessa dagana snýst lífið allt um að brjóta reglur og á ákveðinn hátt gerir það þetta að fallegum tímum. Nú eru reikningsskil í Bandaríkjunum. Meira að segja framkvæmdastjórar kvikmyndavera eru farnir að hafa efasemdir um sjálfa sig. Þeir eru farnir að brjóta sínar eigin reglur og hleypa fólki af rómansk- amerískum uppruna og svörtu fólki í eig- in raðir. Það var tími til kominn. Jesse Dittmar/The New York Times John Leguizamo er leikari, leikskáld og grínisti og gerði á árinu kvikmyndina „Critical Thinking“, frumraun sína sem leikstjóri Það er á hreinu að það er auðveldara að brjóta reglurnar þegar manni hefur verið gefið gott fordæmi um reglubrot. Ég fékk fordæmið með því að fylgjast með föður mínum og móður — þau spiluðu eftir reglunum, brutu þær líka þegar það var nauðsynlegt. Faðir minn (Denzel Washington) barðist til að láta að sér kveða og vekja athygli á öfl- ugum sögum. Hann fór með mig á tökustað þar sem voru aðrir reglubrjót- ar á borð við Spike Lee. Hann er önnur ótemja sem gerði eins og honum bauð um leið og hann valdefldi aðra. Ég man eftir að hafa verið á tökustað þegar ver- ið var að gera „Malcolm X“ þegar ég var ég var barn og í lokin hafði Spike mig með. Það er atriði þar sem hópur barna stendur og segir, „Ég er Malcolm X“. Það var stórt augnablik fyrir mig vegna þess að sá maður sætti sig ekki við reglur og hér var næsta kynslóð mætt og sagði nafnið hans. John David Washington gefur að líta í myndunum „BlacKkKlansman“ og „Tenet“. Mario Anzuoni/Reuters Það býr vandræðageml- ingur í okkur öllum. Ég trúi því að regla, sem engan meiðir, sé regla, sem eigi að virða. Síðan eru aðrar reglur, sem ekki ber að taka jafn alvarlega. Það er í lagi að brjóta reglu ef maður segir við sjálfan sig: „Þetta er bara regla af því að einhver segir að svo sé.“ Ef önnur mann- eskja verður ekki fyrir raunverulegu tjóni er í lagi að brjóta þannig reglu. ©2020 The New York Times Company og C.L. Gaber. Á vegum The New York Times Licensing Group. Mario Anzuoni/Reuters Scott Eastwood hefur komið fram í myndunum „Pacific Rim Uprising“ og „The Outpost“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.