Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Andrés Magnússon andres@mbl.is Í stjórnarfrumvarpi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð- herra um breytingar á áfengislögum, sem lagt var fram á Alþingi í gær, er kveðið á um að smærri brugghúsum verði leyft að selja öl á framleiðslu- stað. Hins vegar er þar ekki veitt heimild til innlendrar netverslunar með vín í smásölu, líkt og upphafleg drög frumvarpsins gerðu ráð fyrir. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má rekja þá breytingu til andstöðu samstarfsflokkanna, bæði innan ríkisstjórnar og þingflokka. Málið velktist mánuðum saman í rík- isstjórn og var svo lengi á hægferð í gegnum þingflokka framsóknar- manna og vinstri grænna. Innan þeirra lagðist meirihlutinn gegn inn- lendri netverslun með áfengi, þrátt fyrir að sú breyting horfði fyrst og fremst til jafnrar stöðu innlendrar og erlendrar netverslunar. Íslenskir neytendur geta þegar keypt áfengi í smásölu frá erlendum netverslunum í skjóli Evrópureglna. Handverksbruggið óumdeilt Hins vegar var mun víðtækari stuðningur við að gera undanþágu frá einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslun- ar ríkisins á smásölu áfengis hjá smærri brugghúsum, svonefndum handverksbrugghúsum, enda er fremur litið á það sem styrktaraðgerð gagnvart landsbyggðinni og ferða- þjónustu. Frumvarpið virtist raunar njóta svo mikilla vinsælda meðal framsókn- armanna, að þeir lögðu fram eigið frumvarp þar að lútandi á þriðjudag, að efni og orðalagi merkilega líkt stjórnarfrumvarpi Áslaugar Örnu. Fyrir þinginu liggur auk þess end- urflutt frumvarp Píratans Helga Hrafns Gunnarssonar og fleiri um breytingar á áfengislögum, sem heimila myndu heimabrugg. Ölsala handverksbruggara leyfð en ekki vefverslun  Framsókn og vinstri græn á móti innlendri vefverslun Fyrirhuguðum breytingum á brjóstaskimunum var mótmælt í gær þegar undirskriftalisti var af- hentur heilbrigðisráðuneytinu, en um 37 þúsund undirskriftir höfðu safnast. Alls mætti 31 kona fyrir ut- an heilbrigðisráðuneytið í mótmæla- skyni og báru átta þeirra svartar húfur en hinar 23 appelsínugular. Með því vildu þær sýna með tákn- rænum hætti fram á þann fjölda kvenna á aldursbilinu 40-49 ára sem greinast með brjóstakrabbamein á ári hverju að jafnaði og svo þær sem greinast ekki fyrr en það er um sein- an. Um áramót tóku gildi nýjar regl- ur um brjóstaskimun hér á landi sem kveða á um að konum á aldrinum 50- 74 ára verði boðið í brjóstaskimun en ekki konum á aldrinum 40-69 ára eins og verið hafði. Breytingin úr 40 í 50 ár vakti mikla reiði og var hún afturkölluð af heilbrigðisráðherra í síðasta mánuði. Þá færðist brjósta- skimun úr hendi Krabbameins- félagsins og inn í almenna heilbrigðiskerfið. Heilbrigðisráðuneytinu afhentar 37 þúsund undirskriftir Mótmæla breytingu á skimun Morgunblaðið/Eggert Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Norska skipið Senior frá Bodö land- aði í gær 310 tonnum af loðnu hjá Eskju á Eskifirði. Þetta er fyrsta loðnan sem landað er til vinnslu hér- lendis í þrjú ár eða frá því á vertíð- inni 2018. Metverð hefur verið borg- að fyrir loðnu nú í upphafi vertíðar og grimmt verið boðið í aflann. Strax byrjað að vinna aflann Í gær greindi Fiskeribladet/Fisk- aren frá því að 10,65 krónur norskar eða sem nemur rúmlega 160 krónum íslenskum hefðu fengist á uppboðs- markaði fyrir kílóið í farmi nóta- skipsins Svanaug Elise. Kaupandi var Vardin Pelagic í Færeyjum. Eskja borgaði svipað verð fyrir afla Seniors. Er leið á gærdaginn borgaði fyrirtæki í Tromsö síðan 186 krónur íslenskar fyrir kílóið í farmi norska skipsins Gunnars Langva. Hrogna- fylling loðnunnar er nú um 10%. Páll Snorrason, framkvæmda- stjóri hjá Eskju, segir að stjórnend- ur og starfsfólk í uppsjávarfrystihús- inu séu himinlifandi að fá fyrsta loðnufarm ársins og var strax byrjað að vinna aflann úr Senior. Páll segir að vonandi verði hægt að fá fleiri farma frá norskum skipum á næst- unni þar til byrjað verði að veiða úr kvóta Eskju. Hann fagnar því að loðnukvótinn hafi verið aukinn og segist vona að enn verði bætt við á næstunni. Allir markaðir fyrir loðnu- afurðir séu galtómir og mikil eftir- spurn. Í gær var um tugur norskra skipa að veiðum fyrir austan land, flest út af Hafnarnesi. 60-70 norsk uppsjáv- arskip eiga loðnukvóta við Ísland. Endurskoðuð ráðgjöf Hafrannsóknastofnun greindi frá nýrri loðnuráðgjöf í gær, lokaráð- gjöf, og er hún upp á alls 127.300 tonn. Byggt er á summu tveggja leiðangra sem fóru fram seinni part janúar og gáfu mat á stærð hrygn- ingarstofns loðnu upp á samtals 650 þúsund tonn. Heildaryfirferð þess- ara tveggja leiðangra er talin ná yfir allt útbreiðslusvæði hrygningar- loðnu. Það gilti ekki um mælingar í desember og fyrri hluta janúar og því voru niðurstöður þeirra ekki not- aðar í þessari lokaráðgjöf. Slegist um farma norsku skipanna  Loðna unnin hérlendis í fyrsta skipti í þrjú ár  Hærra verð fyrir loðnuna en áður hefur verið greitt Ljósmynd/Jens Garðar Helgason Á Eskifirði Landað var úr norska skipinu Senior hjá Eskju í gær og hófst vinnsla strax í frystihúsinu. Guðrún Þor- kelsdóttir SU 211, eitt þriggja uppsjávarskipa Eskju, sést í baksýn. Íslensku skipin eru ekki byrjuð á loðnuveiðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.