Morgunblaðið - 05.02.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.2021, Blaðsíða 4
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Snjónum hefur verið misskipt milli landshluta á þessum vetri. Allt er í kafi í snjó á Norðurlandi en í Reykja- vík hefur veturinn verið sá snjóléttasti í 100 ár, eða allt frá því snjóhulumæl- ingar hófust þar árið 1921. Til tíðinda bar í nýliðnum janúar að enginn alhvítur dagur var í Reykjavík. Hins vegar voru 13 flekkóttir dagar, eins og það kallast á veðurmáli. Á Ak- ureyri voru alhvítir dagar 22, til sam- anburðar. Alhvítir dagar á Akureyri í vetur voru orðnir 44 í janúarlok. Í Reykjavík var enginn alhvítur dagur í október, einn í nóvember og tveir í desember. Þetta gerir þrjá al- hvíta daga í allan vetur. Stendur metið eða fellur? „Jú, þetta eru óvenjufáir dagar og hafa ekki verið jafnfáir þessa þrjá mánuði (nóv.-jan.) áður, næsta tala fyrir ofan er 5, það var sömu mánuði 1976 til 1977. En veturinn er langt í frá búinn. Að meðaltali eru 29 alhvítir dagar í febrúar til apríl í Reykjavík. Alhvítu dagarnir voru fæstir 1976 til 1977 – 10 alls allan veturinn. Við eig- um enn fræðilegan möguleika á að slá það met – en mér finnst samt fremur ólíklegt að það gerist,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið. „Árið 1976 var einn dagur alhvítur í desember, fjórir í janúar 1977, enginn í febrúar, enginn í mars, en svo 5 í apr- íl (lengi von á einum),“ bætir Trausti við. Mælingar á snjóhulu og snjódýpt hófust 25. janúar 1921 í Reykjavík, eða fyrir nær sléttri öld. Á tímabilinu hefur snjóhula nær allan tímann verið metin kl. 9 að morgni, segir Trausti í pistli á Moggablogginu. Nú er miðað við að tún Veðurstofunnar við Bú- staðaveg sé alhvítt að morgni. Vor og haust verður stundum alhvítt um stund yfir blánóttina – við missum af slíku, segir Trausti. „Að sjálfsögðu er það svo að athug- unar- og mæliraðir þessara veð- urþátta geta engan veginn talist galla- lausar. Gallarnir eru af ýmsu tagi, mælingarnar hafa verið fram- kvæmdar á mismunandi stöðum í bænum, við mismunandi mengunar- og traðkskilyrði auk þess sem reglur um mat á snjóhulu hafa ekki verið ná- kvæmlega þær sömu allan tímann – og eru þar að auki nægilega óljósar til þess að athugunarmenn eru ekki al- veg samstíga í matinu,“ segir Trausti. Hann segir að fyrst svo vitað sé hafi orðið alhvítt að hausti (eða síðsumars) þann 8. september. Það var árið 1926, reyndar varð bara hvítt í rót sem heit- ir. Síðast að vori varð alhvítt 16. maí, en flekkótt jörð var einu sinni talin 28. maí. Það er á tímabilinu 21. desember til 8. mars sem líklegra er að dagur sé al- hvítur en alauður í Reykjavík. Snjóléttasti veturinn í höfuðborginni  Aðeins hafa komið þrír alhvítir dagar í Reykjavík í vetur  Hafa ekki verið eins fáir síðan mæl- ingar hófust fyrir 100 árum  „Veturinn er langt í frá búinn,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Algeng sjón í vetur. Klambratúnið alautt og snjó hefur varla fest. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Algeng sjón í vetur. Fólk að moka bíla sína úr stórum sköflum. