Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 26
✝ Kristjana Heið-berg Guðmundsdóttir fæddist 20. janúar 1932 á Siglufirði. Hún lést 29. janúar 2021 á Hrafnistu við Sléttuveg. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, f. 6.4. 1905, d. 9.11. 1967, stór- kaupmaður og Anna Lilja Stein- þórsdóttir, f. 9.12. 1906, d. 4.8. 1980, matráðskona. Kristjana átti tvö hálfsystkini, samfeðra, þau Sigríði Theodóru Guð- mundsdóttur, f. 14.2. 1931, hjúkrunarfræðing og Guðmund Eiríksson Guðmundsson, f. 8.3. 1934, d. 18.3. 1989, lög- regluþjón. Eiginmaður Kristjönu var Snorri Ásgeirsson, f. 15.7. 1926, d. 4.5. 1989, rafverktaki. Synir þeirra eru Björgvin Gylfi Snorrason, f. 7.7. 1951, mynd- höggvari og Ásgeir Valur Snorrason, f. 28.12. 1961, svæf- ingahjúkrunarfræðingur. Eig- inkona Björgvins Gylfa er Guð- finna Alda Skagfjörð, f. 2.11. 1953, viðskiptafræðingur. Börn þar til janúarmánuðar 1978. Frá 1979 starfaði hún sem fulltrúi hjá innheimtudeild Landsímans. Árið 1986 var hún ráðin sem deildarstjóri innheimtudeild- arinnar. Í júlí 1990 vann hún sig upp í stöðu skrifstofustjóra hjá innheimtunni. Því starfi sinnti hún allt til starfsloka árið 2002. Kristjana var öflug í ýmsum félagsstörfum. Hún starfaði mikið með Félagi íslenskra símamanna og sat þar í ritnefnd. Hún var hjálparliði hjá Al- mannavörnum um árabil. Þá hélt hún utan um hóp afmæl- isárgangs Siglfirðinga fæddra árið 1932 sem hittust á fimm ára fresti frá árinu 1982. Eftir starfslok starfaði hún hjá Félagi eldri borgara í Kópa- vogi. Fyrstu tvö árin var hún gjaldkeri og tók hún svo við störfum formanns félagsins í mars 2007. Kristjana var for- maður Félags eldri borgara í Kópavogi í sjö ár og var hún gerð að heiðursfélaga þann 22. nóvember 2013. Útför Kristjönu fer fram frá Digraneskirkju í dag, 5. febrúar 2021, klukkan 15. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu geta ein- ungis nánustu vinir og ættingjar verið viðstaddir athöfnina. At- höfninni verður streymt af slóð- inni: https://www.skjaskot.is/kristjana Hlekk á streymið má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat þeirra eru Karen Lilja, f. 14.4. 1985, viðskiptafræðingur og Eva Björk, f. 28.11. 1988, stærð- fræði-hagfræð- ingur. Maki Karen- ar Lilju er Christian Guterres, f. 16.5. 1984, viðskiptafræðing- ur. Synir þeirra eru Tao, f. 2012, Soul, f. 2014, og Matti, f. 2019. Eig- inmaður Evu Bjarkar er Anders Ødum, f. 18.12. 1987, líftækni- fræðingur og eiga þau eina dótt- ur, Solveigu, f. 2019. Eiginkona Ásgeirs Vals er Hildur Gunnarsdóttir, f. 26.9. 1965, sjúkraliði. Dætur þeirra eru Þorbjörg, f. 22.11. 1990, sagnfræðingur, Dagný, f. 3.8. 1996, læknanemi og Anna Lilja, f. 16.9. 2002, menntaskólanemi. Kristjana ólst upp á Siglufirði hjá móður sinni og flutti síðan til Reykjavíkur þegar hún var 13 ára. Kristjana gekk í Verzl- unarskóla Íslands í þrjá vetur. Í apríl 1959 hóf Kristjana störf á Langlínumiðstöð Land- símans. Árið 1972 hóf hún störf sem landsímavörður og starfaði Móðir mín átti mig ung, gift- ist þunguð og með forsetaleyfi, önnur voru afskipti fram- kvæmdavaldsins af hjónaband- inu ekki. Við vorum í 70 ár ferðafélagar, líka þegar