Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Síða 14
Þ að var rétt farið að birta af degi í San Francisco þegar blaðamaður náði tali af Helga Tómassyni í gegnum síma. Hér var degi farið að halla og komið myrkur. Það lá vel á Helga, þrátt fyrir erfiðleika undanfarið, en hann og dansflokkur hans hafa ekki farið varhluta af veirunni skæðu. Helgi hefur ný- lega tilkynnt að hann hyggist láta af störfum sem listrænn stjórnandi San Francisco- dansflokksins. Þó ekki alveg strax, því nýr stjórnandi tekur ekki við fyrr en um mitt ár 2022. Þangað til er nóg að gera en Helgi er vinnusamur með eindæmum og fellur ekki verk úr hendi, þrátt fyrir að vera að nálgast áttrætt. Enginn dansari smitast Það er ekki úr vegi að heyra hvaða áhrif kór- ónuveiran hefur haft á Helga og flokkinn hans. „Kórónuveiran hefur haft gífurlega mikil áhrif á starf okkar, því miður. Þetta byrjaði að hafa áhrif á flokkinn strax í mars þegar við vorum að frumsýna Draum á Jónsmessunótt,“ segir Helgi og segir þá hafa verið sett stopp á allar sýningar og æfingar. Helgi segir þau hafa svo fengið leyfi til að hefja æfingar síðastliðið haust. „Við héldum okkur heima alveg fram í ágúst en þá sögðu heilbrigðisyfirvöld að við mættum vera tuttugu í hólfi, en bara tólf í sal í einu. Við vorum með fjóra æfingasali og gát- um sjónvarpað á milli svo dansarar gætu fylgst með kennaranum. Og svo þurftum við að sótthreinsa allt fyrir nýja hópa. Fólk mátti hvorki hittast né tala saman og öllu var skipt niður í sóttvarnahólf. Þá fórum við að semja balletta og höfum samið þrjá balletta og einn þeirra er eftir mig. Núna fjórtánda janúar vorum við með frumsýningu á galasýningu þar sem sýnd voru brot úr þessum ballettum ásamt öðru og var það opnunin á sýning- arárinu okkar. En við erum ekki með áhorf- endur í leikhúsinu; þessu verður öllu streymt. Á árinu 2021 munum við eingöngu sýna í gegnum netið; bæði þessa balletta sem búið er að taka upp og eins balletta sem við ætl- uðum að sýna í vetur,“ segir Helgi og segir að á þessu skrítna síðasta ári hafi félagar flokks- ins þjappast betur saman. „Ég er mjög stoltur af dönsurunum og það hefur enginn smitast enda fara þeir mjög var- lega. Því ef einhver smitast þarf allt hólfið að fara í sóttkví og enginn vill vera sá sem veldur því,“ segir Helgi og bætir við að þessi tími hafi reynt mjög á dansara sem missa úr dýrmætan tíma af ferlinum. „Þeirra ferill er svo stuttur. Það tekur átta til tíu ár að þjálfa dansara. Segjum að þeir útskrifist sautján átján ára. Flestir ljúka ferlinum um þrítugt. Þetta eru ekki nema tólf til fimmtán ár og því er það mjög erfitt fyrir þá að missa núna úr eitt og hálft til tvö ár. Fyrir dansara er þetta gífurlega langur tími.“ Streyma ballet um heim allan Byrjað er að selja miða á þær sýningar sem sýndar verða í streymi og segir Helgi söluna ganga mjög vel. „Það eru margir sem sakna þess að sjá okk- ur dansa í óperuhúsinu og auðvitað eru þetta ekki sömu tekjur fyrir okkur. Þrátt fyrir það tekst þetta og hefur tekist,“ segir Helgi og segir að vissulega sé það ólík upplifun að horfa á ballett heima í stofu á skjánum og að sitja í sal og horfa á lifandi svið. Einn kost í slæmri stöðu má þó finna. „Fólk sem býr ekki á svæðinu og jafnvel fólk úti um allan heim getur horft og það skiptir máli að upplifa dansverk þótt það sé ekki í leik- húsinu sjálfu. Kannski fáum við jafnvel fleiri áhorfendur.“ Helgi segist ekki vita hvenær San Franc- isco-búar verði bólusettir. „Ég hef trú á því að við verðum komin á svið næsta janúar, þegar við byrjum vetrarsýn- ingar. Jafnvel í desember með sýningunni Hnetubrjótnum. Við vonum það.