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almanna- varna í gær að hann hygðist senda heilbrigðisráðherra minnisblað um vægar tilslakanir á sóttvarnalögum öðrum hvorum megin við helgina. Hann tjáði sig þó ekki frekar um hvers eðlis tilslakanirnar yrðu. Í ljósi góðrar stöðu í faraldrinum hér á landi sagði Þórólfur að mesta ógnin stafaði af landamærunum; þar greindust flest virk smit í saman- burði við smittölur innanlands. Þá nefndi Þórólfur einnig hættuna af bresku afbrigði veirunnar, sem leik- ur nú margar nágrannaþjóðir okkar grátt, enda talið meira smitandi en hefðbundið afbrigði kórónuveiru. Engin leiðindi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn bað landsmenn um að sýna starfs- fólki verslana skilning hvað grímu- skyldu varðar. Hann segir grímu- notkun yfirleitt hafa gengið vel en benti þó á að tilkynningar hefðu bor- ist frá starfsfólki verslana um að því væri í einhverjum tilfellum sýnd mikil óvirðing og ókurteisi. Þá hafa borist tilkynningar um ofbeldi í garð starfsfólks. „Ekki vera þessi týpa sem er með leiðindi við starfsfólk í búðum. Not- um bara grímuna. Það skiptir mestu máli að við séum almennilegt fólk og komum vel fram hvert við annað. Kærleikur er það sem mun koma okkur áfram í þessu,“ sagði Víðir. Tillögur um tilslakanir til ráðherra Ljósmynd/Almannavarnir Sóttvarnir Þórólfur sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.  Von á 14 þúsund skömmtum frá AstraZeneca innan skamms og 74 þúsund fyrir mánaðamótin mars- apríl  Fer hægt í tilslakanir  Víðir minnir á að sýna starfsfólki verslana virðingu með grímunotkun Tilkynnt var í gær að bóluefni AstraZeneca/Oxford yrði ekki notað við bólusetningu 65 ára og eldri hér á landi. Er þar fetað í fótspor sumra Evrópuríkja. Í þessum mánuði er von á bóluefni AstraZeneca til landsins, sem á að duga til bólusetningar 7.000 manns. Það er þó ekki svo að sérstök hætta fylgi bóluefni AstraZeneca fyrir fólk á efri árum, heldur er hér um sér- staka varúð að ræða, sem mörg ríki telja óþarfa, enda hefur bóluefnið þegar verið notað á milljónir ellilífeyris- þega í Bretlandi án vandkvæða. Ástæða þessarar varúðar er að við prófanir á bóluefninu smituðust að- eins tveir 65 ára og eldri, sem eru góðar fréttir út af fyrir sig, en var talið til marks um að ekki hefðu nógu margir í þeim aldurshópi verið prófaðir í rannsókninni og því liggi nytsemi bóluefnisins ekki fyrir. Öryggi þess er hins vegar talið óyggjandi. Betri tölfræði ætti að liggja fyrir á næstu vik- um, svo ekki er ósennilegt að það verði gefið öldruðum hér síðar. Viðtekin varúð vegna 65 ára+ BÓLUEFNI ASTRAZENECA/OXFORD Alcoa Fjarðaál, AFL starfsgreina- félag og Rafiðnaðarsamband Ís- lands undirrituðu í gær nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir til þriggja ára og er afturvirkur um eitt ár. Í samningnum felast bæði launahækkanir og vinnutímastytt- ing, hvort tveggja í líkingu við það sem samið hefur verið um hjá hin- um tveimur álverunum á Íslandi. Þá er samningurinn einnig í sam- ræmi við lífskjarasamninginn. Tor Arne Berg, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, segir í fréttatilkynningu að hann sé ánægður með að samn- ingurinn sé í höfn og að hann feli í sér mikla kjarabót fyrir starfsfólk Fjarðaáls auk þess sem hann bæti jafnvægi milli vinnu og einkalífs sem er mikilvæg breyta fyrir fjöl- breyttan vinnustað. Berg segir einnig að þrátt fyrir að samninga- ferlið hafi verið langt, ekki síst vegna heimsfaraldursins, þá hafi samskipti við verkalýðsfélögin ver- ið góð og aðstoðin frá ríkissátta- semjara hafi hjálpað við að ná niðurstöðu. Nýr kjarasamningur afturvirkur í eitt ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.