fjar- lægðir urðu langar og bréf fylgdu skipaferðum. En því lengri sem fjarlægðir voru, því styttra virtist milli okkar. Hún var móðir, sem vera ber, góð eiginkona föður míns, sem ekki er sjálfgefið. Þeim hjónum get ég líka þakkað ágætan bróður, tíu árum yngri. Ég man fyrst eftir mér sitjandi í bakpoka á baki föður míns, en við þurftum að ganga yfir heiði á Norður- landi, í djúpum snjó þar sem ófærð var og eini ferðamögu- leikinn var flug frá Blönduósi. Þá var ég kannski eins árs, ég man enn þá þung skref foreldra minna og hvítt landslagið. Þau hjónin fluttu fyrstu árin milli byggðakjarna, hann sem raf- magnsmeistari, hún t.d. sem rit- ari á bæjarskrifstofunni á Eyr- arbakka. Hún hafði einstaklega fallega rithönd, skrifaði skýrt og fallega á góðri íslenzku. Hún hafði mjög gott minni, snögg og nákvæm, enda fædd á Siglufirði í síldarævintýrinu með þeim anda sem því fylgdi. Hún orti, spilaði á gítar og söng. Í allri handiðn var hún skapandi og vandvirk. Hún var meistari í mannlegum samskiptum og fé- lagslynd. Hún var svo fróðleiks- fús að ekki var nálgast safnhús án þess að líta inn, og hún var ófeimin að leita nánari upplýs- inga hjá starfsfólkinu. Þar fund- ust ekki framandi tungumál og enginn misskilningur. Hún fang- aði fólk við fyrstu kynni. Það sem hún hafði mesta ánægju af var að dansa, helst heilu kvöldin og fram á nótt, á háum hælum og best með háum herra, Snorra að nafni. Síðasta dansinum hérna megin er lokið, hann var langur með stuttum enda. En dauðadansinn dansaði hún með stolti. Móðir góð, ég sakna þín. Ég sakna þín sem ferðafélaga. Við höldum áfram hvort um sig okk- ar löngu ferð. Björgvin Gylfi. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum móður og tengdamóður. Hún var dóttir einstæðrar alþýðukonu á Siglu- firði sem vann í síld. Þegar hún var 13 ára fluttu þær suður. Kristjana fór í Verslunarskólann og framtíðin virtist björt. Hún skemmti sér með ungu fólki og var í Tívolí með vinum sínum þegar ungur maður féll fyrir henni. Fyrir honum var þetta ást við fyrstu sýn en sú ást var ekki gagnkvæm til að byrja með. Svo fór að hún féll fyrir hávaxna granna manninum og þá hófst farsælt og ástríkt sam- band sem hafði staðið í 39 ár þegar hann féll frá árið 1989. Hún syrgði hann alla ævi og aldrei fann hún sér annan mann. Fyrstu ár þeirra einkenndust af basli, enda var lífið ekki létt á þessum haftatímum. Nánast alla starfsævi sína vann hún á Land- símanum. Tryggð, trúmennska og eljusemi einkenndu störf hennar. Hún vann oft langt fram eftir kvöldi í sjálfboða- vinnu í þágu ríkisins. Í starfi sínu á Innheimtunni kom samúð hennar gagnvart fólki í erfið- leikum sterkt fram. Hún gekk oft langt í að semja við fólk um greiðslur og þurfti oft að verja sitt mál gagnvart yfirmönnum sínum. Sagði hún að ánægja við- skiptavina væri mikilvæg og að þeim ætti að vera umhugað um orðspor fyrirtækisins. Svo fór að hún var kosin starfsmaður árs- ins hjá Símanum og þótti henni vænt um þann heiður. Hennar ljúfustu stundir voru þó á fjöll- um með fjölskyldunni. Þannig fór að þau hjónin keyptu fram- byggðan Willys-jeppa. Og þá hófst tímabil fjallaferða. Ef um var að ræða einhverja sólar- glætu var farið út úr bænum, stundum stutt en oftar lengra en áætlað var. Ferðast var á jeppanum, farnar styttri og lengri gönguferðir, löngu áður en það komst í tísku. Stundum tók hún gítarinn með og alltaf voru þjóðsögur Jóns Árnasonar ómissandi ferðafélagi og fann hún þá hryllilegustu draugasög- urnar til að segja í tjaldinu fyrir háttinn. Þannig voru gömlu hjónin hálfgerðir hippar sem festu sig ekki við veraldlega hluti. Kristjana eignaðist fimm barnabörn og fjögur langömmu- börn. Þau voru alla tíð ofarlega í huga hennar. Dætur okkar minnast góðra stunda með henni. Hún var okkur hjónunum ómetanleg og vildi alltaf verða að gagni. Ef eitthvað kom upp á stóð hún alltaf sem klettur við hlið okkar og verður það aldrei fullþakkað eða metið. Síðustu árin bjó hún í Fann- borg 8 í Kópavogi. Margir minn- ast hennar þar sem hún var á ferðinni á rafskutlunni sinni í Hamraborginni í miðbæ Kópa- vogs. Okkur stóð ekki alltaf á sama. Það fréttist af henni í Smáralind, hún þurfti að skjót- ast í pósthúsið og sinna erind- um. Stundum var orðið lítið raf- magn á skutlunni þegar hún komst heim. En hún missti aldr- ei móðinn og gafst aldrei upp. Heilsan gaf sig smám saman og að lokum var henni ekki stætt á að búa ein. Hún fór á sjúkrahús en endaði á Hrafnistu við Sléttuveg. Í gegnum árin hefur hún þurft að þiggja margvíslega þjónustu. Þar kynntist hún mörgum sem reyndust henni ómetanlega vel og ekki er mögulegt að telja upp hér. Við þökkum þeim allt sem þeir gerðu fyrir hana og okkur. Ásgeir Valur og Hildur. Ég kveð ömmu mína, Krist- jönu Heiðberg Guðmundsdóttur, með miklum söknuði. Það er sárt að sjá á bak ömmu sem var ein helsta stoð og stytta okkar fjölskyldu. Hún var með ein- staklega sterkan og ákveðinn persónuleika og gekk strax í verkin með heilum hug. Hún var mikill vinnuþjarkur og mínar æskuminningar eru af henni í dökkbláu Símaflíspeysunni með farsímann við eyrað. Okkur ömmu kom ekki alltaf vel saman, enda báðar skapstór- ar. Við vorum líkar og ólíkar í senn; báðar þverar en innst inni með viðkvæmt hjarta. Það átti til að koma upp ósætti á milli okkar en vorum fljótar að fyr- irgefa hvor annarri. Við stelpurnar fórum oft í ævintýri með ömmu. Hún lagði upp úr því að við fengjum fræðslu og skemmtun í senn. Stundum gekk ýmislegt á þegar við fórum í þessar ævintýraferð- ir. Einu sinni fór hún með okkur á Náttúrufræðisafn Íslands. Þegar við vorum á leið á safnið lentum við í hvassri vindhviðu sem steypti okkur um koll. Amma fékk stór blæðandi sár á hnén. Þegar við komumst loks- ins inn á safnið hefur eflaust verið sjón að sjá okkur. Full- orðin kona með tvö grátandi börn og stór lykkjuföll á næl- onsokkabuxunum. Safnvörður- inn hefur eitthvað aumkað sig yfir okkur en það eina sem hann gat boðið okkur var smávegis bútur af plástri. Það var mikið hlegið að þessu og töluðum við um þetta sem „rokævintýrið mikla“. Svo má ekki gleyma steina- hoppi, en amma fór stundum með okkur að Kópavogskirkju og leyfði okkur að hoppa á milli steinanna fyrir utan kirkjuna. Oft á tíðum týndi amma gler- augunum sínum þannig að við þurftum að eyða dágóðri stund að leita að þeim. Þau fundust ekki alltaf þrátt fyrir mikla leit. Við amma fórum oft tvær saman í bíó. Hún hafði ótrúlega gaman af því að fara á sögu- legar stríðs- og ævintýramyndir. Oftar en ekki vorum við einu konurnar í bíósal fullum af karl- mönnum og var amma yfirleitt aldursforsetinn. Hún var óendanlega stolt af barnabörnunum sínum og studdi hún okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún hefði sjálf viljað stunda nám við háskóla sem hún hefði lokið með sóma. Amma var ein- staklega vel lesin og fróð um ýmis málefni. Oftast sofnaði hún með gleraugun á nefinu og bók í hendi. Það er svo margt sem ég er henni þakklát fyrir, sérstaklega að hafa ávallt trú á mér. Ég tel það forréttindi að hafa alist upp með ömmu sem fyrirmynd. Hún var ein sterkasta kona sem ég þekki og gekk hún í gegnum líf- ið án þess að láta neitt stoppa sig. Hennar síðustu ár voru erf- ið og var heilsu hennar farið að hraka. Hún var oft verkjuð og átti erfitt með gang. Minnið var hægt og bítandi að tapast og fannst mér á síðustu mánuðum eins og partur af henni væri þegar farinn frá okkur. Þótt hún hafi verið orðinn mikill sjúkling- ur náði hún oft að setja upp það yfirbragð að hún væri hressari en hún var í raun. Innst inni var hún ung kona í blóma lífsins og var því erfitt fyrir hana að láta eftir það sjálfstæði sem hún barðist svo lengi fyrir. Ég trúi því að hún sé komin á betri stað þar sem henni líður betur og hefur loksins fundið hvíldina. Meira á www.mbl.is/andlat Þorbjörg Ásgeirsdóttir. Amma var alveg einstök kona. Hún gerði allt sem hún gat fyrir alla þótt hún þyrfti á meiri aðstoð að halda en þeir sem hún hjálpaði, jafnvel þótt hún hefði aldrei viðurkennt það. Hún gerði allt fyrir mig og hin barnabörnin sín. Þegar ég var lítil fórum við í „leiðangur“ hverja helgi. Það byrjaði ávallt með kjötsúpu í Perlunni þar sem við borðuðum og skipulögð- um daginn. Hún fór með mér í bíó, Þjóðminjasafnið, steinahopp og margt fleira. Ég man að uppáhaldið mitt var steinahopp fyrir framan Kópavogskirkju, hún var svo hrædd um að ég myndi detta en vildi samt að ég hefði gaman. Einnig gætu enn verið einhver gleraugu sem hún týndi þarna. Hún var alltaf til staðar fyrir okkur, ef mamma og pabbi voru að fara eitthvað kom hún heim með ferðatöskuna eða var búin að gera allt klárt heima hjá sér fyrir okkur til að gista. Hún var svakalegur ökumaður og ég veit að ef ég hefði verið eldri hefði ég verið mjög hrædd með henni í bíl. Það var í einu skiptin sem ég sá hana pirraða og oft villt- umst við og vissum ekkert hvert við vorum að fara en þá sagði hún alltaf að þetta yrði bara nýja ævintýrið okkar. Hún fór með mig á marga staði og ekki aðeins í raunveruleikanum; með- an við keyrðum bjuggum við oft til sögur saman eða fórum með gátur. Hún var alltaf að spyrja okkur um námið. Hún hefði elskað að stunda meira nám. Hún hafði áhuga á öllu, hvort sem það var saga, stærðfræði eða hvað sem er. Hún vildi vera til staðar við alla viðburði, hún hefði viljað sjá okkur allar stelp- urnar klára nám, giftast, eignast börn o.fl. en það mun víst vera á annan hátt en við vorum að von- ast til. Ég elska hana svo mikið og ég mun sakna hennar svo mikið. Anna Lilja Ásgeirsdóttir. Ein af fyrstu minningunum sem ég á af ömmu Kristjönu var þegar við sátum í eldhúsinu hennar í íbúðinni sem hún og afi Snorri höfðu byggt sjálf, amma sitjandi í appelsínugula stólnum sínum og ég á litlum brúnum stól að mala kaffibaunir í gam- alli kaffikvörn. Hún var mikil kaffikona en passaði þó alltaf upp á að kaupa sér kaffibaunir því að hún vissi hversu gaman mér þætti að mala þær fyrir hana. Amma var ein gjafmildasta manneskja sem til var. Hún vildi allt fyrir mig og systur mínar gera, hvort sem það var að fara með okkur á náttúru- gripasafn í hávaðaroki eða vera með okkur í steinahoppi til mið- nættis. Ófá skiptin bauð hún okkur í bíó og kom við á víd- eóleigu í heimleiðinni, við mik- inn fögnuð okkar. Mér og ömmu kom alltaf óskaplega vel saman. Þegar ég var um fimm ára gömul byrjaði ég að hafa áhuga á öllu því sem gerðist „í gamla daga“. Ég vildi fá að vita allt um hvernig lífið var í gamla daga og leitaði ég því oft til ömmu Kristjönu sem var algjör viskubrunnur. Við fórum saman á söfn þar til við þekktum þau betur en lófana á okkur, flettum í ættfræðibókum og myndaalbúmum og fórum með vísur og kvæði. Amma var alltaf mjög æv- intýragjörn og hvatvís kona. Það gerðist oft að amma tók mig með í sunnudagsbíltúr og áður en við vissum af vorum við komnar austur fyrir fjall. Einnig fórum við í nokkrar ferðir með Félagi eldri borgara í Kópavogi, þar sem ég var langyngsti far- þeginn. Margar af mínum bestu æskuminningum eru ævintýrin sem ég átti með ömmu Krist- jönu. Þó mun ég sakna góð- mennskunnar hennar mest, hversu tilbúin hún var alltaf að hjálpa hverjum sem þurfti á henni að halda og hversu heitt og innilega hún elskaði fjöl- skylduna sína. Söknuðurinn er mikill og sár en það veitir hug- arró að hugsa um ömmu í app- elsínugula stólnum með kaffi- bollann sinn. Ég vona að afi Snorri standi sig vel við að mala kaffibaunirnar. Dagný Ásgeirsdóttir. Elsku amma Kristjana. Það var alltaf fjör að vera með þér. Við munum sakna þíns góða skaps sem fylgdi þér hvar sem þú varst. Þú hafðir ótrúleg- an hæfileika til að fá alltaf bestu þjónustuna, hvort sem við vor- um á veitingastað eða í mat- vörubúð. Þú hafðir einlægan áhuga á öðru fólki og það hefur gefið þér marga góða vini og góðar stundir í gegnum lífið. Allt sem þú gerðir, gerðir þú með athygli á smáatriðum og allt var gert af mikilli vand- virkni. Þetta endurspeglaðist bæði í starfsævi þinni, þar sem þú stóðst þig alltaf til fullnustu og fékkst mikla viðurkenningu fyrir störf þín, en einnig í öllu sem þú gerðir fyrir okkur, þar sem ekkert var nógu gott. Þú passaðir alltaf upp á að hlutirnir væru gerðir en ekki gleymdust í minnisbókinni. Ef við nefndum hugmynd eða nokkrar hugsanir við þig, þá leið aldrei langur tími áður en hún var vakin til lífsins með hjálp þinni. Þú hefur alltaf verið frá- bær til að efla sjálfstraust okk- ar, hrósa okkur og styðja okkur í öllu sem við höfum gert. Þrátt fyrir að við byggjum langt í burtu komst þú oft að heimsækja okkur til Danmerkur og sást til þess að við ættum ógleymanlega dvöl þegar við vorum hjá þér. Við munum eftir „sleep overs“ hjá þér með frænkum okkar þegar við vor- um litlar. Við fengum okkur pizzu, sáum Kitty Kitty Bang Bang og fórum í óvissuferð um bæinn í Draumaprinsinum. Við vissum aldrei hvað kvöldið myndi bera í skauti sér, en það endaði alltaf með því að það voru óvænt og ógleymanleg kvöld. Það var alltaf rosalega gaman og þú stjanaðir við okkur og gerðir allt fyrir okkur. Í maí 2019 giftum við Anders okkur hér á Íslandi. Þetta var yndislegur dagur sem við mun- um alltaf muna eftir og getum við sérstaklega þakkað þér fyrir það. Þegar ég nefndi það við þig að við vildum halda brúðkaupið á Íslandi varstu fljót að hjálpa okkur að finna hinn fullkomna stað og láta hlutina gerast. Á sjálfan brúðkaupsdaginn varst þú eins og alltaf í fínustu föt- unum þínum (og jafnvel með smá háa hæla, þar sem maður getur ekki komið í brúðkaup án hárra hæla). Það var ABBA show í næsta sal og þú og Ás- geir byrjuðuð dansinn og sáuð til þess að við fengum ógleym- anlega veislu. Þú hefur alltaf verið hluti af lífi okkar og það heldur áfram gegnum þær góðu minningarnar sem við eigum um þig. Það verður ekki það sama að koma til Íslands án þess að sjá þig og njóta samveru þinnar. Eva Björk. Þú varst frábær kona. Eins og í FRÁBÆR. Þú varst góð, gjafmild, víðsýn, ævintýraleg og skemmtileg. Þú varst aðgerða- manneskja og vildir alltaf gera hlutina strax og hjálpa fólki til að koma vandamálum sínum í lag. Þú varst mikilvæg mann- eskja í lífi mínu og ég mun sakna þín óskaplega núna þegar þú ert ekki lengur hjá okkur. Jafnvel þó að við byggjum langt í burtu léstu mig finna að ég var elskuð og mikils metin. Ég mun sakna okkar löngu samtala í síma og synir mínir munu sakna langömmu sinnar. Þeir tala allt- af mjög elskulega um þig og þó að þeir séu ungir þá mun ástin og viðurkenningin sem þeir fundu frá þér hafa áhrif – rétt eins og það hefur haft á mig. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig. Ég man að ég hef alltaf haft svo gaman með þér, sem barn og sem fullorðinn. Ferðir okkar um Ísland í gömlu bláu Lödunni þinni, sitjandi í aftursætinu og borðandi alls konar nammi og við stoppuðum á leiðinni til að klappa köttum, hestum og kindum. Fórum í berjamó til að finna dýrindis bláber. Hestaferðirnar sem við fórum, bara þú og ég. Þú varst alltaf tilbúin í ævintýri og vildir sjá til þess að fólkið í kringum þig upplifði mikið. Eitt sumarið skráðir þú mig í reiðskóla og ég elskaði það – ég er svo þakklát fyrir þá reynslu sem ég fékk, þökk til þín. „The Sleepovers“ með frænkum okkar heima hjá þér, við klæddum okkur í fal- legu fötin þín og settum á okkur fínu skartgripina þína. Þú fórst með okkur í bíó, sund og á flotta veitingastaði. Hvað sem það var, þú gerðir allt skemmtilegt. Þú skilur eftir tómarúm í mínu lífi en þú munt lifa í minn- ingunni og ég mun halda áfram að láta þig hvetja mig til að verða betri manneskja. Ég er þér að eilífu þakklát og ljós þitt mun stöðugt skína í hjarta mínu. Karen Lilja. Kæra vinkona. Nú eru liðin rúm 30 ár síðan við hittumst á námskeiði hjá Jónu Rúnu Kvar- an, – allar þangað komnar til að sjá aðeins meira af alheiminum. Ákveðið var þá, að loknu nám- Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir 26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.