Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021
HREYFING
Ég er gríðarlega spenntur aðbyrja aftur að spila en ásama tíma geri ég mér fulla
grein fyrir ábyrgð okkar. Við verð-
um að fara varlega,“ segir Stefán
Freyr Stefánsson, talsmaður hóps
sem komið hefur saman í ald-
arfjórðung, einu sinni til tvisvar í
viku, til að spila körfubolta í Vals-
heimilinu á Hlíðarenda. Sunnudags-
blaðið náði tali af honum skömmu
fyrir fyrstu æfingu eftir hlé.
Hann segir sama máli gegna um
aðra í hópnum; menn brenni í
skinninu að komast í hreyfingu en
hafi um leið varann á. Jafnvel þótt
gárungarnir tali gjarnan um körfu-
bolta sem íþrótt án snertingar þá er
snerting í reynd talsverð. „En sótt-
varnalæknir og stjórnvöld hafa leyft
boltaíþróttir á ný og við treystum
mati þeirra og þau munu örugglega
stöðva þetta aftur fari smitum í
samfélaginu fjölgandi.“
Hann veit ekki annað en að allir í
hópnum séu klárir í bátana en vilji
einhverjir sitja hjá lengur í örygg-
isskyni muni menn að sjálfsögðu
virða það sjónarmið.
Spurður um ástandið á hópnum
kveðst Stefán Freyr ekki hafa heyrt
af því að menn hafi verið að halda
sér við efnið með því skjóta einir og
sér á körfur sem finna má víða á
leiksvæðum borgarinnar. „Það er
allt annar hlutur að gera þetta einn
en í hóp. Veðurfarið hefur heldur
ekki boðið upp á það í kuldanum
undanfarið,“ segir Stefán Freyr og
bætir við að félagsskapurinn vegi
líka þungt. Menn sæki ekki síður
næringu í hann en leikinn sjálfan.
Án þess þó að það bitni á keppn-
isskapinu.
Úthaldið er heldur ekki upp á
marga fiska eftir þriggja mánaða
hlé og Stefán Freyr gerir ráð fyrir
að menn fari varlega af stað – reyni
það alla vega. Í því sambandi kemur
sér vel að mæting á fyrstu æfing-
arnar ætti að verða góð og fyrir vik-
ið menn til skiptana á bekknum.
„Ég á von á því að þetta verði erfitt
til að byrja með en það bjargar
miklu að hafa varamenn.“
Að sögn Stefáns Freys er mikil
aldursbreidd í hópnum en yngstu
menn eru rétt rúmlega tvítugir
meðan þeir elstu losa sjötugt.
„Menn eru löngu farnir að koma
með syni sína á æfingar en enginn
hefur enn þá komið með barnabarn
sitt – en það styttist örugglega í
það,“ segir hann sposkur.
Stefán Freyr hefur ekki átt aðild
að hópnum frá upphafi en skilst að
allt hafi þetta byrjað með því að
Körfuknattleikssamband Íslands
vildi hefja greinina til vegs og virð-
ingar og bauð því nokkrum fjöl-
miðlamönnum á æfingar. Það vatt
upp á sig og seinna sameinuðust
fjölmiðlamennirnir hópi frá Ís-
lenskri erfðageiningu sem æfði á
sama stað. „Síðar kom Grímur Atla-
son [núverandi framkvæmdastjóri
Geðhjálpar] inn í hópinn ásamt
nokkrum listaspírum, þannig að
hópurinn er mjög skemmtilega
samsettur. Raunar hefur einn í
hópnum, Stefán Stefánsson saxó-
fónleikari, lagt til að ættfræði allra
bumbuboltahópa á Íslandi verði
kortlögð.“
Sem er ekkert verri hugmynd en
hver önnur.
Sendu gamalt myndband
Brynjólfur „Klinsmann“ Eyjólfsson,
stofnandi og stjórnarmaður í knatt-
spyrnufélaginu Dickenbauch
Sportverein GmbH, sem er með
varnarþing í Kópavogi, var nýbúinn
að fá þær ánægjulegu fréttir úr Fíf-
unni að fyrsta æfing liðsins eftir
rúmlega þriggja mánaða hlé gæti
farið fram í vikunni þegar Sunnu-
dagsblaðið náði tali af honum.
Hljóðið í honum var því að vonum
sérstaklega gott. „Það voru mjög
jákvæðar fréttir og aldeilis vel tekið
af félagsmönnum í Dickenbauch og
toppmæting á æfinguna, sextán
manns staðfestir aðeins örfáum
stundum eftir að opnað var fyrir
skráningu,“ segir Brynjólfur.
