Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Nýlega voru fréttir sagðar uppúr fréttatilkynningu Íslands- deildar Transparency Inter- national um árlega mælingu á spillingu undir fyrirsögninni „Staða Íslands versnar enn“. Í Viðskiptablaðinu í gær birtist fréttaskýring Andreu Sigurð- ardóttur um þetta, en af henni er ljóst að sú ályktun er röng, nánast fals.    Vísitalan er reiknuð upp úr ýms-um vísitölum öðrum, en Transparency International sjálft segir að munurinn milli ára sé ekki tölfræðilega marktækur og að fall Íslands niður listann stafi aðallega af framförum í öðrum löndum. Hin ógagnsæja Íslandsdeild, sem ekki svaraði fyrirspurnum blaðsins, kynnti það þó ekki þannig.    Merkilegast er þó að ástæðunafyrir lækkun vísitölu Íslands má einvörðungu rekja til einnar undirvísitölunnar, sem kemur frá Bertelsmann-stofnuninni, en þar hefur Ísland lækkað ört, ár frá ári síðan 2012, án þess þó að fyrir því séu færð rök.    Samkvæmt upplýsingum um að-ferðafræði [Bertelsmann] meta tveir íslenskir sérfræðingar spill- ingu Íslands til stiga, hvor um sig út frá eigin huglægu mati […] Ís- lensku sérfræðingarnir tveir sem hafa metið spillingu á Íslandi til stiga í áraraðir eru Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Ís- lands, og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akur- eyri.“    Það er sem sagt til þeirra fræða-þula, sem rekja má spill- inguna á Íslandi. Spilling spillingarinnar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra hefur lagt fram stjórnarfrum- varp um brottfall ýmissa úreltra laga. Lagabálkarnir eiga ekki lengur við vegna breyttra aðstæðna og hafa lokið hlutverki sínu, samkvæmt greinargerð með frumvarpinu. Tíu þeirra eru frá 1900-1949, tólf frá 1950-1999 og þrír frá 2000 og síðar. Lagt er til að fella úr gildi ellefu lög um bæjarstjórnir í jafnmörgum kaupstöðum. Eins gömul lög um tekjur sveitarfélaga. Þá er lagt til að fella úr gildi níu lög um kaupstaða- réttindi. Einnig á að fella úr gildi lög um sjálfvirkan síma, tvenn lög um jöfnunargjald vegna alþjónustu og lög um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands. Lög um kirkjustarf grisjuð Björn Leví Gunnarsson, þingmað- ur Pírata, og fleiri hafa aftur lagt fram frumvarp um brottfall og breytingu á ýmsum lögum og ákvæð- um um presta, trúfélög og lífsskoð- unarfélög. Alls eru lagabálkarnir 25 sem lagt er til að verði felldir brott og eru margir frá 18. og 19. öld. Ekki á það þó við um öll lögin því lagt er til að lög um Kristnisjóð o.fl. frá 1970, lög um sóknargjöld frá 1987 og lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóð- kirkjunnar frá 1997 falli einnig brott. Einn lagabálkur sker sig úr en Pí- ratarnir leggja til að lög um útrým- ingu sels í Húnaósi frá 1937 verði felld brott. Þá eru lagðar til breytingar á lög- um um meðferð sakamála þar sem forstöðumenn trúfélaga og lífsskoð- unarfélaga fá sömu stöðu og prestar. Í lögum um fullnustu refsinga verði bannað að hlera símtöl fanga við lög- mann, fulltrúa trúfélags eða lífsskoð- unarfélags, heilbrigðisstarfsfólk, op- inberar stofnanir eða umboðsmann Alþingis. gudni@mbl.is Tillögur um grisjun í lagasafninu  Stjórnarfrumvarp um brottfellingu laga  Píratar vilja grisja lög um kirkjumál Tveir hermenn eru með fasta við- veru á Íslandi. Annar er hermála- fulltrúi Bandaríkjanna og starfar í bandaríska sendiráðinu. Hinn er norskur tengiliður NATO og Noregs á Íslandi. Hann er með vinnuaðstöðu á öryggissvæðinu á Keflavíkur- flugvelli. Þetta kom fram í svari ut- anríkis- og þróunarsamvinnuráð- herra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni þingmanni. Ráðuneytið telur að föst viðvera herliðs hér á landi feli í sér fasta bú- setu sömu einstaklinga á árs- grundvelli eins og átti við um varn- arliðið sem var hér með fasta viðveru til ársins 2006. Dagleg viðvera yfir lengri tíma felur í sér tímabundna dvöl mismun- andi einstaklinga sem tengjast tíma- bundnum verkefnum, að mati ráðu- neytisins. Loftrýmisgæsla er algengasta dæmið um slík verkefni. Viðvera hennar vegna miðast yfir- leitt við 4-8 vikur í senn. Fámennur hópur getur dvalið lengur við kaf- bátaeftirlit eða í allt að sex mánuði sem er hámarksdvöl kafbátaeftirlits- sveita í Evrópu. Hermennirnir koma án fjölskyldna og dvelja í skamm- tímagistingu. „Samið var við Bandaríkin árin 2006, 2016 og 2017 og við Atlants- hafsbandalagið árið 2007 um upp- byggingu á öryggissvæðinu á Kefla- víkurflugvelli og stuðning við tímabundna viðveru erlends liðsafla hér á landi. Aðildarþjóðir Atlants- hafsbandalagsins eru nú þjálfaðar og útbúnar fyrir tímabundna við- veru enda mun ódýrari rekstur og umhverfisvænni en föst viðvera,“ segir í svarinu. Þar kemur líka fram að föst viðvera herliðs hér á landi hafi ekki komið til umræðu enda hafi ekki verið talin þörf á henni. Þingmaðurinn spurði einnig um viðveru erlends herliðs hér á ár- unum 2018-2020. Samkvæmt svarinu fór mest fyrir loftrýmis- gæslu NATO, kafbátaeftirliti, her- æfingum og undirbúningi þeirra á tímabilinu. gudni@mbl.is Tveir hermenn með fasta viðveru hér  Tímabundin við- vera vegna verkefna Ljósmynd/Ítalski flugherinn Loftrýmisgæsla Hennar vegna koma hópar hermanna tímabundið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.