Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Síða 14
Þ
að var rétt farið að birta af degi í
San Francisco þegar blaðamaður
náði tali af Helga Tómassyni í
gegnum síma. Hér var degi farið
að halla og komið myrkur. Það lá
vel á Helga, þrátt fyrir erfiðleika undanfarið,
en hann og dansflokkur hans hafa ekki farið
varhluta af veirunni skæðu. Helgi hefur ný-
lega tilkynnt að hann hyggist láta af störfum
sem listrænn stjórnandi San Francisco-
dansflokksins. Þó ekki alveg strax, því nýr
stjórnandi tekur ekki við fyrr en um mitt ár
2022. Þangað til er nóg að gera en Helgi er
vinnusamur með eindæmum og fellur ekki
verk úr hendi, þrátt fyrir að vera að nálgast
áttrætt.
Enginn dansari smitast
Það er ekki úr vegi að heyra hvaða áhrif kór-
ónuveiran hefur haft á Helga og flokkinn hans.
„Kórónuveiran hefur haft gífurlega mikil
áhrif á starf okkar, því miður. Þetta byrjaði að
hafa áhrif á flokkinn strax í mars þegar við
vorum að frumsýna Draum á Jónsmessunótt,“
segir Helgi og segir þá hafa verið sett stopp á
allar sýningar og æfingar. Helgi segir þau hafa
svo fengið leyfi til að hefja æfingar síðastliðið
haust.
„Við héldum okkur heima alveg fram í
ágúst en þá sögðu heilbrigðisyfirvöld að við
mættum vera tuttugu í hólfi, en bara tólf í sal
í einu. Við vorum með fjóra æfingasali og gát-
um sjónvarpað á milli svo dansarar gætu
fylgst með kennaranum. Og svo þurftum við
að sótthreinsa allt fyrir nýja hópa. Fólk mátti
hvorki hittast né tala saman og öllu var skipt
niður í sóttvarnahólf. Þá fórum við að semja
balletta og höfum samið þrjá balletta og einn
þeirra er eftir mig. Núna fjórtánda janúar
vorum við með frumsýningu á galasýningu
þar sem sýnd voru brot úr þessum ballettum
ásamt öðru og var það opnunin á sýning-
arárinu okkar. En við erum ekki með áhorf-
endur í leikhúsinu; þessu verður öllu streymt.
Á árinu 2021 munum við eingöngu sýna í
gegnum netið; bæði þessa balletta sem búið
er að taka upp og eins balletta sem við ætl-
uðum að sýna í vetur,“ segir Helgi og segir að
á þessu skrítna síðasta ári hafi félagar flokks-
ins þjappast betur saman.
„Ég er mjög stoltur af dönsurunum og það
hefur enginn smitast enda fara þeir mjög var-
lega. Því ef einhver smitast þarf allt hólfið að
fara í sóttkví og enginn vill vera sá sem veldur
því,“ segir Helgi og bætir við að þessi tími hafi
reynt mjög á dansara sem missa úr dýrmætan
tíma af ferlinum.
„Þeirra ferill er svo stuttur. Það tekur átta
til tíu ár að þjálfa dansara. Segjum að þeir
útskrifist sautján átján ára. Flestir ljúka
ferlinum um þrítugt. Þetta eru ekki nema
tólf til fimmtán ár og því er það mjög erfitt
fyrir þá að missa núna úr eitt og hálft til tvö
ár. Fyrir dansara er þetta gífurlega langur
tími.“
Streyma ballet um heim allan
Byrjað er að selja miða á þær sýningar sem
sýndar verða í streymi og segir Helgi söluna
ganga mjög vel.
„Það eru margir sem sakna þess að sjá okk-
ur dansa í óperuhúsinu og auðvitað eru þetta
ekki sömu tekjur fyrir okkur. Þrátt fyrir það
tekst þetta og hefur tekist,“ segir Helgi og
segir að vissulega sé það ólík upplifun að horfa
á ballett heima í stofu á skjánum og að sitja í
sal og horfa á lifandi svið. Einn kost í slæmri
stöðu má þó finna.
„Fólk sem býr ekki á svæðinu og jafnvel fólk
úti um allan heim getur horft og það skiptir
máli að upplifa dansverk þótt það sé ekki í leik-
húsinu sjálfu. Kannski fáum við jafnvel fleiri
áhorfendur.“
Helgi segist ekki vita hvenær San Franc-
isco-búar verði bólusettir.