Eins og aðrir bumbuboltaklúbbar
hafa Dickenbauch-menn haft hægt
um sig síðan í október. „Það hefur
verið einstaklingsmiðuð þjálfun –
hver leikmaður hefur séð um sig.
Við í stjórninni sendum að vísu út
gamalt þýskt fótboltamyndband en
ég veit ekki til þess að neinn hafi
fylgt þeim leiðbeiningum,“ segir
Brynjólfur en markmið Dicken-
bauch er tvíþætt; að stuðla að
knattspyrnufegurð og útbreiðslu
þýskrar menningar. Sjálfur hefur
hann ekki snert bolta síðan í lok
september.
Að sögn Brynjólfs hafa hóparnir
sem iðka knattspyrnu í Fífunni
fengið skýr fyrirmæli frá hús-
bændum og ýtrustu sóttvarna-
reglum verður að sjálfsögðu fylgt;
menn mega til að mynda ekki mæta
á svæðið fyrr en fimm mínútum fyr-
ir æfingu og þurfa að koma sér
strax út úr húsinu að henni lokinni.
Eftirvæntingin í hópnum var að
vonum mikil fyrir fyrstu æfinguna
enda ekki eins og menn séu á leið í
utanlandsferðir eða annað til að
brjóta upp háveturinn. „Þótt leik-
urinn sjálfur sé alltaf mikilvægur þá
skiptir félagslegi þátturinn ekki
minna máli eftir því sem maður
verður eldri. Sumir eru orðnir drag-
haltir og/eða allt of þungir, ég nefni
engin nöfn, en mæta samt til að
vera með,“ segir Brynjólfur.
Lífleg umræða er gjarnan innan
hópsins á samfélagsmiðlum enda
hart barist um stig og alls kyns við-
urkenningar á vettvangi Dicken-
bauch. „Einn úr hópnum byrjaði
með jólasveinaleik á aðventunni og
spunnust miklar umræður út frá
honum, þar sem gamlar sögur úr
boltanum voru látnar flakka. Það
var greinilega uppsöfnuð þörf fyrir
þessa umræðu. Við héldum einnig
þýskt kynþokkakvöld á Teams í
nóvember. Þar fór fram spurninga-
keppni um þýska menningu, leik-
greining á gömlum þýskum leikjum
og fleira.“
Dickenbauch-menn koma saman
einu sinni í viku yfir veturinn, á
fimmtudagskvöldum, og vonar
Brynjólfur að ekki þurfi að herða
sóttvarnaaðgerðir aftur svo þeir
geti klárað tímabilið sitt. Tímabilið
skiptist í tvær annir, Herbstliga og
Frühlingsliga, en nú ræða menn
það af alvöru að hafa bara eitt tíma-
bil, Winterliga, þar sem Herbst-
ligan hófst varla að neinu gagni.
Brynjólfur veit ekki til þess að
neinn úr hópnum ætli að sitja áfram
hjá í öryggisskyni. Þvert á móti er
kominn biðlisti en gamlar kempur
úr hópnum knýja nú í auknum mæli
dyra hjá stjórninni og vilja komast
inn aftur. Brottfallið í yngri iðk-
endahópunum vegna heimsfarald-
ursins, sem mönnum hefur verið
tíðrætt um í fréttum, á því greini-
lega ekki við í elstu hópunum. Er
það vel.
Bumban snýr aftur
Eftir þriggja mánaða
hlé vegna kórónuvei-
rufaraldursins var svo-
kallaður „bumbubolti“
leyfður á ný á Íslandi í
vikunni. Karlar og kon-
ur þustu þá út á völlinn
í stórum stíl – eins og
kýr að vori. Ryðguð og
úthaldslítil en alsæl.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
„Fer ’ann oní?“ Menn bíða með
öndina í hálsinum í Valsheimilinu á
föstudaginn í sínum fyrsta körfu-
boltatíma í meira en þrjá mánuði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Liðsmenn Dickenbauch Sportverein GmbH á sinni fyrstu æfingu í rúma þrjá mánuði á fimmtudagskvöldið. Tveir flugu á
hausinn í hálkunni fyrir utan Fífuna áðir en flautað var til leiks en allir náðu að klára leik óskaddaðir. Þreyttir en sælir.
Morgunblaðið/Eggert
’Við í stjórninni send-um að vísu út gamaltþýskt fótboltamyndbanden ég veit ekki til þess að
neinn hafi fylgt þeim
leiðbeiningum.