Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  30. tölublað  109. árgangur  MÉR FANNST ÉG VERA AUÐMJÚKUR ÞJÓNN LJÓÐANNA FEÐURNIR FÁ AÐ RÁÐA GYLFI OG ÁSGEIR JAFNIR AÐ METUM EFTIR MARKIÐ FORVITNILEGAR NIÐURSTÖÐUR 10 HEIÐAR MARKAHÆSTUR 35KÓRVERK MARÍU HULDAR 36 Vetrarhátíð hófst í gærkvöldi og er áherslan að þessu sinni á ljóslistaverk utandyra. Þannig má ganga svokallaða ljósaslóð sem leið liggur frá Ráðhúsi Reykjavíkur á Austurvöll og upp að Hallgrímskirkju, sem sjálf er prýdd ljóslistaverki. Veturinn það sem af er hefur verið sá snjóléttasti í Reykja- vík í hundrað ár, eða allt frá því snjóhulumælingar hófust í höfuðborginni árið 1921. Hins vegar hefur allt verið á kafi í snjó á Norðurlandi. Í janúar var enginn alhvítur dagur í Reykjavík. Á Akureyri voru alhvítir dagar 22, til samanburðar. Alhvítir dagar í Reykjavík eru aðeins þrír talsins í vetur. Fyrra met er frá ár- unum 1976-77, fimm dagar. Alhvítir dagar á Akureyri voru orðnir 44 í janúarlok. Í Reykjavík var enginn alhvítur dagur í október, einn í nóvember og tveir í desember. „En veturinn er langt í frá búinn,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Snjóléttasti vetur í hundrað ár í Reykjavík  Bóluefni lyfjafyrirtækisins Astra- Zeneca er væntanlegt til landsins á næstunni. Þetta sagði sóttvarna- læknir á upplýsingafundi almanna- varna í gær. Fjórtán þúsund skammtar efnisins berist innan skamms en alls 74 þúsund skammt- ar fyrir mánaðamótin mars-apríl. Fólki eldra en 65 ára verður ekki gefið bóluefni AstraZeneca. »4 Meira bóluefni til landsins á næstunni Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hafrannsóknastofnun gaf í gær út lokaráðgjöf um loðnuveiðar í vetur og rúmlega tvöfaldaði fyrri ráðgjöf. Nú er lagt til að leyft verði að veiða sam- tals 127.300 tonn á vertíðinni og áætl- ar Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, að vertíðin geti gefið um 17,5 milljarða í útflutningstekjur og miðar þá við að um 15% norska kvótans verði unnin hér. Tvö síðustu ár hefur orðið loðnubrestur. Af heildarkvótanum koma alls um 69 þúsund tonn í hlut íslenskra veiði- skipa, en um 58 þúsund tonn í hlut Norðmanna, Grænlendinga og Fær- eyinga samkvæmt samningum Ís- lendinga við þessar þjóðir. Í sögulegu samhengi er ekki um stóra vertíð að ræða og segist Gunnþór telja að ís- lensku útgerðirnar leggi aðaláherslu á að veiða loðnuna á um vikutíma þeg- ar hún nálgast hrygningu, en hrognin eru verðmætasta afurð loðnunnar. Hann segir það ákveðin vonbrigði að ráðgjöfin skuli ekki vera hærri en raun ber vitni og segir það ábyrgð- arlaust ef ekki verði farið aftur til loðnuleitar og mælinga, því ungloðnu- mæling á árganginum sem ber uppi veiðina í vetur hafi gefið fyrirheit um góða vertíð. Ástæðulaust sé að togast á um peninga í þeim efnum, miðað við að hið opinbera fái um 4,5 milljarða í sinn hlut af þeim verðmætum sem loðnuvertíðin skapi. Frá því í nóvember hefur ítrekað verið farið til loðnuleitar og mælinga í samvinnu Hafrannsóknastofnunar og útgerða uppsjávarskipa. Í janúar- mánuði var farið í tvo leiðangra og í þeim síðari, í síðustu viku mánaðar- ins, tóku átta skip þátt í verkefninu. Í janúar voru úthaldsdagarnir rúmlega 50 á veiðiskipum og 27 á rannsókn- arskipum. Stefnir í um 17,5 milljarða vertíð  Veiðiráðgjöf hækkuð  69 þúsund tonn til íslenskra skipa Ljósmynd/Daði Ólafsson Vertíð Bjarni Ólafsson AK að veiðum við suðurströndina veturinn 2017. MSlegist um farma norsku ... »2 Ráðgjöf » 30.11. 2019 – Lagt til að upphafskvóti á vertíðinni 2021 verði 170 þúsund tonn. » 6. október 2020 – Lagt til að veiðar verði ekki heimilaðar og fyrri ráðgjöf dregin til baka. » 16. desember – Lagt til að afli fari ekki yfir 21.800 tonn. » 24. janúar 2021 – Ráðgjöf hækkuð í 61 þúsund tonn. » 4. febrúar 2021 – Ráðgjöf um 127.300 tonna loðnuafla. Hafrannsóknastofnun og Bench- mark Genetics Iceland (áður Stofn- fiskur) vinna með Maryland-háskóla í Baltimore í Bandaríkjunum að þró- un á nýrri aðferð til fjöldafram- leiðslu á kynlausum laxi til notkunar í fiskeldi, samkvæmt aðferð vísinda- manna Maryland-háskóla. Svokall- aðri genaþöggun er beitt á fyrstu stigum lirfuþroska og felst aðferðin í að slökkva á genum í kynfrumum. Fiskarnir verða eðlilegir að öllu öðru leyti en því að þeir mynda ekki hrogn eða svil. Besti árangur í rann- sókninni til þessa er að 70% hópsins urðu ófrjó en markmiðið er að ná 100% árangri. Benchmark Genetics framleiðir þrílitna hrogn til útflutnings til Nor- egs og fleiri landa en meðhöndlunin gerir laxinn ófrjóan. Hentar hann hins vegar ekki við allar aðstæður, til dæmis í landeldi sem er í mikilli uppbyggingu. Þess vegna er verið að þróa ýmsar aðferðir við að gelda lax, þó hann sé áfram tvílitna. Ein af þeim er rannsóknin sem unnið er að hjá Hafró í Grindavík. »11 Gelda lax með gena- þöggun  Aðferð þróuð hjá Hafró í Grindavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.