Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
prjónahópnum Ungir prjónar sem telur 10
stelpur á milli tvítugs og þrítugs sem elska að
prjóna.
Hvaða prjónaverkefni hafa verið skemmti-
legustu verkefnin?
„Skemmtilegustu verkefnin eru yfirleitt þau
sem ég er með á prjónunum hverju sinni en
mér finnst samt alltaf skemmtilegast þegar ég
er að læra eitthvað nýtt. Upp á síðkastið hef ég
verið að færa mig aðeins út fyrir boxið og farið
eftir eigin höfði í stað þess að fylgja uppskrift-
inni nákvæmlega, sem mér hefur fundist of-
boðslega skemmtilegt. Núna er ég einmitt að
hanna mína fyrstu uppskrift sem hefur verið
ótrúlega lærdómsríkt, spennandi og skemmti-
legt.“
Samfélagsmiðlarnir tengja
saman og veita innblástur
Ísabella sækir mikinn innblástur á Instagram
en prjónasamfélagið þar er blómlegt og auð-
velt að sækja innblástur þangað. Samfélags-
miðlarnir hafa líka þann kost að tengja saman
prjónara alls staðar að á landinu.
„Ég prjóna langmest á mig sjálfa en hef
einnig verið að prjóna aðeins á fólkið í kring-
um mig. Oftast eru það peysur en alls konar
minni verkefni læðast líka inn á milli með.
Instagram er klárlega minn helsti inn-
blástur í handavinnu og ég elska hvað það
eru margir búnir að opna aðgang þar til að
deila sínum handverkum, ráðum og inn-
blæstri. Pinterest er einnig ofarlega á lista
til að fá innblástur en þar eru alls konar
sniðugar útfærslur á alls kyns handavinnu,“
segir Ísabella.
Að prjóna sínar eigin flíkur passar vel við
hugmyndafræðina um hæga tísku (e. slow fas-
hion). Það heillar Ísabellu mikið. „Það tekur
mun lengri tíma að prjóna flíkina heldur en að
stökkva út í næstu tískuvöruverslun og kaupa
sér hana, hún endist mun lengur og gæðin eru
talsvert meiri. Þegar maður hefur lagt svona
ótrúlega mikla vinnu, þolinmæði og tíma í að
skapa sína eigin flík, þá verð ég að minnsta
kosti svo ótrúlega stolt af mér þegar ég er í
flíkinni. Það er líka svo gaman að geta ákveðið
alveg sjálfur hvernig maður vill hafa flíkina,
allt frá garni, lit og grófleika yfir í mynstur og
snið,“ segir Ísabella.
Hvað er mest í tísku í prjónaheiminum í
dag?
„Í dag eru einlitaðar flíkur, bæði einfaldar
og með einlituðu mynstri, mjög áberandi. Í
garni er mohair ótrúlega vinsælt, bæði eitt og
sér eða sem aukaþráður með öðru garni. Svo
finnst mér ekki síður mikilvægt að minnast á
að taka fallegar myndir af prjóninu sínu, ætli
það sé ekki bara svolítið í tísku?“
Hvaða ráð getur þú gefið þeim sem vilja
byrja prjóna en vita ekki hvar þeir eiga að
byrja?
„Helsta ráð sem ég get gefið er fyrst og
fremst að velja þér verkefni sem þig virkilega
langar til að prjóna og sérð fyrir þér að þú
munir nota. Það veitir manni ákveðna hvatn-
ingu til að halda áfram með verkefnið, því það
mun taka tíma. Svo skaltu ekki vera feimin(n)
við að biðja um aðstoð! Hvort sem það er ein-
hver sem þú þekkir, Instagram-skilaboð eða
gúggla,“ segir Ísabella.
Hægt er að fylgjast með Ísabellu á In-
stagram undir nafninu Madebybellaros.Hver peysan á fætur annarri hefur dottið af prjónunum hjá Ísabellu síðan í vor.
Ísabella Rós Ingimundardóttir
lærði að prjóna þegar hún var
ung stelpa. Áhuginn á handa-
vinnu hefur fylgt henni síðan.
Ísabella hefur prjónað ýmis smærri verkefni líka.
’Ég hef alltaf haft gaman afþví að sinna alls kyns handa-vinnu, en amma mín kenndi mérað prjóna og hekla þegar ég var
mjög ung. Hún er mín helsta fyr-
irmynd í allri handavinnu og
það er gott að geta alltaf leitað til
hennar hvort sem ég þarf aðstoð,
innblástur eða hvatningu. “
17.1. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19