Morgunblaðið - 05.02.2021, Page 14

Morgunblaðið - 05.02.2021, Page 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 22:47 FLÝTIVAL FYRIR KVÖLDMATINN SLÖKKT Á LEIKJATÖLVU KVEIKT Á BORÐSTOFULJÓSUM DYRUM LÆST Kvöldmatur kerfi virkt SAMSTARFSAÐILI Sérsniðið öryggiskerfi fyrir þitt heimili, enginn binditími. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bret- landi og Ástralíu kölluðu í gær eftir rannsókn á framferði Kínverja gagn- vart Úígúrum vegna fréttaskýringar breska ríkisútvarpsins BBC, þar sem því var haldið fram að konur sem tilheyrðu þjóðflokki Úígúra hefðu mátt sæta kerfisbundnum nauðgunum, kynferðisofbeldi og pyndingum í fangabúðum sem Kín- verjar sett á laggirnar í Xinjiang- héraði. Fréttaskýring BBC á miðvikudag- inn byggðist á frásögnum kvenna sem sendar höfðu verið í „endur- menntunarbúðir“ kínverskra stjórn- valda, og greindu þær frá upplifun sinni frá fyrstu hendi. Sagði ein þeirra að konur væru færðar frá fangaklefum sínum á hverri nóttu í hendur grímuklæddra karlmanna sem nauðguðu þeim. Þá var einnig rætt við fyrrverandi fangaverði í búðunum, sem sögðust geta staðfest frásagnir um pyndingar þar. Wang Weibin, talsmaður kín- verska utanríkisráðuneytisins, hafn- aði ásökununum sem birtust í frétta- skýringunni samdægurs og sakaði BBC um að fara með lygar og rang- færslur, auk þess sem viðmælendur fréttastofunnar væru „leikarar sem dreifðu röngum upplýsingum“. Ítreka afstöðu um þjóðarmorð Ónefnd talskona bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði hins vegar við Reuters-fréttastofuna að Banda- ríkjamenn „hryllti við“ frásögnum kvennanna um kerfisbundið kyn- ferðisofbeldi gegn úígúrskum kon- um og öðrum múslimum í Kína. Ítrekaði hún afstöðu Bandaríkja- stjórnar um að Kínverjar hefðu framið „glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð“ í Xinjiang-héraði. „Þessi voðaverk fylla samviskuna hryllingi og kalla á alvarlegar afleið- ingar,“ sagði hún við Reuters, en tók ekki fram hverjar þær afleiðingar gætu orðið. Kallaði hún jafnframt eftir því að Kínverjar leyfðu þegar í stað óháða rannsókn alþjóðlegra eftirlitsaðila á því hvort ásakanirnar um nauðganir væru réttar, auk annarra ásakana um voðaverk sem framin hefðu verið í Xinjiang-héraði. Mike Pompeo, utanríkisráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump, sakaði Kínverja um að hafa framið þjóðar- morð á Úígúrum, degi áður en Trump og Pompeo létu af embætti og Joe Biden tók við embætti Banda- ríkjaforseta. Kínverjar brugðust við með því að setja viðskiptaþvinganir á Pompeo og nokkra aðra háttsetta embættismenn í ríkisstjórn Trumps, og sökuðu Pompeo um að hafa reynt að „eitra brunninn“ fyrir Biden og samskiptum nýrrar ríkisstjórnar Bandaríkjanna við Kínverja. Biden gaf hins vegar fljótlega til kynna að ekki yrði um mikla stefnu- breytingu að ræða gagnvart Kín- verjum og að áfram yrði þrýst á þá um að skipta um stefnu í ýmsum mannréttindamálum, þar á meðal hvað varðaði meðferð Kínverja á Úígúrum. Rannsókn hefjist þegar í stað Marise Payne, utanríkisráðherra Ástralíu, tók undir kröfu Banda- ríkjamanna um rannsókn á málinu í gær og sagði að veita þyrfti Samein- uðu þjóðunum tafarlausan og óhindraðan aðgang að Xinjiang-hér- aði til þess að komast að hinu sanna. Umræður spunnust í neðri deild breska þingsins í gær um málið eftir fyrirspurn Nus Ghani, þingmanns Íhaldsflokksins, til Nigels Adams, undirutanríkisráðherra Bretlands í málefnum Asíuríkja, þar sem hún spurði hvort breska ríkisstjórnin myndi lofa því að „dýpka ekki“ tengsl sín við Kína á nokkurn hátt fyrr en dómstólar hefðu fjallað um þessi mál. Sagði Adams í svari sínu að í fréttaskýringunni hefði verið greint frá „augljósum illvirkjum“ sem hlytu að valda öllum sem á horfðu hugar- angri. Adams bætti við að Bretar væru í fararbroddi þeirra ríkja til að draga Kínverja til ábyrgðar fyrir meðferðina á Úígúrum, og að Bretar myndu áfram vinna með ríkjum Evr- ópu og Bandaríkjunum til þess að beita Kínverja þrýstingi vegna með- ferðar sinnar á