„Ég hef trú á því að við verðum komin á svið
næsta janúar, þegar við byrjum vetrarsýn-
ingar. Jafnvel í desember með sýningunni
Hnetubrjótnum. Við vonum það.“
Þarf að hafa upp á Víkingi
Um fimm ár eru síðan Helgi samdi síðast
dansverk og mögulega er það veirunni að
þakka að hann tókst á við að semja nýtt verk
síðasta haust. Tónlistin við verkið er píanó-
konsert eftir franska tónskáldið Jean-Philippe
Rameau, sem uppi var á 17. og 18. öld. Helgi
heillaðist mjög af tónlistinni en hann segist
alltaf sækja innblástur frá tónlist þegar hann
semur verk.
„Ég uppgötvaði tónlist hans fyrir mörgum
árum og hreifst mjög. Sum verk hans minna
mann á Bach. Þessi píanótónlist er alveg stór-
kostleg og virkar á suman hátt nútímaleg.
Þegar ég fann þessa tónlist fann ég upptöku
þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson spilar tón-
list hans og gerir það svakalega vel. Ég notaði
því tónlist þessa tónskálds sem innblástur. Það
væri alveg stórkostlegt ef ég gæti svo fengið
Víking Heiðar til að koma og spila á frumsýn-
ingunni eftir rúmt ár, þegar við byrjum aftur
að sýna. Fyrst þarf ég að hafa upp á honum,“
segir Helgi.
„Ég er að leggja lokahönd á þennan ballett,“
segir Helgi og segist ekki vita hvort þetta
verði síðasta dansverk sem hann muni semja á
ferlinum.
„Það veit maður aldrei. Það gæti verið eða
ekki. Ég lít ekki á það svoleiðis. Þegar ég fer
frá starfinu eftir eitt og hálft ár gæti vel verið
að ég myndi halda áfram að semja eitthvað
fyrir skólann.“
Slakar kannski á eftir áttrætt
Helgi segist hafa viljað tilkynna brottför sína
úr flokknum snemma svo stjórninni gæfist
góður tími til að finna arftaka hans.
„Það tekur sinn tíma. Svo er allt erfiðara
núna því ekki er hægt að boða fólk í viðtöl,
nema í gegnum Zoom. Ég vildi gefa þeim góð-
an fyrirvara,“ segir Helgi og segist ekki hafa
mikið um það að segja hver tekur við, þótt
hann búist við að vera spurður ráða.
„Svo er ég búinn að ákveða að vera með í
danshátíð á vegum flokksins árið 2023 sem
verður mjög lík danshátíð sem ég setti upp
2018 og hét Unbound Festival og tókst alveg
stórkostlega vel. Stjórn flokksins vill endilega
að ég hafi umsjón með þessari danshátíð.
Þannig að ég verð líklega hér eitthvað að
starfa alveg til vors 2023,“ segir hann.
Blaðamanni verður að orði að árið sem hann
hættir formlega, 2022, er árið sem hann verður
áttræður.
„Alveg rétt, þú ert að minna mig á þetta!“
segir Helgi og hlær.
Þú ætlar sem sagt loksins að fara að slaka á
eftir áttrætt?
„Það gæti verið. Ég veit ekki hvort ég kann
það en mun uppgötva það þegar ég verð hætt-
ur. Ég hef venjulega alltaf eitthvað fyrir stafni.
Ég var einu sinni spurður að því þegar ég kom
heim til Íslands með dansara í Þjóðleikhúsið:
„Hvenær ætlarðu að hætta að sprikla? Og fara
að vinna almennilega vinnu?“ Svo nú ætla ég
kannski að fara að hætta að sprikla, árið 2022,“
segir hann kíminn.
Þú sagðir í viðtali árið 2019 að þú hræðist
iðjuleysi. Hvað ætlarðu að taka þér fyrir hend-
ur þegar þú hættir?
Ég mun ekki sjá eftir þessu daglega stressi
sem fylgir því að stjórna svona stórum flokki.
Ég og kona mín viljum fara sem fyrst, þegar
leyfi fæst og bólusetningin er komin, að
heimsækja barnabörnin sem búa í Þýskalandi
sem við höfum ekki séð í rúmt ár. Og svo
viljum við njóta lífsins meira,“ segir Helgi.
„Hvenær ætlarðu að
hætta að sprikla?“
Helgi Tómasson er goðsögn í lifanda lífi; einn af sonum Íslands. Hann hefur stjórnað San
Francisco-dansflokknum hátt í fjörutíu ár en hefur nú tilkynnt afsögn sína árið 2022. En Helgi
mun ekki sitja auðum höndum og ýmislegt er á dagskrá. Hann mun áfram vera með puttana
í dansinum en hyggst líka leika við barnabörnin og njóta lífsins.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Helgi leiðbeinir
hér dönsurunum
Nikisha Fogo og
Julian MacKay en
Helgi hefur ávallt
sinnt kennslu.
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021