Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021 Næsti mánudagur, 18. janúar, munvera leiðinlegasti dagur ársins hérá norðurhveli jarðar. Gott ef það er ekki bara vísindalega sannað að enginn dagur á árinu geti verið verri. Kannski ekki hjá öllum. Sumir hafa það bara gott og eru léttir en samanlögð leiðindi annarra hafa fært þessum degi þennan merkilega titil. Hann er kallaður Blue Monday, mánudag- urinn blái. Fyrir sextán árum sendi bresk ferða- skrifstofa frá sér fréttatilkynningu með þessari niðurstöðu. Maður að nafni Cliff Arnall, kennari við háskólann í Cardiff, skrifaði undir hana og þar var því haldið fram að þetta væru niðurstöður helstu sér- fræðinga skólans. Háskólinn í Cardiff sendi seinna frá sér yfirlýsingu og hafnaði þessu algjörlega, sagði að Arnall væri fyrrverandi kennari og tengdist skólanum ekki neitt. En þetta varð til þess að ýmsir vís- indamenn fóru að safna saman gögnum og tilgátum og komust að þeirri niðurstöðu að þetta væri sennilega hárrétt. Það eru ýms- ar leiðir til að reikna þetta út og breyt- urnar mismunandi en niðurstaðan er víst ekki fjarri lagi. Þetta er sem sagt þriðji mánudagurinn á nýju ári. Dagsetningin er engin tilviljun því hún er fundin út með flóknum útreikn- ingum. Þetta er tíminn þar sem við skuld- um mest, veðrið er verst, myrkrið allt- umlykjandi og langt til jóla. Umferðin er verri, allt tekur lengri tíma og þegar þarna er komið eru flestir búnir að klúðra ára- mótaheitinu sínu. Þriðja mánudaginn á árinu rennur það upp fyrir flestum að þetta er ekki árið sem þeir ná því að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Þessi dagur (fyrir ykkur sem takið sunnudagsblaðið alvarlega) er á morgun. Og það er margt sem segir að hann hafi mögulega aldrei verið verri. Það ætti eng- inn að verða hissa þó að heldur fleiri meld- uðu sig veika en á venjulegum mánudegi. Bandaríkjamenn hafa reyndar ekki fund- ið fyrir þessu. Þriðji mánudagur í janúar er dagur Martins Luther King og almennur frídagur. Við erum hins vegar ekki með einn einasta frídag fyrr en í apríl þegar skírdagur rennur upp eftir þriggja mánaða frídagaleysi. Það er eitthvað heldur óspennandi við það að fara í vinnu í myrkri og koma heim í sama myrkrinu. Þegar við bætum svo við tæpu ári af Covid-þrengingum er ekki galið að halda því fram að 18. janúar gæti talist vera versti dagur aldarinnar. En það þarf ekki að vera þannig. Við get- um komist í gegnum þennan dag ef við bara notum ímyndunaraflið og gerum okkar besta til að gera hann heldur bæri- legri. Hjón sem ég þekki voru orðin svo þreytt í október, í miðri annarri eða þriðju bylgjunni, að þau ákváðu bara að halda jól. Skreyttu heimilið, fóru í spari- fötin, elduðu jólamat- inn og skiptust á gjöfum. Þeim fannst þetta meiri háttar og hafa talað um að þau langi til að gera þetta á hverju ári. Af hverju ekki halda jólin tvisv- ar á ári? Er eitthvað sem bannar það? Svo er rétt að hafa það í huga að Arnell þessi, höfundur kenningarinnar um versta dag ársins, hefur árum saman barist við að losa daginn við þennan leiðindastimpil og sagt að í raun sé þetta dagurinn sem ætti að hvetja fólk til að gera breytingar á lífinu og takast á við nýjar áskoranir. Það virðist hins vegar ekki alveg hafa komist til skila. Og svo getum við glaðst yfir því að það eru ekki nema 158 dagar þar til (samkvæmt sömu kenningum) skemmtilegasti dagur ársins rennur upp. Það mun vera 25. júní. Góðar stundir. ’Hjón sem ég þekki voruorðin svo þreytt í októ-ber, í miðri annarri eðaþriðju bylgjunni, að þau ákváðu bara að halda jól. Skreyttu heimilið, fóru í sparifötin, elduðu jólamat- inn og skiptust á gjöfum. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Mánudagurinn blái Margir hafa séð sig knúna tilað fylkja með lýðræðinueftir að mótmælendur, ekki allir vel til fara, réðust inn í þing- húsið á Capitolhæðinni í Washington. Forsetar, forsætisráðherrar og ut- anríkisráðherrar um heim allan voru fyrstir til að láta frá sér heyra enda allir farnir að nýta sér samskipta- máta Dónalds Trumps og segja hug sinn á Twitter. Netfyrirtækið hleypti öllum slíkum skilaboðum í gegn en lét þess getið að í framtíðinni yrðu stjórnendur þar vandfýsnari á hvað mætti segja á Twitter og hvað ekki. Svipað var að heyra frá Facebook, og til að sýna að alvara væri á ferðinni var lokað fyrir Dónald. Inntakið í yfirlýsingum valdafólks hins vestræna heims var að ráðist hefði verið að vöggu lýðræðisins; myndlíkingin eflaust valin vegna þess að í vöggu er eitt- hvað nýfætt og þar er að finna nokkuð sem er viðkvæmt. Það síðara á svo sannarlega við um lýðræðið. Það er viðkvæmt og ekki sama hvernig með er farið. Það er til dæmis eitt að tala um lýðræðið, ann- að að virða það. Og varðandi fyrra atriðið, um fæð- inguna, sem margir vísa nú til að hafi átt sér stað í Bandaríkjum Norður- Ameríku, þá má til sanns vegar færa að margt sem við kennum við lýðræði er þaðan runnið þótt mikil einföldun sé að rekja alla þræði þess þangað. Mögnuðustu ræður um inntak lýð- ræðis, og einnig suma þætti þess í verki, má finna í sögu Grikkja hinna fornu og staðnæmist ég þá við ræður Periklesar sem sagnfræðingurinn Þúkýdides færði okkur. Þar bar hann saman kosti frjáls samfélags og hins sem laut valdboði að ofan. Þetta var fyrir tæpum tvö þúsund og fimm hundruð árum. En aftur að bandarísku vöggunni sem er ekki nema rúmlega tvö hundr- uð ára. Í Bandaríkjum Norður- Ameríku var vissulega barist fyrir frelsi. Í fyrsta lagi gegn nýlenduvaldi. Gömlu evrópsku nýlenduveldin höfðu slegið eign sinni á þennan heimshluta eins og flesta aðra. Nú vildu menn hins vegar frelsi frá slíkri áþján; vildu ráða sínum heimkynn- um og því sem þau hefðu upp á að bjóða í landsins gæðum. Frum- byggjar álfunnar kysu sennilega ná- kvæmara orðlag. Annar frelsisþráður var baráttan gegn kynþáttamisrétti. Virkjaður var samtakamáttur til afnáms þræla- halds og ekki nóg með það, búin var til stjórnarskrá sem múraði inn mannréttindi betur en tekist hafði í öðrum ríkjum undir lok átjándu ald- arinnar þegar stjórnarskrá Banda- ríkjanna var smíðuð. Í henni sagði að frelsi sérhvers manns skyldi virt og mannhelgi í heiðri höfð. Óhætt er því að segja að þótt vagga lýðræðisins eigi sér lengri sögu en til Bandaríkja Norður-Ameríku þá var framlag þaðan til lýðræðisins ekki lít- ið. En lýðræðið er ekki bara í stjórn- arskrám og lögum, sögubókum og heimspekiritum eða háfleygum ræð- um, hvað þá orðsendingum á Twitter. Spurt er um veruleikann frá degi til dags í lífi þjóðanna. Hvernig þær komi fram hver við aðra – og einnig að sjálfsögðu innbyrðis. Er mann- helgin og frelsið virt, er nýlendu- stefnan, sem hin ungu Bandaríki risu gegn, fyrir bí? Gæti verið að við skoðun á veru- leikanum kæm- umst við að þeirri niðurstöðu að ný- lendustefna sé alls ekki liðin tíð, þvert á móti lifi hún góðu lífi í samtímanum og það sem meira er, að henni sé gefið líf í vöggu á Capi- tolhæðinni, í skrifstofunum sem ráð- ist var inn í á dögunum, valdastéttum heimsins til skelfingar og hryllings? Staðreyndin er sú að heimurinn er í sívaxandi mæli að hverfa frá lýðræð- inu og gefa sig auðræðinu á vald. Það hefur fyrir löngu gerst í Bandaríkj- unum, vöggu kapítalismans. Og ég leyfi mér að segja að rísi al- menningur í heiminum ekki upp gegn valdi auðs; gegn hernaðarofbeldi, auðlindastuldi nýlendustefnunnar, kynþáttakúgun og efnalegu misrétti, þá munum við sjá meira af því sem við sáum gerast í höfuðborg Banda- ríkjanna á dögunum. Það ætti að vera heiminum öllum víti til varnaðar. Þegar engir valkostir eru aðrir í meintri vöggu lýðræðisins en fulltrú- ar auðs og hernaðarofbeldis, og þegar fólk eygir enga framtíð aðra en for- ræði sömu afla, þá er þeirri hættu boðið heim að í glundroða óánægju taki fasisminn völdin. Það er kominn tími til að vakna og kveða auðræðið niður. Láta það víkja fyrir þeirri tegund réttlætis sem að- eins raunverulegt lýðræði getur tryggt. Það er hægt, en verður ekki gert sofandi. AFP Hvað er í vöggunni? ’Inntakið í yfirlýs-ingum valdafólkshins vestræna heimsvar að ráðist hefði verið að vöggu lýðræðisins. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.