Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 Framkvæmdir Unnið er að byggingu nýs Marriott-hótels á svokölluðum Hörpureit í miðbæ Reykjavíkur. Það verk er ekki fyrir lofthrædda að vinna eins og ljósmyndari Morgunblaðsins komst að. Eggert Þegar Alexei Navalní, kunn- asti stjórnarandstæðingur Rússa, var að ná sér í Þýska- landi, eftir að Alexander Pútín Rússlandsforseti reyndi að láta drepa hann með eitri, fór hann til Dresden við gerð myndbands um Pútín, valda- og eignagræðgi hans. Í myndbandinu er rifjað upp að Pútín var KGB-foringi í Dresden þegar Berlínarmúrinn hrundi. Þar varð hann vitni að afleiðingum þess fyrir einræðisstjórn að hún spornaði ekki af hörku við mótmælaaðgerð- um. Minningar um það hljóta að sækja að Rússlandsforseta nú þegar hann sigar lög- reglunni hvað eftir annað á friðsama borgara sem vilja að stjórnkerfi Pútíns virði borg- araleg réttindi og gæti hags almennings en þjóni ekki aðeins hagsmunum þeirra sem sópa til sín fé og eignum í krafti valds og að- stöðu. Fyrst reyndi Pútín að láta drepa Navalní (44 ára) með gömlu sovésku efnavopni. Síðan reyndi hann að losa sig við hann með því að leyfa þýskum hjálparsamtökum að fljúga með hann til Berlínar frá Omsk í Síberíu undir lok ágúst. Þýskir læknar björguðu lífi Navalnís sem sneri heim til Moskvu frá Berlín 17. jan- úar 2021. Hann var handtekinn á flugvell- inum fyrir að hafa ekki komið til skráningar á skilorðsskrifstofu á réttum tíma þótt hann væri undir læknishendi í Berlín. Navalní var loks dæmdur 2. febrúar 2021 til tveggja og hálfs ár fangelsisvistar fyrir brot á skilorði. Myndband Navalnís, Höll Pútíns, sem meira en 100 milljón sinnum hefur verið skoðað á YouTube, sýnir risahöll og glæsi- aðstöðu á skaga við Svartahaf. Navalní segir að þar megi sjá minnisvarða um spillinguna sem einkenni stjórnarhætti Pútíns. Forsetinn segir höllina ekki sína eign. Laugardaginn 30. janúar sagðist rússneskur auðmaður, Arkadíj Rotenberg, byggingarverktaki og æskuvinur Pútíns, eiga öll mannvirkin sem sýnd eru á myndbandinu. Rotenberg hefur í fimm ár verið á refsilista Vest- urlanda vegna skuggalegra um- svifa í þágu Pútíns. Í varnarræðu við réttarhöldin 2. febrúar 2021 sagði Navalní: „Skýringin [á réttarhöldunum] er hatur og ótti eins manns – eins manns sem felur sig í byrgi. Ég móðgaði hann ákaflega með því að halda lífi. Ég hélt lífi, þökk sé góðu fólki, flugmönnum og læknum. Og síðan bætti ég gráu ofan á svart með því að hlaupa ekki í felur. Loks gerðist það sem er sannarlega hrollvekjandi: ég tók þátt í rannsókn á eitur- árás á sjálfan mig og okkur tókst að sanna að í raun bar Pútín ábyrgð á þessari morðtilraun með því að nota rússnesku öryggislögregluna [FSB]. Og þess vegna er þjófótta smámennið í byrginu að verða viti sínu fjær. Vegna þessa er hann einfaldlega að ganga af göflunum.“ Fjöldamótmælin Myndbandið magnaða og hvatningar Navalnís leiddu til mótmæla um allt Rússland sunnudaginn 24. janúar. Öryggislögregla handtók um fjögur þúsund manns og myndir birtust af hörkulegri framgöngu hennar. Þegar dró að sunnudeginum 31. janúar birti Navalní bréf á vefsíðu sinni og sagði: „Drífið ykkur út, ekkert er að óttast. Enginn vill búa í landi harðstjórnar og spillingar. Meirihlutinn stendur með okkur.