Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Síða 2
Er ekki gott að fá að opna
aftur?
Það er yndislegt og þvílíkur léttir. Það hef-
ur verið lokað hér í sex mánuði í heildina.
Hvernig munuð þið hátta málum?
Við munum fara eftir reglunum í einu og öllu. Við ætlum að
hafa þetta ótrúlega skemmtilegt og lifandi og svo bara lærum
við eitthvað á hverjum degi og breytum og bætum ef þörf
verður á. Sturtur verða lokaðar en við erum að skipuleggja
tækjasalinn eftir svæðum þar sem fólk getur æft í smærri
hópum undir leiðsögn þjálfara. Svo verðum við auðvitað með
tuttugu manna hópatíma og námskeið eru að fara af stað.
Þjóðin þarf á styrktarþjálfun að halda!
Er þjóðin orðin rýr og slöpp eftir Covid?
Já, fólki veitir ekkert af að fara að safna vöðvum. Það er allt-
af hægt að safna vöðvum þó það gangi verr að safna pen-
ingum. Covid hefur auðvitað komið illa við okkur og alla
sem eru í rekstri, þó maður skilji aðstæðurnar. Þetta hefur
reynt vel á, ég viðurkenni það. Við hjónin erum bæði í þessu
og höfum reynt að nota tímann til að dytta að stöðinni.
Er ekki starfsfólkið ánægt að koma aftur til
vinnu?
Jú, það eru allir í svo góðu skapi. Og eins með viðskiptavin-
ina, það eru allir svo spenntir og glaðir. Við erum tilbúin í
slaginn!
Það er bara gleði fram undan og vöðvar?
Já, það er markmið ársins. Það er bjart fram undan. Og svo
lærum við eitthvað af þessu og verðum betri manneskjur á
eftir.
Morgunblaðið/Eggert
LINDA HILMARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Tilbúin í
slaginn!
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021
Jæja. Þá er komið að því. Janúarátakið hafið, enn á ný. Mig dreymir um aðvera þessi staðfasta týpa sem borðar alltaf hollt allan ársins hring, hreyf-ir sig alltaf fimm sinnum í viku og segir alltaf nei við konfekti og Prins
Pólói sem liggur á víð og dreif um vinnustaðinn. En ég er ekki hún. Því er nú
andskotans ver og miður. Af þeim sökum neyðist ég til að endurskoða líferni
mitt í upphafi hvers árs. Horfast í augu við töluna á vigtinni sem hefur safnað
ryki síðan í nóvember. Því stundum er bara svo gott að loka augunum fyrir
því sem er óþægilegt.
En það þýðir ekkert að fljóta sofandi að feigðarósi. Nú er tíminn til að
bretta upp ermar og skálmar og gera eitthvað í málunum!
Líklega er ég ekki ein um það.
Ýmsir misgáfulegir heilsukúrar
hafa verið reyndir í gegnum árin.
Keto hentaði alls ekki. Eina sem sat
eftir eftir þann kúr var of hátt kól-
esteról. Fasta hefur verið reynd.
Það getur tekið á þegar hungrið
sverfur að kvölds og morgna. Síðan
prófaði ég í haust að borða 800
kalóríur á dag. Það var hundleið-
inlegt en virkaði ágætlega og vigtin
fór niður, þar til nóvember og des-
ember mættu með sínar freistingar.
Þá endaði það frekar í 2.800 kalóríu
dögum.
En alla vega, enn á ný þarf að
taka heilsuna föstum tökum. Sykur og rjómi er nefnilega ekkert hollur í
miklu óhófi. Því var brugðið á það ráð að skrá sig í hópinn Greenfit Clean jan-
úar. Sem þýðir þrjár vikur hreint fæði. Út með mjólkurvörur, út með sykur,
út með allt korn, út með kaffi.
Eftir stendur kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir (í hófi). Liðin er vika og ég
er enn á lífi. En ég hef „svindlað“ smá. Ég meina, hvernig dettur nokkrum lif-
andi manni í hug að hægt sé að lifa daginn af án kaffis!?
Ég reyndi, ég sver það. Fyrsta daginn sko. Þegar líða tók á daginn byrjaði
hausverkurinn að segja til sín. Þegar ég kom heim hringdi í ég föður minn,
lækninn, og kvartaði sáran yfir hausverknum. Hann fussaði og sveiaði og
sagðist ekki hafa heyrt aðra eins vitleysu; kaffi væri bara alveg hollt í hófi og
ég ætti barasta að drífa mig inn í eldhús og skella í mig einum bolla. Og hana
nú!
Ég hlýddi auðvitað pabba; en ekki hvað. Fékk mér einn rótsterkan og fann
hvernig hausverkurinn fjaraði út og allt varð bjartara. Þannig hef ég lifað af
fyrstu vikuna, með því að drekka kaffið mitt að læknisráði!
Kaffi að læknisráði
bjargar janúar
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Hann fussaði og sveiaðiog sagðist ekki hafaheyrt aðra eins vitleysu;kaffi væri bara alveg hollt í
hófi og ég ætti barasta að
drífa mig inn í eldhús og
skella í mig einum bolla.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir
Já, allsherjarheilsuátak. 2020 fór í
alls konar rugl þannig að nú er
átak fram eftir ári.
SPURNING
DAGSINS
Ertu í
janúar-
átaki?
Michal Przybysz
Já, í lok síðasta árs hætti ég að
reykja og nú í janúar byrjaði ég í
heilsufæði og líkamsrækt.
Ástrós Hjálmtýsdóttir
Nei. Ég reyni alltaf að vera í átaki.
Axel Ómarsson
Nei. Ég er ekki í janúarátaki. Ég
pæli ekkert í því.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Líkamsræktarstöðvar fengu að opna á miðvikudaginn
með takmörkunum. Linda Hilmarsdóttir er eigandi
Hress Heilsuræktar í Hafnarfirði.
STIGA
ST5266 P
40 ár
á Íslandi
Hágæða
snjóblásarar
Fjölbreytt úrval
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
VETRARSÓL er umboðsaðili
Gulltryggð gæði
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir