Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 ✝ Guðni PéturGuðnason var fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1989. Hann lést af slysför- um á gjörgæslu- deild Landspítalans 21. janúar 2021. Foreldrar hans eru Guðni Heiðar Guðnason, f. 30. jan- úar 1963, og Sigrún Drífa Annieardótt- ir, f. 19. febrúar 1961. Bræður hans eru Edgar Smári (sam- mæðra), f. 11. desember 1981, og Bjarki Enok, f. 3. september 1995. Guðni Pétur var ókvæntur og barnlaus. Hann stundaði nám á listabraut Borgarholtsskóla og nam húsgagnasmíði við Tækniskólann. Hann vann ýmis störf, en síðustu ár- in sem stuðnings- fulltrúi hjá Reykja- víkurborg, á heimili fyrir karlmenn með geðraskanir. Útförin fer fram frá Grafarvogs- kirkju 5. febrúar 2021 klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu og fjöldatakmarkana verða að- eins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://youtu.be/SwN9JcNNnFY Einnig má nálgast hlekk á: https://www.mbl.is/andlat Við gengum upp tröppurnar að heimili okkar í Grafarvoginum, ég staldraði við á stigapallinum, horfði á hrímhvíta Esjuna og fann nístandi kuldann bíta í kinnar mínar. Hann var betri þessi kuldi en sá sem nísti sál mína. Aldrei yrði neitt eins og áður, Pétur okk- ar, eða Buddi, eins og hann hafði kennt litla bróður að kalla sig þeg- ar sá litli átti erfitt með að segja Pétur, hann hafði verið tekinn frá okkur. Pétur ólst upp í Grafarvogin- um, gekk í Engjaskóla, Borga- skóla, svo í Borgarholtsskóla þar sem hann var á listabraut. Hann var afar listrænn, teiknaði mikið, hafði yndi af leiklist og eftirherm- um og lék sér með orð og setn- ingar. Setningarnar voru oft tengdar djúpum pælingum hans um lífið og tilveruna og leit hans að sátt eftir að hann hafði misst einn besta vin sinn sem féll fyrir eigin hendi 2015. Spurningarnar voru svo margar, hver var til- gangurinn, hvers vegna þessi harmur? Um tíma var eins og harmurinn myndi buga hann en hann var ákveðinn, frið skyldi hann finna. Hann sökkti sér í alls konar fróðleik er varðaði mann- lega hegðun og hugsun, enda fróð- leiksfús með afbrigðum og því sem hann einu sinni las eða horfði á, gleymdi hann ekki. Enda var hann eins og alfræðiorðabók, maður bara spurði Pétur og hann vissi svarið. „Hvernig veistu þetta?“ „veit það ekki,“ var stund- um svarið og hann brosti sínu undurfallega brosi sem náði svo fallega til fjörlegra augnanna sem ávallt lýstu af ástúð og mann- gæsku. Hann elskaði fólkið sitt, vini sína og var ófeiminn við að tala mál kærleikans, lagði natni við samskiptin, vildi innihaldrík samskipti, augnsamband og var ekki síðri hlustari en ráðgjafi. Svo var það leiftrandi húmorinn og kaldhæðnin sem oft beindist að rétttrúnaði ýmiss konar. Þoldi ekki yfirborðsmennsku, lærða hegðun eða óverðskuldað lof, vildi koma til dyranna eins og hann var klæddur og ætlaðist til hins sama af öðrum. Sárnaði ef fólk sagði eitt og gerði annað, hreinn og beinn, ekkert kjaftæði, æðrulaus. Vildi öllum vel og elskaði bæði fólk og dýr, enda naut litli hundurinn hans, Nói, takmarkalausar ástúð- ar og natni. Pétur elskaði útivist, þó svo að hann gæti líka setið við tölvuna tímunum saman og horft á kvikmyndir, oft og tíðum list- rænar og tormeltar en hasarinn átti líka upp á pallborðið, sérstak- lega Sci-fi-myndir. Í því samhengi kom safnarinn Pétur vel í ljós en í fórum sínum átti hann ýmislegt sem tengdist því sem hann hafði áhuga á. Náttúran skapaði sinn sess og sem barn var hann óþreyt- andi við að kanna allt mögulegt sem henni tengdist og var fjaran á milli Gorvíkur og Geldinganess í miklu uppáhaldi sem og sveitin hjá afa og ömmu í Fljótshlíðinni. Sem snáði dró hann endalaust með sér heim steina og annað sem tengdist ferðum hans um náttúr- una, svo mikið að stundum fannst foreldrum hans að nú væri nóg komið, allir þessir hlutir hafa í dag öðlast nýja merkingu og tilgang. Hugmyndafluginu, tilgangi hluta og notagildi virtust engin tak- mörk sett, allt lék í höndum þús- undþjalasmiðsins og skipti þá ekki máli hvort hann var með hamar í hönd eða stóð í elda- mennsku. Pétur hjólaði allt sem hann fór en eftir að hafa kynnst því að eiga bíl valdi hann bíllausan lífsstíl, fannst bílar leiðinlegir og bara til trafala og til þess fallnir að heimta endalaus fjárútlát. Hjólaði allt og skipti hann engu máli hver árstíð- in var eða hvernig viðraði. Guðni Pétur hafði þurft að kljást við lífið eins og svo margur annar og leitaði svara við tilgangi og tilvist. Eftir að hafa þvælst um heiminn, verið í skóla í Kanada, hitt alls konar fólk í Bandaríkj- unum, unnið í Noregi og búið um tíma í Danmörku, þá var eins og starfið á heimilinu á Flókagötunni hefði gefið honum ákveðna ró og festu. Það var eins og hann hefði náð sátt við lífið og tilveruna og horfði hann til þess að ljúka námi og jafnvel mátti sjá glitta í löngun til þess að stofna fjölskyldu. Það er erfitt að stöðva flæði minninganna, enda verður það þannig að þótt skrif þeirra verði ekki lengri núna, þá er svo margs að minnast. Í þakklæti kveðjum við elskaðan, kærleiksríkan og yndislegan son með kveðjunni sem honum var svo töm, „Góða nótt, Guð geymi þig, ég elska þig.“ Sjáumst hjá Jesú, Buddinn minn, þín pabbi og mamma. Elsku besti stóri bróðir minn og vinur. Orð geta ekki lýst því hvað ég sakna þín. Þú varst svo frábær og góður stóri bróðir sem passaði alltaf upp á litla brósa sinn þó hann væri kannski orðinn alltof gamall fyrir það. Þú kenndir mér svo margt og eiginlega bara allt sem ég kann í dag og ég vildi óska þess að þú gætir kennt mér og sagt mér fleira því þú veist svo margt. Eins og hvernig maður eldar hið fullkomna „chili con carne“ sem þú eldaðir svo oft fyrir okkur tvo þegar við vorum einir heima og svo margt annað því þú varst svo sannarlega eðalkokkur. En ég man samt enn þá nokkrar uppskriftir frá þér, eins og til dæmis „Doritos chili“-samlokuna sem þú sýndir mér þegar við vor- um pollar. Ég leit svo upp til þín, Pétur, og ég þráði það svo að geta orðið jafn mikill snillingur og þú. Þú sem gast lagað eða bætt allt á milli himins og jarðar, en þá sérstak- lega flottu heyrnartólin þín sem þér fannst svo gaman að eiga og safna, áttir meiri segja auka gesta-„headphones“ ef einhvern skyldi vanta. Svo varstu svo mikill skemmtikraftur, gleymi aldrei öll- um eftirhermunum sem þú tókst við vel valin tækifæri og við gátum hlegið svo mikið að. Það var aldrei leiðinleg stund með þér, elsku bróðir minn, jafnvel þó við værum ekki að gera neitt. Það var bara eitthvað við það að vera í þinni nærveru sem var svo gott og ég veit að það hefur kannski stund- um verið pirrandi að hafa litla bróður sinn hangandi á öxlinni á sér allan liðlangan daginn. Ég mun aldrei gleyma þér og öllum minningunum sem við átt- um saman, elsku Buddi minn, og ég veit að við munum sjá hvor annan aftur einn daginn. Þar til næst, elsku Pési minn, Guð geymi þig og ég elska þig. Þinn bróðir, Bjarki Enok. Lífið er hverfult og veruleikinn verður stundum of kaldranalegur til að vera bærilegur. Það voru vondar fréttir sem okkur bárust til eyrna að Pési, Guðni Pétur Guðnason vinur okkar, frændi og kærleiksbolti, hefði drukknað í Sundhöll Reykjavíkur. Við höfum þekkt hann frá því hann fæddist og ferðast með honum og fjöl- skyldunni hans árum saman út um allar koppagrundir, innan- lands sem erlendis. Hann stóð varla út úr hnefa þegar við sáum að í honum bjó náttúrubarn. Minningar um lítinn dreng skoppandi um í ferðunum okkar með nefið ofan í jörðu að leita að einhverju spennandi, steinum, skeljum eða skordýrum eru ljóslifandi sem og minningar um ungling, glettinn og stríðinn en þó ekki meinfýsinn því hann vildi öllum vel, sem sjá má á vali hans á vinnu eftir að hann full- orðnaðist en hann vann við umönnun geðfatlaðra, þeim var hann sem vinur, ekki bara um- sjónaraðili. Það er sárt að horfa á eftir slík- um gæðadreng fara svona allt of snemma, lífið var fram undan með öllum sínum ævintýrum og tæki- færum sem ætluð voru honum. Nú eigum við bara góðar minn- ingar um góðan dreng, þær eru allt í einu dýrmætur fjársjóður sem gott er að dvelja við. Við vottum allri fjölskyldunni, vinum og ættingjum okkar dýpstu samúð og biðjum Guð um að gera ykkur lífið bærilegt fram undan. Pési minn, hafðu miklar þakkir fyrir allt og allt. Erling og Erla. „Ungt fólk á ekki að verða minning“ eru orð sem hafa verið mér mjög ofarlega í huga síð- ustu tvær vikur eða allt frá því að ég heyrði af því að elsku Guðni Pétur frændi minn væri farinn frá okkur. Hvernig á maður bara að setjast niður og skrifa minningargrein sem er svona ótímabær? Þegar ég horfi til baka á ég óteljandi minningar um Pésa. Allt frá því að við vorum lítil krakkaskott að leika okkur í Reyrenginu, útlandaferðirnar og svo allar útilegurnar sem við fórum í fram á unglingsárin. Ég man sérstaklega eftir því þegar við vorum lítil hvað Pésa fannst ósanngjarnt hvað ég var miklu hærri en hann, en verandi næst- um því árinu eldri var það kannski ekkert skrýtið á þeim tíma. Að mörgu leyti var Pési svo- lítið eins og bróðirinn sem ég átti aldrei og var góður í því hlutverki. Hann lét sig hafa það að leika hund í leik sem mér datt í hug á Mallorca þegar við vor- um átta ára, þar sem við hlupum um allt, þóttumst heita Týri og Tinna og leituðum að margfætl- um sem var ótrúlega forvitni- legt að sjá hringa sig og verða að litlum kúlum. Við vorum ekkert lítið montin af okkur nokkrum árum seinna þegar við unnum sandkastala- keppni á Spáni eitt skipti, þar sem við ákváðum að stytta okk- ur leið og skella sandi utan á stóran stein á ströndinni og skreyta, ekki vitandi að dómar- arnir héldu að við værum að líkja eftir kastalanum í Guada- lest og lýstu okkur sigurvegara í keppninni. Eitt sem einkenndi Pésa var mikill húmor og útsjónarsemi, ég gleymi ekki strax í æsku þeg- ar hann var farinn að byggja hvaðeina úr legokubbum og reyndi að útskýra fyrir mér hvernig allt virkaði með mótor- um og hinu og þessu sem ég hafði engan skilning á. Hann var mikið náttúrubarn og ævintýra- gjarn, sem skilaði mér svo dýr- mætum og skemmtilegum minningum af allskyns prakk- arastrikum sem mér hefði lík- lega seint dottið í hug. Eins og til dæmis það að reyna að komast alveg inn að Skógafossi, nánast undir foss- inn, þar sem við vorum sann- færð um að væri hellir með fjár- sjóði sem við ætluðum okkur að finna. Eins og gerist stundum misstum við aðeins sambandið þegar unglingsárunum lauk og fullorðinsárin tóku við. En það er ég sannfærð um að hann vissi nákvæmlega hvað mér þótti vænt um hann. Það var alltaf gaman að hitta hann og spjalla. Hann mátti ekkert aumt vita og var svo góð manneskja. Yfirleitt í einhverjum ævintýrum, á leið til Noregs að vinna eða með eitt- hvað spennandi í pípunum. Elsku Pési, takk fyrir allar minningarnar sem þú gafst okk- ur í kringum þig. Heimurinn er sannarlega miklu fátækari eftir að þú fórst og skarðið sem þú skildir eftir verður aldrei fyllt. Ég skal viðurkenna það núna, þú ert löngu orðinn hærri en ég. Bæði líkamlega og sem persóna, þessi góði maður sem þú varst. Ég hlakka til að hitta þig hinu- megin, þá klárum við allt sem var eftir. Þangað til þá, takk fyr- ir allt. Hrefna Hrund Erlingsdóttir. Elsku yndislegi frændi okkar hann Guðni Pétur er látinn og það langt fyrir aldur fram. Það er sárara en tárum taki hvernig dauða hans bar að og ekki hægt að réttlæta á neinn hátt. Pési - eins og hann var oft kallaður - var hjá okkur á Varmalandi ein- hver sumur ásamt fleiri frænd- um og yngri drengjunum okkar. Alltaf var glatt á hjalla í frænd- systkinahópnum, mikið hlegið og mikið leikið. Pési var mikill náttúruunnandi, svo mikill að frænku þótti stundum nóg um, alla vega þegar hann vildi fá að koma með köngulær eða önnur agnarsmá gæludýr inn í hús, að vísu í krukku, en það passaði ekki vel þar sem frænka var frekar hrædd við þessi „óarga- dýr“ og reyndi að leiða drengn- um það fyrir sjónir að þau hefðu það mun betra utandyra. En þá var bara fundið upp á einhverju öðru og þar kom skógurinn sterkt inn enda uppspretta ótal ævintýra. Eins var hægt að fara í sundlaugina sem var óspart notuð - og nú grætur hjarta mitt. Svo liðu árin og börnin stækk- uðu og áhugamálin breyttust en náttúran heillaði alltaf. Elsku besti Pési, okkur finnst óendan- lega sárt að þú sért farinn, við munum aldrei gleyma þér og okkur þykir óendanlega vænt um þig. Hver fögur dyggð í fari manns er fyrst af rótum kærleikans. Af kærleik sprottin auðmýkt er, við aðra vægð og góðvild hver og friðsemd hrein og hógvært geð og hjartaprýði stilling með. (Helgi Hálfdanarson) Elsku Heiðar bróðir minn og Sigrún okkar, Edgar og fjöl- skylda, Bjarki og nánustu vinir Pésa. Skarðið er stórt, sorgin er mikil, en minning um yndislegan dreng mun alltaf lifa. Elskum ykkur, Guð geymi ykkur. Rebekka, Ásgeir og börn. Mig langar að minnast míns kæra bróðursonar, Guðna Pét- urs Guðnasonar, með nokkrum fátæklegum orðum. Síðast hitti ég hann glaðan og brosandi eins og ég ávallt minnist hans í nóv- ember á síðasta ári. Þá var hann að hjálpa pabba sínum í sumar- landinu í kerlingarima. Þar var/ er fjölskyldan þeirra að byggja sér unaðsreit í faðmi sunn- lenskra fjalla. Það var auðséð á honum hvað hann var sáttur og líkaði vel að vera með pabba sín- um á gamla verkstæðinu hans afa Guðna. Bros lék um andlitið sem náði djúpt inn í augun sem sýndu svo mikinn kærleika. Ég man hvað mér fannst hún sér- stök og yndisleg þessi sterka til- finning um heila, sterka, kær- leiksríka persónu. Nú þegar við þurfum að horfa á bak honum kemur mikill sökn- uður upp í hugann en um leið þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og vera samtíða honum á lífsgöngunni en þó í allt of stuttan tíma. Vitna hér í ljóð Sigurbjörns Þorkelssonar: Ekkert fær hrifið þig úr frelsarans fangi sem foreldrar þínir forðum af einskærri ást færðu þig í. Þú varst nefndur með nafni og nafnið þitt var letrað í lífsins bók með frelsarans hendi. Himnesku letri sem ekki fæst afmáð og ekkert strokleður fær þurrkað út. Þér var heitin eilíf samfylgd í skjóli skaparans. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Heiðar, Sigrún, Bjarki, Edgar og fjölskylda. Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur með stóru faðmlagi. Megi góð- ur Guð umvefja ykkur í þessari miklu og erfiðu sorg. Már og Anna. Það er frekar erfitt fyrir mig að skrifa minningarorð um vin minn Pétur því það er af svo mörgu að taka, hvar á ég hrein- lega að byrja eftir svo langa vin- áttu! Þetta er mér allt frekar skrýtið að vera í þessari stöðu. Frá því að vera ungir krakkar og þroskast í unga menn. Það var alltaf mjög þægilegt að vera í kringum Pétur, hann hafði hlýja og góða nærveru. Það var oft þægilegt að koma heim til hans þrátt fyrir að lítið væri sagt; að hlusta á hann skrifa á lyklaborðið eða dunda sér við að laga hluti, Pétur var nefnilega mjög handlaginn og gaf gömlum hlutum oft nýjan tilgang. Hann gat safnað að sér alls kyns dóti og drasli en fann alltaf notagildi fyrir hlutina sem aðrir hefðu jafnvel hent. Hann gat því verið mikið einn með sjálfum sér að laga og fannst það fínt. Pétur gaf mikið af sér, hvort sem það var að veita vinum sín- um ráðleggingu eða í starfi sínu að aðstoða veikt fólk. Þegar Pétur gaf ráð gaf hann sér tíma í að hlusta og kom svo með orð sem dæmdu aldrei heldur létu mann hugsa, en þannig orð lét hann falla að maður fattaði svarið sjálfur. Hann var eins og sálfræðing- ur af náttúrunnar hendi. Pétur var ævintýramaður mikill, þótti oft gaman að bregða sér í hlut- verk þegar hann var að segja frá eða jafnvel skamma vini sína en yfirleitt var það í gríni gert, Pétur var nefnilega með skemmtilegan húmor sem kannski ekki allir föttuðu nema hans nánustu. Hann var mjög hreinskilin persóna og sagði hvað honum fannst. Honum leiddist óheiðarlegt fólk. Fólk sem var falskt. Pétur hafði sterkar skoðanir á mismunandi sviðum og lét sér ekkert segjast væri hann ákveðinn, það gat því oft verið erfitt að draga hann út væri hann ekki til í það. Þó gat hann verið uppátækjasamur, sér- staklega á sínum yngri árum, eins og þegar við fórum skyndi- lega til Akureyrar, eða að finna hinar og þessar náttúrulaugar á Suðurlandi, farið út að hjóla, jafnvel ganga eða farið upp á fjöll. Mér fannst Pétur alltaf ganga undir mörgum nöfnum, Oft heyrði ég Guðni, Pési, Duni, Guðni Pétur … en hann var allt- af Pétur fyrir mér. Virkilega elskuleg mannvera og sérstak- ur í alla staði. Ævintýri mín með Pétri verða mér alltaf ógleymanleg, það að hann sé fallinn frá er mér mikil þyngsli, hann hafði svo miklu meira að segja og fullt meira að gera. Hann átti eftir að kenna mér svo mikið og deila með mér nýjum hlutum, ég get ekki hugsað annað en enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hvað heimurinn er fá- tækari í dag. Blessuð sé minn- ing Péturs vinar/bróður míns. Aron Hólm Söebeck. Guðni Pétur Guðnason Einlægar þakkir til ykkar sem gátu verið við kveðjustund og útför elskulegs bróður okkar og frænda, GUNNARS B. KRISTJÁNSSONAR frá Bugðustöðum í Hörðudal, Dalabyggð, laugardaginn 23. janúar. Þökkum einnig öllu því góða fólki sem veitti aðstoð sína og þeim er sendu hlýjar kveðjur. Góður Guð veri með okkur öllum. Erla Guðrún, Kristín Inga, Ásdís Erna og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRA STEFÁNSDÓTTIR bókasafnsfræðingur, Breiðuvík 41, lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. janúar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 8. febrúar klukkan 13. Stefán Gíslason Anna Þóra Gísladóttir Örn Arnarson Hannes Orri Arnarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.