“ Tugþús- undir manna urðu við áskorun Navalnís og drifu sig út til mótmæla sunnudaginn 31. jan- úar. Lögreglan handtók þá rúmlega 5.000 manns og sýndi meiri hörku en áður. Vegna réttarhaldanna 2. febrúar var fjöl- mennt öryggislið á götum Moskvu og vega- tálmar voru víða um borgina. Fólki var haldið sem lengst frá dómhúsinu. Um 1.400 voru handteknir víðs vegar um landið, þar af 1.000 í Moskvu. Allt sýnir þetta að Pútín ætlar ekki að brenna sig á því sama og gerðist í Austur- Þýskalandi sumarið og haustið 1989 þegar lögregluríkið hrundi allt í einu innan frá vegna máttleysis yfirvaldanna og skorts á stuðningi frá Moskvu. Pútín hefur oftar en einu sinni harmað þá atburðarás alla. Mótmæli menntamanna Vegna mótmælanna og hörku lögreglunnar í tilefni af handtöku Navalnís tóku vísinda- og fræðimenn innan og utan Rússlands höndum saman og birtu opið bréf í byrjun þessarar viku. Þar er mótmælt beitingu efnavopna gegn Navalní og þar með broti gegn alþjóðalögum. Litið er á hörkuna gegn Navalní sem dæmi um hnignandi réttaröryggi rússneskra borg- ara, yfirvöld rannsaki hvorki mál né upplýsi, loki menn inni eða drepi, banni opinberar umræður og beiti valdi í stað viðræðna til þess að treysta sig í sessi með almennum stuðningi. Þetta valdi einungis meiri spennu í þjóðfélaginu og kunni auðveldlega að leiða til „þjóðaruppreisnar“. Hætta verði refsiaðgerð- um gegn friðsömum mótmælendum. Minnt er á nauðsyn alþjóðlegrar samstöðu til að sigrast á Covid-19-farsóttinni. Innan Rússlands hafi mistekist að sameina fræði- og vísindamenn og almenning gegn farsótt- inni. Þjóðinni hafi þar með ekki nýst mikil- væg leið til að draga úr alþjóðaspennu með samvinnu gegn veirunni. Þess í stað megi greina viðleitni stjórnvalda til að virkja al- menna borgara til átaka við sameiginlegan ytri óvin. Þetta hafi alvarleg áhrif á fræði- og vísindastörf sem ekki sé unnt að stunda á ár- angursríkan hátt í einangrun. Rússland megi sín einskis án vísinda. Menntamennirnir vitna í lokin til orða frægasta sovéska andófsmannsins, mannvin- arins, vísindamannsins og Nóbelsverðlauna- hafans Andreis Sakharovs, sem sagði: „Frið- ur, framfarir, mannréttindi – þessi þrjú markmið eru órjúfanlega tengd: Það er ekki unnt að ná einu þeirra séu hin tvö höfð að engu.“ Þetta verði rússnesk yfirvöld að hafa að leiðarljósi. Minsk og Moskva Í nágrannaríkjunum Hvíta-Rússlandi og Rússlandi takast einræðisherrar á við borg- ara landa sinna. Alexander Lúkasjenkó var kjörinn forseti Hvíta-Rússlands 9. ágúst 2020. Síðan hafa mótmælendur farið út á stræti og torg og sakað forsetann um kosningasvindl. Stig af stigi hefur forsetinn hert gagn- aðgerðir lögreglu með aðstoð frá Vladimir Pútín sem lét eins og hann hefði framtíð Lúk- asjenkós í hendi sér. Nú glíma einræðisherr- arnir í Minsk og Moskvu við svipaðan vanda á heimavelli. Þótt upptökin séu ólík er hvat- inn sá sami. Fólk sættir sig ekki við stjórnar- hætti valdhafa sem treysta á efnavopn, pynt- ingar og skipulega aðför að mannréttindum til að halda völdum. Réttarhöldunum yfir Navalní er líkt við sýndarréttarhöldin í Moskvu á fjórða ára- tugnum þegar Jósep Stalín útrýmdi andstæð- ingum sínum. Munurinn er þó sá að áróðurs- vélin í þágu einræðisherrans er veikari nú en þá, þar á meðal utan Rússlands. Meira að segja hér á landi heyrast þó hjáróma raddir um að Navalní sé loddari en ekki hugaður og snjall baráttu- og áróðursmaður sem hættir eigin lífi á þágu málstaðarins. Fráleitt er að líkja mótmælum í tveimur síðustu einræðisríkjum Evrópu við það sem gerist í réttar- og lýðræðisríkjum þegar þjóð- félagsspenna myndast. Þar treysta menn því að grunngildi séu virt og velja sér nýja for- ystu á lýðræðislegan hátt. Eftir Björn Bjarnason » Fólk sættir sig ekki við stjórnarhætti valdhafa sem treysta á efnavopn, pyntingar og skipulega aðför að mann- réttindum. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Navalní ógnar og hræðir Pútín

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.