Úígúrum. Neita öllum ásökunum Kínverjar settu fangabúðir sínar á laggirnar árið 2014 eftir að aðskiln- aðarsinnar úr röðum Úígúra höfðu staðið að röð hryðjuverka í héraðinu. Segja þeir búðirnar vera einungis hugsaðar til „endurmenntunar“ og starfsþjálfunar, sem m.a. komi í veg fyrir að íslamismi festi rætur meðal þjóðflokksins, sem játar íslam. Áætlað hefur verið að meira en ein milljón Úígúra og annarra minni- hlutahópa hafi verið færð til slíkra búða, en Kínverjar hafa m.a. verið sakaðir um að hafa gert fanga ófrjóa og stundað fóstureyðingar gegn vilja þeirra. AFP Fangabúðir Kínverjar segja búðirnar einungis vera til „endurmenntunar“ og starfsþjálfunar fyrir Úígúra. Kalla eftir rannsókn  Bandaríkin, Bretland og Ástralía lýsa yfir áhyggjum vegna frásagnar BBC af kerfisbundnu kynferðisofbeldi gegn Úígúrum  Kínverjar saka BBC um lygar Herforingjastjórnin í Búrma, sem einnig er þekkt sem Mjanmar, skip- aði í gær fyrir um að netveitur lands- ins yrðu að loka á Facebook-aðgangi landsmanna, en samfélagsmiðlinum hefur verið lýst sem nokkurs konar „kaffistofu“ landsins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsti í gær yfir „þungum áhyggjum“ sínum vegna valdaránsins á mánudaginn, en for- dæmdi það ekki beinum orðum. Ákvörðunin um að loka Facebook var tekin eftir að andstæðingar valda- ránsins höfðu notað síðuna til þess að samhæfa andófsaðgerðir gegn valda- ráninu, en hermenn hafa gætt þess vandlega að ekki sé efnt til fjöldamót- mæla gegn herforingjastjórninni á götum helstu borga. Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í fyrrinótt að hann hygðist þrýsta á herforingjana að hætta við valdarán sitt. „Við munum gera allt sem í valdi okkar stendur til að fá alla lykil- leikendur og alþjóðasamfélagið til að beita Mjanmar nægum þrýstingi til að tryggja að valdaránið misheppn- ist,“ sagði Guterres í samtali við bandaríska dagblaðið Washington Post. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði fyrst á þriðjudaginn um mál- ið, en Bretar, sem nú fara með forsæti í ráðinu, höfðu lagt fram tillögu þar sem valdaránið var fordæmt. Ekki fékkst hins vegar niðurstaða í ráðinu þann daginn, þar sem Rússar og Kín- verjar báðu um meiri tíma til þess að „fínpússa“ orðalag ályktunarinnar. Eru allir aðilar hvattir í endanlegri ályktun til að taka upp viðræður um framtíð Búrma, og að þeim sem tekn- ir hafa verið til fanga vegna þess verði sleppt úr haldi, þar á meðal Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarflokksins NLD. Lokað á Face- book í Búrma  Öryggisráðið lýsir yfir þungum áhyggjum AFP Búrma Lokað hefur verið á Facebook vegna andófs gegn valdaráninu. Svíar tilkynntu í gær að þeir hygð- ust þróa rafræn vottorð um bólu- setningu gegn kórónuveirunni, sem gætu veitt leyfi til ferðalaga. Til- kynning Svía kom degi eftir að dönsk stjórnvöld höfðu ákveðið hið sama, en bæði ríki hafa gefið í skyn að vottorðin gætu einnig nýst til þess að kanna hvort einstaklingur væri bólusettur ef sá vildi sækja menningar- eða íþróttaviðburð. Danska ríkisstjórnin hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort „kórónuvegabréfin“ yrðu nýtt í öðrum tilgangi en til ferðalaga, en í yfirlýsingu Dana segir að tilgang- urinn með þeim sé að tryggja jafna og örugga „enduropnun“ eftir far- aldurinn. DANMÖRK OG SVÍÞJÓÐ AFP Bóluefni Danir og Svíar íhuga að taka upp „bólusetningarpassa“. Skoða rafræna „bóluefnapassa“ Joe Biden Bandaríkja- forseti hefur ákveðið að hætta við fyrirhugaðan heimflutning 12.000 hermanna frá Þýskalandi, en Donald Trump, fyrir- rennari hans, hafði skipað fyrir um að slíkt yrði gert. Sagði Jake Sullivan, þjóðarör- yggisráðgjafi Bidens, að engar frekari ákvarðanir yrðu teknar um heimflutning hermanna frá Þýska- landi fyrr en Bandaríkjaher hefði lokið greiningu á hvernig best væri að ráðstafa herafla sínum. Þá vildi Biden bæta samskiptin við banda- menn Bandaríkjanna. BANDARÍKIN Hættir við að kalla hermenn heim Joe Biden

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.