“ Þarf að hafa upp á Víkingi Um fimm ár eru síðan Helgi samdi síðast dansverk og mögulega er það veirunni að þakka að hann tókst á við að semja nýtt verk síðasta haust. Tónlistin við verkið er píanó- konsert eftir franska tónskáldið Jean-Philippe Rameau, sem uppi var á 17. og 18. öld. Helgi heillaðist mjög af tónlistinni en hann segist alltaf sækja innblástur frá tónlist þegar hann semur verk. „Ég uppgötvaði tónlist hans fyrir mörgum árum og hreifst mjög. Sum verk hans minna mann á Bach. Þessi píanótónlist er alveg stór- kostleg og virkar á suman hátt nútímaleg. Þegar ég fann þessa tónlist fann ég upptöku þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson spilar tón- list hans og gerir það svakalega vel. Ég notaði því tónlist þessa tónskálds sem innblástur. Það væri alveg stórkostlegt ef ég gæti svo fengið Víking Heiðar til að koma og spila á frumsýn- ingunni eftir rúmt ár, þegar við byrjum aftur að sýna. Fyrst þarf ég að hafa upp á honum,“ segir Helgi. „Ég er að leggja lokahönd á þennan ballett,“ segir Helgi og segist ekki vita hvort þetta verði síðasta dansverk sem hann muni semja á ferlinum. „Það veit maður aldrei. Það gæti verið eða ekki. Ég lít ekki á það svoleiðis. Þegar ég fer frá starfinu eftir eitt og hálft ár gæti vel verið að ég myndi halda áfram að semja eitthvað fyrir skólann.“ Slakar kannski á eftir áttrætt Helgi segist hafa viljað tilkynna brottför sína úr flokknum snemma svo stjórninni gæfist góður tími til að finna arftaka hans. „Það tekur sinn tíma. Svo er allt erfiðara núna því ekki er hægt að boða fólk í viðtöl, nema í gegnum Zoom. Ég vildi gefa þeim góð- an fyrirvara,“ segir Helgi og segist ekki hafa mikið um það að segja hver tekur við, þótt hann búist við að vera spurður ráða. „Svo er ég búinn að ákveða að vera með í danshátíð á vegum flokksins árið 2023 sem verður mjög lík danshátíð sem ég setti upp 2018 og hét Unbound Festival og tókst alveg stórkostlega vel. Stjórn flokksins vill endilega að ég hafi umsjón með þessari danshátíð. Þannig að ég verð líklega hér eitthvað að starfa alveg til vors 2023,“ segir hann. Blaðamanni verður að orði að árið sem hann hættir formlega, 2022, er árið sem hann verður áttræður. „Alveg rétt, þú ert að minna mig á þetta!“ segir Helgi og hlær. Þú ætlar sem sagt loksins að fara að slaka á eftir áttrætt? „Það gæti verið. Ég veit ekki hvort ég kann það en mun uppgötva það þegar ég verð hætt- ur. Ég hef venjulega alltaf eitthvað fyrir stafni. Ég var einu sinni spurður að því þegar ég kom heim til Íslands með dansara í Þjóðleikhúsið: „Hvenær ætlarðu að hætta að sprikla? Og fara að vinna almennilega vinnu?“ Svo nú ætla ég kannski að fara að hætta að sprikla, árið 2022,“ segir hann kíminn. Þú sagðir í viðtali árið 2019 að þú hræðist iðjuleysi. Hvað ætlarðu að taka þér fyrir hend- ur þegar þú hættir? Ég mun ekki sjá eftir þessu daglega stressi sem fylgir því að stjórna svona stórum flokki. Ég og kona mín viljum fara sem fyrst, þegar leyfi fæst og bólusetningin er komin, að heimsækja barnabörnin sem búa í Þýskalandi sem við höfum ekki séð í rúmt ár. Og svo viljum við njóta lífsins meira,“ segir Helgi. „Hvenær ætlarðu að hætta að sprikla?“ Helgi Tómasson er goðsögn í lifanda lífi; einn af sonum Íslands. Hann hefur stjórnað San Francisco-dansflokknum hátt í fjörutíu ár en hefur nú tilkynnt afsögn sína árið 2022. En Helgi mun ekki sitja auðum höndum og ýmislegt er á dagskrá. Hann mun áfram vera með puttana í dansinum en hyggst líka leika við barnabörnin og njóta lífsins. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Helgi leiðbeinir hér dönsurunum Nikisha Fogo og Julian MacKay en Helgi hefur ávallt sinnt kennslu. VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.