Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021
Vilhjálmur Kári Haraldsson hefur
verið ráðinn þjálfari Íslandsmeistara-
liðs Breiðabliks í knattspyrnu og tekur
við starfinu af Þorsteini Halldórssyni,
landsliðsþjálfara kvenna. Vilhjálmur
var annar tveggja yfirþjálfara barna og
unglinga hjá félaginu síðustu tvö ár.
Ólafur Pétursson, Aron Már Björns-
son og Úlfar Hinriksson verða áfram í
þjálfarateymi liðsins. Kristrún Lilja
Daðadóttir mun þjálfa Augnablik en
samstarf er á milli liðanna.
Ragnar Leósson knattspyrnumaður
frá Akranesi er genginn til liðs við
Fjölni eftir að hafa leikið með Ringköb-
ing í Danmörku í hálft annað ár. Ragn-
ar, sem er 29 ára miðjumaður, lék áður
með Fjölni á árunum 2013-15 en einnig
með ÍA í tvígang, með ÍBV, HK, Leikni
R. og Kára.
Grindvíkingar hafa fengið til sín
ástralskan körfuboltamann, Marshall
Nelson. Hann er 27 ára gamall bak-
vörður og á að fylla skarð Dags Kárs
Jónssonar sem verður frá vegna
meiðsla næstu vikurnar. Nelson, sem
er með belgískt ríkisfang, hefur m.a.
leikið í Svíþjóð og Ástralíu.
Enska knattspyrnusambandið hefur
úrskurðað að það hafi verið rangt af
Mike Dean dómara að reka Jan
Bednarek, miðvörð Southampton, af
velli í 9:0 ósigri liðsins gegn Man-
chester United á þriðjudagskvöldið.
Bednarek fer því ekki í leikbann.
Finnski knatt-
spyrnumaðurinn
Elias Tamburini
sem hefur leik-
ið með
Grindvík-
ingum
undan-
farin þrjú
ár er genginn til liðs
við Skagamenn.
Tamburini er 25 ára
gamall vinstri bakvörð-
ur eða kantmaður og
lék áður með yngri
landsliðum Finnlands.
Eitt
ogannað
EM 2021
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sterkt lið Grikklands reyndist núm-
eri of stórt fyrir lið Íslands þegar lið-
in mættust í undankeppni EM
kvenna í körfuknattleik í gær en leik-
ið var í Ljubljana í Slóveníu.
Íslenska liðið lék vel lengst af í
fyrri hálfleik og leikurinn var í járn-
um fram í annan leikhluta. Að honum
loknum var staðan 43:31 eftir góða
rispu Grikkja í öðrum leikhluta. Þær
grísku stungu af í síðari hálfleik og
unnu stórsigur, 95:58. Úrslitin koma
ekki sérstaklega á óvart þar sem
gríska liðið er í fremstu röð og ís-
lenska liðið hefur ekki náð góðum úr-
slitum síðustu árin. Þar að auki má
Ísland illa við því að vera án Helenu
Sverrisdóttur enda hefur hún lengi
verið í sér gæðaflokki meðal ís-
lenskra leikmanna.
Eitt af því sem gerði íslenska lið-
inu erfitt fyrir var að í byrjunarliðinu
var enginn eiginlegur miðherji. Hild-
ur Björk Kjartansdóttir er góður
leikmaður nærri körfunni en hún er
hins vegar framherji í grunninn.
Þegar þessi lið mættust í nóvember
2019 vann Grikkland 89:54 og því var
kannski fyrirséð að erfitt yrði fyrir
íslensku vörnina að verjast sóknum
Grikkja.
Leikur íslenska liðsins framan af
leik var engu að síður nokkuð sem
byggja má ofan á. Ákefðin var til
staðar og íslenska liðið hékk í því
gríska fram í annan leikhluta. Getu-
munurinn á leikmönnum er bara of
mikill til að halda spennu lengi fram
eftir leiknum. Mér fannst ég sjá mun
á sóknarleik íslenska liðsins frá síð-
ustu leikjum í nóvember. Ef til vill
var spilamennskan þá lítt marktæk
þar sem íslensk lið voru í æfinga- og
keppnisbanni. Margt gott mátti sjá í
sóknum Íslands í fyrri hálfleik. Liðið
sýndi klókindi í því að búa til skot-
færi gegn sterkum andstæðingi. Sara
Rún Hinriksdóttir var áræðin eins og
hún þarf að vera og Hildur Björg
Kjartansdóttir stendur iðulega fyrir
sínu. Þóra Kristín Jónsdóttir er orðin
mun öruggari í hlutverki leikstjórn-
anda. Henni var ungri treyst fyrir
því hlutverki og er það að skila sér.
Þá átti Bríet Sif Hinriksdóttir góðan
leik og skoraði 11 stig á þeim fjórtán
mínútum sem hún var inni á.
Ísland mætir Slóveníu á sama stað
á laugardaginn en Ísland er í neðsta
sæti A-riðils án stiga. Slóvenía hefur
unnið alla fimm leikina.
Góð byrjun var ekki nóg
Öruggur sigur
Grikkja í Slóveníu
Ljósmynd/FIBA
Stigahæst Sara Rún Hinriksdóttir lék á köflum vel í sókninni gegn sterku liði Grikklands í gær.
Sænska knattspyrnufélagið Sirius
er í þann veginn að kaupa Aron
Bjarnason af Újpest í Ungverja-
landi, samkvæmt heimildum Fot-
bollDirekt í Svíþjóð, fyrir eina
milljón sænskra króna. Aron, sem
er 25 ára kantmaður, var í láni hjá
Val frá ungverska félaginu á síð-
asta ári og skoraði sjö mörk í átján
leikjum þar sem hann varð Íslands-
meistari með Hlíðarendaliðinu. Si-
rius er frá háskólabænum Uppsala
og varð í tíunda sæti af sextán lið-
um í sænsku úrvalsdeildinni á síð-
asta ári.
Aron á leiðinni
til Svíþjóðar
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Aron Bjarnason fer vænt-
anlega til Sirius frá Uppsala.
Handknattleikskonan Stella Sig-
urðardóttir leikur ekki með Fram
næstu vikurnar eftir að hafa rif-
beinsbrotnað í leik liðsins við FH
fyrir skömmu. Hún var ekki með í
leikjunum við KA/Þór og Stjörn-
una, eftir að hafa spilað gegn ÍBV
og FH, og staðfesti við Vísi í gær að
hún yrði væntanlega frá keppni í
fjórar til sex vikur. Stella hóf að
leika handbolta á ný í janúar-
mánuði eftir tæplega sjö ára fjar-
veru en leikurinn gegn FH var að-
eins hennar annar leikur eftir
endurkomuna.
Stella frá í
nokkrar vikur
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Meiðsli Stella Sigurðardóttir í
hörðum slag í leiknum við FH.
Stozice Arena, Ljubljana, Slóveníu,
undankeppni EM kvenna, A-riðill,
fimmtudag 4. febrúar 2021.
Gangur leiksins: 17:22, 14:21,
17:28, 58:95.
Ísland: Sara Rún Hinriksdóttir 17,
Hildur Björg Kjartansdóttir 13,
Bríet Sif Hinriksdóttir 11, Þóra
Kristín Jónsdóttir 10, Dagbjört
Dögg Karlsdóttir 3, Hallveig Jóns-
dóttir 2, Lovísa Björt Hennings-
dóttir 2.
ÍSLAND – GRIKKLAND 58:95
Grikkland: Anna Spyridopoulou
18, Artemis Spanou 15, Eleanna
Christinaki 13, Eleni Bosgana 12,
Maria Fasoula 10, Anna Stamo-
lamprou 8, Angeliki Nikolopoulou
7, Ioanna Diela 6, Aikaterina Sot-
iriou 4.
Dómarar: Michal Proc, Póllandi,
Andrei Sharapa, Hvíta-Rússlandi,
Mikhel Männiste, Eistlandi.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Gylfi Þór Sigurðsson og Ásgeir Sig-
urvinsson, tveir af fremstu knatt-
spyrnumönnum Íslandssögunnar,
hafa nú skorað nákvæmlega jafn-
mörg mörk í deildakeppni erlendis
eftir að Gylfi skoraði fyrir Everton í
sigri á Leeds í ensku úrvalsdeildinni
í fyrrakvöld, 2:1.
Gylfi skoraði þar sitt 96. deilda-
mark á ferlinum. Þar af eru 64 í
ensku úrvalsdeildinni fyrir Everton,
Swansea og Tottenham, 19 fyrir
Reading í B-deildinni, þrjú fyrir
Crewe í C-deildinni og eitt fyrir
Shrewsbury í D-deildinni. Til við-
bótar skoraði Gylfi 9 mörk fyrir Hof-
fenheim í efstu deild Þýskalands.
Mörk Ásgeirs í deildakeppni er-
lendis voru líka 96 og öll í efstu deild.
Þar af 57 fyrir Standard Liege í
Belgíu, eitt fyrir Bayern München
og 38 fyrir Stuttgart í Þýskalandi.
Fimm Íslendingar hafa skorað
fleiri deildamörk erlendis en Ásgeir
og Gylfi. Heiðar Helguson er marka-
hæstur með 133 mörk en á eftir hon-
um koma Eiður Smári Guðjohnsen,
Alfreð Finnbogason, Arnór Guð-
johnsen og Viðar Örn Kjartansson.
Morgunblaðið/Bjarni
1990 Ásgeir Sigurvinsson – 96.
Gylfi Þór jafnaði
metin við Ásgeir
Báðir með 96 deildamörk erlendis
AFP
2021 Gylfi Þór Sigurðsson – 96.
Grill 66 deild karla
Haukar U – HK .................................... 16:27
Staðan:
Víkingur 7 6 0 1 184:166 12
HK 7 5 0 2 200:153 10
Fjölnir 7 4 2 1 199:183 10
Valur U 7 5 0 2 204:196 10
Kría 7 4 1 2 194:188 9
Haukar U 7 3 0 4 172:177 6
Selfoss U 7 2 1 4 193:202 5
Hörður 5 2 0 3 153:158 4
Vængir Júpíters 7 1 0 6 141:189 2
Fram U 7 0 0 7 174:202 0
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Meshkov Brest – Flensburg ............... 26:28
Alexander Petersson skoraði eitt mark
fyrir Flensburg.
B-RIÐILL:
Veszprém – Barcelona........................ 34:37
Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk fyrir
Barcelona.
Danmörk
Skanderborg – Aalborg...................... 33:29
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Pólland
Kwidzyn – Kielce................................. 24:34
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2
mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er
frá keppni vegna meiðsla. Kielce hefur unn-
ið alla ellefu leiki sína í vetur.